Morgunblaðið - 23.07.1998, Side 12
12 FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1998
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Bjöm Gíslason
Sunnudagskaffí
á prestssetrinu
„SUNNUDAGSKAFFI á prests-
setrinu" var að þessu sinni yfir-
skrift hins árlega starfsdags á
Laufási og þótt heldur hafi veður
verið í kaldara lagi sótti fjöldi
fólks prestssetrið heim.
I Laufási líkt og öðrum kirkju-
stöðum á landinu háttaði þannig
til að eftir messugjörð safnaðist
fólk inn í bæ þar sem fram voru
bomar veitingar. Hringt var til
messu þar sem sóknarpresturinn,
sr. Pétur Þórarinsson, flutti
stutta messugjörð og Björg Þór-
hallsdóttir söng einsöng, en
Kirkjukór Svalbarðs- og Laufás-
kirkju söng, organisti var Hörð-
ur Steinbergsson.
Að lokinni messu var tekið til
við að sýna handbragð liðins
tíma, lummur voru steiktar á
hlóðum, mjólk unnin í skála og
eldhúsi og í stofu var borið fram
messukaffí, en þar lágu einnig
frainmi uppskriftir frá fyrri tíð.
Utan dyra var verið að sinna
heyskapnum og laghentir menn
unnu við járnsmíði í eldsmiðju.
Sumir búnir að heyja
en aðrir vart byrjaðir
Eyjaljarðarsveit. Morgunblaðið.
HEYSKAPUR í Eyjafirði er mis-
jafnlega langt á veg kominn. Spretta
var hæg framan af sumri vegna
þurrka, en lítið sem ekkert rigndi í
maí og júní. Af þeim sökum drógu
margir að hefja heyskap. Um mán-
aðamótin júní og júlí var sæmileg
heyskapartíð og náðu margir bænd-
ur allmiklum heyjum í hlöðu á þeim
tíma. En einnig er sívaxandi hluti
heyjanna verkaður í rúllur.
Síðustu tvær vikur hefur hey-
.-(po£línn>
Fimmtudagskvöld
PKK
Föstudags- og laugardagskvöld
Ari Jónsson og Úlfur
Sigmundsson
Loksins á Norðurlandi
Verið velkomin
skapartíð verið stirð þótt ekki hafi
verið um mikil úrfelli að ræða, held-
ur fremur súld og þurrkleysur. Há-
spretta er frekar léleg vegna kulda.
Einstaka bóndi náði að klára fyrri
slátt fyrir landsmót hestamanna sem
fram fór á Melgerðismelum dagana
8.-12. júlí, en áhugasamir hestamenn
í hópi bænda ákváðu að draga hey-
skapinn fram yfir mót. Þeir hafa litlu
sem engu náð inn af heyi. Nú bíða
menn eftir að bregði til betri tíðar en
flestum þykir þessi kuldakafli vera
orðinn helst til langur.
María Tryggvadóttir, húsfreyja í
Grænuhlíð, sagði útlit með kornupp-
skeru alveg þokkalegt og væri korn-
ið skriðið á þijátíu hektara akri í
Miðgerði, en aftur á móti ekki í Arn-
arfelli þar sem þau hjónin eru einnig
með kornrækt. Arnarfell er innar í
firðinum en þar var korninu sáð
seinna. Kornið þarf helst að vera
skriðið um þessar mundir ef það á
að ná að þroskast. María sagðist
eins og aðrir Norðlendingar vonast
eftir hlýindum og betra veðri á
næstuni.
Akureyrarbær
Framkvæmdanefnd Akureyrar óskar eftir tilboðum í 6
íbúða hús eða stigahús á Akureyri til sérstakra nota.
Um er að ræða fimm ca 50 m2 íbúðir og eina þriggja
herbergja ca 70—80 m2 íbúð. Við val á tilboði verður
tekið tillit til verðs og gæða en einnig þátta sem hafa
áhrif á rekstrarkostnað húsnæðisins svo sem
staðsetning í bænum. Til húsnæðisins eru gerðar sömu
kröfur og þær sem gerðar eru til félagslegra íþúða.
Tilboðin skulu innihalda verð, upplýsingar um
staðsetningu, grunnmyndir, snið og útlitsmynd af
byggingunni. Einnig skal geta um efnisval í byggingunni.
Tilboðum skal skilað til Byggingadeildar Akureyrarbæjar,
Geislagötu 9, Akureyri, í umslagi merktu „(búðir til
sérstakra nota (tilboð)“ eigi síðar en þriðjudaginn 11.
ágúst nk. kl. 11.00, þar sem þau verða opnuð í viðurvist
þeirra sem þess óska.
Morgunblaðið/Björn Gíslason
INGA Jósefsdóttir og Sigmundur Einarsson sem eiga og reka kaffi-
húsið Bláu könnuna.
Miklar endurbætur á Hafnarstræti 96
Kaffihúsið
Bláa kannan
NÝTT kaffihús, Bláa kannan, var
opnað nýlega í húsinu númer 96 við
Hafnarstræti, París, þar sem áður
var leikfangamarkaður kenndur
við Sigurð Guðmundsson. Hjónin
Inga Jósefsdóttir og Sigmundur
Einarsson keyptu húsið fyrir
nokkrum misserum og hafa síðan
unnið að endurbótum þess, en þau
reka Blómabúð Akureyrar einnig í
þessu húsi.
„Við höfum unnið að endurbót-
um frá því í janúar, oftast frá því
snemma að morgni til miðnættis,"
sagði Sigmundur. Veitingastaður-
inn var tilbúinn nú fyrir nokkru og
hafa viðtökur verið góðar að sögn
Ingu og eru þau því bjartsýn á
framhaldið. „Við leggjum mikið
upp úr notalegri og rólegri
stemmningu og höfum tekið eftir
því að hingað kemur fólk á öllum
aldri. Barnafólk virðist kunna vel
við sig hér og einnig er mikið um
fullorðið fólk, sem kannski hefur
ekki áður fundið stað við sitt hæfi á
Akureyri."
Áhersla er lögð á brauð og kökur
og er allt bakað á staðnum, sem
mælst hefur vel fyrir, en auk þess
að njóta veitinganna á staðnum get-
ur fólk keypt brauð og tekið með
sér út. Kaffi er einnig malað á
staðnum en þau Inga og Sigmund-
ur segjast leggja mikið upp úr
ferskleika. í hádeginu er hægt að fá
súpu og brauð og þegar líður fram
á haustið er á stefnuskránni að taka
í vaxandi mæli upp græna línu,
bjóða heilsu- og grænmetisrétti.
Bláa kannan er reyklaus staður.
Enn eru ýmis verkefni eftir við
húsið, en á neðri hæðinni eru þau
langt komin með að innrétta krá og
stefna að því að að opna fyrir vet-
urinn. Inn af henni er stór salur
þar sem gefst kostur á að bjóða
upp á málverkasýningar eða
skemmtanir þegar húsnæðið verð-
ur tilbúið.
Háskólinn á Akureyri
Sigríður
Halldórs-
dóttir skipuð
prófessor
DOKTOR Sigríður Halldórsdóttir
hefur verið skipuð prófessor í
hjúki-unarfræði við Háskólann á
Akureyri. Hún lauk meistaragráðu í
hjúkrunarfræði við
University of Brit-
ish Columbia í
Vancouver í
Kanada 1988 og
doktorsgráðu við
heilbrigðisdeild
Linköping-háskóla
í Svíþjóð 1096.
Doktorsritgerð
hennar fjallar um samskipti heil-
brigðisstarfsmanna og sjúklinga og
hvaða áhrif umhyggja og um-
hyggjuleysi hefur á þá sem leita
þurfa til heilbrigðisþjónustunnar.
Sigríður er forstöðumaður heil-
brigðisdeildar Háskólans á Akur-
eyri. Hún hefur gert grein fyrir
rannsóknum sínum í ýmsum erlend-
um vísindatímaritum og haldið
fjölda fyrirlestra víða um heim. Ný-
lega fékk hún alþjóðleg rannsóknar-
verðlaun sem veitt eru af deild inn-
an alþjóðlegs heiðursfélags hjúkr-
unarfræðinga, Sigma Theta Tau:
International Honour Society of
Nursing.
Sigríður Halldórsdóttir er fyrsti
prófessorinn í hjúkrunarfræði á ís-
landi og jafnframt fyrsta konan sem
skipuð er prófessor við Háskólann á
Akureyri. „Eg er virkilega þakklát
fyrir þann heiður sem mér er sýnd-
ur og mun sannarlega leggja mig
fram um að verðskulda hann,“ sagði
Sigi'íður. Hún sagði það mjög mikil-
vægt fyrir hverja sjálfstæða fræði-
grein að eignast prófessora sem
geta verið leiðandi í rannsóknum
innan gi-einarinnar, en í rannsókn-
um felist ákveðinn vaxtarbroddur
framfara sem verði að hlú að, „en
það er einmitt eitt mikilvægasta
hlutverk hvers prófessors að mínu
mati,“ sagði Sigríður. Einnig telur
hún mikilvægt að prófessorar hafi
forystu hvað varðar menntun innan
sérgreinarinnar og bendir á að heil-
brigðisdeild Háskólans á Akureyri
hafi verið fyrst til að bjóða masters-
gi'áðu í hjúkranarfræði á íslandi í
samvinnu við Manchester-háskóla.
Hún er gift sr. Gunnlaugi Garð-
arssyni, sóknarpresti í Glerár-
prestakalli á Akureyri, og eiga þau
þrjú börn.
---------------
Ferðafélag Akureyrar
Gengið
á Kerlingu
TVÆR ferðir era í boði um helgina
á vegum Ferðafélags Akureyrar.
Önnur er gönguferð á Kerlingu, en
hún er 1.538 metrar að hæð og er
hæsta fjall í byggð. Lagt verður af
stað frá skrifstofu félagsins kl. 8 á
laugardagsmorgun, 25. júlí.
Þá er fjórði og síðasti hluti rað-
göngu sumarsins á dagskrá, einnig
á laugardag og verður lagt af stað
kl. 9 frá skrifstofunni. Að þessu
sinni verður gengið frá ósum Hörg-
ár til Akureyrar.
Nánari upplýsingar um ferðirnar
fást á skrifstofu Ferðafélags Akur-
eyrar í Strandgötu 23, en hún er op-
in frá kl. 16 til 19 virka daga. Skrán-
ing í ferðir fer þar einnig fram.
AKSJÓN
Fimmtudagur 23. júlí
21.00Þ Sumarlandið Þáttur
fyrir ferðafólk á Akureyri og
Akureyringa í ferðahug.