Morgunblaðið - 23.07.1998, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1998 21
Á annað hundrað látnir í hitabylgjunni í Bandaríkjunum
Hefur veruleg áhrif
á daglegt líf fólks
Dallas, Oklahomaborg. Reuters.
HITABYLGJAN í sunnan- og aust-
anverðum Bandaríkjunum hefur
kostað að minnsta kosti 120 manns
lífið, aðallega aldrað fólk, sem látist
hefur á heimili sínu. Er ástandið
farið að hafa veruleg áhrif á dag-
legt líf fólks á þeim svæðum, sem
verst hafa orðið úti.
Oldruðu fólki og sjúku er hættast
í hitanum og hafí það ekki loftkæl-
ingu eða nægileg drykkjarföng er
því voðinn vís. Hafa borgaryfirvöld
og hjálparstofnanir átt í önnum við
að útvega fólki þessa hluti, einkum í
fátækrahverfunum, en nokkur
dæmi eru um, að einstæðingar hafi
látist vegna þess, að þeir töldu sig
ekki hafa efni á nota lofkælinguna.
I Texas hafa a.m.k. 82 menn lát-
ist af völdum hitans, þar af rúmlega
40 Mexikómenn, sem reyndu að
komast ólöglega inn í Bandaríkin. í
Louisiana var vitað um 24 dauðsfóll
í gær og 13 í Oklahoma.
Hitabylgjan í Suðurríkjunum
hefur verið að teygja sig norður
með austurströndinni, alla leið til
Nýja Englands, en annars er
óvanalega heitt í öllu landinu. Spá
veðurfræðingar sama veðrinu
áfram, að minnsta fram yfir helgi.
Líkaminn nær
ekki að kólna
Sumrin í Texas eru alltaf heit og
hitatölurnar nú era í sjálfum sér
ekkert óvenjulegar. Munurinn er
bara sá, að það er ekkert lát á hita;
svækjunni, hvorki á nóttu né degi. I
Texas hefur hitinn ekki farið niður
fyrir 38 gráður á celsíus í 17 daga
og er oft yfir 40 gráðunum.
„Líkaminn nær ekki að kæla sig
á nóttunni og þegar á því gengur
dögum og jafnvel vikum saman er
hætta á ferðum," sagði Scott Wiley,
veðurfræðingur í Fort Worth.
Rafmagnsnotkun í Dallas hefur
aldrei verið meiri en nú síðustu vik-
urnar og ýmis íyrirtæki, til dæmis
byggingarfyrirtæki, hefja vinnu-
daginn miklu fyrr en áður til að
starfsmennirnir geti hvílst yfir
heitasta tímann.
I New York var hitinn í gær
kominn í 32 gráður en þegar loft-
rakinn þar bætist við svarar það í
raun til 38 gráðna. Hefur hjálpar-
beiðnum fjölgað mikið og er aðal-
lega um að ræða fólk, sem á í önd-
unarerfiðleikum eða hefur örmagn-
ast. Ekki var þó vitað um dauðsfóll
í New York í gær.
Reuters
Beðið fyrir
heilsu konungs
Arðrán eða
gagnkvæm-
ur hagur?
í BARENTSBURG á Svalbarða
vinna 15 rússneskar konur við að
sauma fatnað, sem síðan er merkt-
ur þannig, að hann sé framleiddur í
Noregi. Eru mánaðarlaunin um
20.000 íslenskar krónur. Var skýrt
frá þessu í Svenska Dagbladet. Tel-
ur norska alþýðusambandið að-
stæður kvennanna með öllu óviðun-
andi að því er fram kemur í Aften-
posten.
Um er að ræða vörumerki eins
og „Kids of Norway“, „Fabel“ og
„Oda Norway“ en konurnar vinna
hjá rússnesku fyrirtæki, Trust
Artikugol. A bak við það stendur
hins vegar Norðmaðurinn Káre
Karlstad, framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins Polar Maritim. Hefur
norska vinnueftirlitið áður fundið
að þessari starfsemi og einkum
vegna þess, að konurnar unnu 68
tíma á viku. Karlstad segir, að það
hafi bara verið misskilningur, kon-
urnar vinni á átta tíma vöktum og
fái miklu betri laun en þær gætu
fengið í Rússlandi. Par séu algeng
laun fyrir þessa vinnu frá sex og
upp í tíu þúsund íslenskar krónur.
„Framleitt í Noregi" stendur á
öllum fatnaðinum þótt hann sé
framleiddur í Rússlandi og segir
Svenska Dagbladet, að ástæðan sé
sú, að Norðmenn sætti sig almennt
betur við hátt verð haldi þeir, að
varan sé innlend.
tír vöndu að ráða
Lögfræðingur norska alþýðu-
sambandsins segir, að ljóst sé, að
rússnesku konurnar vinni við að-
stæður, sem norskar kynsystur
þeirra myndu ekki láta bjóða sér og
talsmaður starfsfólks í vefjariðnaði
tekur undir það. Hann sagði þó, að
úr vöndu væri að ráða og óvíst, að
rússnesku konurnar teldu hags-
munum sínum best borgið með því
að banna starfsemina.
Karistad segir, að auk launanna
fái konurnar ókeypis fæði og hús-
næði. Raunveruleikinn sé einfald-
lega sá, að vapa eins og fatnaður sé
öll framleidd erlendis af hag-
kvæmnisástæðum, ráðamenn hjá
alþýðusambandinu geti komist að
raun um það með því að skoða í
sinn eiginn klæðaskáp.
Þegar Gro Harlem Brundtland,
þáverandi forsætisráðherra, kom
við hjá rússnesku saumakonunum í
Barentsburg árið 1995, var fyiár-
tækið nefnt sem dæmi um vel-
heppnað, norsk-rússneskt sam-
starf.
MUSTAFA Barhoum, bóksali í
miðborg Amman í Jórdaníu, bað
í gær fyrir heilsu Hússeins, kon-
ungs landsins, sem er veikur og
telja læknar líklegt að hann þjá-
ist af krabbameini. Hússein er 62
ára og gengst nú undir rann-
sóknir á Mayo-læknastofunni í
Minnesota í Bandarikjunum. I
bréfl til bróður síns og erfingja,
Hassans krónprins, sagði
Hússein að sér Iiði vel og ef
EMBÆTTISMAÐUR Evrópusam-
bandsins, sem rætt er við í nýjasta
tölublaði vikuritsins European
Voice segir að ástæða þess að
frönsk stjórnvöld
vilja takmarka
aðgang Islands og
Noregs að
ákvarðanatöku í
breyttu
Schengen-sam-
starfi sé ótti
þeirra við að gefa
ibrdæmi, sem ríki Austur-Evi-ópu
gætu bent á er ESB stækkar til
austurs.
Frakkar telja að verði aðgangur
ríkjanna tveggja að fundum um
málefni vegabréfasamstarfsins jafn-
viðtækur og gert er ráð fyrir í nú-
verandi samstarfssamningi séu ríkj-
um, sem standa utan Evrópusam-
bandsins, veitt of mikil áhrif á innri
mál þess. „Þeir segja að verði of
grunur lækna reyndist réttur,
um að hann væri með eitlaæxli,
yrði gripið til lyfjameðferðar.
Bréfið var lesið í jórdanska sjón-
varpinu.
Fulltrúar læknastofunnar
kváðust búast við því að Hússein
yrði þar í um þrjár vikur. Fyrir
sex árum gekkst Hússein undir
uppskurð þar vegna krabba-
meins og hefur komið til skoðun-
ar reglulega siðan.
margar undantekningar gerðar
vegna íslands og Noregs muni það
gefa hættulegt fordæmi fvi’ir fram-
tíðina, þegar sambandið stækkar til
austurs," segir
embættismaður-
inn, sem ekki er
nafngreindur.
European
Voice segir að nú
þegar renni ýmis-
legt stoðum undir
áhyggjur Frakka.
Þannig hafi pólsk stjórnvöld á und-
anförnum vikum látið í ljósi áhyggj-
ur af því að þurfa að taka upp
strangt eftirlit á landamærum Pól-
lands og Úkraínu þegar til þess
kemur að Pólland gengur í ESB og
verður þar með aðili að Schengen-
vegabréfasamstarfinu. Hefð er fyrir
mátulega ströngu eftirliti á landa-
mærunum vegna mikilla samskipta
ríkjanna.
Schengen-aðild fslands og Noregs
Frakkar óttast for-
dæmið er ESB stækkar
EVRÓPA^
...breytist með
einu handtaki í...
vandaoan svefnsófa
með innbyggðri
springdýnu.
væntir
næturgestir?
Amerísku svefnsófamir em frábær lausn þegar
sameina þarf fallegan sófa og gott rúm.
æeröir? mikíð
úrvm áJmmr) a
Raðgreiðslur í
allt að 36 mánuði
velkomin
Vv
HÚSGAGNAHÖLLIN
Bfldshöföl 20 -112 Rvfk - S:510 8000