Morgunblaðið - 05.08.1998, Page 4

Morgunblaðið - 05.08.1998, Page 4
4 MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR SKIP frá sex aðildarríkjum Atlantshafsbandalagsins, sem mynda fastaflotann á Ermarsundi, liggja nú í Reykjavíkurhöfn. Morgunblaðið/Ásdís GEIR Flage skipherra, yfirmaður Ermarsundsflotans. Heimsókn Ermarsundsflota Atlantshafsbandalagsins Vilja efla samstarf Landhelg- isgæzlunnar við flota NATO HEIMSÓKN sex tundurduflaslæð- ara úr fastaflota Atlantshafsbanda- lagsins á Ermarsundi hingað til lands er liður í því að efla samstarf íslenzku Landhelgisgæzlunnar við flota NATO. Að sögn Geirs E. Flage skip- herra, yfírmanns flotadeildarinnar, er tilgangur heimsóknarinnar m.a. að fræða Landhelgisgæzluna um tund- urduflavamir og útskýra fyrir henni hvað þurfí til að taka þátt í slíkri starfsemi. Á blaðamannafundi Flages um borð í norska herskipinu Vidar í gær kom fram að Ermarsundsflotinn er ein af hraðsveitum NATO og er meg- inverkefni hennai- að finna og eyða tundurduflum. Flotadeildin heyrir undir yfirmann herafla NATO í Evr- ópu og getur brugðizt skjótt við, sé þörf á vömum gegn tundurduflum, ekki aðeins í Ermarsundi heldur hvar sem krafta hennar er þörf. Ermarsundsflotinn er nýkominn frá æfmgum við Bandaríkin og Kanada og er þetta í fyrsta sinn, sem hann fer til æfinga annars staðar en við strendur ríkja Vestur-Evrópu. Þetta er jafnframt fyrsta Islandsheimsókn flotadeildarinnar. Flage segir að aðOdarríki NATO hafi undanfarin ár lagt aukna áherzlu á tundurduflavamir, meðal annars vegna reynslunnar af átökum við Falklandseyjar og við Persaflóa, en þar var tundurduflum beitt óspart til að teppa siglingaleiðir og hamla för innrásarflota. Að sögn Flages hefur tækninni fleygt fram, bæði í smíði tundurdufla og skipa til að uppræta þau. I flotadeildinni, sem liggur við Faxagarð í Reykjavíkurhöfn, er þannig nýsmíðaður norskur tundur- duflaslæðari, sem siglir á loftpúða, er hljóðlátur og gefur frá sér lítið af segulbylgjum, en nútímatundurdufl era mörg hver hönnuð til að springa af völdum hljóð- og segulbylgna. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins hefur flotastjóm NATO sýnt þvi áhuga á undanfömum áram virkja íslenzku Landhelgisgæzluna í auknum mæli í starfsemi flota banda- lagsins. Hefur einkum verið rætt um þátttöku í tundurduflavarnaæfíngum í því sambandi. I þessu skyni sendi Halldór Ásgrímsson utanríkisráð- herra Ermarsundsflotanum boð árið 1996 um að koma í heimsókn hingað til lands þegar tækifæri gæfist og veita Landhelgisgæzlunni tilsögn í tundurduflavörnum. Heimsóknin hefur því verið í undirbúningi í tvö ár. Meðan á heimsókn Ermarsunds- flotans stendur munu skip hans starfa með Landhelgisgæzlunni, fræða starfsmenn hennar um tund- urduflavamir og sýna þeim vinnu- brögðin. í dag munu skipin t.d. sýna tundurduflaslæðingu norðaustan við Engey, en þar hefur verið komið fyr- ir óvirkum duflum. Á morgun verður jafnframt haldin björgunaræfing með varðskipinu Tý; látið verður sem eldur hafi komið upp á Tý og skip NATO-flotans munu veita aðstoð. Flage skipherra segir að til þess að Landhelgisgæzlan geti sinnt tundur- duflavörnum verði hún að búa yfir háþróuðum tækjum til slíkra starfa, en þau era afar dýr. „Hugmyndin með heimsókn okkar er m.a. að við skýram íslenzku Landhelgisgæzlunni frá því hvernig hún geti hugsanlega tekið þátt í tundurduflavömum í framtíðinni og hvað hafa þurfi í huga, vilji Landhelgisgæzlan hefja leit að tundurduflum," segir Flage. Flage segir að enn sé mikið af tundurduflum í hafinu frá seinna stríði. Flest séu þau óvirk, en geti verið hættuleg ef menn fikti við þau án þess að búa yfir nauðsynlegri kunnáttu. Hann segir að yfirleitt rek- ist skip flotadeildarinnar á gömul dufl fyrir tilviljun. Það hafi komið fyrir að þýzk dufl hafi fundizt úti fyr- ir ströndum Noregs, þar sem enn var straumur á rafhlöðunni eftir hálfa öld í sjó. í Eystrasalti sé einnig talsvert af tundurduflum sem floti Sovétríkj- anna hafi lagt. 36 ljósmæður drdgu uppsagmrnar til baka Engin röskun á starfsemi kvenna- deildarinnar ALLS 36 ljósmæður á Landspítal- staðgengils hjúkrunarframkvæmda- anum, af þeim 40 sem sagt höfðu upp störfum vegna deilna um launa- kjör, drógu uppsagnir sínar til baka fyrir miðnætti á föstudagskvöld, að sögn Steinunnar Ingvarsdóttur Stjórn LÍN Mælt með Steingrími Ara Arasyni STJÓRN Lánasjóðs íslenskra námsmanna (LIN) hefur mælt með því við menntamálaráð- herra að Steingrímur Ari Ara- son aðstoðarmaður fjármálaráð- herra 'verði skipaður í stöðu framkvæmdastjóra LÍN um næstu áramót, en núverandi framkvæmdastjóri Lánasjóðs- ins, Lárus Jónsson, hefur sagt starfi sínu lausu. Auk Steingríms sóttu þrír um framkvæmdastjórastöðuna, þeir Hjálmar Kjartansson, Pétur Rasmussen og Henrý Granz. Að sögn Gunnars Birgissonar for- manns stjórnar LÍN naut Stein- grímur yfirgnæfandi stuðnings innan stjórnarinnar. stjóra á Landspítalanum. Ekki kom því til röskunar á starfsemi kvenna- deildar spítalans um helgina. Ein Ijósmóðir lét uppsögnina standa en óvíst er með þær þrjár sem eftir era þar sem þær eru í sumarfríi erlend- is. Að sögn Steinunnar hafa þær enn nokkum frest til þess að draga upp- sagnir sínar til baka. Að sögn Guðrúnar G. Eggerts- dóttur, yfirljósmóður á fæðingar- deild Landspítalans, fengu ljós- mæður ekki þá kjarabót sem þær vildu ná fram með uppsögnum sín- um, sem snerist aðallega um hækk- un grannlauna Ijósmæðra. Hún seg- ir að það hafi verið erfið ákvörðun hjá ljósmæðrunum að draga upp- sagnirnar sínar til baka, en það væri líka erfitt að hætta í starfi og horfa í kjölfar þess upp á „vand- ræðaástand á deildinni sinni“. Anna Stefánsdóttir hjúkrunarfor- stjóri á Landspítalanum vildi í sam- tali við Morgunblaðið ekkert tjá sig um þá spumingu hvort einstökum ljósmæðram hefði verið gert eitt- hvert tilboð á fostudag. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hækka ljósmæður á fæðingargangi hins vegar um einn launaflokk nú þegar vegna framgangskerfisins svokall- aða, en sú hækkun hefði að öðram kosti sennilega ekki komið til fram- kvæmda fyrr en í byrjun næsta árs. Ljósmynd/Þórður Kristjánsson Köttur VISSULEGA getur það verið spennandi að klifra upp á þak og virða fyrir sér útsýnið yfir Vest- urbæinn en verra getur það verið þegar kemur að því að líta niður á götu og huga að því að koma sér heim aftur. Þá getur lofthræðslan gert vart við sig. Svarti kötturinn sem hafði farið upp á þak húss við í klípu Seljaveg á laugardagsmorguninn lenti í slíkri klípu - hann varð log- andi hræddur og komst ekki nið- ur. Á endanum kölluðu menn á jörðu niðri til hjálp frá Slökkvilið- inu í Reykjavík og þaðan komu vaskir menn f fullum herklæðum. Þeim var lyft upp í körfubíl og fékk kötturinn far niður. Frumlegar auglýsing- ar frá Patreksskóla Refakjöt, harðfiskur og kennarar AUGLÝSINGAR um lausar kenn- arastöðui- frá Patreksskóla á Pat- reksfirði era all óvenjulegai-. I aug- lýsingunum er m.a. spurt í fyrirsögn- um hvort fólki finnist refakjöt gott, harðfiskur góður, hvort það hafi séð Látrabjarg og jafnframt kemur fram að kennai’a vanti við skólann. Skólastjórinn, Guðbrandur Stígur Ágústsson, og aðstoðarskólastjórinn, Valgarður Lyngdal, era hugmynda- smiðirnir og segir Guðbrandur þá áð- ur hafa vakið athygli á skólanum með óvanalegum hætti, m.a. á kynningum í Kennaraháskólanum, þar hafi þeir gefið kennaraefnum harðfisk eitt áiið og grjót úr Látrabjargi annað ár. Guðbrandur segir auglýsingarnar vekja meiri viðbrögð en hefðbundn- ari auglýsingar, kennarar hringi mik- ið til að spyrjast fyrir og bæjarbúar séu ánægðir með þá jákvæðu mynd sem auglýsingamar gefi af Patreks- firði og skólanum. Hann segir spurn- ingar um refakjöt og harðfisk ekki úr lausu loft gripnar, þær tengist bæjar- lífinu á einn eða annan hátt, svokall- aðir pottormar á Patreksfirði hafi á sínum tíma vakið athygli fyrir að matreiða refakjöt og mikil harðfisk- verkun sé í bænum. Tvo kennara vantai- við skólann í haust og að sögn Guðbrands er ekki búið að ganga frá ráðningum, en hann segist ekki svartsýnn á að það gangi vel þar sem töluvert sé búið að hafa samband. --------------- Landsbanki íslands Ekki endan- legt verðmat MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi fréttatilkynning frá Landsbanka íslands hf. „Að undanförnu hefur verið unnið að stefnumótun innan Landsbanka íslands hf. til að treysta stöðu bank- ans sem stærsta fjármálafyrirtækis landsins. Markmiðið er að efla alhliða fjármálaþjónustu bankans, bæði á sviði einstaklings- og fyrirtækjavið- skipta. Þá er það einnig markmiðið að styrkja eiginfjárp-undvöll Lands- bankans með útboði nýs hlutafjár og styrkja alþjóðlegan þátt í starfsemi hans. Einn þáttur í þessari vinnu hef- ur falist í ráðgjöf alþjóðlega fjármála- fyrirtækisins JP. Morgan sem ráðið var fyrr í sumar til að annast ráðgjöf varðandi verðmat, stefnumótun, sam- setningu efnahagsreiknings bankans og fjármögnun, og mat á eftirspurn erlendra fagfjárfesta eftir hlutabréf- um í bankanum. I tilefni af fréttum um verðmat á bankanum skal tekið fram að þær tölur sem þar komu fram era hvorki komnar frá Landsbankanum né JP Morgan. Endanlegt mat á verðmæti Landsbanka íslands liggur ekki fyr- ir, en niðurstöður JP Morgan eru einungis einn þáttur í mati á útboðs- gengi á hlutabréfum í bankanum. Lokaúttekt stendur nú yfir og munu niðurstöður hennar tengjast undir- búning hlutafjárútboðs sem ráðgert er að fari fram síðar á þessu ári.“ -----------♦♦♦------ Manni bjargað úr logandi húsi í Vopnafirði ELDUR kom upp í þvottahúsi í ein- lyftu íbúðai-húsi við Miðbraut í Vopnafirði aðfaranótt sl. sunnudags. Nokkrar skemmdir urðu á húsinu vegna reyks og sóts. Ekki var mikiU eldui’ þegai’ slökkvilið kom á staðinn en reykur var mikill undan þakskeggi. Ekki er vitað hver eldsupptökin voru. Maður vai- sofandi í húsinu þegar eldurinn kom upp. Björgunai-sveitaimaður frá Vopnafirði skreið inn í húsið og bjargaði manninum út. Hann var fluttur á heilsugæslustöðina en reyndist ekki mikið slasaður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.