Morgunblaðið - 23.07.1998, Blaðsíða 24
24 FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Fjölskrúðug’
myndlist á
Listasumri
Nú stendur sem hæst
Listasumar á Akureyri.
Margvíslegir menning-
arviðburðir eru í boði
og Hulda Stefánsdóttir
og Björn Gíslason ljós-
myndari kynntu sér
það helsta sem mynd-
listin hefur upp á
bjóða í bænum.
AÐ var við hæfi að hefja
skoðanaferð um Listagilið
í aðsetri Gilfélagsins sem
er menningarmiðstöð
bæjarins og fer með skipulagninu
Listasumars á Akureyri sem
stendur yfir allt frá 23. júní til 29.
ágúst. Húsnæðið er nefnt Deiglan
og er við Kaupvangsstræti 23, á
milli Café Karólínu og gestavinnu-
stofu félagsins. í anddyrinu stóð
yfir sýning á skargripum eftir Lis-
beth Nordskov, gullsmið frá Dan-
mörku, sem dvelur nú í gesta-
vinnustofunni. f sal Deiglunnar
stendur hins vegar yfir samssýn-
ing á portrettmyndum, og nefnist
hún Hausar. Báðum lýkur sýning-
unum sunnudaginn 26. júlí nk.
Skipuleggjandi sýningarinnar
Hausar, Aðalsteinn Svanur Sig-
fússon, myndlistarmaður á Akur-
eyri, hafði þann háttinn á að bjóða
til sýningarinnar hópi myndlistar-
manna sem búsettir eru á Akur-
eyri og jafnframt að taka með sér
annann „utanbæjarmann" í list-
inni en alls eru þátttakendur 27.
„Hugmyndin með þessu íyrir-
komulagi var að stefna saman
hópi ólíkra listamanna um þema
sem gefur mikla möguleika," segir
Aðalsteinn Svanur í sýningarskrá.
„Innihald verkanna er límið sem
heldur sýningunni saman og talar
sínu máli.“ Og víst er að mikil fjöl-
breytni rúmast innan vébanda
portrettmyndagerðar.
Þóra Þórisdóttir frá Hafnarfirði
á pastelmynd við innganginn.
Myndin af litlu stelpunni Láru
minnir óneitanlega á þá tegund
mannamynda sem götuteiknarar
við ýmsa sögufræga staði og fjöl-
ÉG er þú eftir Ragnhildi Stef-
ánsdöttur (Reykjavík) á sam-
sýningunni Hausar.
farnar verslunargötur stórborga
erlendis bjóðast til að teikna af
lúnum ferðamönnum. Myndin af
þessu skríkjandi barnsandliti sem
í fyrstu virðist ekki frábrugðið svo
mörgum öðrum andlitsmyndum af
uppábúnum bömum öðlast víðari
skirskotun þegar titill verksins er
lesinn því þar kemur fram að Lára
er fædd 17. janúar 1991, „þann
sama dag og Hekla gaus,
Persaflóastríðið braust út og Nor-
egskonungur dó.“ Dágóður dag-
skammtur það og spurning hvað
barn sem fætt er á slíkum degi
tekur sér fyrir hendur í framhald-
inu. Ari Alexander Ergis Magnús-
son sýnir málverk af Erró en
myndlistarkonan Anna Valsdóttir
frá Dalvík kýs að fjalla um sjálfan
sig í Sjálfsmynd 10. júlí 1998 eftir
kl. 20 sem fremur er fyrir eyru og
ímyndunarafl að njóta en sjón-
taugar þar sem leikið er af segul-
bandi athafnir og orð listakonunn-
ar á tilteknum tímabili tiltekins
dags. Hluti stærra verks?
Listamennirnir koma víða að,
ekki bara að sunnan og norðan
heldur einnig Orkneyjum eins og
Colin Kirkpatrick, frá Belgíu kem-
ur Alexandra Cool, frá Sviss
Martin J. Meier og frá Hollandi
Suchan Kinoshita.
Þýska myndlistarkonan Tita
FRÁ sýningunni Hausar í Deiglunni. Talið að ofan frá vinstri má sjá verk eftir Dröfn Friðfinnsdóttur frá
Akureyri og eftir Ingileif Thorlacius í efri röð. Fyrir neðan eru verk eftir Pálínu Guðmundsdóttur frá
Akureyri og Guðrúnu Þórisdóttur frá Ólafsfirði.
HLUTI verksins Veggurinn
óendanlegi eftir David Hebb í
Ljósmyndakompunni.
JORIS Jóhannes Rademaker á sýningn sinni Finna hlut í Gaileru +.
Heydecker sýnir Verksummerki á
Café Karólínu. Þeirri sýningu lýk-
ur reyndar á morgun en laugar-
daginn 25. júlí opnar Lu Hong
sýningu á málverkum unnum með
kínverskri tækni. Tita dvaldi í
gestavinnustofu Gilfélagsins íyrr í
sumar og eru verkin á sýningunni
unnin á þeim tíma. Þetta eru verk
unnin úr og með tei og vel við hæfi
á þessu listhneigða kaffi- og te-
húsi. Verk eins og „Te-pokasafn“
og „Te-pokaþrykk“ leiða af sér
„Te-pokaandlit,“ örsmáar andlits-
myndir dregnar með te-lit á papp-
ír og kannski undir áhrifum frá
öllum hausunum sem hanga hand-
an við vegginn, í Deiglunni.
Veggurinn óendanlegi
Þegar farið er yfir götuna og ör-
lítið neðar í brekkuna stendur
gamla Ketilhúsið sem nú hefur
verið gert upp sem fjölnota sýn-
ingarsalur. Þar er sýning á mál-
verkum af hestum eftir myndlist-
armanninn og hestaunnandann
Baltasar sem lýkur sunnudaginn
26. júlí. Þetta er tignarlegur salur
með stórum glugga á framhliðinni
sem hleypir dagsbirtunni ómeng-
aðri inn á háa og breiða veggi sýn-