Morgunblaðið - 05.08.1998, Page 20

Morgunblaðið - 05.08.1998, Page 20
20 MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1998 MORGUNBLAÐIÐ H VIÐSKIPTI Loðnuvinnslan hf. á Fáskrúðsfirði með góða afkomu í milliuppgjöri Hagnaður nam tæpum 66 milljónum kr. LOÐNUVINNSLAN "hf. | Úr milliuppgjöri 1998 : [ fcÉÉÉÍ ■NLmLt jan.-júní jan.-juní Breyting Rekstrarreikningur 1998 1997 Rekstrartekjur 701,2 680,1 +3,1% Rekstrargjöld 556,9 562,0 -0,9% Hagn. f. afskr. og fjárm.liði 144,3 118,1 +22,2% Afskriftir -52,9 -48,2 +9,8% Fjármagnsgjöld 2,1 25,7 -91,8% Hagn. fyrir reikn. tekjusk. 89,3 44,2 +102,0% Reiknaður tekjuskattur -23,4 -10,6 +120,8% Hagnaður ársins 65.9 33.6 +96,1% Efnahagsreikningur 1997 1996 Eiiinir: | Fastaf jármunir Veltufjármunir 30. júní 1.007,1 294,9 30. júní 1.010,6 -0,3% 208,8 +41,2% Eignir samtals 1.302,0 1.219,4 +6,8% I Skuldir og eiqid fé: | Eigið fé 654,9 563,3 +16,3% Þar af hiutafé 430,0 430 Langtímaskuldir 437,0 477,1 -8,4% Skammtímaskuldir 210.0 179.1 +17.3% Skuldír og eigið fé samtals 1.302,0 1.219,4 +6,8% Sjóðstreymi, jan. -júní 1997 1996 Veltufé frá rekstri 108,3 91,9 +17,8% Hlutabréf FBA og Kaupþings í Baugi Sala, veru- legs hluta tryggð BÚIÐ er tryggja sölu á verulegum hluta hlutafjár í Baugi, sameinuðu félagi Hagkaups, Nýkaups og Bón- uss, að sögn Bjama Armannssonar forstjóra Fjarfestingarbanka at- vinnulífsins, sem fyrr í sumar keypti 37,5% í félaginu ásamt Kaup- þingi sem keypti önnur 37,5%. Bjami vildi ekki segja meira um söluna að svo stöddu nema að vem- legur áhugi væri á hlutabréfum í Baugi bæði innanlands og utan og eftirspum væri meiri en framboð. „Frá þeim tíma sem viðskiptin áttu sér stað höfum við, nýir kaup- endur bréfanna, tryggt okkur sölu á verulegum hluta bréfanna sem við þá eignuðumst," sagði Bjarni í sam- tali við Morgunblaðið. Að sögn Bjama er nú unnið að gerð útboðs og skráningarlýsingar vegna sölunnar annarsvegar og skráningar á Verðbréfaþing Islands hinsvegar. Eigendur Baugs ásamt FBA og Kaupþingi eru Gaumur ehf., sem að mestu er í eigu Bónusfeðganna, Jó- hannesar Jónssonar, stjórnarmanns í félaginu, og Jóns Ásgeirs Jóhanns- sonar, forstjóra fyrirtækisins, en það félag á 25% hlutafjár í félaginu. HAGNAÐUR Loðnuvinnslunnar hf. á Fáskrúðsfirði nam 65,9 millj- ónum fyrstu sex mánuði ársins sam- kvæmt rekstrarreikningi, saman- borið við 33,6 milljónir á sama tíma- bili í fyn-a. Hagnaðurinn af fyrri helmingi þessa árs er nálægt því jafnmikill og varð allt árið í fyrra en þá varð tæplega 66 milljóna króna hagnaður af rekstri vinnslunnar. Hagnaðinn má rekja til góðs af- urðaverðs að undanförnu ásamt því að gengi verksmiðjunnar er að kom- ast í gott horf, að sögn fram- kvæmdastjórans, Gísla Jónatans- sonar. Að hans sögn era 50.000 tonn af hráefni á bakvið tölurnar í upp- gjörinu. Rekstrartekjur fyrirtækisins juk- ust um rétt tæpar 11 milljónir, vora 690 milljónir í fyrra en era 701 milljón í ár. Rekstrargjöld tímabils- ins námu hins vegar tæpum 557 milljónum króna og voru svipuð og á sama tíma í fyrra en þá námu gjöldin um 562 milljónum króna. Hagnaður án afskrifta og fjár- magnskostnaðar nam rúmum 144 milljónum en nam rúmum 118 millj- ónum á sama tímabili í fyrra. Veltufjármunir eru mun meiri en í fyrra eða tæpar 295 milljónir á móti tæpum 209 milljónum í fyrra. Eiginfjárstaða fyrirtækisins er nálægt 100 milljónum króna hærri nú en í fyrra, er nú tæpar 655 millj- ónir króna en var 563 milljónir í fyrra. Til samanburðar var eigið fé í lok síðasta árs liðlega 600 milljónir. Verksmiðjan orðin vel slípuð Gísli segir gang verksmiðjunnar kominn í gott horf en þetta er þriðja starfsár fyrirtækisins. Hann skýrir hagnað það sem af er ári einkum vegna góðs gengis og hás afurða- verðs. „Fjármagnsliðirnir lækka töluvert og gengismunur ýtir undir það. Verksmiðjan er orðin ágætlega slípuð og reyndar hefur verið mjög góður gangur á fyrirtækinu frá byrjun,“ sagði Gísli. Hann sagðist vera bjartsýnn á framhaldið þrátt fyrir að loðnuveið- in það sem af væri vertíðinni hefði verið heldur stopul. „Loðnan hefur verið mjög langt í burtu en við von- um að hún muni færast austar og að okkur takist að fá hráefni áfram eins og verið hefur. Vonandi bætist líka einhver kolmunni við,“ sagði Gísli. Þórður Friðjónsson um kaup SE banken á hlut í Landsbankanum Gera ekki kröfu um meirihlutaeign ■GEBERIT Blöndunartæki Rafeindastýrt, snertifntt blöndunartæki. Hentar sériega vel fyrir matvælaiðnað, læknastofur, veitingastaði o.fl. Einnig fyrir heimili. Heildsöludreifing: Smiðjuvegi 11. Kopavogi Sími 564 1088. fax 564 1089 Fæst í byogingavöruuersiunum um landallt. www.mbl.is ÞÓRÐUR Friðjónsson, ráðuneytis- stjóri í viðskipta- og iðnaðarráðu- neytinu, segir að SE bankinn sænski, sem hefur átt í viðræðum við viðskiptaráðaneytið um kaup á hlut í Landsbanka Islands hf., sé fyrst og fremst umhugað um að það verði tryggt frá upphafi, ef af kaup- um verður, að bankinn lendi ekki í minnihlutaaðstöðu. „Þegar ríkið dregur sig út úr eignarhaldi bank- ans þarf að tryggja að það geti ekki myndast meirihluti sem bæri sænska bankann ofurliði. Það er meginatriðið í þeirra augum. Það sem komið hefur fram í fjölmiðlum um að þeir krefjist meirihlutaeignar í bankanum er oftúlkun því kjam- inn er sá að SE bankinn gerir ekki kröfu um meirihlutaeign í Lands- bankanum,“ sagði Þórður í samtali við Morgunblaðið. Hann sagði jafnframt að áhugi viðskiptaráðuneytisins í viðræðun- um beindist fyrst og fremst að því að stigið yrði byrjunarskref til áframhaldandi samstarfs við þessa norrænu fjármálastofnun sem yrði báðum aðlilum til ávinnings. Hann sagði að ýmsar leiðir væru færar til að tryggja að meirihluti myndist ekki gegn bankanum. „Það eru ýmis form á slíku sem ég get ekki farið efnislega út í núna, en t.d. er hægt að tryggja sæmilegar líkur á því með því að eignaraðild verði nægjanlega dreifð. Einnig með gerð hluthafasamkomulags og viðskipta- samnings og fleira sem er til þess fallið að ná þessu markmiði." I viðræðum aðilanna, sem reynd- ar eiu enn á framstigi, er nú unnið að því að leysa þetta vandamál enda telja fulltrúar SE bankans að það sé forsenda gagnlegs samstarfs á milli aðilanna að þetta verði leyst. Getur flutt ferska vinda inn í fjármálalífið Þórður segir að SE bankinn sé með svipaða samsetningu á fjár- málastofnunum sínum og Lands- bankinn. Hann segir að þeir séu bæði með banka- og tryggingastarf- semi og telja að hægt sé að ná miklu hagræði með því að tengja þessa starfsemi saman. „Þeir telja að reynsla þeirra og þekking geti því einnig nýst hér. Að mínu viti er það gagnlegt og til þess fallið að auka framleiðni og afköst í íslensku fjár- málakerfi að fá inn sterkan erlend- an aðila sem er ótengdur hags- munahópum hér innanlands og get- ur þannig flutt með sér ferska vinda inn í fjármálalífið," sagði Þórður. „Þarna era ótvirætt gagnkvæmir hagsmunir á ferðinni og myndarleg þátttaka erlends aðila af þessu tagi gæti flýtt fyrir hagræðingu og framleiðni í bankakerfinu. Megin- markmiðið er þá það að auka og bæta fjármálaþjónustuna og það verð sem hún er veitt á.“ Hann sagði að í viðræðunum væri lögð áhersla á að reyna að skýra til- tölulega fljótt hvort af samstarfi verður til að eyða óvissu í málinu. TEflGlehf Allt til bútasaums! Úrval fallegra bútasaumsefna ásamt bókum og blöðum um bútasaum. Einnig hlífar fyrir bútasaumshnífa, alls konar skæri, platínunálar í ýmsum stærðum, frystipappír og fingurbjargir sem þú límir á fingurinn. ■búðirnar Netverzlun seld á 100 millj. dala Portland, Oregon. Reuters. HOLLYWOOD Entertainment Corp., eigandi Hollywood mynd- bandsleigukeðjunnar, hefur sam- þykkt að kaupa myndbandsverzlun á netinu, Reel.com lnc., fyrir um 100 milljónir Bandaríkjadala. Reel.com rekur helztu mynd- bandsverzlunina á netinu. Hún hef- ur rúmlega 85.000 titla á boðstólum og veitir auk þess neytendaþjón- ustu. Hollywood Entertainment hefur einnig tilkynnt að hópur íjárfesta, sem eru hluthafar Reel.com, muni fjárfesta fyrir 67,5 milljónir dollara í Hollywood Entertainment með því að kaupa 5 milljónir Hollywood bréfa á 13,50 dollara bréfið. Ráðstefna Evrópusam- taka skýrslutæknifélaga Löggjafinn nær vart að bregðast við nýjungum EVRÓPSKT löggjafarvald á í erfið- leikum með að halda í við hinar öru breytingar sem eiga sér stað á tölvu- sviðinu. Ný tækni kemur fram á sjónarsviðið á 2-3 ára fresti á meðan það tekur Evrópusambandið 2-3 ár að koma nýrri tilskipun á. Þetta kom m.a. fram á ráðstefnu sem Evrópu- samtök skýrslutæknifélaga (CECUA) héldu nýlega í Brassel. Meginefni ráðstefnunnar var „Þjóð- félagsþegninn og alþjóða-upplýs- ingasamfélagið.“ Dr. Jón Þór Þórhallsson, fram- kvæmdastjóri European Consulting Partners, er formaður CECUA og var hann jafnframt ráðstefnustjóri. Á ráðstefnunni var rætt um við- fangsefnið frá ýmsum sjónarhornum og stór hluti hennai’ fór fram í þrem- ur vinnuhópum. Einn fjallaði um pólitískt og lagalegt umhverfi, annar um tækifæri og áhyggjur og hinn þriðji um tæknilegar væntingar. Jón Þór segh’ að menn hafi verið sammála um að notendur upplýs- ingatækninnar séu mjög mikilvægir en enn mikilvægari væru þó þeir sem notuðu hana ekki. Koma yrði í veg fyrir að þeir yrðu að annars flokks þjóðfélagsþegnum. Sveinn Þorgrímsson, deildarstjóri í viðskipta- og iðnaðarráðuneytinu, talaði fyrir hönd íslendinga í vinnu- hópnum um pólitískt og lagalegt um- hverfi. Fjallaði hann sérstaklega um stefnu og framtíðarsýn ríkisstjórnar- innar um upplýsingasamfélagið. Þar er áhersla lögð á að innleiða upplýs- ingatæknina á sem flestum sviðum þjóðlífsins en jafnframt að standa vörð um tungu og menningu þjóðar- innar. Einnig var fjallað um hve ríkis- valdið ætti að ganga langt í setningu laga og reglugerða um málefni upp- lýsingasamfélagsins. Voru menn sammála um að ekki mætti ganga of langt í þessu efni og ekki væri unnt að setja lög og reglugerðir um allt. Notendur yrðu að líta eftir sjálfum sér og það væri á ábyrgð foreldra að fylgjast með hvað börn þeirra væru að skoða á netinu. < t 1 t t ú (, ( £ t: ( (, t t i: ú « ( t ' i 4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.