Morgunblaðið - 05.08.1998, Page 18

Morgunblaðið - 05.08.1998, Page 18
18 MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1998 MORGUNBLAÐIÐ BMW vísar hug- mynd VW um samruna á bug Frankfurt. Reuters. BMW hefur vísað á bug hugmynd stjórnarformanns Volkswagens, Ferdinands Piechs, um samruna fyrirtækjanna og kallar hana til- raun til að dreifa athyglinni frá ósigri VW í baráttunni um Rolls- Royce. Stjórnarformaður BMW, Bemd Pischetsrieder, hló þegar hann var spurður álits og kvað humyndina dæmigerða fyrir Piech að sögn Der Spiegel. Piech hefur orð fyrir að vera sérvitur athafnamaður. Pischetsrieder sagði að sögu- sagnir um að BMW yrði lagt undir annað fyrirtæki hefðu verið á kreiki í 35 ár og aðeins eflt BMW. „Slíkur orðrómur gefur okkur alltaf færi á að hvetja starfsmenn okkar til að standa sig betur,“ sagði hann við blaðið Welt am Sonntag. „Ef hlut- hafar okkar telja peningum sínum ekki betur varið en með því að fjár- festa í BMW er tómt mál að tala um þetta.“ Selja bfla fyrir 60 milljarða marka á ári Piech vakti máls á samruna í blaðaviðtali, þar sem hann sagði að velta mætti fyrir sér tengingu íyrir- tækjanna eða hlutabréfaskiptum. Hann benti þó á að eftirlitsyfírvöld kynnu að torvelda samruna. Áður en viðtalið birtist hafði Pi- ech sætt ámæli i fjölmiðlum fyrir að láta BMW komast upp með að kaupa vörumerki Rolls-Royce af flughreyflaframleiðandanum Rolls- Royce Plc frá árinu 2003, þótt VW hefði keypt Rolls-Royce Motor Cars í júní. VW stendur því aðeins uppi með Bentley vörumerkið og fyrr- verandi verksmiðju Rolls-Royce í Crewe á Englandi. BMW selur bfla fyrir 60 milljarða marka á ári, aðeins rúman helming af því sem VW framleiðir. BMW tel- ur sig ekki þurfa að óttast yfirtöku ef fyrirtækið heldur áfram að ein- beita sér að framleiðslu fyrsta flokks bfla, en VW reynir að bjóða allar tegundir bfla. Auk þess segir BMW að aðalhluthafínn, Quandt fjölskyldan, sem á tæplega 50% hlut, hafi strengt þess heit að selja ekki eign sína í fyrirtækinu. Nýr Rolls smíðaður í Miinchen? Að sögn Welt am Sonntag hefur BMW þegar ákveðið að smíða nýja Rolls-Royce gerð í Miinchen, en Pischetsrieder vildi ekki staðfesta það. Pischetsrieder sagði að BMW mundi koma sér upp hópi starfs- manna til að framleiða Rolls-Royce bíla í nýrri verksmiðju í Bretlandi, en gaf í skyn að þeir starfsmenn mundu ekki koma frá Crewe verk- smiðjunni, þar sem Rolls-Royee bfl- ar eru nú smíðaðir. Pischetsrieder kvað aukinn vöxt mögulegan á markaði fyrir lúxus- bfla, sem kosta yfir 200.000 marks, VIÐSKIPTI ROLLS STJÓRN ARFORMAÐUR BMW segir hugmyndir um samruna BMW og Volkswagens tilraun til að dreifa athygli frá ósigri VW í baráttunni um Rolls- Royce. Hér hefur merki VW verið sett framan á Rolls Royce glæsivagn. þar sero eftirspurn væri mjög háð framboði. „Kaupendur slíkra bíla eiga venjulega nokkra bíla,“ sagði hann. „Venjulegur viðskiptavinur Rolls-Royce, ef hann er til, á sjö bfla að auki. Um 15.000 bflar í þess- um verðflokki era seldir í heimin- um. En við teljum meiri vöxt mögu- legan.“ íslenski lífeyrissjóðurinn Sjóðfélagar geta valið um ijárfest- ingarstefnu ISLENSKI lífeyrissjóðurinn, sem rekinn er af Landsbréfum hf., hefur ákveðið að bjóða sjóðfélögum sínum viðbót við núverandi fjárfestingar- stefnu og gefa þeim kost á að velja milli þriggja mismunandi fjárfest- ingarstefna við ávöxtun lífeyris- sparnaðarins. Sjóðnum verður skipt í þrjár deildir og geta sjóðfélagar valið á milli þeirra eftir hentugleika. Islensld lífeyrissjóðurinn er sér- eignasjóður. Framlag sjóðfélaga og mótframlag atvinnurekenda, auk vaxta og verðbóta, er því séreign þeirra og nýtist þeim einum og erf- ingjum þeirra. Á síðasta ári nam raunávöxtun sjóðsins 5,9% en árleg raunávöxtun hans frá 1991-97 nemur 8,0%. Sjóðfélagar era nú um 2.300 talsins. I nýjum lögum um skyldutrygg- ingu lífeyrisréttinda og starfsemi líf- eyrissjóða, sem tóku gildi 1. júlí sl., er kveðið á um að öllum launamönn- um og þeim, sem stunda sjálfstæðan atvinnurekstur, sé skylt að tryggja sér lífeyrisréttindi með aðild að líf- eyrissjóði frá og með 16 ára til 70 ára aldurs. Einnig er kveðið á um að lág- marksiðgjald til lífeyrissjóðs skuli vera 10% af iðgjaldastofni. Sigurður Atli Jónsson, forstöðumaður eigna- stýringar Landsbréfa, segir að það sé ekki síst vegna þessara breytinga sem ákveðið hafi verið að endurskoða stefnu sjóðsins og gera breytingar á henni. „Með því að deildaskipta sjóðnum viljum við koma til móts við mismunandi þarflr sjóðfélaga. Sjóð- félagar ráða því að sjálfsögðu hvaða deild þeir velja en það mun líklega helst ráðast af aldri þein-a. Mismunandi áhætta Defldimar þrjár kallast LÍF I, LÍF II og LÍF III og saman mynda þær „Lífsbrautina." Sigurður Atli segir að LIF I deildin stefni að góðri langtímaávöxtun en búast megi við að nokkrar sveiflm- geti orðið í ávöxtun yfir skemmri tímabil. „Fjár- festingarstefnan mótast af því að leyfilegt er að nýta fjölbreytt tæki- færi sem bjóðast á fjárfestingar- mörkuðum hverju sinni. Við teljum að þessi deild henti þeim best sem eiga eftir tuttugu ár eða meira af söfnunartíma sínum.“ LIF II er einkum ætluð þeim, sem kjósa að taka hóflega áhættu með líf- cyrissparnað sinn, og ná þannig betri ávöxtun til lengri tíma. „Þessi defld fjárfesth- í ríkisskuldabréfum, skráð- um hlutabréfum og erlendum bréf- um. Deildin hentar þeim best sem eiga a.m.k. 8-10 ár eftir af söfnunar- tíma sínum,“ segir Sigurður Atli. LÍF III er áhættuminnsta deildin og þar er reynt að tryggja að sveifl- ur í ávöxtun verði litlar. „Fjárfest- ingarstefna þessarar defldar er mjög lík þeirri stefnu, sem Islenski lífeyr- issjóðurinn hefur fylgt fram að þessu og er nánast eins og sjóðurinn er nú. Við teljum því að þessi deild henti þeim best, sem eiga fá ár eftir af söfnunartíma sínum eða eru komnir á eftirlaun," segir Sigurður Atli. IBM ThinkPad 385 CD með TFT litaskjá - þeim besta sem býðst fyrir fartölvur! Sumartilfaod IBM Thinkpad 385 CD Pentium 150MHz MMX - 256Kb L2 cache 16MB ED0 minni (mest80Mb) 2.1GB hacður diskur - 12,1" TFT litaskjár innbyggt 8x geisladrif og diskettudrif Innb. hljóðkort (SB Pro samhæft) Hljóðnemi og hátalarar, MPEG 1 1R sendir/móttakari allt að 4Mb/sek. 2 PCMCIA II stæði Li-Ion batterí (ca. 2,6 klst. hleðsla) Windows 95, Lotus smartsuite 97 Recovery CD (auðvelt að endurbyggja stýrikerfið) Þyngd: 3,1 kg. - Stærð: 300x233x59 mm NYHERJI kr. 159.900) Verslun Skaftahlið 24 - 105 Reykjavik Sími: 569 7700 - Fax: 569 7799 www.nyherji.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.