Morgunblaðið - 23.07.1998, Page 60

Morgunblaðið - 23.07.1998, Page 60
Það besta úr báðum heimum! unix og NT = hp OPIN KERFIHF HEWLETT PACKARD MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉFS691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ/SMBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1 FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1998 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Morgunblaðið/RAX ÞAÐ tók slökkviliðsmenn átta klukkustundir að ráða niðurlögum elds í mosa á Höskuldarvöllum í gær. Efst til hægri á myndinni sér í þyrlu Varnarliðsins sem varpaði niður reykblysi sem kveikti eldinn. Eldur kviknaði í mosa á Höskuldarvöllum Atta tíma barátta Opin kerfi Kaupa 34% hlut í Tæknivali OPIN KERFI hf. ætla að kaupa 34,33% hlut í Tæknivali hf. af Kaupþingi hf. Með kaup- unum verða Opin kerfi stærsti hluthafínn í Tæknivali sam- kvæmt hluthafaskrá. Nafnverð bréfanna er 48,9 milljónir króna. I gær seldu Sundagarð- ar og tengdir aðilar Kaupþingi 22% hlut í Tæknivali á genginu 5,20. Nafnverð bréfanna sem Sundagai'ðar seldu var 31.150.787 kr. og markaðsverð viðskiptanna er 161.984.092 kr. Miðað við sama gengi má gera ráð fyrir því að Opin kerfi séu að kaupa hlutinn á rúmar 254 milljónir króna. ■ Kaupa/B2 ELDUR kom upp í mosa og grasi á 4-5 hektara svæði á Höskuldarvöll- um á Reykjanesi skammt frá Keili í gær. Eldurinn kviknaði þegar þyrlusveit Varnarliðsins á Keflavík- urflugvelli varpaði reykblysi úr þyrlu við æfingar. Brunavarnir Suð- urnesja og slökkvisveitir úr Grinda- vík og Hafnarfirði unnu að slökkvi- starfi langt fram eftir kvöldi en til- kynnt var um eldinn rétt um kl. 15. Um 25 manns, þar á meðal félagar í Björgunarsveit Suðurnesja, unnu við að slökkva eldinn og lauk slökkvistarfi upp úr kl. 23 í gær- kvöld. Sigmundur Eyþórsson slökkvi- liðsstjóri sagði að þröskuldurinn í slökkvistarfinu hefði verið skortur á mannafla auk erfiðleika við vatns- sókn. Friðþór Eydal, upplýsinga- fulltrúi Varnarliðsins, segir að eld- urinn hafi komið upp á svæði þar sem þyrlubjörgunarsveitin æfir oft. „Þeir settu niður blys þarna eftir hádegi og kveiktu í. Þeir æfa lend- ingar þarna og setja niður reykblys til viðmiðunar við lendingar. Þegar ljóst var að það hafði kviknað í lenti þyrlan og þeir reyndu að slökkva eldinn. Þegar þeir sáu að það var vonlaust verk, þar sem þeir voru tækjalausir, tilkynntu þeir um brunann," sagði Friðþór. Samkvæmt upplýsingum frá Brunavörnum Suðurnesja bauð Varnarliðið fram aðstoð en hún var afþökkuð. Umhverfísráðstefnan OSPAR Losun á technetium 99 frá Sellafíeld hætt? GUÐMUNDUR Bjamason um- hverfísráðherra lýsti í gær í ræðu á alþjóðlegu OSPAR-ráðstefnunni um verndun Norðaustur-Atlants- hafsins sem haldin er í Portúgal áhyggjum íslendinga af stórauk- inni losun geislavirka efnisins technetium 99 frá endurvinnslu- stöðinni Sellafíeld og gerði þá lág- markskröfu að hún yrði aftur færð í það horf sem var fyrir 1994. Michael Meacher, umverfísráð- herra Breta, sagði í ræðu að hann hefði nýlega óskað eftir því við eig- endur Sellafíeld-stöðvarinnar að þegar yrði leitað tæknilegra leiða ^^til að hætta losun efnisins. Fyrir ^^fundinum liggur tillaga um að los- un á technetium 99 verði með öllu hætt og verða greidd atkvæði um hana í dag. I umfjöllun breskra fjölmiðla fyrir ráðstefnuna kom fram að hugsanlega myndu stjórnvöld sam- þykkja lokun Sellafield-stöðvarinn- ar. Að sögn Magnúsar Jóhannsson- ar, ráðuneytisstjóra í umhverfis- ráðuneytinu, hafa engar slíkar yfir- lýsingar komið fram hingað til. „Hins vegar hafa þeir Michael Meacher og John Prescott, aðstoð- arforsætisráðherra Breta, í ræðum sínum í dag lagt mikla áherslu á að hin nýja ríkisstjóm landsins hafi allt aðra og ákveðnari afstöðu gegn mengun hafsins en hin fyrri.“ Bretar og Frakkar féllust í gær á það að staðfesta alþjóðasamning frá 1993 um 15 ára bann við vörpun lág- og meðalgeislavirks úrgangs í hafið sem önnur aðildarríki höfðu þegai’ staðfest. Samningurinn verður sjálfkrafa framlengdur nema að aðildarríkin samþykki samhljóða að aflétta banninu. Sá samningur nær þó ekki til losunar frá landi sem fylgir kjarnorkuiðn- aði á borð við þann sem fram fer í Sellafield. Fyrir fundinum liggur einnig til- laga um almenna áætlun um minnkun á losun allra geislavirkra efna frá kjarnorkuiðnaðinum. Arthur Treacher’s og Miami Subs Sameiningu er slegið á frest SAMEININGU bandarísku skyndi- bitakeðjanna Arthur Treacher’s og Miami Subs hefur verið slegið á frest eftir að gengi bréfa í báðum fyrirtækjum lækkaði í síðustu viku. Þá hafa stjórnendur Arthur Treacher’s ákveðið að draga kauptil- boð sitt í 94 veitingastaði Seattle Crab Company til baka, eftir að út- tekt endurskoðenda leiddi í ljós að staða fyrirtækisins var verri en eig- endur þess gáfu til kynna í upphafi. Skúli Þorvaldsson, hluthafi og varaformaður stjórnar Arthur Treacher’s, sagði í samtali við Morgunblaðið að ekkert yrði af sameiningu hlutafélagsins við Mi- ami Subs-keðjuna að sinni, eftir að gengi bréfa í fyrirtækjunum lækk- aði fyrir helgina. Samruninn átti að fara fram með þeim hætti að hlut- höfum í Miami Subs yrði gefinn kostur á að skipta út hlutabréfum sínum fyrir hlutabréf í Arthur Tr- eacher’s á genginu einn á móti þremur. Þegar gengið var frá sam- komulaginu í maí var sú forsenda lögð til grundvallar sameiningunni að gengi bréfanna einn á móti þremur héldi sér í mánuð áður en samruninn ætti sér stað en það gekk ekki eftir og því verður ekki gengið frá samnma fyrirtækjanna. ■ Sameiningu/Bl VISA og ÁTVR semja ÁFENGIS- og tóbaksverslun ríldsins og greiðslukortafyrir- tækið VISA undirrituðu í gær samning um viðtöku kredit- korta í verslunum ÁTVR. ÁTVR hafði áður gert samning við Eurocard-fyrir- tækið sem kom til fram- kvæmda 1. júlí síðastliðinn. ■ ÁTVR/B2 M orgunblaðið/Kristinn Heimsótti Vestmannaeyjar VESTMANNAEYJAR skörtuðu sínu fegursta þegar Göran Pers- son, forsætisráðherra Svíþjóðar, heimsótti þær í gær í fylgd Ólafs Davíðssonar, ráðuneytissljóra í forsætisráðuneytinu. Flogið var til Eyja um kl. 10 í gærmorgun. Þar tóku fulltrúar bæjaryfir- valda á móti ráðherranum, Eld- fellið var skoðað og hádegisverð- ur snæddur í Fjörunni. Þá var siglt í blíðskaparverði umhverfis eyjarnar undir leiðsögn Árna Johnsen alþingismanns og meðal annars skoðuð kvíin sem geyma mun háhyrninginn Keikó þegar hann kemur til landsins. Að því búnu var aftur flogið til Reykja- víkur um íjögurleytið síðdegis. Á myndinni sést ráðherrann í gul- um jakka en í baksýn er Stóri- Orn, norðan við Heimaey. ■ Fékk/30

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.