Morgunblaðið - 29.04.1998, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Hasarmynd
með Mark
Wahlberg á
toppinn
NÝJASTA mynd leikarans Marks
Wahlberg „The Big Hits“ náði
efsta sæti listans þegar hún var
frumsýnd um síðustu heigi
vestra. Um er að ræða hasar-
mynd með gamansömu ívafi en
auk Wahlbergs, sem síðast Iék
klámmyndastjörnu í „Boogie
Nights", leika í myndinni Lou Di-
amond Phillips, Antonio Sabato
Jr., China Chow og Christina
Applegate. Þetta er fyrsta kvik-
myndin sem leikstjórinn Che-
Kirk Wong gerir í Bandaríkjun-
um og kostaði hún aðeins 13
milljónir dollara í framleiðslu.
Rómantíska myndin „City of
Angels“ með þeim Nicolas Cage
og Meg Ryan féll niður í annað
sæti listans og Jennifer Aniston
fór niður í það þriðja með sína
rómantísku mynd.
Það vekur athygli að „Scream
2“ sem var frumsýnd í lok sfðasta
árs fór aftur í dreifingu og náði
tíunda sæti listans sem verður að
teljast fremur gott.
Nýjasta mynd Roberts Downey
Jr. „Two Girls and a Guy“ var
sýnd í nokkrum kvimyndahúsum
og þótti ekki fá nógu góða að-
sókn. Ekki er hægt að segja það
sama um nýjustu mynd Gwyneth
Paltrow „Sliding Doors“ sem
einnig vax sýnd í nokkrum vel
völdum kvikmyndahúsum því að-
sókn á hana iofar mjög góðu.
Titill Síðasta vika Alls
1. H The Big Hit 778m.kr. 10,8 m.$ 10,8 m.$
2. (1-) City of flngels B49m.kr. 9,0 m.$ 46,6 m.$
3. (2.) The Object of My Affection 372 m.kr. 5,1 m.$ 17,1 m.$
4. (4.) Titanic 356 m.kr. 4,9 m.$ 561,0 m.$
5. (5.) Paulie 316m.kr. 4,4 m.$ 10,8 m.$
6. (3.) Lost in Space 289 m.kr. 4,0 m.$ 58,1 m.$
7. H The Odd Couple II mm.kr. 2,5 m.$ 14,1 m.$
8. (8.) Mercury Rising 155 m.kr. 2,2 m.$ 27,9 m.$
9. (9.) The Players Club 146 m.kr. 2,0 m.$ 17,4 m.$
10. (134) Scream2 129m.kr. 1,8 m.$ 98,1 m.$
Morgunblaðið Jón Svavarsson
BJARNI Grímsson strýkur úr penslinum og Lasse Nederoued frá
Norska sjónvarpinu festir framkvæmdirnar á filmu.
Frumsýn-
ing hjá
Gwyneth
Paltrow
LEIKKONAN Gwyneth Pal-
trow stillti sér upp fyrir
ljósmyndara þegar hún
mætti til frumsýningar á
myndinni „Sliding Doors“ í
New York á dögunum.
Myndin var opnunarmynd
Sundance-kvikmyndahátíðar-
innar fyrr á ái-inu.
í myndinni, ‘sem gerist í
London, leikur Gwyneth
enska stúlku sem liflr tvöfoldu
lífi. MóUeikarar hennar eru
Bretinn John Hannah, sem lék
meðal annars í Fjögur brúð-
kaup og jarðai’fór, og leikkon-
an Jeanne Tripplehorn, sem
lék í „Waterworld“.
Kaffi Frank í
norska sjónvarpinu
KAFFI Frank heitir nýr kaffibar,
sem opnaður verður í Lækjargötu
6 næstkomandi fimmtudag. „Þetta
er staður sem er kominn til að
vera,“ sagði Bjarni Grímsson,
framkvæmdastjóri staðarins, en
þar hefur að undanförnu verið
unnið að breytingum á
innréttingum og
skreytingu hins nýja
kaffibars. Og sem
menn voru þar í miðj-
um klíðum að mála
og snurfusa rakst
inn norskur sjón-
varpsmaður, Lasse
Nederoued, og tók
að filma í gríð og
erg.
Lasse þessi
stjórnar þætti í
norska ríkissjón-
varpanu,
„Ungdom-Filter",
sem fjallar um
ungt fólk og við-
fangsefni þess og
er leitað fanga
víða um heim. Norski sjónvarps-
maðurinn kom hingað til lands á
vegum menningarfyrirtækisins
„Nótt og dagur“ og tók nokkur at-
riði af ungu fólki á íslandi, þar á
meðal af hinu unga athafnafólki á
Kaffi Frank, og verður þátturinn
sýndur innan skamms í norska
ÞAÐ var mikið
»Por. «l— rySS'Z
MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1998 57-
qæludyr
( ATH! AðeinsQpjkr. róðin )
- til dæmis nokkra
heimilisketti!
í kvöld er dregið í Víkingalottóinu
um tugi milljóna króna!
Fáðu þér miða fyrir kl. 1B í dag.