Morgunblaðið - 23.07.1998, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1998 45
KIRKJUSTARF
Múrklæðning Viðeyjarstofu endurnýjuð
Gert við gamlar syndir
Reykholtskirkja
UNNIÐ er nú að því að höggva
lausan múr af útveggjum Viðeyj-
arstofu í Viðey, húða þá upp á
nýtt og klæða undir glugga með
vatnsbrettum. Samkvæmt upp-
lýsingum frá arkitekt endur-
byggingar Viðeyjarstofu, Þor-
steini Gunnarssyni, er um að
ræða verkþætti sem ekki var lok-
ið við þegar stofan var endur-
gerð.
„Það er verið að klæða undir
gluggana með sama hætti og
gert var á 18. öld og einnig er
verið að húða útveggi upp á nýtt.
Þetta eru tveir verkþættir sem
voru eftir í endurbyggingunni og
ákveðið var að stilla saman,“
sagði Þorsteinn.
Að sögn Þorsteins er múrinn
Morgunblaðið/Jim Smart
STARFSMENN byggingardeild-
ar Reykjavíkurborgar vimia við
múrklæðningu Viðeyjarstofu.
sem verið er að höggva af frá
fyrri hluta þessarar aldar en
upphaflega var kalkmúr á veggj-
unum sem þoldi illa ísienska
veðráttu og er hann nú löngu
horfinn, að sögn Þorsteins.
Hefðu mátt vanda sig meira
Upphaflega var gert ráð fyrir
að verkið tæki þrjú ár en að sögn
Ríkharðs Kristjánssonar hjá
Línuhönnun, sem er byggingar-
deild borgarinnar til ráðgjafar
við verkið, fer það eftir því hve
lengi fjárveiting til verksins dugi
ár hvert hvenær það klárast. Ha-
fist var handa á ný við verkið
fyrir þremur vikum og þráðurinn
tekinn upp frá því í fyrra. Unnið
verður fram á haustið.
„Við erum að gera við gamlar
syndir. Þessi ldeðsla í húsinu er
erfið og illa unnin. Við hefðum
viljað að iðnaðarmennirnir hefðu
vandað sig meira við þetta þegar
þeir voru að hlaða húsið um árið
1750 því hleðslan gerir okkur
erfitt fyrir við viðgerðir á múr-
klæðningunni," sagði Ríkharður
Kristjánsson.
Reykholtshátíð
VÍGSLUAFMÆLI Reykholts-
kirkju verður fagnað sunnudaginn
26. júlí með kirkjudegi. Hátíðar-
messa hefst kl. 14. Kórar Reyk-
holtskirkju og Hvanneyrarkirkju
syngja undir stjóm Bjarna Guð-
ráðssonar. I messunni verður vígð-
ur nýr hökull kirkjunnar. Hann er
vígslugjöf Borgarfjarðarprófasts-
dæmis, gerður af lngibjörgu
Styrgerði Haraldsdóttur veflista-
konu.
Tónlistarhátíð tengd kirkjudegi
hefst á morgun, föstudaginn 24. júlí,
kl. 20.30. Fernir tónleikar verða í
kirkjunni um helgina. Listrænn
stjórnandi tónleikanna er Steinunn
Birna Ragnarsdóttir. Fram kemur
Zilia-píanókvartettinn ásamt gest-
um, en meðal þeirra eru Nína Pa-
vlovski sópran frá Danmörku, Risto
Lauriala píanóleikari frá Finnlandi
og Martynas Svégzda von Bekker
fiðluleikari frá Litháen.
Hallgrímskirkja. Orgeltónlist kl.
12-12.30. Hilmar Örn Agnarsson
leikur.
Háteigskirkja. Kvöldsöngur með
taizé-tónlist kl. 21. Kyrrð, íhugun,
endurnæring. Allir velkomnir.
Kópavogskirkja. Kyrrðar- og
bænastund í dag kl. 18. Fyrirbæn-
arefnum má koma til prests eða
kirkjuvarðar.
Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðar-
stund kl. 22, kaffi og létt meðlæti á
eftir.
Hjálpræðisherinn. Kl. 20.30, bæna
og lofgjörðarsamkoma.
www.mbl.is
Lýst eftir
ökutækjum
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir
eftir tveimur ökutækjum sem stolið
var fyrir nokkru.
Annars vegar er um að ræða bíl
af gerðinni Peugeot sem er grænn
að lit, árgerð 1994, með númerinu
BS 265 og stolið var 26. júní frá
Rofabæ 47. Hins vegar er um að
ræða Suzuki vélhjól, nr. NH 199,
svart og gult og árgerð 1995. Var
því stolið 12. júlí frá Viðarhöfða.
------------------
Síðdegistón-
leikar á
Ingólfstorgi
SÍÐDEGISTÓNLEIKAR Hins
hússins fara fram á morgun, fóst-
dag, kl. 17. Hljómsveitirnar Spit-
sign og Bisund spila. Tónleikarnir
eru í boði Pepsi cola.
------♦-♦-♦---
LEIÐRÉTT
„Divan“ syngur kl. 13.30
í VIÐTALI við Steinunni Birnu
Ragnarsdóttur um Sumartónleikana
í Reykholti í blaðinu í gær, var meðal
annars getið um tónleika á laugar-
daginn, þar sem danska „divan“
Nina Pavlovski kemur fram. Var
tímasetning tónleikanna röng. Þeir
hefjast kl. 13.30 en ekki klukkustund
síðar eins og sagt var. Beðist er vel-
virðingar á mistökunum.
Sfldarútvegsnefnd
ekki ríkisfyrirtæki
í FRÉTTUM sjávai-útvegsblaðs
Morgunblaðsins, Úr verinu, í gær
þar sem fjallað var um stofnun ís-
landssíldar hf. var síldarútvegsnefnd
ítrekað kölluð sfldarútvegsnefnd rík-
isins. Það er alrangt. Síldarútvegs-
nefnd hefur aldrei verið ríkisfyi-ir-
tæki þó að hún hafi starfað sam-
kvæmt lögum um útflutning á salt-
aðri síld og er beðist velvirðingar á
mistökunum.
Við höfum komið okkur upp
NÝJU SÍMAN ÚMERI!
27 OB
Nýr bréfsími 530 2724
ISTAK
- traustur verktaki