Morgunblaðið - 23.07.1998, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 23.07.1998, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1998 41 MINNINGAR + Sigiirlaug Sig- fúsdóttir fædd- ist í Blöndudalshól- um í Blöndudal 5. ágúst 1908. Hún lést á Landspítalan- um 14. júní síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Krist- vina Kristvinsdóttir og Sigfús Eyjólfs- son. Hún var ijórða í röð átta systldna. Útför hennar fór fram frá Fossvog- skapellu 19. júní. Elsku mamma. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Skynsamir segja: Gömul, þreytt - gott að fá hvíldina. En það er alltaf sorglegt að missa móður sína. Að fá ekki að heyra rödd hennar, jafnvel þótt enn sé hægt að finna hana innra með sér. En ég er þakklát fyrir, að foreldrar mínii- hafi hist aftur og að mamma hefur hitt alla gömlu vinina sína aftur, sérstaklega Steinu og Tótu. Minn- ingar hrannast upp í huganum og þakklæti, þakklæti fyrir að hafa átt slíka móður og fyrir hvað þér leið vel í Lönguhlíðinni síðustu árin, alltaf nóg að gera í góðra vina hópi. Við breyttumst með árunum, en færðust nær hvor annarri. Móðir og dóttir, vinir ævilangt. Þín dóttir Anna. Elsku amma mín. Ég trúi því varla enn- þá, að þú sért dáin. Það er svo undarlegt, að geta ekki hringt til þín eða skroppið í heimsókn til þín í Lönguhlíðina. Þú varst eins og akkeri í fjölskyldunni og mér fannst eins og þú yrðir alltaf til staðar. En ég skil, að þinn tími var kominn og þú varst til- búin að fara og nú ertu laus við alla verki. Þú talaðir í mig kjark og baðst fyrir mér og hugsaðir til mín þegar ég var að fara í erfið próf eða að sækja um vinnu eftir að ég út- skrifaðist úr Háskólanum. Þar sem föðurforeldrar mínir dóu þegar ég var svo lítil og afi var dáinn löngu áður en ég fæddist, voruð þú og Steina svo mikilvægar í lífí okkar systkinanna. Það er skrítið að þið Steina skylduð deyja sama mánað- ardaginn, 14. júní, en þó með sjö ára millibili. Ég á margar minning- ar sem tengjast þér, t.d. þegar við keyrðum niður að höfn og kíktum á ítölsku skipin og þú rifjaðir upp hemámsárin, Ikea-ferðir, bæjar- ferðir o.s.frv. Þá man ég líka vel eftir ferðunum í kirkjugarðinn, með þér og Steinu frænku niður að leiðunum, þar sem þið hvílið nú. Takk fyrir öll skiptin sem þú pass- aðir mig þegar ég var lítil, ég man ennþá eftir gönguferðunum okkar, spilastundunum og þegar þú kenndir mér ljóð þegar ég var í tíu ára bekk. Að lokum vil ég þakka þér, elsku amma mín, fyrir öll 28 árin okkar saman, fyrir allt sem þú hefur sýnt mér, sagt og kennt. Ég er glöð yfir að hafa getað varið svona mörgum góðum árum með þér eftir að ég fullorðnaðist. Hvíl í friði, amma mín. Þín dótturdóttir Sigríður Birna Elsku amma mín, Það er erfitt að meðtaka það að þú sért farin frá okkur. Þú sem ert búin að vera ættmóðir þessarar fjölskyldu, trú hennar og festa alla vega síðan afi dó. Ég kynntist honum aldrei og reyndar ekki heldur afa og ömmu í hina ættina því að þau dóu öll áður en ég fæddist. Svo að frá því að ég fæddist varst þú amma mín og meira en það, því að þú tókst á þig, frá mínum sjónarhóli, hlutverk alls þessa góða fólks. Frá því að þú hélst mér undir skírn stóðst þú þig frábærlega í þessu hlutverki. Ég fékk síðan alltaf höfðinglegar viðtökur þegar ég fór í heimsókn til þín í gamla daga. Þá man ég vel eftir því þegar ég horfði á fótbolt- ann inni í stofu hjá þér á Reyni- melnum að þú komst með uppá- haldsmatinn minn á bakka inn í stofu. Og þegar þú komst heim frá Ítalíu 1982 og færðir mér allt dótið í sambandi við þá nýkrýnda heims- meistara. Þessi minningargrein yrði enda- laus ef ég myndi telja upp allt það sem þú gerðir fyrir mig, en ég vil bara segja að ég er mjög þakklátur fyrir að hafa kynnst þér sem ömmu minni og allt sem þú gerðir fyrir mig og að þú, amma, átt eftir að lifa áfram í hjarta mínu. Megi Guð varðveita ömmu mína. Ámundi Steinar. SIGURLAUG SIGFÚSDÓTTIR Mikið urval af fallejum rúmfatnaíi www.mbl.is + Ástkær faðir minn, tengdafaðir okkar, afi og langafi, ÓLAFUR JÓNSSON skipasmiður * • • • h frá Nýhöfn, Skólavegi 23, Vestmannaeyjum, sem lést sunnudaginn 12. júlí síðastliðinn, verður jarðsunginn frá Landakirkju laugar- daginn 25. júlí kl. 14.00. Margrét Ólafsdóttir, Guðmundur Valdímarsson, Ingunn Hofdís Bjarnadóttir, Þórhildur, Jóna Björg, Sigríður og Hrefna Valdís Guðmundsdætur, Ólafur, Sigurður Árni og Gunnar Ólasynir og barnabarnabörn. t Ástkær sambýlismaður minn og faðir okkar, SVEINN AUÐUNN JÓNSSON (BEISI) rafeindavirkjameistari, Selvogsgötu 8, Hafnarfirði, sem lést 19. júlí sl., verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju föstudaginn 24. júlí kl. 15.00. Fyrir hönd aðstandenda, Árdís Markúsdóttir, Arna Björk Sveinsdóttir, Gunnar Grétar Gunnarsson, Katrín Sveinsdóttir. PÉTUR B. ÓLASON, Miðhúsum, verður jarðsettur frá Þingeyrarkirkju laugardaginn 25. júll kl. 14.00. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær faðir okkar, ANGANTÝR HJÖRVAR HJÁLMARSSON, Vallartröð 5, Eyjafjarðarsveit, lést á heimili sínu aðfaranótt 22. júlí. Sigfríður L. Angantýsdóttir, Ingibjörg Angantýsdóttir, Elínborg Angantýsdóttir. + Maðurinn minn, GUÐJÓN DAGBJARTSSON frá Seyðisfirði, Hoitsgötu 19, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstu- daginn 24. júlí kl. 13.30. Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á MS-félagið. r~ Helga Magnúsdóttir. + Faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓHANNES HALLGRÍMSSON bakari, áður til heimilis á Hverfisgötu 58, Hafnarfirði, sem lést fimmtudaginn 16. júlí sl., verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju föstu- daginn 24. júlí kl. 13.30. Sigþór Jóhannesson, Aðalheiður Jónsdóttír, Hallgrímur Jóhannesson, Vilborg Jóhannesdóttir, Benóný Haraldsson og barnaböm. + Útför UNNAR ÁSTU FRIÐRIKSDÓTTUR, Bólstaðarhlíð 12, Reykjavík, fer fram frá Fossvogskapellu föstudaginn 24. júlíkl. 13.30. Halldóra Helga Óskarsdóttir, Halldóra Helgadóttir, Friðrik Friðriksson, Þorvaldur Friðriksson. + Alúðarþakkir sendum við öllum þeim, nær og fjær, sem heiðruðu minningu ÁSLAUGAR STEINSDÓTTUR húsfreyju á Úlfsstöðum, Borgarfirði, sem lést laugardaginn 11. júlí sl. Steingerður, Guðrún Elsa og Ragnhildur Þorsteinsdætur, tengdasynir, barnabörn og barnabarnaböm. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför fósturföður míns og bróður okkar, GESTS ODDLEIFS RÓSINKARSSONAR, Hringbraut 1361, Keflavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Vífilsstaðaspítala. Guðjón Gunnarsson og systkini hins látna. *
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.