Morgunblaðið - 05.08.1998, Qupperneq 22
22 MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Borgar-
stjórinn í
Feneyjum
ákærður
TVEIR rafvirkjar sem störf-
uðu að endurreisn óperuhúss-
ins fræga í Feneyjum þegar
það brann illa fyrir tveimur ár-
um verða ákærðir fyrir að hafa
kveikt í húsinu. AUs var farið
fram á réttarhöld yftr tíu
manns, þeirra á meðal sjálfum
borgarstjóranum í Feneyjum
og ýmsum stjórnendum óperu-
hússins vegna vanrækslu og
meðsektar.
Nivel til með-
vitundar
DANIEL Nivel, franski lög-
reglumaðurinn sem varð fyrir
fólskulegri árás þýskra knatt-
spymubullna
á meðan á
Heimsmeist-
aramótinu í
knattspymu
stóð, vaknaði í
gær til með-
vitundar eftir
sex vikna
dásvefn.
Árásin á Nivel vakti mikinn
óhug á sínum tíma en Nivel,
sem er tveggja bama faðir,
hlaut varanlegan heilaskaða við
árásina.
Nauðlent
á Irlandi
FLUGVÉL franska flugfélags-
ins Air France, sem var á leið
til Parísar frá Chicago, þurfti
að nauðlenda á Shannon-flug-
velli nærri borginni Limerick á
V-írlandi í gær eftir að gmnur
vaknaði um að eldur hefði
kviknað í farangursrýminu.
Enginn eldur fannst hins vegar
í vélinni, sem var af gerðinni
Boeing 747, við nánari athugun
og héldu 240 farþegar hennar,
auk áhafnar, áfram ferð sinni
seinnipartinn í gær.
Óumbeðinn
umskurður
bannaður
NEFND sem starfar á vegum
ísraelska þingsins bannaði í
gær að framkvæmdur væri um-
skurður á líkum manna sem
bíða greftrunar. Var það ein-
ungis nýlega sem upp komst að
við andlát eru menn, sem ekki
em gyðingatrúar, iðulega um-
skomir af starfsfólki útfarar-
stofnana sem hafa talið sig vera
að gera hinum látna greiða.
Hefur nefndin nú úrskurðað að
slík aðgerð geti einungis farið
fram hafi hinn látni farið fram á
hana eða með samþykki fjöl-
skyldu hans.
Talebanar
vinna sigra
TALSMENN Talebana-hreyf-
ingar í Afganistan sögðu í gær
að þeir hefðu hrakið herlið
stjómarandstæðinga, sem
haldið hafa til í norðurhluta
landsins, á bak aftur og náð
einu héraði til viðbótar á sitt
vald, án mikillar mótspyrnu.
Stjórnarandstæðingar halda
enn um tíu prósentum lands í
Afganistan en að öðra leyti
ráða Talebanar þar ríkjum.
ERLENT
Uppreisn hermanna af ættbálki tútsa gegn hersveitum Lýðveldis Kongó
Ráðherrar flýja
harðnandi átök
Kinshasa. Reuters.
HERSVEITIR hliðhollar Kabila,
forseta Lýðveldisins Kongó, börð-
ust við uppreisnarsveitir hermanna
í austurhluta landsins í gær. Að
sögn stjómvalda var flugvél í inn-
anlandsflugi frá Goma rænt af upp-
reisnarmönnum og neydd til að
lenda í Kitona í vesturhluta lands-
ins. Engar fréttir hafa borist af
mannfalli í bardögunum.
Tveir ráðherrar úr ríkisstjóm
Kabilas, þ.á m. utanríldsráðherr-
ann, flúðu um helgina til Suður-Af-
ríku, en hafa enn ekki gefið sig fram
við stjómvöld þar. Ráðherramir
flúðu þegar forsetinn fyrirskipaði
handtöku ráðamanna, sem telja
mætti hliðholla stjómvöldum í Rú-
anda. Kabila naut liðveislu Rúanda-
hers þegar hann komst til valda á
síðasta ári og batt enda á þriggja
áratuga valdatíð Mobutu Sese Seko.
Nú hefur Kabila snúið við blað-
inu og kennir hermönnum af ætt-
bálki tútsa og rúandískum her-
sveitum sem Kabila rak úr landi í
síðustu viku um að eiga upptök að
átökunum. Stjómvöld í grannrík-
inu Rúanda segja ásakanimar úr
lausu lofti gripnar.
Fréttir bámst í gær af bardög-
um við flugvöllinn í borginni
Kisangani, sem liggur við Kongó-
fljót, en allt virtist með kyrrum
kjömm í borginni sjálfri. Kisangani
er í 1.500 km fjarlægð frá höfuð-
borginni Kinshasa.
Vamarmálaráðherra Suður-Af-
ríku, Joe Modise, sagði ástandið í
Kongó vera á dagskrá Þróunar-
samvinnufélags landa í suðurhluta
Afríku (SADC) en Kongó fékk ný-
lega aðild að þeim félagsskap.
Meðal þess sem ætti að ræða væri
möguleiki á að senda friðargæslu-
sveitir til landsins.
HERMANNAUPPREISN I KONGO
Hjálparstarfsmenn í Uvira, austast í Kongó, sögðu skotbardaga
hafa brotist út aðfararnótt þriðjudags.
Mikið tjón í vatnsveðri og flóðum í Austur-Asíu
STRÆTISVAGNAR og aðrir farkostir troðfylltir farþegum ösla í gegn um flóðvatnið í Seoul í gær.
Metúrkoma og brest-
andi flóðgarðar
Peking, Seoul. Reuters.
MIKIL flóð hafa undanfarna daga
riðið yflr víða í Austur-Asíu með
miklu tjóni á mannslífum og mann-
virkjum. Metúrkoma varð í gær í
Kóreu og Japan og flóðgarður
Yangtse-árinnar í Kína brast.
Flóðið í Yangtse hefur náð nýju
hámarki. Vamargarðar bmstu í Hu-
bei-héraði í gær með þeim afleiðing-
um að heilli herdeild skolaði burt.
Hermennimir vom ásamt bændum
og verkamönnum af svæðinu að
vinna að styrkingu vamargarðsins
þegar hann brast. Um 200 manns
týndu lífi, að sögn talsmanns héraðs-
yfirvalda.
Xinhua-fréttastofan hafði í gær
eftir ónafngreindum vatnavaxtaeftir-
litsmanni að Yangtse gæti flætt yfir
bakka sína á 3.200 stöðum á að gizka,
og á um 1.800 stöðum mætti sjá „al-
varlega“ bresti í varnargörðum.
í Kóreu hafa úrheljisrigningar
einnig valdið metflóðum. í Seoul, höf-
uðborg Suður-Kóreu, fóru flestar
götur á kaf sem og stór hluti neðan-
jarðalestakerfísins. Fjöldi aurskriða
lenti á vegum, jámbrautum og hús-
um í suðurhéruðum landsins um
helgina, með þeim afleiðingum að 58
manns að minnsta kosti týndu lífi.
Úrkoman í Seoul á síðasta sólar-
hring var 211,4 mm, en það er mesta
úrkoma á einum degi þar um slóðir í
27 ár, að því er talsmaður kóresku
veðurstofunnar greindi frá.
Einnig rigndi gífurlega í Norður-
og Mið-Japan í gær. Úrkoma á einum
sólarhring varð allt að 265 mm, en
það er mesta úrkoma á einum degi
frá því mælingar hófust fyrir rúmri
öld. Ein kona dmkknaði svo vitað sé
og rýma þurfti um 14.000 heimili
vegna flóða í kjölfar úrhellisins.
I Bangladesh, þar sem fjöldi áa
hefur á undanfómum vikum flætt yf-
ir bakka sína, héldu monsúnrigning-
ar áfram með þeim afleiðingum að
enn fleiri urðu að flýja heimili sín, en
það hafa milljónir íbúa hins þéttbýla
lands þurft að gera. 265 manns hafa
týnt lífi í flóðunum svo vitað sé.
180 þús-
und manns
á flótta í
Kosovo
Belgrad, Doiye Prekaze. Reuters.
EKKERT lát er á stórsókn
júgóslavneska hersins gegn
skæraliðum í Kosovo-héraði,
þrátt fyrir loforð Slobodans
Milosevic, forseta Júgóslavíu,
um að stöðva bardaga þar. Ser-
bneskar hersveitir hafa náð
stærstum hluta mið-Kosovo
undir sig og sækja í vesturátt.
Flóttamannahjálp Samein-
uðu þjóðanna (ÚNHCR) telur
að fjöldi fólks á flótta undan
bardögunum nálgist 180.000
manns, en stórsókn Serba um
liðna helgi neyddi um 70.000
manns tU þess að yfirgefa
heimkynni sín. Fólk hefur leit-
að skjóls á sveitabæjum og upp
tU íj'alla. Chris HUl, erindreki
Bandaríkjastjórnar í Kosovo,
segir að flóttafólkið verði á
barmi algjörrar neyðar muni
því ekki verða kleift að snúa
heim í bráð.
Evrópusambandið og Banda-
ríkjastjóm hafa þrýst á MUos-
evic að halda loforð sitt um að
stöðva sókn serbneska hersins
gegn skæraliðum aðskUnaðar-
sinna. Utanríkisráðuneyti Rúss-
lands staðfesti ennfremur í gær
að aðstoðarráðherrann Nikolai
Afanasyevsky væri væntanleg-
ur til Belgrad i dag tU að reyna
að miðla málum.
Stjómvöld í Saudi-Arabíu
hafa einnig hvatt tíl þess að endi
verði bundinn á ofbeldi gegn al-
banska meirihlutanum í Kosovo.
Ijeit að týndum námamönnum haldið áfram
Gripið til stórvirkari borunar
Vín. Reuters.
ÁKVEÐIÐ var að halda áfram leit-
inni að námaverkamönnunum tíu,
sem lokuðust inni í námu í austur-
rísku Ölpunum að kvöldi 17. júlí sl.,
þrátt fyrir að líkurnar á að nokkur
þeirra finnist á llfí sé orðið hverfandi
litlar. Ákveðið var i gær að grípa til
stórvirkari bomnaraðferða.
Á mánudag tókst að slaka hljóð-
nema og lítilli sjónvarpsmyndavél
niður í hvelfíngu á 130 m dýpi í
námunni, sem vonir höfðu verið
bundnar við að einhverjir mannanna
hefðu getað lifað af í. Ekki varð
neinna merkja um mennina vart.
Ættingjar námamannanna óskuðu
eftir því að björgunartilraunum yrði
haldið áfram, þó ekki væri nema til
að fínna lík þeirra. í kjölfar þess var
ákveðið að skipta yfir í stórvirkari
bomnarbúnað, þótt vitað sé að það
kosti ónákvæmari borun.
„Þetta var pólitísk ákvörðun.
Þetta verður mjög erfitt verkefni,"
sagði Alfred Zechling, talsmaður
stjórnar björgunaraðgerðanna í
námabænum Lassing, sem er um
200 km suðvestur af Vín.
Mennimir tíu fóra niður í námuna
eftir að jarðskriða hafði lokað einn
félaga þeirra inni. Þá kom önnur
stærri skriða og lokaði þá alla inni.
Félaginn, Georg Hainzl, fannst á lífi
eftir að hafa verið innilokaður á 60 m
dýpi í 10 daga.
Ákvörðunin um að grípa til stór-
virkari bomnaraðferða fylgir í kjöl-
far háværrar gagnrýni á hendur yf-
irstjórnar björgunaraðgerðanna, um
að þær hafi gengið allt of hægt og
skort hafi á skipulag og samhæfða
ákvarðanatöku.
Ríkissaksóknari Austurríkis er að
skoða hvort námaslysið kunni að
hafa verið afleiðing vítaverðs um-
hirðuleysis, en að nafninu til átti
náman að heita ein sú ömggasta í
Evrópu.