Morgunblaðið - 23.07.1998, Blaðsíða 31
30 FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1998 31 ,
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDl
FRAMKVÆMDASTJÓRI
RITSTJÓRAR
Árvakur hf., Reykjavík.
Hallgrímur B. Geirsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
STUÐNINGUR
í VERKI
NÚ ERU til umfjöllunar í utanríkisráðuneytinu hug-
myndir um að ísland veiti Eystrasaltsríkjunum þrem-
ur stuðning í verki við að undirbúa aðild að Atlantshafs-
bandalaginu, NATO. Frá þessu var greint í Morgunblaðinu
í síðustu viku.
Full ástæða er til að íslenzk stjórnvöld geri alvöru úr
þessum hugmyndum og bjóði Eistlandi, Lettlandi og Lit-
háen að senda hingað annars vegar flugumferðarstjóra til
þjálfunar og hins vegar strandgæzluliða, sem gætu fengið
starfsþjálfun hjá Landhelgisgæzlunni.
ísland hefur allan þennan áratug verið í fararbroddi
þeirra ríkja, sem stutt hafa baráttu Eystrasaltsríkjanna
fyrir sjálfstæði og að öðlast fullgilda aðild að samtökum
vestrænna ríkja, einkum Evrópusambandinu og NATO.
Málflutningur íslands á vettvangi NATO átti án efa þátt í
því að bandalagið ákvað að halda dyrum sínum opnum fyrir
Eystrasaltsríkjunum, þótt þau hafi ekki verið tekin inn í
bandalagið með Póllandi, Tékklandi og Ungverjalandi.
Pað er við hæfi að ísland fylgi þessum pólitíska og sið-
ferðilega stuðningi við málstað Eystrasaltsríkjanna eftir
með þátttöku í því undirbúningsstarfi, sem nú er unnið við
að styrkja varnir ríkjanna og gæzlu landamæra þeirra,
þannig að þau geti tekizt á hendur þær skuldbindingar,
sem felast í NATO-aðild. Pótt ísland sé herlaust land getur
það klárlega lagt sitt af mörkum í þessu starfi, enda eru
verkefni á borð við eflingu flugumferðarstjórnar og strand-
gæzlu þættir í þessum undirbúningi.
Önnur ríki Atlantshafsbandalagsins _ og jafnvel ríki utan
þess, til dæmis Svíþjóð og Finnland _ veita Eystrasaltsríkj-
unum þremur nú þegar umtalsverðan efnalegan stuðning á
sviði varnar- og öryggismála. Pað er kominn tími til að Is-
land sýni einnig stuðning sinn í verki, ekki aðeins í orði.
SJÁLFSDÝRKUN
OG OFBELDI
SAMKVÆMT NÝJUM rannsóknum tveggja bandarískra
sálfræðinga, sem sagt var frá í Morgunblaðinu í gær,
getur of hátt sjálfsmat leitt til „sjálfsdýrkunar“ og jafnvel
átt sök á auknu ofbeldi í samfélaginu. Sálfræðingarnir tveir
rannsökuðu fylgni of hás sjálfsmats og ofbeldisfullra við-
bragða og hafa í framhaldi varað við því að foreldrar og
aðrir uppalendur ýti undir ofmat barna á sjálfum sér og
getu sinni, ekki sé skynsamlegt að hrósa börnum fyrir allt
sem þau gera óháð frammistöðu. Ráðleggja þeir foreldrum
að „gleyma sjálfstraustinu en einbeita sér að sjálfsstjórn“.
Með rannsókn sinni vísa sálfræðingarnir tveir á bug kenn-
ingum þeirra uppeldisfrömuða og afbrotafræðinga sem
telja að lágt sjálfsmat sé höfuðorsök árásargirni. Þeir vilja
þvert á móti halda því fram að fólk, sem hefur í æsku búið
við óverðskuldað hrós og öðlast þannig of hátt sjálfsmat, sé
illa í stakk búið til að takast á við mótlæti síðar á lífsleiðinni
og bregðist við erfiðleikum með reiði. Pað sé því mikilvægt
að sjálfsmynd fólks mótist í samræmi við verðleika en ekki
af innantómu oflofi.
Petta eru afar hnýsilegar niðurstöður. Vafasamt er að
ganga að þeim sem einhverjum endanlegum sannindum en
þær varpa vissulega nýju ljósi á agavandamál sem við Is-
lendingar höfum ekki farið varhluta af. Sumum finnst
kannski að þær geri ekki annað en að staðfesta það sem
fólk vissi fyrir: Að ekki er æskilegt að ala á sjálfstrausti um
of svo að það leiði til sjálfsdýrkunar, það kunni aldrei góðri
lukku að stýra. Að vissu leyti er það rétt en hitt er mikil-
vægara að rannsóknir sem þessar eru hluti af nauðsynlegri
samræðu um það erfiða verkefni að ala upp börn. Einkum
hefur verið mikið rætt um ofbeldi á meðal barna og ung-
linga á undanförnum misserum enda virðist það sífellt
aukast, og þá ekkert síður hér á landi en annars staðar.
Lengi höfum við viljað kenna sjónvarpinu um eða mynd-
bandsglápi og tölvurápi en um leið kannski gleymt að horfa
í eigin barm. Hvað svo sem er rétt eða rangt í þeim efnum
er um fram allt mikilvægt að umræðan haldi áfram og að
foreldrar sem og aðrir uppalendur haldi vöku sinni.
Ævintýri skakarans
Forsætisráðherra Svíþjóðar í heimsókn á Islandi
Morgunblaðið/Arnaldur
LAGT af stað. Aðalsteinn tilkynnir sig og stefnan tekin á Eldingahrygg sem er suðvestur af
Rit, um klukkustundarstím frá Bolungarvík.
AÐ áliti margra trillukarla á Bolungarvík þykir Aðalsteinn einn sá harðasti og oftar en ekki
kominn fyrstur á miðin og síðastur í land og skiptir þá litlu um veðurhæð enda kalla
þeir hann Alla Storm.
AFLI dagsins var 3 tonn sem fór á fiskmarkað á ísafirði. í byrjim vertíðar var Aðalsteinn bú-
inn að fá 65 tonn eftir 15 daga en meðaltúrinn var þá um 4 tonn eftir daginn.
KOMIÐ var á miðin um klukkan 6 á mánudagsmorgni og höfðu rúllurnar vart undan fram til
9 en þá var eins og síðasti sporðurinn hefði verið dreginn. Veiðin fór aftur að glæðast
eftir hádegi og hélst hún góð það sem eftir lifði dags.
Fékk 6,4 tonn
í einum róðri
Á Bolungarvík má finna einn fengsælasta
trillukarl Vestfjarða. Hann heitir Aðalsteinn
Bjarnason eða eins og félagar hans kalla
---------------------7-------------------
hann AIli Stormur. A mánudag brugðu
Hugi Hreiðarsson og Arnaldur Halldórsson
ljósmyndari sér á miðin með honum á
---------------------------7-------------
bátnum Bjarneyju IS 204.
AÐALSTEINN er ættaður
af Snæfellsnesi en fluttist
ungur að aldri ásamt for-
eldrum sínum til Önundar-
fjarðar að Ytri-Veðraá. Fyrir tveim-
ur árum fluttist hann síðan til Bol-
ungarvíkur ásamt konu sinni, Hjör-
dísi Sigurðardóttur, og eiga þau tvö
börn. Þótt Aðalsteinn sé aðeins 29
ára gamall þá hefur hann verið
meira eða minna til sjós í 19 ár en 10
ára byrjaði hann að róa með föður
sínum, Bjarna Kristinssyni, á hand-
færum. Þegar hann var 17 ára keypti
hann sér sinn eigin bát en frá þeim
tíma hefur hann átt þá nokkra ásamt
því að hafa verið á togurum og dúxað
í Stýrimannaskólanum.
Aðalsteinn komst í fréttirnar fyrir
fimm árum þegar bátur hans,
Nökkvi, sökk eftir að hafa fengið á
sig brot í leiðindaveðri í júlí árið
1993. Þá dvaldi hann í rúman sólar-
hring í gúmbjörgunarbát en röð til-
viljana olli því að ekki var farið að
svipast um eftir honum fyrr en dag-
inn eftir. Segir hann þá lífsreynslu
hafa valdið því að hann fór í Stýri-
mannaskólann.
Hæstur í fyrra
Á síðastliðnu sumri var hann hæst-
ur trillukarla sem róa með dagróðra-
kerfí en alls fiskaði bátur hans um
160 tonn eða fyrir um 12 milljónir
króna. Tonnin fékk hann á 84 dögum
eða sem samsvara um 150 þúsund
krónum á dag en Aðalsteinn rær að
mestu einn. Hann segir sumarið í
fyrra hafa verið með eindæmum gott
og hann ekki búist við þeirri aukn-
ingu sem varð nú í sumar. „Maður
hélt að það yrði aldrei betra, en
fiskiríið í sumar hefur verið eins og
ævintýri, samt með mikið minni
sókn.“
í vetur keypti hann dagróðrabát-
inn Bjarney IS af fóður sínum en Að-
alsteinn reri þeim bát síðastliðið
sumar. „Eg ákvað að slá til nú í vetur
og kaupa bátinn af fóður mínum.
Báturinn er svokallaður skelbátur en
hann er smíðaður árið 1995 og ber
um 6 tonn. Hann hefur reynst prýð-
isvel, er með góðan ganghraða enda
með mjög öfluga vél.“
Ævintýraleg
veiði
Aðalsteinn gleymir seint deginum
eftir síðastliðinn sjómannadag en þá
fiskaði hann einn fyrir rúma hálfa
milljón króna. „Eg lagði af stað upp
úr klukkan þrjú um morguninn og
var kominn á miðin um þremur tím-
um síðar á svæði sem heitir Nesdýpi
en það er um 16 mflum vestan frá
Geltinum. Veiðin byrjaði strax með
feikna skoti og ég rétt náði að tína af
öllum fjórum rúllunum. Síðan kom
einn og einn dauður tími inn í en ann-
ars var stanslaust fiskirí með góðum
þorski."
Fékk blóðeitrun
Eftir tæpan sólarhring kom Aðal-
steinn með alls um 6,4 tonn sem þyk-
ir einsdæmi fyrir einn mann á fær-
um. Hann átti þó ekki von á því að
leggjast í veikindi við heimkomuna.
„Eg fann þegar ég var á heimstíminu
FJÖLDI trillukarla á Bolungarvík hefur aldrei verið meiri en í sumar,
en sökum veðurs síðastliðnar tvær vikur hafa nokkrir fært sig sunnar.
að mér var orðið mjög kalt og ég var
orðinn dofinn í öðrum þumalfingi-in-
um. Þessi doði færðist síðan ofar og
ofar í hendinni og ég átti í basli með
að klára að landa. Þá var ég einnig
kominn með mikinn verk svo ég
þorði ekki annað en að láta lækni líta
á höndina. Hann lét mig strax á
pensilínkúr en ég var þá kominn með
blóðeitrun sem náði upp að öxlum.“
Aðalsteinn gaf sér lítinn tíma til að
leggjast í veikindi og daginn eftir var
hann kominn um borð aftur en nú
með mann með sér. „Ég var um viku
að jafna mig og hafði þá með mér
mann til aðstoðar.“
Vilja örugga afkomu
Þótt veiðin hafi verið góð þá er
fjárfestingin einnig mikil og lítið má
út af bera. Aðalsteinn segir stjórn-
völd ekki geta fækkað þeim dögum
sem bátarnir hafa meira en orðið er.
„Menn hafa lagt í miklar fjárskuld-
bindingar og hér á svæðinu eru mörg
dæmi um 12 til 14 milljóna króna
fjárfestingu í einum handfærabát.
Nú þegar eru dagarnir það fáir að
margir eiga í erfiðleikum að reka
báta sína. Þótt fiskirí sé gott í sumar
þá er engin trygging fyrir því að svo
verði á næstu vertíð. Ég trúi því
aldrei að þeir fækki dögunum og við
munum láta í okkur heyra ef þeir
ætla að kippa grunninum undan af-
komu okkar. Aðalatriðið er að við
þurfum ekki að vera með lífið í lúk-
unum hvert einasta haust og mikil-
vægt að við getum séð fram á að geta
framfleytt okkur nokkur ár fram í
tímann. Þetta eru nokkur hundruð
fjölskyldur sem hafa þetta að lífsvið-
urværi og það myndi hafa hörmuleg-
ar afleiðingar fyrir þær ef grundvell-
inum væri kippt undan þeim. Hér á
Bolungaivík snýst allt orðið um smá-
bátaútgerð og mikilvægt að afkoman
í þessari grein verði tryggð bæði hjá
sóknardagabátum sem og þeim sem
róa á aflamarki."
EMU hefur ófyrirséð
áhrif á stefnumótun
Morgunblaðið/Amaldur
GÖRAN Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar og leiðtogi sænskra jafn-
aðarmanna, þáði í gær veitingar heima hjá Sighvati Björgvinssyni, for-
manni Alþýðuflokksins, og konu hans Björk Melax. Sagði hann samein-
ingarviðleitnina á vinstri væng stjórnmálanna á Islandi lofa góðu.
Göran Persson, forsætis-
ráðherra Svíþjóðar, held-
7
ur heim frá Islandi í dag
eftir þriggja daga „hálf-
opinbera“ heimsókn, eins
og hann kallaði hana
sjálfur í samtali við Auð-
un Arnórsson. Hann átti
viðræður við íslenzka
ráðamenn m.a. um Efna-
hags- og myntbandalag
Evrópu og sameiningu
vinstrimanna.
ÞAÐ LÁ greinilega vel á
sænska forsætisráðherranum,
þegar hann sneri „heim“ í
gestabústað ríkisstjórnarinn-
ar við Laufásveg í gærkvöldi, eftir vel
heppnaða skoðunarferð til Vestmanna-
eyja og viðræður við forystumenn Al-
þýðuflokksins, systimflokks sænska
Jafnaðarmannaflokksins, sem Persson
fer fyrir. Daginn áður hafði hann átt
vinnufund með Davíð Oddssyni forsæt-
isráðherra og Geir H. Haarde fjár-
málaráðherra.
Dagskrá heimsóknar Perssons, sem
hann kallaði sjálfur „hálfopinbera“,
lauk í gærkvöldi með kvöldverði í boði
forsætisráðherra, þar sem einnig voru
viðstaddir Friðrik Sophusson, fyrrver-
andi fjármálaráðherra og nýskipaður
forstjóri Landsvirkjunar, Páll Péturs-
son félagsmálaráðhewa og fleiri fram-
mámenn.
„Mér gafst tækifæri til að sjá Island,
og það þykir mér mikilvægt," sagði
Persson, en hann tók fram að sér þætti
mikilvægt að hafa jafnframt haft tæki-
færi til að hitta fjölda manns og efla
þannig sambönd sín hér. „Stjórnmál
eru vefur, og það er viss hætta á því að
sá sterki vefur sem byggzt hafði upp
milli norrænna stjórnmálamanna fari
forgörðum þegar sumir okkar byggja
upp nýjan vef innan Evrópusambands-
ins, með Noreg og Island útundan,"
sagði Persson. Það væri sér því sér-
lega ánægjulegt að geta viðhaldið per-
sónulegum tengslum við íslenzka
stjómmálamenn með þeim óformlega
hætti sem honum hefði auðnazt í þess-
ari heimsókn.
I viðræðum sínum við Davíð Odds-
son forsætisráðherra og Geir H. Haar-
de fjármálaráðherra sagði Persson að
ýmis mál hafi borið á góma, en einna
hæst hafi myntbandalagsmálið borið.
Eins og kunnugt er hefur verið
ákveðið að Efnahags- og myntbanda-
lagi Evrópu, EMU, verði hleypt af
stokkunum um næstu áramót með
þátttöku ellefu aðildan-íkja Evrópu-
sambandsins, ESB. Svíar, sem gengu í
ESB 1995, munu standa utan við það,
að minnsta kosti fyrst um sinn, eins og
Danir og Bretar.
Persson, sem var fjármálaráðherra í
sænsku ríkisstjórninni áður en hann
varð forsætisráðherra, sagði að hann
hefði fengið skýrslu Seðlabanka Is-
lands um Island og EMU, en í viðræð-
unum hafi hann fyrst og fremst sagt
frá stöðu EMU-málsins í Svíþjóð.
Deilt um hve langt sameiginleg
stefnumótun eigi að ná
„Við ákváðum að bíða með að taka af-
stöðu til EMU að hluta til vegna þess að
við teljum hyggilegra að fylgjast með
því sem gerist [eftir að EMU kemst á
laggh'nar] og hins vegar hafa verið svo
harkalegar deilur um þetta mál í Sví-
þjóð, sem fyrst þarf að sætta, áður en
lengra er haldið," sagði Persson.
I þessu sambandi vildi hann leggja
sérstaka áherzlu á nokkur atriði. „Þeg-
ar sameiginlegur gjaldmiðill er kominn
í umferð, sameiginleg myntslátta og
sameiginleg peningamálastefna orðin
að veruleika, að hve miklu leyti ki-efjast
þær aðstæðui' þá sameiginlegrar efna-
hagsmálastefnu? Þarf samræmda
skattheimtu, sams konar vinnumai'k-
aðsstefnu, sambærilega félagsmála-
stefnu? Er það þetta sem við eigum
von á að sjá þróast í Evrópu?“ sagði
Persson.
„Við verðum að fá svar við þessari
spurningu áður en við getum tekið
endanlega afstöðu til þess hvort við
viljum taka þátt í EMU,“ sagði for-
sætisráðherrann. Aðspurður, hvort
þessi þróun ESB I átt að nánara póli-
tísku samstarfi, líka í stefnumótun í
málum á borð við skatta- og vinnu-
markaðsmál, hefði ekki verið ljós
strax og Maastricht-sáttmálinn var
undiiTÍtaður 1993 - þ.e. áður en Sví-
þjóð gekk í ESB - sagði Persson að
það hafi aldrei verið nefnt í sín eyru að
myntbandalagið leiddi af sér sameig-
inlega fjáimálastefnu.
„Þegar ég hef minnzt á þessa hluti á
vettvangi ESB hef ég ítrekað mætt
skilningsleysi, jafnvel tortryggni. En
viss breyting hefur átt sér stað hvað
þetta varðar í Þýzkalandi, og þegai' ég
vek máls á þessu núna innan ESB fæ
ég þau svör að ég hafi nokkuð til míns
máls; þetta þurfi að ræða.“
Persson sagði að fram að þessu hafi
flestir stjórnmálamenn í ESB-löndun-
um litið svo á, að myntbandalagið væri
að mestu leyti tæknilegs eðlis, „en ég
er sannfærður um að það muni hafa
gífurleg áhrif á efnahagsmál í Evrópu
og á stefnumótun almennt," sagði
hann. „Það er þetta sem við þurfum að
ræða. Og við þurfum á tíma að halda
til að koma málum á hreint. Við þurf-
um tíma tfl að festa opinbera afstöðu
Svíþjóðar á meðal sænskra kjósenda.
Sú hefð er nefnilega ríkjandi í Svíþjóð
- sem ég held að eigi einnig við um hin
Norðurlöndin - að áður en örlagaríkt
skref á borð við þetta er tekið verði
stuðningur memhluta kjós-
enda að vera tryggður fyr-
irfram. Sum ESB-lönd hafa
ákveðið að gerast stofnaðil-
ar að EMU, en þurfa svo
eftirá að fást við að telja
kjósendur á að sú ákvörðun hafi verið
rétt. Þetta finnst mér öfugt að farið.“
Aðspurður, hvort hann eigi þá við að
haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla um
málið í Svíþjóð, sagði Persson: „Niður-
staða í þessu máli verður að nást ann-
aðhvort með þjóðaratkvæðagreiðslu
eða í tengslum við þingkosningar.
Hvenær slík atkvæðagreiðsla fer fram
er hins vegar opin spurning ennþá.“
Bjartsýnn fyrir þingkosningar
Næstu kosningar til sænska ríkis-
þingsins fara fram eftir tvo mánuði.
Er Persson vongóður um að stjórnin
haldi sínu? „Ég vil ekki lýsa yfir sigur-
vissu, það fer ekki vel á því rétt fyrir
kosningar. En stjórnin stendur miklu
betur að vígi núna en fyrir einu ári.
Það er vegna þess að stefna stjórnar-
innar hefur skilað ái-angri. Eins og
kunnugt er hrintum við í framkvæmd
róttækri umbótaáætlun í efnahags-
málum. Það tók á. í fyrstu héldu
margir hefðbundinna stuðningsmanna
jafnaðaimanna að við hefðum svikið
þá. En ég tel að okkur hafi tekizt að
bjarga velferðarkerfinu.
Nú er komið að uppskerudögum.
Ríkisfjármálin eru komin í góðan far-
veg, það er meira að segja afgangur á
fjárlögum. Við höfum getað veitt við-
bótarfé til skólastarfs, heilbrigðis-
mála, félagsmála, í einu orði sagt; til
velferðarkerfisins. Þetta kunna Svíar
að meta og nú gæti sú staða verið
komin upp, að kjósendur segi: Krötun-
um hefur tekizt það aftur!“
Persson bætti við að atvinnuleysi
færi nú snarlega minnkandi, og sé það
skoðað í samhengi við hina bættu
stöðu í ríkisfjármálunum og hinn nýja
stöðugleika sem náðst hefði í velferð-
arkerfinu væri ekki hægt að segja
annað en að útgangspunktur jafnaðar-
mannaflokksins fyrir kosningarnar
væri allgóður.
„Enda sýna nýjustu skoðanakann-
anir, að við mælumst nú með meira en
40% fylgi í fyrsta sinn á þessu kjör-
tímabili. I febrúar í fyrra fórum við
niður í 25%,“ sagði Persson, og benti
á, að mest af því fylgi sem flokkurinn
hefði tapað hefði bætzt við fylgi flokka
yzt til vinstri eða þeirra sem ekki
kjósa. Borgaraflokkarnir hefðu sára- *■
lítið aukið við sitt fylgi.
Samfylking á vinstrivængnum
hérlendis á réttri leið
En í ljósi þess hve sænskir jafnað-
armenn litu nú upplitsdjarfir mót
komandi kosningum, var forvitnilegt
að heyra hvað leiðtoga þeirra þætti
um þær tilraunir sem í gangi væru
hérlendis til samfylkingar jafnaðar- og
vinstrimanna.
„Ég held að þeir séu að gera hið
rétta. Öll stjómmálareynsla sýnir
nefnilega eitt; Ef stjórn-
málafylking er fær um að
haldast sameinuð er hún
jafnframt stjórnmálaafl
sem er fær um að axla >
ábyrgð á landsstjórninni.
Ef hún tvístrast, hvort sem er um að
ræða fylkingu á vinstri- eða hægri-
vængnum, þá spillir hún möguleikum
sínum á að komast að stjórnartaumun-
um.“
í Svíþjóð hafi jafnaðarmönnum tek-
izt sú kúnst að halda stórum flokki
saman, með ýmsum straumum og
stefnum innanborðs. Hægriflokkarnir
í stjórnarandstöðunni hafi aldrei
megnað að halda sínum hluta kjós-
endahópsins sameinuðum að baki
sinni fylkingu.
„Ef vinsti'ivængnum hér á landi •
tekst að koma sér saman um að
mynda eina fylkingu sem gæti náð 35-
40% fylgi, væri komin upp gerbreytt
staða í íslenzkum stjórnmálum. Það er
ef til vill enn löng leið efth', en efth’ því
sem ég fæ bezt séð þá eru menn von-
góðir og leggja nú hart að sér að ná
þessu marki. Ég get bara óskað þeim .
góðs gengis," sagði Göran Persson. *■
Þjóðin sker úr
um EMU-aðild
Svíþjóðar