Morgunblaðið - 05.08.1998, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1998 13
heilbrigðissviði
Morgunblaðið/Kristinn
Notendur gagnagrunnsins, þ.e. utan-
aðkomandi vísindamenn, íslensk heil-
brigðisyfirvöld og aðrir notendur,
munu svo fá heimildir frá aðgangs-
nefnd og vísindasiðanefnd til þess að
komast inn í kerfið.
„Hugmyndin með gagnagrunnin-
um er að vinna að þýðisrannsóknum
en við höfum engan áhuga á að reyna
að komast að upplýsingum um ein-
hverjar persónur sem slíkai-. Þar af
leiðandi má takmarka mjög mikið eðli
þeirra fyrirspurna sem yrðu mögu-
legar í kei'finu. Hugmyndin er að það
yrði ákveðið lag sem allar fyrirspum-
ir yrðu að fara í gegnum, ekki einung-
is væru takmarkaðar þær fyrirspum-
ir sem lagið býður upp á, heldur yrðu
einnig takmarkaðar þær niðurstöður
sem koma til baka úr laginu. Eitt af
því sem við gemm með svona gagna-
gmnni er að skilgreina hópa af ein-
staklingum sem hafa einhverja
ákveðna eiginleika og rannsaka eðli
og samspil ákveðinna sjúkdóma. Nú
má setja kerfið þannig upp að það sé
ekki hægt að skilgreina þrengri hópa
en svo að t.d. 10-20 manns séu í hópn-
um og þar af leiðandi er aldrei hægt
að gera hópinn það þröngan að maður
geti þekkt einstaklingana í hópnum.
Sömuleiðis verður svo hægt að fyrir-
Tómas gagnrýnir einnig ákvæði
framvarpsins um einkarétt á starf-
rækslu gagnagrunnsins og segir það
leiða til einokunar og sé vísasti veg-
urinn til stöðnunai'. „Ef þetta yrði nú
boðið út á ég eftir að sjá að það fyrir-
tæki sem yrði undir héldi áfram að
vinna á þessum markaði. Fmmvarpið
laðar ekki að og vinnur því gegn
þessum rannsóknum," segir hann.
Tómas segir til bóta í nýja fmm-
varpinu að nú sé gert ráð fyrir að ein-
staklingar geti neitað að upplýsingar
um þá verði settar í miðlægan gagna-
grunn. „Auðvitað ætti þetta að vera
þannig að þeir ættu að gefa heimild
til þess en þetta er þó skárra en það
var. Mér sýnist hins vegar að þetta
ákvæði verði til þess að ekki verði
hægt að nota upplýsingar um látið
fólk, vegna þess að það hefur ekki
haft tækifæri til þess að hafna því að
upplýsingar um það verði geymdar í
þessum gagnagrunni. Óvissan hlýtur
að verða hinum látna í hag. Þetta
hlýtur einnig að verða til þess að
hluti fólks muni neita því að upplýs-
ingar um það verði settar inn í svona
miðlægan gmnn. Það verður til þess
að gmnnurinn verður mjög götóttur
og gagnslítill," segir Tómas.
Þörf á að fá cinnig upplýsingar
um efni lífsýnafrumvarps
Sigurður Björnsson sérfræðingur
segir gi'einilegt að efni frumvarpsins
hafi verið lagfært á ýmsa lund í sum-
ar. Hins vegar séu þó enn í því ýmis
þýðingarmikil álitamál sem þurfi að
skoða vel. „Það er engin spurning að
frumvarpið er betur unnið. Það hefur
verið tekið tillit til athugasemda sem
hafa verið gerðar. Það breytir ekki
Breytingar sem gerð-
ar hafa verið til bóta
Efasemdir á Alþingi um einstök atriði frumvarpsins
byggja að margar mismunandi fyrir-
spurnir séu notaðar til þess að
þrengja viðkomandi fyi-ispurn enn
frekar. Þannig má tryggja að notend-
ur geti á engan hátt dregið upplýsing-
ar út úr kerfinu sem skilgreina mjög
fámennan hóp,“ segir Hákon enn-
fremur. Þetta ítrekar Kári og segir
kerfið byggt upp i kringum þá hug-
mynd að gagnagmnnurinn verði ein-
göngu notaður til þess að byggja upp
upplýsingar um hópinn en aldrei til
þess að búa til upplýsingar um ein-
staklinga.
Einkaréttur frumforsenda mark-
aðssetningar erlendis
Jóhann Hjartarson, lögfræðingur
hjá Islenskri erfðagi'einingu, fjallaði
stuttlega um gagnagrannsframvarpið
og skilgreiningu þess á persónuupp-
lýsingum og vai' niðm'staða hans sú
að það bryti ekki á nokkurn hátt í
bága við alþjóðasamþykktir.
Hvað vai'ðar einkarétt segir Kári
það fmmforsendu hans að hægt verði
að markaðssetja gagnagranninn er-
lendis. „Einkaréttur er í mínum huga
alger forsenda þess að hægt sé að
nota þennan gagnagi'unn til þess að
búa til verðmæti fyrir íslenskt samfé-
lag,“ segir hann. „Kostnaðurinn við
uppbyggingu gagnagrannsins er tölu-
verður, það er staðreynd að þó svo að
menn séu sammála um að þessi
gagnagrannur komi til með að búa til
mikilvæga þekkingu og bjóða upp á
nýjar aðferðir til þess að stjórna heil-
brigðiskerfinu þá hefur enginn mark-
aðssett svona gagnagrann áður. Og
þó svo að ég hafi ásamt mínu fólki
rætt við fjöldann allan af fólki erlend-
is, við lyfjafyrirtæki, ti-yggingafyrir-
tæki o.s.frv. og þau tjáð áhuga sinn á
þessu hefur ekkert slíkt fyrirtæki
ennþá borgað fé fyrir aðgang að
svona upplýsingum. Þannig að þó ég
haldi að það sé líklegt að hægt sé að
markaðssetja þær er það ekki sannað
og í þessu felst töluverð áhætta. Eftir
að einn aðili er búinn að byggja upp
svona gagnagrann í íslensku samfé-
lagi er mun ódýrara fyrir þann sem á
eftir kemur að búa til slíkan gagna-
grann. Sá sem setur saman fyrsta
gagnagrunninn þarf að keppa við að-
ila sem hefúr miklu minni stofnkostn-
að. í því felast erfiðleikar sem ég held
að geri það að verkum að það verði
erfitt að finna fé til þess,“ segir hann.
Kári bætir við að þar með sé hann
alls ekki að segja að það sé náttúi'U-
lögmál að það verði Islensk erfða-
greining sem markaðssetji gagna-
grunninn en leggur áherslu á að sá
sem ætli að markaðssetja hann verði
að hafa til þess einkarétt, annars geti
hann það einfaldlega ekki.
því að þarna eru nokkur atriði
óbreytt þó þau hafi verið umorðuð.
Þarna eru prinsippmál sem þarf að
skoða vel á næstunni," segir Sigurð-
ur.
Hann segir að ákvæði framvarps-
ins sem geri ráð fyrir að einum aðila
verði veittur einkaréttur sé eitt erfið-
asta álitaefni framvarpsins, þrátt fyr-
ir að orðalagið hafi nú verið umorðað.
Sigurður bendfr einnig á að nauð-
synlegt sé að fá upplýsingar um efni
lífsýnaframvarps sem unnið hefur
verið að í heilbrigðisráðuneytinu.
Hann bendir á að í upphaflega gagna-
gi-unnsframvai'pinu sem lagt var
fram í mars hafi komið fram að frum-
vai-pið um lífsýni væri tilbúið í ráðu-
neytinu. Sigurður kveðst undrast að
lífsýnaframvarpið hafi ekki verið
kynnt um leið og endurskoðað frarn-
varp um gagnagranna svo skioða
megi þessi framvörp í samhengi, því
um mjög skyld mál væri að ræða.
Breytingar til bóta
Ólafur S. Andrésson, lífefnafræð-
ingur á Tilraunastöð HÍ i meinafræði
á Keldum, lýsti þeiiri afstöðu sinni sl.
vor þegar gagnagrunnsframvarpið
vai' lagt fram að gagnagrunnur
ásamt möguleikum á tengingum við
erfðaupplýsingar myndi efla vísinda-
starf á heilbrigðissviðinu. Ólafur
kveðst ekki hafa séð hið endurskoð-
aða framvarp heilbrigðisráðherra en
samkvæmt fréttum af frumvarpinu
sýnist honum það vera í samræmi við
þau sjónarmið sem hann hafi sett
fram um málið. Ólafur kvaðst telja
ljóst að þær breytingar sem gerðai'
hafi verið á frumvarpinu væra til
bóta.
ÞINGMENN stjórnar og stjórnar-
andstöðu í heilbrigðis- og trygginga-
nefnd Alþingis, sem Morgunblaðið
ræddi við, era flestir þeirrar skoðun-
ar að endurskoðað framvai'p um
gagnagranna á heilbrigðissviði sé
mjög til bóta frá því sem verið hafi.
Jafnframt hafa þeir uppi efasemdir
um einstök atriði frumvarpsins og
Lára Margrét Ragnarsdóttir, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins, segir að
mjög mörgum spurningum sé enn
ósvarað og margt þurfí að skýrast
miklu betur áður en afstaða til fram-
varpsins verði tekin og Alþingi geti
afgreitt það.
Jákvæðar breytingar
Siv Friðleifsdóttir, þingmaður
Framsóknarflokksins og varafor-
maður heilbrigðis- og trygginga-
nefndar, sagði að gagnagrunnsfrum-
vai-pið hefði tekið jákvæðum breyt-
ingum og búið væri að koma til móts
við athugasemdir heilbrigðisstétta,
sjúklingahópa og vísindamanna.
„Það er líka búið að koma til móts
við það sem ég hafði mestar áhyggj-
ur af, þ.e.a.s. mál sem snúa að per-
sónuvernd. Það er búið að styrkja
veralega hlutverk tölvunefndar og í
framhaldinu þarf að efla tölvu-
nefnd,“ sagði Siv.
Hún sagði að í dag væri tölvu-
nefnd einungis með einn fastan
starfsmann í hálfu starfi, auk þess
sem nokkrir eftirlitsmenn væra í
hlutastörfum. Það væri alveg ljóst að
það þyrfti að efla mjög starfsemi
tölvunefndar, vegna þess víðtæka
hlutverks sem hún fengi í tengslum
við þetta gagnagrunnsfrumvarp, að
hafa eftirlit með miðlægum gagna-
granni. „Málið er komið í afar já-
kvæðan og góðan farveg og ég á
fastlega von á því að það skapist um
þetta mál breið pólitísk samstaða,"
sagði Siv.
Hún sagði að gagnagrannurinn
væri jákvæður vegna þess að hann
skapaði möguleika á bættri meðferð
sjúkdóma. Annað sem oft gleymdist í
þessari umræðu væri að hagur heil-
brigðisyfirvalda af miðlægum gagna-
granni væri mikill vegna þess að það
auðveldaði heilbrigðisyfirvöldum að
stýra heilbrigðisþjónustunni í fram-
tíðinni.
Siv benti einnig á að samkvæmt
breytingum á fnimvarpinu gæti fólk
nú neitað að upplýsingar um það
færa inn í gagnagranninn. Hún ætti
fastlega von á að fáir myndu nýta sér
það, þar sem búið væri að tryggja
persónuvernd í gagnagrunninum.
Mjög til bóta
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir,
þingmaður jafnaðai-manna, sagði að
þetta endurskoðaða framvarp væri
mjög til bóta. Tekið hefði verið tillit
til ýmissar gagnrýni sem komið hefði
fram við umfjöllun um málið í vor.
Hún sæi ekki betur en að allar þær
breytingar sem gerðar hefðu verið
stuðluðu að því að gera frumvarpið
betra.
Hún bætti því við að ennþá væra
samt nokkur atriði sem velta þyrfti
betur fyrir sér, eins og til dæmis
hvort fara þyrfti fram útboð vegna
veitingar einkaréttar á þessu sviði
og einnig hvað varðaði gjaldtöku fyi'-
ir einkaréttinn. Komið hefðu fram
staðhæfingar um að nauðsynlegt
væri að fram færi útboð á þessu sviði
vegna aðildar okkar að Evi'ópska
efnahagssvæðinu. Þá þyrftu menn
einnig að velta fyrir sér í hvaða formi
gjaldtaka af rekstrarleyfishafanum
ætti að vera. Samkvæmt framvarp-
inu væri gert ráð fyrir að hann
greiddi ýmsan kostnað við útgáfu
einkaréttarins og eftirlit, en spurn-
ing væri hvort ekki væri eðlilegra að
rekstrarleyfishafinn ætti að greiða
fyrir aðgang að þessum upplýsing-
um, þ.e. fyrir þá auðlind sem honum
sé veittur aðgangur að við gerð
gagnagrunnsins. Síðan gætu þær
greiðslur meðal annars staðið undir
kostnaði við eftirlit og annað sem
frumvarpið hafi í för með sér.
Hún sagði að allar breytingar sem
gerðar væra varðandi pei-sónuvemd
í frumvarpinu væra mjög til bóta eft-
ir því sem hún best fengi séð og hún
hefði því í rauninni ekki áhyggjur af
þeim þætti lengur. Þar hefði verið
komið til móts við þá gagnrýni sem
sett hefði verið fram á framvarpið.
Sér virtist heldur ekki lengur til að
dreifa hættu á því að gerð gagna-
grannsins torveldaði störf annarra
vísindamanna.
Ásta sagði að þessi endurskoðun
frumvarpsins sýndi hvað það væri
mikilvægt að keyra ekki svona stór
mál eins og þetta í gengum þingið á
stuttum tíma, eins og til hefði staðið í
vor, heldur gefa sér góðan tíma til að
fara yfir þau.
Mörgum spurningum ósvarað
Lára Margrét Ragnarsdóttir,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins,
sagði að þó margt í vinnu nefndar-
innar við frumvarpið horfði til betri
vegar væri langur vegur frá því að
niðurstaðan væri fullnægjandi og
mörgum spurningum væri enn
ósvarað í þessum efnum. Mjög
margt þyrfti að skýrast miklu betur
áður en hægt væri að taka afstöðu til
frumvarpsins og Alþingi gæti af-
greitt það. Þá átaldi hún að fjölmiðl-
um væra fyrst kynntar niðurstöður
nefndarinnar áður en nefndarmönn-
um í heilbrigðis- og tryggingarnefnd
gæfist kostur á að kynna sér þær,
auk þess sem sérkennilegt væri að
heyra Kára Stefánsson, forstjóra ís-
lenskrar erfðagreiningar, með fullri
vh-ðingu fyrir honum, mæla . fyrir
frumvarpinu í fjölmiðlum, þar sem
fyrirtæki hans ætti hagsmuna að
gæta í málinu. Hins vegar hefði lítið
borið á heilbrigðis- og tryggingaráð-
herra í umfjöllun um málið.
Lára sagðist vilja taka fram að allt
frá því hún hefði komið heim frá
framhaldsnámi 1983 hefði hún ítrek-
að talað um hve mikilvægar upplýs-
ingar í heilbrigðiskerfinu væru og
hversu dýrmætar þær væra. Það
væri langur vegur frá að hún væri
andvíg slíkum upplýsingum. Hins
vegar teldi hún að stefna ríkisstjórn-
arinnar á síðasta ári um það hvernig
standa ætti að upplýsingaöflun í heil-
brigðiskerfinu og nýtingu þeirra
betri kost en búa til miðlægan
gagnagrann. í þeirri stefnu væri
gert ráð fyrir því að upplýsingamar
ættu að geymast þar sem þær yrðu
til.
Hvað einstök atriði varðaði í fram-
varpinu sagði hún að vísað væri til
samþykkta Evrópuráðsins og einnig
samþykkta í þessum efnum frá Nor-
egi. Hún hefði þær ekki undir hönd-
um og gæti því ekki séð hvernig þeir
vinnuhópar sem hefðu unnið að und-
irbúningi framvarpsins hefðu nýtt
þær. Síðan fyndust henni umræður
um ávinninginn af gagnagrunninum
sérkennilegar. Aukin gæði væra
nefnd í því sambandi og hún spyi'ði á
hvern hátt. Hún sæi heldur ekki
hvernig menn ætluðu að spara í heil-
brigðiskerfinu með því að eiga þenn-
an gagnagrann.
Lára sagði að stóra spurningin
væri loks sú hvort að í framvarpinu
væri verið að hleypa erlendum aðil-
um að eignarhaldi í þessu fyrii’tæki,
sem í upphafi hafi átt að vera alís-
lenskt og upplýsingar eingöngu að
geymast á Islandi. Margs konar
möguleikar á misnotkun fylgi gerð
miðlægs gagnagrunns af þessu tagi
alveg sama hversu vel sé búið um
hnútana og því skipti miklu máli að
íslendingar hafi ávallt forræði máls-
ins með höndum.
Lára benti einnig á að ekki væri
talað um hverjir ættu að búa upplýs-
ingai- til flutnings. Einungis væri tal-
að um sérhæfða starfsmenn heil-
brigðisþjónustunnar og sú sérhæfíng
ekkert nánar tilgreind.
Lára sagði loks að hún teldi einnig
mjög varhugavert að safna saman i
einn miðlægan gagnagrann upplýs-
ingum ekki bara um sjúkdóma og
heilsu heldur árangur af meðferð,
aukaverkanir, blóðsýni allra Islend-
inga, fjármál þeirra, kostnað við heil-
brigðisþjónustu o.fl. Þá væri tekið
fram að frumvarpið tæki ekki til líf-
sýna. I framvarpi um réttindi sjúk-
linga sem samþykkt hafi verið á síð-
asta ári sé ákvæði um að Tölvunefnd
gefi leyfi til upplýsinga um lífsýni og
vitað sé að frumvarp um lífsýni sé í
undirbúningi í heilbrigðisráðuneyt-
inu. Lífsýni gefi alla mögulega kosti
á því að gefa upplýsingar um mann-
eskjuna. Það megi velta fyrir sér
hvað ganga þurfi langt til þess að
tölvunefnd gefi heimild til athugunar
lífsýna. I þessum miðlæga gagna-
gi-unni skapist möguleikar á að finna
hvers kyns upplýsingar um einstak-
lingana og ekki séu enn gerðar nægi-
lega tryggar ráðstafanir til þess að
koma í veg fyrir misnotkun þeirra.
Það sé lykilatriði í þessum efnum og
þótt tekið sé fram að einstaklingur
hafi heimild til þess að neita því að
upplýsingar um hann fari inn í
gagnagranninn komi ekkert fram
um það hversu vel upplýstur ein-
staklingui’ þurfi að vera þegar hann
taki ákvörðun um slíkt. „Mér finnst
það mjög mikilvægt að sjúklingur
viti nákvæmlega hvað hægt er að
gera við þær upplýsingar sem fara
þarna inn. Almenningur þarf að fá
mun nákvæmari og opnari umræður
um þessi mál til að hann geti tekið
afstöðu til svo viðkvæmrar persónu-
legrar upplýsingagjafar," sagði Lára
Margrét að lokum.
Tvímælalaust til bóta
Guðný Guðbjömsdóttir, þingmað-
ur Kvennalista, sagði að framvarpið
væri tvímælalaust til bóta, einkum
hvað varðaði það að vernd persónu-
upplýsinga væri betur tryggð en áð-
ur. Styrkja ætti starfsemi Tölvu-
nefndar og alveg væri skýrt hvernig
hún ætti að standa að eftirlitshlut-
verki sínu. Einnig væri mjög gott að
fólk gæti valið um það hvort upplýs-
ingar um það færu inn í gagna-
grunninn. Hins vegar væri ekki tekið
á þeim vanda sem gæti skapast
vegna þess að trúnaðarsambandi
læknis og sjúklings væri ógnað eí
læknir sla'áði allt í sjúkraskrá sem
þeim færi á milli. Sambandinu væri
hugsanlega ógnað með þessu og það
myndi hafa í fór með sér að allar
upplýsingar yrðu ekki skráðar i
sjúkraskrár.
Guðný sagði að áfram væri gert
ráð fyrir einkarétti og rökin virtust
vera þau að það væri nauðsynlegt
vegna þess að þar með yrðu upplýs-
ingarnar mjög verðmætar og dýrt sé
að búa granninn til. Ekki virðist gert
ráð fyrir útboði, þótt hugsanlega séu
tvö fyrirtæki inni í myndinni. „Þarna
verður ráðuneytið hugsanlega að út-
hluta gífurlegum gæðum til eins að-
ila til tólf ára,“ sagði Guðný.
Hún sagði að fram kæmi að kostn-
aðurinn við gerð grunnsins gæti ver-
ið 3-12 milljarðar króna, en heyrst
hefðu lægri tölur. Ef ávinningur
einkaréttarhafans af gerð grunnsins
yrði mjög mikill virtist svo vera að
hann ætti að fá ávinninginn einn.
Hugsunin virtist því vera svipuð og
varðandi íslenska veiðileyfagjaldið,
að gjaldið væri algerlega til mála-
mynda og hún vildi leyfa sér að
halda því fram að um þetta yrði tals-
verður pólitískur ágreiningur.
Guðný sagði einnig að til fyrir-
myndar væri að setja framvarpið inn
á netið til þess að þeir sem áhuga
hefðu gætu kynnt sér það, því ef-
laust yrði það ekki lagt fram fyrr en í
haust.