Morgunblaðið - 05.08.1998, Blaðsíða 1
173. TBL. 86. ARG. MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1998
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
_________________________________
Reuters
r sér eldhafíð fyrir norðan Aþenu.
*
Irakar harðorðir í garð vopna-
eftirlitsmanna í Bagdad
Saka SÞ um
að beita
blekkingum
Bagdad, New York, Manama, London. Reuters.
'VAXANDI spenna ríkir nú á nýjan
leik í samskiptum Bandaríkjanna og
íraks eftir að Richard Butler, yfir-
maður vopnaeftirlits Sameinuðu
þjóðanna, stytti dvöl sína í Bagdad
og hélt heim á leið eftir að hafa átt
árangurslausa fundi með leiðtogum
Iraka. Tareg Aziz, aðstoðarforsæt-
isráðherra Iraks, var í gær afar
harðorður og sakaði Butler um að
koma ekki hreint fram við Iraka.
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
SP, sagðist í gær vona að hér væri
einungis á ferðinni tímabundið
bakslag en Robin Cook, utanríkis-
ráðherra Bretlands, kvaðst hins
vegar „afar óánægður með að að-
gerðir írösku stjórnarinnar virtust
nú enn ætla að gera starfsmönnum
vopnaeftirlitsins erfitt fyrir“. Sagði
hann samsæriskenningar íraka
„hreinlega fáránlegar" og hvatti þá
til að breyta afstöðu sinni í málinu.
Að sögn Butlers höfnuðu Irakar
tillögum hans um frekara eftirlit,
sem standa myndi í einn mánuð, og
að þeir hefðu í staðinn farið fram á
að hann lyki strax starfi sínu, en til
að efnahagsþvingunum gegn írak
verði aflétt þarf Butler að hafa gefið
SÞ skýrslu um að írakar hafi eytt
gereyðingarvopnum sínum.
„Eg sagði Aziz að ég teldi mögu-
legt, ef við ynnum hratt og vel
næstu fjórar til fimm vikur og nyt-
um fullrar samvinnu frá stjórnvöld-
um í Irak, að svo gæti farið að ég
tilkynnti öryggisráði SÞ um niður-
stöður eftirlitsins," sagði Butler.
„Aziz krafðist þess hins vegar að ég
tilkynnti öryggisráðinu þegar að af-
vopnun íraka væri lokið. Ég hef
ekki fullnægjandi gögn til þess,“
sagði Butler, „og tilkynnti Aziz því
að ég gæti ekki orðið við óskum
hans.“
Harðorð ummæli Iraka
Tareq Aziz var harðorður í gær
og sakaði Butler um að fylgja ekki
ályktunum SÞ heldur utanríkis-
stefnu Bandaríkjanna. Sagði Aziz að
stjórnvöld í Bagdad myndu nú end-
urskoða samskipti sín við vopnaeft-
irlit SÞ með „lymskubrögð, undan-
slátt og kúganir" þess í huga. Talið
er að ummælin séu vísbending um
að írakar telji litlar líkur á að SÞ
aflétti efnahagsþvingunum sínum í
október, eins og áætlað hefur verið,
og að þeir telji að Bandaríkjamenn
hyggist sjá til þess að þvinganir séu
í gildi svo lengi sem Saddam
Hussein ræður ríkjum í Irak.
„Irak á engin gereyðingarvopn.
Við höfum eytt vopnum okkar. Þeim
tækjum sem notuð voru við gerð
þeirra hefur verið eytt,“ sagði Aziz
en kvaðst aðspui'ður ekki vita hvað
nú tæki við. „Ég ætla ekki að rasa
um ráð fram en við verðum nú að
meta stöðuna á nýjan leik og sann-
gjarnir meðlimir öryggisráðs SÞ
verða að gera það einnig."
Hæstiréttur Bandaríkjanna staðfestir dóm áfrýjunarréttar
Lögfræðingar for-
setans beri vitni
Havel
með
lungna-
bélgu
Prag. Reuters.
HJARTSLÁTTUR Václavs Havels,
forseta Tékklands, var orðinn reglu-
legur síðdegis í gær, en fyrr um dag-
inn höfðu læknar áhyggjur af óreglu-
legum slætti hjarta forsetans, sem
einnig er kominn með berkjulungna-
bólgu. Havel gekkst undir aðgerð
fyrir tíu dögum.
Havel er 61 árs og hefur að undan-
fórnu átt við veikindi að stríða.
Læknar hans sögðu að hann væri
enn tengdur við öndunarvél, en í gær
gerðu þeir á honum barkaskurð til
að hann ætti auðveldara með andar-
drátt eftir að hægra lungað féll sam-
an. Það var farið að virka eðlilega
síðdegis í gær.
„Hjarta [Havels] virkar nú eigin-
lega alveg eðlilega. Blóðrásin er
komin í rétt horf og samskipti við
forsetann eru eðlOeg miðað við að
hann sé tengdur öndunarvél,“ sagði
Ilja Kotik, yfirlæknir heilsugæsluliðs
forsetans, á fréttamannafundi í gær.
-----------------
Umdeild lög
g’eg'n vændi
í Svíþjóð
Stokkhólmi. Reuters.
SVIAR hyggjast koma lögum yfir þá
sem kaupa sér þjónustu
vændiskvenna og -karla með því að
gera slíkt athæfi ólöglegt. Lögin
ganga í gildi um næstu áramót en
deilt er um hvort þau nái tilgangi
sínum eða verði einungis til þess að
vændi verði ofurselt undirheimum
skipulagðrar glæpastarfsemi, þar
sem melludólgar frá Austur-Evrópu
ráða ríkjum.
Sænskir félagsráðgjafar halda því
fram að lögin verði aðeins til þess að
auka umsvif dólganna. Auðveldai’a
verði iyrir þá en áður að hneppa fólk
í vændi og hættan á ofbeldi og hvers
kyns kúgun þeirra sem stunda
vændi magnist einnig.
Inger Segelström, formaður
kvennanefndar Sósíaldemókrata-
flokksins, segir lögin hins vegar
nauðsjmleg: „Það er tímabært að
hætta að taka tillit til þeirra sem
kaupa sér þjónustu vændiskvenna.
Konui' eru ekki söluvara,“ sagði hún
í viðtali við Dagens Nyheter. „Mellu-
dólgarnii' eru heldur ekki nýtilkomn-
ir. Tveir þriðjuhlutar vændiskvenna
stunda störf sín innan dyra, sem
þýðir að vændi hefur farið fram með
skipulegum hætti í Svíþjóð í tvo til
þrjá áratugi.“
------♦-♦-♦---
Metverðfall á
Wall Street
New York. Reuters.
MESTA verðfall sem orðið hefur á
þessu ári varð á hlutabréfamörkuð-
um í Bandaríkjunum í gær, er Dow
Jones-vísitalan lækkaði um 3,4%, eða
299,43 stig. Við lokun stóð hún í
8.487,31, og hefur ekki verið lægri
síðan 5. mars sl. Fréttaskýrendur
sögðu enga eina ástæðu vera fyrir
lækkuninni, en fjárfestar teldu lík-
legt að hagnaður fyrirtækja yrði
áfram lítill á síðari hluta þessa árs.
Skógareldar
nærri Aþenu
Aþenu. Reuters.
MIKLIR skógareldar hafa geisað
á Pendeli-fjalli í nágrenni Aþenu
síðan á mánudag. í gær læsti eld-
urinn klónum í þorpið Anthoussa,
sem liggur 25 km norðaustur af
höfuðborginni, og þrjátíu heimili
eyðilögðust. Enginn hefur slasast,
en talið er að brennuvargar hafí
kveikt eldana. Um 600 slökkvi-
liðsmenn berjast við eldana, sem
skilið hafa eftir þúsundir hektara
af sviðinni jörð.
Ríkisstjórn Grikklands hefur
lýst yfir neyðarástandi í úthverf-
um nyrst í Aþenu og varað al-
menning við að fara nærri svæð-
inu. Costas Simitis forsætisráð-
herra sneri heim úr sumarleyfi í
gær og boðaði sérstakan neyðar-
fund.
Skógareldar hafa brunnið víða
á Grikklandi í sumar. Saksóknar-
inn í Aþenu er að rannsaka ásak-
anir þess efnis að brennuvargar
hafi kveikt eldana svo að ryðja
mætti land til nýbygginga.
Slökkviliðið hefur einnig legið
undir ámæli fyrir slaka frammi-
stöðu í baráttunni við eldana.
LANNY Breuer, einn lögfræðinga
og ráðgjafa Bills Clintons Banda-
ríkjaforseta, kom í gær fyrir rann-
sóknarkviðdóm og bar vitni um sam-
skipti sín við forsetann vegna ásak-
ana í hans garð um ástarsamband við
Monicu Lewinsky og meinta hvatn-
ingu til meinsæris. William H.
Rehnquist, forseti Hæstaréttar í
Bandaríkjunum, hafði úrskurðað að
tveir lögfræðinga forsetans skyldu
mæta fyrir rannsóknarkviðdóminn.
Annar lögfræðingur forsetans,
Bruce Lindsey, mun mæta fyrir kvið-
dóminn þegar hann hefur jafnað sig
eftii' bakaðgerð er hann gekkst undir
í síðustu viku. Lögfræðingarnir höfðu
haldið því fram að vegna ákvæða um
trúnað á milli lögmanna og skjól-
stæðinga mættu þeir ekki bera vitni
um samskipti sín við forsetann.
Alríkisáfrýjunan'éttur hafði kom-
ist að þeirri niður-
stöðu að trúnaðai'-
ákvæðin giltu ekki
um samskipti Breu-
ers og Lindseys við
forsetann og Rehn-
quist vildi ekki
ógilda niðurstöðu
réttarins. Kenneth
Starr, sérstakur
saksóknari er rann-
sakar meint misferli forsetans, held-
ur því fram að sem lögfræðingar á
vegum stjórnvalda geti Breuer og
Lindsey ekki borið fyrir sig trúnað.
Afrýjunarrétturinn hafði sæst á
þessi rök Starrs, en forsetaembættið
áfrýjaði þeirri niðurstöðu réttarins til
Hæstaréttar og fór ennfremur fram
á að lögmönnunum tveim yrði ekki
gert að mæta fyrir kviðdóminn fyrr
en öllum níu dómurum Hæstaréttar
hefði gefist færi á að fjalla um áfrýj-
unina. Með úrskurði sínum hafnaði
Rehnquist beiðni embættisins.
Embættismenn í Hvíta húsinu
lýstu vonbrigðum sínum með niður-
stöðuna. „Trúnaður á milli lögfræð-
ings og skjólstæðings er ein af undir-
stöðum réttarkerfisins [í Bandaríkj-
unum],“ sagði Charles Ruff, lögmað-
ur forsetans, er niðurstaða áfrýjun-
an'éttarins lá fyrir á mánudag. „Sá
trúnaður sem ríkir í samskiptum lög-
fræðings og skjólstæðings skiptir alls
ekki minna máli þegar stjómvöld
eiga í hlut en í öðrum tilvikum."
Afrýjunarrétturinn hafði komist að
þehri niðurstöðu að þar eð Lindsey
væri lögfræðingur ríkisstjórnarinn-
ar, en ekki einkalögfræðingur Clint-
ons, gæti hann ekki borið fyrir sig
ákvæði um trúnað milli lögfræðings
og skjólstæðings.