Morgunblaðið - 23.07.1998, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 23.07.1998, Blaðsíða 46
46 FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Grettir Tommi og Jenni Smáfólk Hæ, Kalli... Viltu Hvert? koma með mér? DON'T YOU KNOLU ANYTHIN6, CHUCK? 7r YOUPBETTER BE THEREIAND DON'T F0R6ET, 1 A5KEP YOU BEFORE U)HAT5- HER-NAME PIP' ^ "2\ UIHO y i've been inVitep to U)A5 / 50METHIN6 50MEPLACE THAT?| BEFORE WHAT5-HER-NAME .INVITE5ME 50METIME.. Veistu ekki neitt, Kalli? Það er eins gott fyrir þig Hver að vera þar! Og gleymdu var því ekki að ég bað þig áður en þessi hvað - hún - nú - heitir gerði það! Ég hef verið boðinn í eitt- hvað einhvers staðar áður en þetta? hvað - hún - nú - heitir býð- ur mér einhvern timann ... BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Súnbréf 569 1329 Er Utflutnings- ráð óþarft? Frá Daníel Árnasyni: í MORGUNBLAÐINU 17. maí sl. mátti lesa opnuviðtal við formann og framkvæmdastjóra Samtaka verslunarinn- ar/FÍS, þá Jón Ásbjörnsson og Stefán S. Guð- jónsson. Eg geymdi viðtalið þar sem ég er megininntaki þess algerlega ósam- mála. I þessu við- Árnason tali er m.a. haft eftir þeim að þeir telji Útflutningsráð vera „óþarft. Það er gífurlega dýrt í rekstri, nú eru komnir verslunarfulltrúar í sendiráðin og utanríkisþjónustan er farin að huga meira að verslunar- málum Islendinga en áður. Þetta er kommúnismi í sinni fullkomnustu mynd,“ eins og Morgunblaðið hefur eftir þeim. Þessi yfirlýsing þeirra félaga fannst mér vera svo þröng og illa rökstudd að ég get ekki orða bund- ist. Aukinheldur hef ég ágæta reynslu af þjónustu Útflutnings- ráðs svo ég tel mig geta talað af nokkurri þekkingu. Veturinn 1996-1997 tók ég fyrir hönd míns fyrirtækis þátt í verkefninu „Út- flutningsaukning og hagvöxtur", sem er fyrir verðandi útflytjendur. Útflutningsráð hefur boðið atvinnu- fyrirtækjum þetta verkefni í mörg undanfarin ár og fjölmörg þeirra þegið það með ágætum árangri fyr- ir rekstur sinn. I verkefninu koma við sögu flestir þættir í starfsemi Útflutningsráðs auk annarra utan- aðkomandi, þannig að við þátttak- endur fáum mjög góða innsýn í starfsemina á þeim bæ. Þetta verkefni stóð allan veturinn. I stuttu máli var ég mjög ánægður með þá þjónustu sem ég fékk hjá Útflutningsráði íslands. Að auki hef ég nýtt mér aðra þjónustu þess, s.s. kaupstefnu í Grænlandi. Þar sem ég hef séð til starfsmanna Útflutnings- ráðs hafa þeir lagt sig alla fram um að láta þessa viðburði verða að gagni fyrir þá sem eiga hlut að máli. Satt best að segja skipti þjónusta þeirra sköpum - a.m.k. fyrir okkur sem lítt vorum reynd í slíkum að- gerðum. Ef ég reyni að setja mig í spor þeirra félaga, Jóns og Stefáns, skil ég sjónarmið þeirra varðandi skatt- tekjur sem Útflutningsráð nýtur („0,015% af vöruveltu hvers fyrir- tækis og rennur óskipt til Útflutn- ingsráðs“) en mér finnst þeim hins- vegar algjörlega yfirsjást mikilvægi útflutningseflingar og útflutnings- þróunar í þágu framfara í landinu. Mér sýnist augljóst að þeir eru að beina spjótum sínum að röngum að- ila. Ég hef kynnt mér að í öllum ná- lægum löndum eru reknar útflutn- ingseflandi stofnanir með svipuðu sniði og hér á landi og fjármögnun starfsemi þeirra er jafnframt meira og minna hliðstæð því sem hér ger- ist. Utanríkisþjónusta flestra þess- ara landa sinnir margs konar al- mennri þjónustu á sviði viðskipta. Það er gott að verið er að efla utan- ríkisþjónustu okkar á því sviði. Ekki mun af veita. Ég fæ hins vegar alls ekki séð að það leysi þjónustu Út- flutningsráðs af hólmi. Það er yfir markið skotið hjá þeim félögum, Jóni og Stefáni, að halda að orð eins og „kommúnismi“ hræði einhvern frá skynsamlegri ákvarð- anatöku í dag. Hinn „skandinavíski sósíalismi", þ.e. þjóðfélagskeifl Norðurlandaþjóðanna, er nú einu sinni sú fyrirmynd sem flestar þjóð- ir heims vilja líta til, hvað sem öllum „ismum“ líður. Læt ég nú lokið þessum skrifum og vona að þeim félögum farnist vel í sínum störfum fyrir stórkaupmenn en skorist hvergi úr leik þar sem þjóðarheill varðar. DANÍEL ÁRNASON, Stapasíðu 15a, Akureyri. í strætó með fjögur smá- börn og innkaupapoka Frá Rannveigu Tryggvadóttur: í VELVAKANDA Morgunblaðsins 16. þ.m. er grein eftir „eina fátæka". Þar stendur m.a.: „Talandi um góð- æri. Hvar er það? Ég er búin að vera ein að basla í ár, með fullt hús af börnum og mig vantar eina og hálfa milljón til að standa á núlli, og kannski geta keypt bíl, sem okkur vantar svo tilfinn- anlega, því það er erfitt að taka strætó með fjögur smá- böm og innkaupapoka." Fjárhagsstaða ungu konunnar og annarra í líkum sporum hefði orðið allt önnur og betri hefði Sjálfstæðis- flokkurinn farið með sigur af hólmi í nýafstöðnum kosningum til borgar- stjórnar í Reykjavík. Þá hefði heim- greiðsla með hverju barni frá fæð- ingu til sex ára aldurs verið 25 þús- und krónur á mánuði og vandi þess- arar konu og annarra í líkum spor- um verið ólíkt minni en hann nú er. Sjálfstæðismenn hefðu þurft að byrja mun fyrr en þeir gerðu fyrir kosningar að auglýsa þessi fyrirhug- uðu - og sjálfsögðu - hlunnindi til handa fjölskyldum með ung börn. Það er eins og fólk hafi ekki áttað sig á að stefna Sjálfstæðisflokksins er til muna fjölskylduvænni og jafn- framt ódýrari fyrir skattborgarann en stefna Reykjavíkurlistans. RANNVEIG TRYGGVADÓTTIR, þýðandi, Bjarmalandi 7, Reykjavík. Rannveig Tryggvadóttir Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.