Morgunblaðið - 05.08.1998, Side 24
24 MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
í
I
Palestínu-
menn hafna
tilboði
Israela
Gaza, Jerúsalem. Reuters.
PALESTÍNUMENN höfnuðu til-
boði Israelsstjórnar um framtíð
Vesturbakkans á samningafundi í
gær og sögðu grundvöll frekari
umræðna brostinn. I 16 mánuði
hefur hvorki gengið né rekið í við-
ræðum Palestínu- og Israelsstjórn-
ar. Yasser Arafat, leiðtogi Palest-
ínumanna, sagði tilboð ísraela
óviðunandi og utan ramma Oslóar-
samningsins.
Israelskir fjölmiðlar sögðu í gær
að tilboðið fæli í sér afhendingu
10% landnæðis á Vesturbakkanum,
jafnframt yrðu 3% hans gerð að
sérstöku náttúruvemdarsvæði,
sem ekki lyti stjórn Palestínu-
manna.
„Við höfnuðum algjörlega hug-
myndum Israelsmanna,“ sagði
Hassan Asfour, einn samninga-
manna. „Þær gáfu ekkert tilefni til
frekari viðræðna okkar á milli.
Israelsstjórn getur framvegis rætt
við Bandaríkjastjóm um þessi
mál,“ sagði Asfour enn fremur.
Palestínumenn segja tilboð Isra-
elsstjómar ekki innan þess ramma
sem báðar þjóðir hafa skuldbundið
sig til þess að vinna eftir. ísraels-
stjórn hefur ekki orðið við tilmæl-
um Bandaríkjastjómar um að láta
13% í viðbót af landssvæði Vestur-
bakkans af hendi til sjálfstjórnar-
svæðis Palestínumanna, gegn því
að Palestínustjóm stemmi stigu við
ofbeldi skæmliða í Israel.
Aquafin®-2K
Örugg vatnsleka-
vöm a steypta íleti.
2)a Hátta svelgjanlegt sementsef nl
á þök, svalir og tröppur.
ðniggt efttl sem ekkl fiagnar af.
6 ára hérlend reyitsia.
Aðelns kr. 287/kg
■ SCHOMBURG ÍSLAND
Simar: 567-3730 - 587-9911
Karin
Herzog
• enduruppbyggja húðina
• vinna á appelsínuhúA
og sliti
• vinna á unglingabóluui
• viðheldur ferskleika húðar-
innar
Ferskir vindar í
umhirðu húðar
Ráðgjöf og kynning
í Clöru, Kringlunni,
í dag kl. 14-18.
Kynningarafsláttur
Reuters
Margra
saknað
eftir
sprengingu
ALLT að tíu manns var saknað
í gær, eftir að margra hæða
íbúðarhús í Steglitz-hverfínu í
Berlín hrundi til grunna. Talið
er að gassprenging í kjallara
hússins snemma í gærmorgun
hafí valdið hinu skyndilega
hruni þess.
Lögregla greindi frá því að
ekkert væri vitað um afdrif að
minnsta kosti níu hinna nítján
íbúa hússins. Nokkrum var
bjargað úr rústunum en öðrum
tókst að krafsa sig út úr þeim
af eigin rammleik.
Um 100 manna lið skipað
slökkviliðs- og lögreglumönnum
auk sjálfboðaliða leitaði með
hjálp sérþjálfaðra hunda að
fólki í rústunum. Talið var að
þrettán ára drengur væri meðal
þeirra sem enn væru eftir í
rústunum, en vitað var að hann
hafði verið í íbúðinni á fyrstu
hæð þegar sprengingin varð.
Meira en 80 manns hafa farist í hörðum átökum í Kasmír frá því á fímmtudag
Indverjar reiðubúnir að fallast á
bann við kjarnorkutilraunum
Nýja Delhí, London. Reuters.
ATAL Behari Vajpayee, forsætis-
ráðherra Indlands, kvaðst í gær
reiðubúinn að fallast á bann við
kjarnorkutilraunum. Sagði hann
Indland hafa sannað að það gæti
varið sig með kjarnorkuvopnum
gegn árásum annarra ríkja og að
því væri engin þörf á frekarí til-
raunum að svo stöddu.
Meira en áttatíu manns hafa
farist í átökum í Kasmír, við
landamæri Indlands og Pakistans,
síðan á fimmtudag og myrtu að-
skilnaðarsinnar í Kasmír nítján í
árás á þorp innan landamæra Ind-
lands í gær. Höfðu þeir myrt þrjá-
tíu og fjóra í svipuðum árásum á
mánudag. Sagðist innanríkisráð-
herra Indlands á mánudag telja
skæruliðana hafa notið aðstoðar
frá Pakistan.
Gohar Ayub Khan, utanríkis-
ráðherra Pakistan, hvatti Indverja
hins vegar í gær til að hefja fyrir
alvöru samningaviðræður vegna
deilu ríkjanna tveggja um yfírráð
yfir Kasmír. Skoraði hann á ind-
versk stjórnvöld að sættast á
milligöngu utanaðkomandi aðila í
deilunni. „Indland verður að taka
skref fram á við. Indverjar halda
því statt og stöðugt fram að Ka-
smír sé og verði hluti indverska
ríkisins og það er eins og að
hlaupa á vegg að ræða aðra mögu-
leika við þá.“
Vajpayee svaraði því til á ind-
verska þinginu í gær að Indland
hefði fullan hug á að ná fram frið-
arsamningum við Pakistana og
kvaðst telja afar nauðsynlegt að
samskipti ríkjanna yrðu bætt.
Sagði hann þó augljóst að
Pakistanar hefðu ekki raunveru-
legan áhuga á friðarviðræðum
heldur væri markmið þeirra að
vekja athygli umheimsins á deil-
unni um Kasmír.
Indverjar ráða tveimur þriðju
af Kasmír og Pakistanar afgangn-
um en ríkin tvö hafa lengi deilt um
hvar draga skuli landamæri hér-
aðsins. Hafa þau tvisvar háð stríð
vegna Kasmír frá því þau hlutu
sjálfstæði frá Bretum árið 1947 og
nú síðast jókst mjög spenna á
svæðinu eftir að bæði Indland og
Pakistan sprengdu kjarnorku-
sprengjur í tilraunaskyni í maí.
Eurostat birtir upplýsingar um fæðingar utan hjónabands
Hlutfallið hæst á Islandi
Brussel. Reuters.
INNAN Evrópusambandsríkjanna
fimmtán fæðist nú nærri fjórða
hvert bam utan hjónabands, eftir
því sem fram kemur í nýjustu töl-
um Eurostat, hagstofu Evrópu-
sambandsins (ESB). Þetta hlutfall
var innan við tíu af hundraði árið
1980, en á íslandi er það langhæst.
Á árinu 1997 voru tveir af hverjum
þremur íslenzkum nýburum fæddir
utan hjónabands.
Meðal ESB-ríkjanna er þetta
hlutfall hæst í Svíþjóð, 54%, en
þamæst í Danmörku, 46%.
„Tala nýbura sem eiga ógifta
foreldra fer vaxandi svo til alls
staðar í ESB og út um alla Evr-
ópu, sem endurspeglar auknar
vinsældir óvígðrar sambúðar,"
segir í fréttatilkynningu frá
Eurostat.
Fæstir S-Evrópubúar
óskilgeínir
Eurostat safnaði upplýsingum
um fæðingar utan hjónabands í 46
Evrópulöndum, í umboði ESB og
Evrópuráðsins. Heildarfjöldi íbúa í
þessum löndum er 810 milljónir.
I ljós kom að Suður-Evrópubúar
em Uklegastir til að eiga sín börn
eftir giftingu. Á síðasta ári kom að-
eins 1,4% nýbura á Kýpur í heim-
inn utan hjónabands, 3,3% í Grikk-
landi og 8,3% á Ítalíu.
I könnuninni kom einnig í ljós að
það gerist æ sjaldgæfara að Evr-
ópubúar láti pússa sig saman. í
fyrra fóra fram fimm giftingar á
hverja 1.000 íbúa ESB, en árið
1980 var þetta hlutfall 6,3 á hverja
1.000.
Bæklingur á
íslenzku um
sjávarútvegs-
stefnu ESB
FASTANEFND framkvæmda-
stjómar Evrópusambandsins
fyrir ísland og Noreg hefur gef-
ið út bækling á íslenzku um
stjórn fískveiða í ESB.
I fréttatilkynningu segir að
bæklingurinn fáist án endur-
gjalds hjá fastanefndinni.
Nefndin hefur aðsetur í Ósló, en
hægt er að hringja í grænt núm-
er, 800 8116, og tala við íslenzk-
an starfsmann til að panta bæk-
linginn og annað upplýsingaefni.
Jafnframt má senda tölvupóst á
netfangið europako@onIine.no.
Brezk skýrsla um sjóðakerfí ESB
Greiðslum úr samlög-
unarsjóði skuli hætt
SPÁNN, Portúgal og írland ættu
að verða af stórum hluta þeirrar
efnahagsþróunaraðstoðar sem þau
fá frá öðrum aðildarríkjum Evr-
ópusambandsins (ESB), í kjölfar
þess að þau hafa verið metin hæf
til að verða stofnaðilar að Efna-
hags- og myntbandalaginu, EMU.
Þetta er ein meginniðurstaða
skýrslu sem Evrópumálanefnd lá-
varðadeildai- brezka þingsins lagði
fram á mánudag.
I skýrslunni segir að þar sem
þessi þrjú ríki hefðu með því að
uppfylla hin efnahagslegu skilyrði
fyrir stofnaðild að EMU sannað að
þau þyrftu ekki lengur á styrkjum
úr hinum svokallaða samlögunar-
sjóði ESB (cohesion fund), en úr
honum era greiddir um 2,9 millj-
arðar ECU (um 230 ma kr.) árlega.
Sjóðurinn fjármagnar stórfram-
kvæmdir í samgöngu- og umhverf-
ismálum, sem ætlað er að færa
efnahagskerfi og velmegunarstig
fátækari aðildarríkjanna nær þeim
ríkari. Yfir helmingur fjárins úr
sjóðnum hefur farið til Spánar.
Grikkland enn aðstoðar þurfi
„frlandi, Spáni og Portúgal hef-
ur tekizt að uppfylla hin efnahags-
legu aðildarskilyrði Efnahags- og
myntbandalags Evrópu,“ segir í
skýrslunni. „Árangurinn hefur ver-
ið slíkur, að ómögulegt er að rétt-
læta áframhaldandi fjárstreymi úr
samlögunarsjóðnum, til allra ann-
arra en Grikklands.“
Nefndin mælir með því í skýrsl-
unni að greiðslum úr sjóðnum
skyldi hætt í áfóngum til ársins
2006; þá skyldi sjóðurinn sjálfur
lagður niður.