Morgunblaðið - 29.04.1998, Qupperneq 58

Morgunblaðið - 29.04.1998, Qupperneq 58
58 MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Gaman er að koma í ' Keflavík Mikið var um dýrðir í Keflavík þegar Fjöl- brautaskóli Suðurnesja hélt árshátíð og 'kvaddi um leið skammdegið á síðasta degi vetrar. Guðmundi Asgeirssyni var boðið ásamt ljósmyndara á ball í Stapa. DAGSKRÁIN var frá morgni fram á rauða nótt. Fyrst fór fram skemmti- dagskrá sem hófst fyrir hádegi. Tívolístemmning ríkti við skólann þar sem komið hafði verið upp sirkustjaldi. Þama var fata- markaður, tombóla, risatrampólín og tónlist. Kennurum var att saman í tertuslag og valdir voru afreks- menn úr röðum nemenda. Mikil 'stemmning ríkti að vonum, enda léku veðurguðirnir við nemendur, áhorfendur og hvern sinn fíngur. Tombólumiðarnir ruku út á örskots- stundu, rétt eins og fótin á mark- aðnum og ekki leið á löngu áður en dagskrá morgunsins var tæmd. Kvöldverður í Stapa Hlé var gert á skemmtunum frá hádegi fram að kvöldmat, enda veitti nemendum ekki af þeim tíma til að snyrta sig og snurfusa fyrir aðalatriði hátíðarinnar í Stapa. Þangað tíndust nemendur og kenn- arar um hálfáttaleytið í sínu alfín- asta pússi. Greinilegt var að allir voru í miklu hátíðarskapi og ófá glæst ungmennin settust til borðs í þessu musteri rokksins í Keflavík. Fjölbrautaskóli Suðurnesja er miðstöð mennta fyrir allt Reykja- nes og þar stunda nám unglingar hvaðanæva að úr kaupstöðum í kring um Reykjanesbæ. Um sjöhundruð nemendur eru við skól- ann þótt ekki hafí þeir allir mætt til borðhalds þetta kvöld. Matargestir voru um hálft annað hundrað, að kennaraliði skólans meðtöldu. Stap- inn rúmaði þennan fjölda vel, enda hefur staðurinn hýst stóra hópa skemmtanaglaðs fólks á öllum aldri í gegnum árin. Salurinn er skreytt- ur risastónim myndum af keflvísk- um rokkgoðum fyrri ára. Það þótti undrum sæta hér áður fyrr ef menn náðu metorðum í tón- listarheimi íslands, en fæddust ekki í Keflavík og Stapinn var um tíma eitt alræmdasta fjörbæli landsins. Þetta síðasta kvöld vetrarins hófst hins vegar á rólegu nótunum í sam- ræmi við ljúfa dinnertónlist sem streymdi frá myndarlegum flygli á sviðinu. Borðhald og skemmtidagskrá Þegar gestir voru sestir fóru þjónar að þjóna. Þeir báru fram aspassúpu og síðan kryddlegið lambalæri með parísarkartöflum, ristuðu grænmeti og villi- sveppasósu. Augljóst var að matar- gestir nutu veitinganna út í æsar, en að borðhaldi loknu hófst skemmtidagskrá. Formaður nem- endafélagsins steig fyrst á svið. Hún flutti stuttan annál um við- burði vetrarins, gleðilega jafnt sem sorglega. Að ávarpi loknu tók Leikklúbbur FS athyglina og flutti brot úr verkefnum vetrarins í leik- listinni. Nokkur vafi lék á kynferði sumra leikaranna, sem reyndust, þegar betur var að gáð, piltar í óhefð- bundnum klæðum. „Dragdrottning- ar“ þessar ýmist kynntu atriðin eða YNGINGARVÉLIN sló í gegn en það voru kennararnir sem sáu um það skemmtiatriði. NOKKRIR piltar fluttu heima- gerða og nýstárlega leikgerð ævintýrisins um Rauðhettu litlu. sem margir hverjir tóku hraustlega undir þegar „Svarthvíta hetjan“ var að lokum flutt. Það er erfitt að segja til um hvað var hápunktur kvöldsins í þessu flóði ágætra atriða, en samtals voru þau fjórtán. Sýning stuttmyndar mjmdbandaklúbbsins var þó nálægt tindinum. Að sögn Kamillu, varafor- manns nemendafélagsins, hefur lengi verið mikil gróska í þessum klúbbi og hefð fyrir að sýna afurð vetrarins á árshátíð. Að þessu sinni kynntu „Fluffy Pictures", eins og útgáfufyrirtæki klúbbsins nefnist, myndina „I sixties sveiflu". Myndin fjallar um furðulega fjöl- skyldu og gerist, eins og titillinn gefur til kynna, á sjöunda áratugn- um. Þrátt fyrir augljóst aðstöðu- leysi og lágan framleiðslukostnað tókst aðstandendum að skapa skemmtilega mynd sem greinilega féll vel í kramið hjá áhorfendum. Nú fóru lok skemmtidagskrárinnar að nálgast. Nokkrir piltar fluttu heimagerða og nýstárlega leikgerð ævintýrisins um Rauðhettu litlu þar sem úlfurinn endaði með að myrða Súperman sem hafði reynt að hjálpa litlu stúlkunni í nauðum líkt og veiðimaðurinn forðum. Rauð- hetta viröst nú hins vegar á bandi úlfsins þegar í harðbakkann sló og studdi hann með ráðum og dáð við ódæðið. Verkið var rofið af fjórum piltum sem tóku til við að stíga eggjandi dans við undirleik dynjandi diskótónlistar og fækkuðu fötum að fyrirmynd hetjanna í kvikmyndinni vinsælu „The Full Monty“. Birta Rós Sigurjónsdóttir var síðust skemmtikrafta á svið. Hún söng fal- lega ballöðu af listfengi og innlifun sem var ljúfur endapunktur vel heppnaðrar skemmtidagskrár. Og svo var djammað En þótt skemmtiatriðum væri lokið var fólk ekki hætt að skemmta sér. Gert var hlé á hátíðahöldum í Stapa á meðan gengið var frá saln- um fyrir dansleik kvöldsins. Hljóm- sveitin Moonboots var væntanleg á sviðið þar sem hún átti að leika fyrir villtum dansi fram á rauða nótt. Á meðan beðið var flykktust nemend- ur í Sjálfstæðishúsið þar sem stemmningin var skrúfuð upp fyrir sjálft ballið. Hlut kennaranna í skemmtanahaldi kvöldsins virtist lokið þegar hér var komið sögu og eitthvað virtist stemmningin breyt- ast við það. Markmiðið var jafn- framt ljósara, því nú var aðeins eitt eftir, að sletta ærlega úr klaufun- um. Blaðamanni og ljósmyndara þótti vissara að láta þar staðar numið, fara að dæmi kennaranna og hafa sig heim í háttinn. Nemendur Fjölbrautaskóla Suðurnesja voru hins vegar rétt orðnir heitir. Framundan var nóttin öll, sem enn var ung. THELMA ððhannesdóttir, Melina McNeilIy Campel og Kamilla I„«ri ber^ottv Utu vH eltt hábortH híffc e6öl tóku þátt í þeim. Leikarar viku fyrir söngspírum skólans. Fyrstur steig á svið fóngulegur hópur stúlknanna í kvennakórnum. Þær fluttu tvö lög áður en þær hleyptu þiltunum í karlakórnum að. Þegar þeir höfðu sungið sitt síðasta sameinuðust kór- arnir og þá stóð á sviðinu skólakór- inn í allri sinni dýrð. Kennarar yngjast í anda Nú var komið að kennurum að skemmta árshátíðargestum. Hópur þeirra flutti bráðskemmtilegt atriði þar sem hálfbrjálað vísindakvendi ásamt illa gefnum aðstoðarkrypp- lingi neyddi nokkra kennara inn í yngingarvél á sviðinu. Yngingin misheppnaðist greinilega eitthvað, því vesalings tilraunadýrin þjáðust af ýmiskonar aukaverkunum þegar þau stigu út úr vélinni. Skólameist- arinn hafði ummyndast í blöndu af rastafara, hipp-hoppara og erki- unglingi, sem talaði óskiljanlega tánísku af stakri snilld. Einn kennaranna hafði fengið helst til mikla yngingu og var borinn út úr vélinni í tveimur tilraunaglösum. Vísindakvendið þurfti svo að sam- eina innihald glasanna til að fram- kalla getnað. Aðrir lentu í öðrum en álíka slæmum hremmingum. Hljómsveitin Sjálfumglöðu ridd- ararnir tók við. Hana skipuðu fjórir piltar sem fluttu tvö hávær og hressileg lög. Þeir gátu því miður ekki orðið við uppklappinu, því þeir kunnu ekkert „fleira“ eins og söngvarinn orðaði það. Ef einhver hefur velt því fyrir sér hvað varð um Erlu „dúkkulísu" eftir að hún hvarf úr sviðsljósinu þá skal það upplýst að hún kennir nú sagn- fræði í Keflavík. Hún hefur hins vegar engu gleymt úr rokkbransan- um eins og hún sannaði þegar hún steig á svið á Stapanum og söng fyr- ir nemendur sína og samkennara við stórfenglegar undirtektir. Líkt og Erla hefur „Pamela í Dallas" skipt um starf. Hún er nú ljóshærð og starfar sem strandvörður í Kali- forníu. Það er vonandi, en ólíklegt, að jafn vel sé íylgst með því sem Erla hefur fram að færa í kennslu- stundum í FS því á árshátíðinni átti hún fulla athygli allra viðstaddra, Morgunblaðið/Jón Svavarsson „SVARTHVITA hetjan mín“ söng „dúkkulísan" og kennarinn Erla við mikinn fögnuð viðstaddra. DANSINN dunaði langt fram á nótt hjá nemendum Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.