Morgunblaðið - 23.07.1998, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 23.07.1998, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Halldór Blöndal og Christos Papoutsis funda um ferðamál í Brussel ; Samstarf milli ESB og Islands verði endurnvjað HALLDÓR Blöndal samgönguráð- herra átti í gær fund í Brussel með Christos Papoutsis, sem fer með ferðamál í framkvæmdastjóm Evr- ópusambandsins. Tilgangur fund- arins var að sögn Halldórs að reyna að koma á nýjan leik á samstarfí Is- lands og ESB í ferðamálum, sem ráðherrann segir að hafi skilað miklu. Tók Papoutsis málaleitan samgönguráðherra vel og var að hans sögn fús til samstarfs. Halldór segir að Island hafí áður átt gott samstarf við ESB á sviði ferðamála, bæði hvað varðaði um- hverfísmál og menningarmál. Hluti af því samstarfi hafi verið á sviði umhverfisvænnar ferðamennsku og hafi verið efnt til samkeppni um það hvaða sveitarfélag á íslandi skaraði framúr í „grænni ferða- þjónustu“. Varð Kirkjubæjar- klaustur þ_ar hlutskarpast. Jafn- framt hafi ísland tekið þátt í verk- efninu „Roots to Roots“, en í því fólst að aðstoða afkomendur evr- ópskra innflytjenda vestan hafs við að finna rætur sínar. Tóku Ferða- þjónusta bænda og Vesturfarasetr- ið á Hofsósi þátt í því samstarfi, að sögn Halldórs. Ráðherra segir að þessi sam- vinna hafi fallið niður vegna þess að EFTA-ríkin ísland og Noregur hafi talið að markmið ferðamála- stefnu ESB hafi ekki verið nægi- lega vel skilgreind. Nú sé hins veg- ar áhugi fyrir því, af íslands hálfu, að endurnýja samstarfið og hafi Papoutsis tekið vel málaleitan þar um. Ný framkvæmdaáætlun Halldór segir að ESB hafi skipað 15 manna nefnd sérfræðinga, sem eigi í september næstkomandi að skila álitsgerð um atvinnusköpun í ferðaþjónustu og greinum tengdum henni. Alitið verður sent ríkjum ESB og Evrópuþinginu til umsagn- ar og segir Halldór Papoutsis hafa boðið EFTA-ríkjunum að þau fengju álitið einnig til umsagnar. Þá er í smíðum ný framkvæmdaá- ætlun ESB í ferðaþjónustu og segir ráðherra Islendinga sækjast eftir aðild að henni. „Við teljum að við höfum haft mikið gagn af samvinnu okkar við Evrópusambandið á sínum tíma og að hún hafi skilað okkur Is- lendingum miklu. Þess vegna leggjum við áherzlu á að við get- um komið að þessum málum báð- um,“ segir Halldór. „Við teljum mikilvægt að ferðamálastefna ESB nýtist okkur í Norðvestur- Evrópu líka og lagði ég í því sam- bandi áherzlu á rannsóknir, sem tengjast landafundum og sigling- um víkinga til Ameríku.“ Halldór segist nú munu taka málið upp innan EFTA og við ferðamálaráðherra Noregs til þess að EFTA-ríkin geti aftur orðið virk í þessari samvinnu. Þörungaverksmiðjan á Reykhólum Mjölturn laskast við útskipun ÞAK Á öðrum mjölturni Þörunga- verksmiðjunnar á Reykhólum er talið ónýtt eftir að það sogaðist niður í tuminn þegar verið var að skipa út mjöli. Að sögn Guðmundar Sigvalda- sonar verksmiðjustjóra er ekki vitað hversu mikið tjónið er en von er á matsmönnum næstu daga. Tumarnir era 30 metrar á hæð og sagði Guðmundur að þegar búið hefði verið að skipa út um fjóram metram af mjöli neðan úr tuminum hefðu set- ið eftir um 600 tonn efst í tuminum. Þegar þau féllu niður sogaðist þakið með niður í tuminn. Sagði hann að mjölið hefði fallið með miklum hraða og að útloftun efst í tuminum hefði ekki verið næg þannig að þakið hefði dregist með niður. Morgunblaðið/Arnaldur Samvinnulífeyris- sjóðurinn Ráðstafa má 1,5% framlagi FLESTALLIR kjarasamningar á vinnumarkaði gera ráð fyrir að 10% af launum renni í lífeyris- sjóð, þar af 6% frá atvinnurek- anda og 4% frá launþega. í samningi ASÍ og Vinnumála- sambandsins frá 1986 var ið- gjaldið hins vegar hækkað upp í 11,5%, þar af 7% frá atvinnurek- anda og 4,5% frá launþega. I tengslum við gildistöku nýju lífeyrislaganna ákvað Samvinnulífeyrissjóðurinn að' iðgjald umfram 10%, þ.e. 1,5%, væri séreignartillegg. Stofnuð var sérstök séreignardeild í sjóðnum í því augnamiði. Sam- kvæmt 1. mgr. 5. gr. nýju lífeyr- islaganna getur sjóðfélagi ráðið því hvar hann ávaxtar séreign- artilleggið. Því telur Samvinnu- lífeyrissjóðurinn eftir lögfi-æði- lega athugun að ákvæði kjara- samningsins frá 1986 verði að víkja að þessu leyti. Margeir Daníelsson fram- kvæmdastjóri sjóðsins segist þó búast við að flestir sjóðfélaga haldi tryggð við sjóðinn enda muni ávöxtun séreignarfram- lagsins verða falin verðbréfa- fyrirtæki í kjölfar útboðs. I S I ; t i Trillukarlar | fiska vel * MIKIÐ fiskirí hefur verið hjá trillukörlum á Vestfjörðum í sumar og eru dæmi þess að bátar hafi farið tvisvar út sama daginn. Aðalsteinn Bjarnason á Bjarney IS er einn aflahæstur skakara á svæðinu en fyrstu 15 daga sum- arsins fékk hann 65 tonn eða um 4 tonn í róðri. Hann rær einn og brá Morgunblaðið sér í túr með I honum á mánudag. ■ Fékk 6,4 tonn/10 Framkvæmdastjóri Félagsbústaða hf. um nýtt greiðslufyrirkomulag leigu og vanskil Fólk ekki borið út nema búið só að leita allra leiða FÉLAGSBÚSTAÐIR hf. hafa tekið upp samstarf við íslandsbanka um innheimtu húsaleigu í gegnum inn- heimtukerfi bankans. Fengu leigu- takar í félagslegu leiguhúsnæði Fé- lagsbústaða senda heim greiðslu- seðla vegna þessa nýja fyrirkomu- lags í fyrsta skipti um seinustu mán- aðamót. Þeir sem ekki höfðu staðið skil á leigunni fyrir 10. júlí fengu senda ítrekun og aðvöran frá bank- anum. Hefur þetta nýja fyrirkomu- lag við innheimtu leigunnar vakið nokkur viðbrögð meðal leigjenda en Sigurður Kr. Friðriksson, fram- kvæmdastjóri Félagsbústaða, segir að leigutökum hafi einnig verið sent bréf tö skýringar á þessu greiðslu- fyrirkomulagi húsaleigu og á af- greiðslu húsaleigubóta. „Það kann að vera, vegna þess að við eram að stíga okkar fyrstu spor, að einhverjir sem búnir eru að greiða leiguna hafi engu að síður fengið ítrekunarbréf, þar sem miðað er við 10. hvers mánaðar. En tekið er fram í bréfinu að ef viðkomandi hef- ur þegar greitt leiguna er hann beð- inn velvirðingar á þessu ítrekunar- bréfi. Þetta era ekki harðar inn- heimtuaðgerðir heldur venjulegir viðskiptahættir," segir Sigurður. Sigurður segir aðspurður að tekjulágir leigjendur sem ekki geta staðið skil á leigunni verði að leita til Félagsmálastofnunar um aðstoð eða styrk til að geta greitt leiguna eða leita annarra úrræða. Hann segir að leigjendur í vanskilum sem ekki eru aflögufærir um greiðslu leigu verði þó ekki látnir rýma hús- næðið heldur verði reynt að aðstoða þá við að leita sér ráðgjafar hjá Ráðgjafarstofu um fjármál heimila eða þeim bent á að leita aðstoðar Félagsmálastofnunar. „Það er náttúrulega síðasta úr- ræðið að bera fólk út og það er ekki gert nema búið sé að leita allra leiða og það liggi fyrir að menn séu borg- unarmenn fyrir leigunni. Sú skylda hvílir á sveitarfélaginu að sjá því fólki sem ekki er aflögufært fyrir húsnæði og Félagsmálastofnun sér um að halda því til reiðu. Skylda sveitarfélagsins hefur ekkert minnk- að gagnvart tekjulágu fólki sem ekki er aflögufært þó að Félagsbústaðir hf. hafi verið stofnaðir," segir hann. Sigurður segir að þótt húsaleiga hjá Félagsbústöðum hafi hækkað 1. júlí hafi greiðslubyrði leigjenda ekki aukist af þeim sökum því leigjendur í félagslegu húsnæði fái nú húsaleigu- bætur sem gangi beint til Félagsbú- staða til frádráttar á leigunni. „Húsaleigubætur eftir skatta eiga að dekka þá hækkun sem verður á leig- unni þannig að fólk á að vera jafnsett eftir sem áður og greiðslubyrði þess á ekki að þyngjast,“ segir hann. Sig- urður segir ennfremur að ef dæmi séu um að greiðslubyrði einhverra leigjenda hafi þyngst stafi það af því að bætur til þeirra hafi verið skertar vegna hárra tekna. 8SÉMJR VIDSiaPnMVINNULÍF FJÁRMÁL Uppskeru hátíð Spenna á fjár- málamarkaði/B4 TÖLVUR Tækni- val Kaupa hlut í Tæknival hf/B2 Erfiður róður framundan hjá ÍA og ÍBV/C2 •••••••••••••••••••••••••• ÍR-ingar fá frekari liðs- styrk frá Skotlandi/C3 Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is I í í I I I I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.