Morgunblaðið - 23.07.1998, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 23.07.1998, Qupperneq 10
10 FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Karl Tryggvason lífefnafræðiprófessor um Islenska erfðagreiningu Tækifæri til rannsókna á heimsmælikvarða Ný brú • • á Oxará VEGAGERÐIN hefur boðið út smíði tvíbreiðrar brúar á Oxará við Valhöll. Áætlað er að fram- kvæmdir hefjist í september og að brúin verði fær til umferðar eigi síðar en 7. nóvember í haust. Um er að ræða 28 metra langa steypta plötubrú með 4 metra breiðri akbraut og gang- stígum þannig að heildarbreidd brúarinnar verður 9 metrar. Brúin verður byggð á sama stað og gamla brúin en hana þarf að rífa áður en fram- kvæmdir hefjast. Frestur til að skila tilboðum rennur út 10. ágúst en meðal magntalna við framkvæmdimar má nefna að grafa þarf 1.200 rúmmetra og fylla 600 rúm- metra, framkvæmdirnar krefj- ast 350 rúmmetra af steinsteypu og 17,5 tonna af stáli. Lagðir verða 110 fermetrar af hellu- lögðum gangstígum, en gerð gangstíga og frágangi þarf að ljúka fyrir 15. maí næstkomandi. „ÉG TEL að óþarfa tilfínningamál pg hræðsla einkenni umræðuna um Islenska erfðagreiningu á íslandi," segir Karl Tryggvason læknir og prófessor í lífefnafræði við Karol- inska Institut í Stokkhólmi, lækna- háskólann. Tækifæri til að gera merkar uppgötvanir Karl sem hefur búið í Svíþjóð í 30 ár og unnið að rannsóknum í sam- eindalíffræði og erfðafræði, segir að með tilkomu Islenskrar erfða- greiningar sé í fyrsta skipti hægt að vinna að vísindarannsóknum á Islandi sem séu á heimsmælikvarða pg standist erlenda samkeppni og Islendingar megi vera stoltir af. „Tilkoma gagnagrunnsins er mjög mikilvæg og upplýsingar um gen Islendinga verður hægt að nota til að gera merkar uppgötvanir, sem ég er viss um að verður gert. En gagnagrunnurinn verður ekki gullnáma nema í um tíu ár. Það verður búið að raðgreina öll gen eftir fímm til tíu ár og það má reikna með að þá verði búið að finna öll sjúkdómsgen. Þetta er svo stuttur tími og ef íslendingar eru ekki með þá verður þetta gert ann- ars staðar. Þeir geta nú verið með í leiknum og mér finnst þeir eigi að nýta sér það,“ segir Karl. Karl telur skilningsleysi í um- ræðunni um meðferð persónuupp- lýsinga. „Mér sýnist Islensk erfða- greining ganga lengra í vemdun þeirra en þekkist annars staðar. I Finnlandi eru t.d. upplýsingar um alla sjúklinga sem eru útskrifaðir í landinu settar í einn gagnagrunn sem hefur verið til í fjölda ára. Ég er t.d. núna að vinna með finnskum vísindamönnum að því að finna gen nýrnasjúkdóms. Þá er það gert þannig að maður fær leyfi til að nota gagnagrunninn, þar eru nöfn 15 þúsund sjúklinga sem hafa fengið þennan sjúkdóm og maður fær leyfi til að nota það til að hafa samband við þá og biðja um upplýs- ingar. Við erum vitaskuld bundnir þagnarskyldu en það er ekki hægt að vinna þessa vinnu öðruvísi." Einkaleyfi eðlilegt Karl segir vera jákvætt viðhorf til söfnunar þessara upplýsinga í Finnlandi, vegna þess að fólk njóti góðs af þeim. „Finnskir vísinda- menn, sem standa mjög framarlega í erfðarannsóknum, hafa t.d. fundið gen arfgengra sjúkdóma sem þekkjast þar og fólk er þakklátt. Is- lendingar eiga án efa eftir að finna gen margra sjúkdóma ef Islenskri erfðagreiningu gefst tækifæri til að vinna sitt verk.“ Karl telur eðlilegt að íslensk erfðagreining hafi einkaleyfi á notkun gagnagrunnsins í viðskipta- legum tilgangi, vegna þess að fyrir- tækið tekur á sig áhættuna við upp- setningu hans. „Mér skilst að vís- indamenn hafi möguleika á að nota sér gagnagrunninn til rannsókna, sem er mikilvægt, en veiting einka- leyfis er eðlileg í þessu samhengi." Sakfelldir fyrir fjölmörg afbrot Nýtt skipurit og stefnumörkun hjá Þjóðminjasafni fslands Opnað með nýjum sýningum árið 2000 FORRÁÐAMENN Þjóðminjasafnsins kynna starfsemina í gær, f.h. Þór Magnússon, Sturla Böðvarsson, Guðný Gerður Gunnarsdóttir, Hjör- leifur Stefánsson og Þóra Kristjánsdóttir. TVEIR ungir menn, 16 og 17 ára gamlir, voru í gær dæmdir til fang- elsisvistar og greiðslu skaðabóta vegna fjölda innbrota og líkams- árása. Eldri maðurinn var dæmdur í eins árs og sjö mánaða fangelsi en sá yngri í sex mánaða fangelsi, þar af þrjá mánuði sldlorðsbundið. í báðum dómunum er einnig tekið tillit til eldri skilorðsbundinna dóma. Á tímabilinu mars til maí frömdu mennirnir saman sex innbrot í skóla, íbúðir, bíla og geymslur í vesturbæ Reykjavíkur og á Sel- tjaraarnesi. Einnig voru þeir dæmdir fyrir að hafa í sameiningu ráðist á tæplega fimmtugan mann við áramótabrennu við Ægisíðu, slegið hann niður og sparkað í hann, þannig að af hlaust nefbrot og aðrir áverkar. Eldri maðurinn er einnig ákærð- ur fyrir fimm önnur innbrot og sá yngri fyrir tvær líkamsárásir. I október í fyrra sló hann mann á þrítugsaldri nokkkur högg í andlit- ið þannig að af hlutust áverkar, tók GSM-síma hans og hljóp á brott. Hann réðst einnig tvívegis á rúm- lega fertugan karlmann á sjúkra- stöðinni Vogi í apríl síðastliðnum, sló hann í andlit, felldi og tók háls- taki þannig að áverkar hlutust af. Báðir hafa sakborningarnir hlot- ið dóma áður. MIKIL áhersla verður lögð á forn- leifarannsóknir og skráningu forn- leifa í framtíðarstarfi Þjóðminja- safns Islands, með stofnun Rann- sóknarstofnunar Þjóðminjasafns Is- lands m.a., auk þess sem almanna- tengsl verða efld. Þetta kom fram í máli Sturlu Böðvarssonar, for- manns þjóðminjaráðs, á blaða- mannafundi í Þjóðminjasafninu sl. þriðjudag, þar sem nýtt skipurit og stefnumörkun fyrir safnið var kynnt. Miklar breytingar standa fyrir dyrum í safninu og verður því lokað hinn 3. ágúst næstkomandi og ekki opnað aftur fyrir gesti fyrr en að tveimur árum liðnum þegar búið verður að gera innanhússviðgerð á aðalhúsi safnsins og sýningarsölum þess. Auk þessa verður byggður nýr inngangur að safninu við suður- enda hússins og búið er að semja við Háskóla íslands um að safnið fái til umráða jarðfræðahús hans sunn- an við Félagsstofnun stúdenta, en þar verða skrifstofur og vinnustofur safnsins til húsa. Kostnaður við framkvæmdirnar næstu tvö árin er áætlaður um 800 milljónir króna, að sögn Sturlu. Þó að Þjóðminjasafnið sjálft verði lokað heldur önnur starfsemi þess áfram og mun safnið til dæmis sinna þjónustu- og rannsóknarhlut- verki sínu með sama hætti og áður auk þess sem sjóminjasafnið í Hafn- arfirði og Lækningaminjasafnið í Nesstofu verða opin. Börnum verður áfram gert kleyft að skoða gripi safnsins því safnið ætlar, að sögn Guðnýjar Gerðar Gunnarsdóttur safnstjóra, að koma til bamanna fyrst að börnin komast ekki í safnið. „Þetta verður gert með svokölluðum farsýningum auk þess sem fræðslu verður miðlað í margmiðlunarformi um Netið," sagði Guðný. Á fundinum kom einnig fram að safnið hefði loks fengið til afnota langþráðar frambúðargeymslur, í Vesturvör 16-20 í Kópavogi, fyrir gripi sem ekki eru í sýningarsölum hverju sinni. I geymsluhúsinu mun einnig verða unnið við forvörslu og rannsóknir. Raðað í tímaröð Opna á safnið eftir endurbætur árið 2000, í tengslum við að þá er Reykjavík menningarborg Evrópu auk þess sem Kristnitökuafmælið verður haldið hátíðlegt sama ár. Breytingarnar á sýningum í söl- unum verða í aðalatriðum þær að raða á sýningunum í tímaröð en hingað til hefur sýningum verið skipt í deildir eftir starfsháttum til dæmis og hafa sömu sýningar verið að stofninum til í safninu í nær 40 ár. „Sýningarnar verða því aðgengi- legri fyrir til dæmis skólanemendur sem þá munu geta fetað sig frá upp- hafi landnáms til nútímans í réttri tímaröð eða byrjað í nútímanum og farið til Iandnáms,“ sagði Þór Magnússon þjóðminjavörður í sam- tali við Morgunblaðið. I samræmi við skipulagsbreyt- inguna hefur starfsemi safnsins ver- ið skipt í þrjú svið; safnsvið, útim- injasvið , fjármálasvið og þjónustu- svið og kynntu yfirmenn hvers sviðs starfsemi sína á fundinum. Hjörleifur Stefánsson útiminja- stjóri greindi frá starfsemi útim- injadeildar og sagði að starfsemi hennar hefði verið efld mjög undan- farin ár og fjárveitingar til hennar hefðu tífaldast á undanförnum ár- um. Hann sagði að nú væri svo komið að skortur væri orðinn á fornleifafræðingum. Húsasafnið er stór þáttur í starf- semi útiminjadeildar en 40 torfbæir um land allt eru undir eftirliti starfsfólks safnsins. Bein rannsökuð í samstarfi við íslenska erfðagreiningu Eitt af þessum húsum, og það elsta, á Keldum á Rangárvöllum, fjallaði Hjörleifur sérstaklega um á fundinum en í ár er verið að endur- gera um 35 metra löng leynigöng sem liggja frá því auk þess sem ver- ið er að kanna hvernig hægt verður að færa húsið sem mest í uppruna- legt horf. „Við erum að athuga hvernig hægt er að hámarka fræðslugildi hússins," sagði Hjör- leifur. Þór Magnússon þjóðminjavörður sagði að fornleifauppgröftur væri það sem almenningur hefði jafnan mestan áhuga á í starfi safnins. Sem dæmi um merkilegar rannsóknir sem fram fara nú í sumar eru rann- sóknir á Neðra Ási í Hjaltadal þar sem grunur leikur á um að kristni hafi verið tekin upp 16 árum áður en hún var lögtekin á íslandi. Að hans sögn er um að ræða fyrstu rannsókn sem gerð hefur verið á fornkirkju á íslandi. „Þetta er einn merkasti fundur í seinni tíð,“ sagði Þór. Fundist hefur kirkjugarður við bæinn og verða bein, sem þar hafa fundist, rannsökuð næsta sumar af beinafræðingum. Að sögn Sturlu Böðvarssonar verður það _ gert í samstarfi við fyrirtækið íslenska erfðagreiningu og benti Sturla á að talið sé að beinin geti varpað ljósi á líkamsbyggingu, erfðasamsetningu og sjúkdómasögu fólks frá fyrri tíð. Leitað að bæ Snorra Sturlusonar Auk þessa sagði Þór Magnússon að fornleifarannsóknir stæðu yfir > Reykholti en þar eru menn að gera sér vonir um að finna leifar af bú- stað frá Sturlungaöld, sem gæti þá hugsanlega verið bær Snorra Sturlusonar. Smáíbúðaliverfi — 4ra herb. Falleg 90 fm 4ra herb. íbúð á 1. hæð. Vel skipulögð. Yfir- byggðar svalir. Nýtt baðherb. Áhv. 4,6 millj. hagstæð lán. Verð 7,3 millj. Laus fljótlega. 3976. Álagrandi — 2ja herb. Gullfalleg 65 fm 2ja herb. íbúð á 3. hæð. Stórar suðursval- ir. Rúmgóð stofa og eldhús. Verð 6,1 millj. 6388. Smáíbúðahverfi — 125 fm Falleg 5 herb. íbúð á 1. hæð í fjórbýli ásamt bílskúr. Sérþvottahús. 12 fm aukaherb. í kjallara. Hús skilast ný- málað að utan. Laus strax. Verð 10 millj. 2859. Galtalind — „penthouse" Glæsileg 135 fm hæð og ris í nýju glæsilegu fjölbýli. 4 svefnherb. Skilast frágengið að innan. Glæsilegt útsýni. Þessi selst strax. Verð 9 millj. 1914. Vantar 3ja og 4ra herb. —- staðgreiðsla Fjölmargir kaupendur af 3ja og 4ra herb. íbúðum í Bökk- um, Hraunbæ, Háaleitishverfi, Gröndum, Furugrund og annars staðar í Kópavogi. Hafið samband við sölumenn. Við þurfum ekki að auglýsa eignina. Erum með kaupendur á skrá. Vaziitar einbýli — raðhús — staðgreiðsla Erum með kaupendur á skrá sem óska eftir einbýli eða raðhúsi í Selási, Grafarvogi, Fossvogi og sérstaklega í Kópavogi. Hafið samband. Valhöll, fasteignasala, Síðumúla 27, sími 588 4477.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.