Morgunblaðið - 23.07.1998, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ráðherra sáttur víð
skýringar bankanna
GÆTIRÐU ekki aðeins dýft þeira ofaní með skjátunum þínum, Palle minn, það er bara
pínulítil óværa á þeim??
íno*ar
jHc%BMwa M.
Morgunblaðið/Kristinn
STARFSMENN Jafningjafræðsiunnar, Hafsteinn Snæland, Hildur Sverrisdóttir, Erla Björg Gunnarsdóttir
og Orri Páll Jóhannsson taka á móti lyklinum af Steinunni Þórhallsdóttur, starfsmanni Ingvars Helgasonar.
Nemendur vinnuskólans upp-
fræddir um skaðsemi vímuefna
JAFNINGJAFRÆÐSLAN hefur
í allt sumar tekið á móti nem-
endum Vinnuskóla Reykjavíkur-
borgar og eytt með þeim heilum
degi í þeim tilgangi að uppfræða
þá um skaðsemi og áhrif áfengis
og annarra vímuefna.
Alls starfa 28 einstaklingar
hjá Jafningjafræðslunni sem í
sumar tekur á móti um 3.000
ungmennum Vinnuskólans og
ýmissa fyrirtækja og stofnana.
Til þess að auðvelda Jafningja-
fræðslunni starfið hefur
Ingvar Helgason lánað Jafn-
ingjafræðslunni Nissan Sunny
til afnota. Ingvar Helgason
bætist því í hóp Lands-
bankans og VIS sem styðja
Jafningjafræðsluna af heilum
hug.
Ommu Pizza 450g
ianilsnúðar
$$%& Wk
HEIN • UM LAND ALLT
Hvatningarátak til stuðnings foreldrum
Fæstir vilja sjá
eftirlitslausa ung-
linga á útihátíð
Snjólaug Stefánsdóttir
Elskum óhikað, eru
slagorð sem meðal
annars eru notuð í
hvatningaártaki, sem
samstarfsnefnd Reykja-
víkur um afbrota- og
fíkniefnavarnir stendur
að í samvinnu við um 25
önnur sveitarfélög. Mark-
miðið er að efla og styðja
foreldra í baráttunni gegn
áfengisneyslu og annarri
vímuefnaneyslu bama og
unglinga. Sömuleiðis að
hvetja og styðja foreldra í
því að senda unglinga
ekki eftirlitslausa á útihá-
tíðir um verslunarmanna-
helgjna.
„Átakið hófst í fyrra að
framkvæði vímuvarna-
nefndar Reykjavíkur-
borgar, en síðar komu
Akureyrarbær og fleiri til
samstarfsins. I ár höfðum við
samband við um 30 sveitarfélög á
landinu og buðum þeim þátttöku,
sem flest þeirra þáðu,“ segir
Snjólaug Stefánsdóttir, verkefn-
isstjóri.
- Einblínið þið á verslunar-
mannahelgina íþessu sambandi?
„Eins og í fyrra nær herferðin
hámarki vikuna fyrir verslunar-
mannahelgi. Hins vegar höfúm
við lagt áherslu á þrenns konar
boðskap, sem á alltaf við. í fyrsta
lagi mikilvægi þess að virða lög-
boðinn útivistartíma, í öðru lagi
að kaupa ekki áfengi fyrir börn
og unglinga og í þriðja lagi að
hvetja foreldra til þess að hleypa
börnum sínum ekki eftirlitslaus-
um á útihátíðir. Við teljum að
herferðin í fyrra hafi haft áhrif
og vonum að hún verði einnig
áhrifrík í ár.“
- Hver eru tildrög þess að þið
fóruð af stað með þetta átak?
„Niðurstöður könnunar, sem
gerð var á vegum ÍM Gallup og
Rannsóknarstofnunar uppeldis-
og menntamála í fyrra, á við-
horfum foreldra til ýmissa þátta
sem varða unglinga. Afgerandi
meirihluti þeirra, eða 96%, voru
á móti því að börn og unglingar
undir 16 ára færu ein og eftir-
litslaus á útihátíðir. Sömuleiðis
kom fram, að í rauninni voru
foreldrarnir fáir, sem sögðust
leyfa börnum sínum yngri en 16
ára að fara á slíkar hátíðir. Hinn
félagslegi þrýstingur virðist
hins vegar oft vera þeim um
megn.“
- Telur þú að foreldrar hafí þá
ekki nægilega mikið samráð?"
„Eg held að foreldrar mættu
hafa meira samráð, því að það
eru ekki „allir hinir sem mega“
eins og böm og unglingar halda
gjarnan fram. Eg er hins vegar
sannfærð um að samráð þeirra á
milli hefur aukist mikið hin síðari
ár, sem ég tel til bóta.“
- Telur þú að afstaða foreldra
til áfengisneyslu unglinga hafí
breyst á undanförnum árum, þ.e.
að hún sé ekki álitin eins sjálf-
sögð og var?
„Tvær kannanir hafa verið
gerðar með árs millibili, þar sem
spurt var sömu spurninga.
Könnunin frá því í júní
sl. sýnir að fólk er ekki
eins umburðarlynt
gagnvart drykkju ung-
linga og í fyrra, en
þess verður að geta, að
hér er einungis um
tvær kannanir að ræða sem
gerðar voru með stuttu millibili.
Við stefnum á að gera svona
►Snjólaug Stefánsdóttir fæddist
25.5. 1951 í Reykjavík, en ólst
upp í Hafnarfirði. Hún Iauk upp-
eldisfræði frá Háskólanum í
Uppsölum 1980, fór síðan í
framhaldsnám í íjölskyldumeð-
ferð. Hún lauk prófi í námsráð-
gjöf frá Háskóla íslands 1991 og
hefur starfað að unglingamálum
til margra ára. Var meðal ann-
ars deildarstjóri hjá Félags-
málastofnun til 1994. Síðan hef-
ur hún verið í ýmsum verkefn-
um fyrir ríki og Reykjavíkur-
borg, bæði við uppbyggingu á
félagslegri þjónustu og við
skipulagningu vímuvarnamála.
Hún er núna verkefnisstjóri hjá
Samstarfsnefnd um afbrota- og
fíkninefavarnir og hjá áætlun-
inni Island án eiturlyfja.
Snjólaug á tvær dætur.
kannanir árlega og eftir nokkur
ár ætti að sjást hvert stefnir.
Kannanirnar sýndu þó svo ekki
verður um villst, að fullorðið fólk
er umtalsvert skeytingarlausara
gagnvart drykkju barna og ung-
linga en reykingum þeirra. Mér
sýnist að við þurfum að vinna
mun meðvitaðra með þennan
þátt til að upplýsa almenning
um þær hættur ,sem fylgja
áfengisneyslu barna og ung-
linga.“
- Hvað hefur þú þá aðallega í
huga?
„Kannanir hafa sýnt að ís-
lenskir unglingar lenda frekar í
óæskilegri kynlífsreynslu og
ógætilegri kynhegðun vegna eig-
in áfengisneyslu en jafnaldrar
þeirra í öðrum Evrópulöndum.
Þeir lenda einnig frekar í slysum,
óhöppum, ránum og ofbeldi
vegna þessa. Við erum að reyna
að vekja athygli á þessum þátt-
um og munum halda því áfram.“
- Leggið þið þá áherslu á að
fjölskyldan ferðist saman um
verslunarmannahelgina?
„Já, enda má benda á að nokk-
ur undanfarin ár hafa útihátíðir
til dæmis verið skipulagðar og
auglýstar með fjölskylduna
meira í huga en áður. Minna er
höfðað einungis til ungs fólks og
er það vel.“
- Ertu með einhverjar ábend-
ingar til foreldra að
lokum?
„Ég vil bara undir-
strika hættumar, sem
leynast í því að ung-
lingar séu einir á ferð
á útihátíðum. Það
skiptir máli fyrir alla fjölskyld-
una, að haldið sé vel utan um
börnin og unglingana."
Skiptir máii
að halda ut-
an um börn
og unglinga