Morgunblaðið - 05.08.1998, Síða 27

Morgunblaðið - 05.08.1998, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1998 27 LISTIR Gísli Halldórsson Eftir Hávar Sigurjónsson Einn merkasti leikhúsmaður íslenskur á seinni hluta þessarar aldar, Gísli Hall- dórsson leikari og leikstjóri, er all- ur. Leiklistin í sínu upprunalegasta og tærasta formi er list augna- bliksins; þar reynir á getu og hæfi- leika leikarans til að nýta sér nær- veruna við áhorfendur, nýta augnablikið, rafmagna andrúms- loftið svo neistai- af, gefa sjálfan sig augnablikinu á vald en hafa þó alltaf stjóm; geta slakað á taumn- um ekki síður en hert taumhaldið, svo gripið sé til líkingar úr annanú átt. Á sama hátt og tengslin við áhorfendur era aðalsmerki góðs leikai-a er ekki síður mikilvægt að honum sé gefin sú gáfa að standa sjálfstæður í sköpun sinni, verða aldrei háður áhorfendum, heldur taka þá með sér í ferð um ókann- aðar lendur, dýpka skilning þeirra á listinni, opna augu þem-a fyrh' aðstæðum leikpersónunnar, og kveikja samkennd, samúð eða að minnsta kosti skilning með gjörð- um hennar. Kunnátta leikarans, virðing fyrir list sinni og skilning- ur á þeirri ábyrgð sem fólgin er í hlutverki hans sem listamanns era þeir hornsteinar sem hann byggir listsköpun sína á. Allt má þetta til sanns vegar færa þegar litið er yf- ir listamannsferil Gísla Halldórs- sonar. Að leikslokum er spurt hvað eftir standi, hversu traust stendur minning um list leikarans, um augnablik sem aldrei verða sótt aftur, hvar fól hann horn- steina sinnar persónulegu sköpun- ar og einnig má spyrja hvort aðrir geti byggt á þeim, hvort yngri kynslóðir geti nýtt sér viðhorfin og afstöðuna til listarinnar sem mót- uðu ferilinn og skópu listamann- inn. Hér er kannski spurt stórra spurninga sem aldrei verður end- anlega svarað, en þegar horft er til ferils leikarans og leikstjórans Gísla Halldórssonar, verður strax Ijóst að hann markaði djúp spor í sögu og framþróun íslenskrar leik- listar á hennar mesta mótunar- skeiði, árunum frá 1950 og framá áttunda áratuginn. Áhrif Gísla Halldórssonar á heila kynslóð leik- húsfólks sem naut handleiðslu hans í Iðnó á sjötta og sjöunda áratugnum eru óumdeilanleg, vin- sældir hans sem leikara í nær hálfa öld eru ekki síður óumdeilan- legar, né heldur áhrif hans í þá veru að þroska skynjun íslenskra leikhúsgesta á vandaðri og. heil- steyptri leiklist. Gísli Halldórsson tilheyrði þeirri kynslóð leikhúsfólks sem mótaði umgjörð íslensks atvinnu- leikhúss, skapaði því viðfang og yf- irbragð, gerði það að gildum þætti í menningarlífi þjóðarinnar. Þáttur Gísla Halldórssonar í því ferli er stór, jafnvel stærri en fólk gerir sér almennt grein fyrir í dag. Gísli var ekki einasta yfirburðaleikari og framúrskarandi leikstjóri, vandvirkur með afbrigðum og vandur að virðingu sinni sem lista- maður, heldur var hann um árabil einn helsti kennari og leiðbeinandi leikaraefna og ungra leikara hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Hann var fyrsti skólastjóri Leiklistarskóla Leikfélags Reykjavíkur og stjórn- aði honum frá 1959-1961 og var áfram eftir það einn af aðalkenn- urunum við skólann, þar til hann var aflagður árið 1969. Ferill Gísla Halldórssonar sem leikara spannar 46 ár, frá 1951 - 1997 en í desember sl. lék hann í þriðja sinn eitt sitt þekktasta hlut- verk, séra Jón Prímus, í útvarps- upptöku á Kristnihaldi undir Jökli í leikstjóm Sveins Einarssonar. Það hlutvei'k lék Gísli 178 sinnum í Iðnó á árunum 1970-72 og 'síðar einnig hjá Leikfélagi Akureyrar. Af merk- um hlutverkum hans frá sjötta ára- tugnum má nefna Tsæ Long í róm- aðri sýningu á Pi-Pa-Ki eða Söng lútunnar (1951), Loft í Galdra-Lofti (1955) og Tom í Glerdýrunum (1958). Gísli festi sig fljótt í sessi sem einn helsti skapgerðarleikari Leikfélagsins en árið 1965 sló hann eftirminnilega í gegn sem gaman- leikari í sýningunni Þjófar, lík og falar konur eftfr Dario Fo. Fyrir hlutverk sín tvö í þeirri sýningu var honum veittur Silfurlampinn. Gísli varð einn vinsælasti gamanleikari þjóðarinnar og lék fjölmörg óborg- anlega íyndin gamanhlutverk, þeirra þekktast líklega Victor Emmanuel/Poche í Fló á skinni sem sýnt var 252 sinnum árin 1972- 75. Hann lék á móti Sigríði Hagalín í Rommí, hann var Búi Árland í Atómstöðinni, Gvendó í Dúfnaveisl- unni, Lester í Tobacco Road, Fluther Good í Plógi og stjömum, Grasa-Gudda í Skugga-Sveini, Vanja í Vanja frænda, Pat í Gísl og Spóli í Draumi á Jónsmessunótt, svo fáein séu nefnd af þeim 69 hlutr verkum sem hann lék hjá Leikfé- lagi Reykjavíkur. Síðasta hlutverk sitt hjá Leikfélagi Reykjavíkur, Flosa í Hótel Þingvöllum eftir Sig- urð Pálsson, lék Gísh í Borgarleik- húsinu vorið 1990. Gísli stofnaði Sumarleikhúsið og rak það nokkur sumur í lok sjötta og byrjun sjöunda áratugarins. Sýningar á vegum þess voru m.a. Spretthlauparinn eftir Agnar Þórðarson og Allra meina bót eftir Patrek og Pál. Var sýnt í Austur- bæjarbíói og var það undanfari þess að Leikfélag Reykjavíkur stóð fyrir miðnætursýningum í Austurbæjarbíói í mörg ár við miklar vinsældii'. í Þjóðleikhúsinu lék Gísli gesta- hlutverk nokkrum sinnum, þeirra á meðal Lúkas í Náttbólinu og Wulf landfógeta í Haustbrúði. Hlutverk hans í útvarpi era ríflega eitt hund- rað talsins en þar skilur hann einnig eftir sig óbrotgjarnan minnisvarða sem leikstjóri um 120 útvarpsleik- rita. Um árabil var hann einn helsti leikstjóri útvarpsleikhússins og hér skal fullyrt að tök hans á þeim miðli taka flestu öðra ft-am sem gert hef- ur verið á þeim vettvangi. Var hann þar jafnvígur á leik, upplestur og leikstjórn. Leikstýrði hann upptök- um á verkum flestra helstu höfimda leikbókmenntanna, s.s. W. Shakespeare, F.G. Lorca, A. Tsékov og G.B. Shaw. Gísli átti merkan leikferil í sjón- varpi og kvikmyndum og undan- farin ár lék hann eingöngu á þeim vettvangi. Nefna má kvikmyndirn- ar Jón Odd og Jón Bjarna, Á köld- um klaka, Djöflaeyjuna, Börn náttúrannar og nú síðast Dansinn sem framsýnd verðm- í haust. í sjónvarpi lék hann í Nakinn maður og annar í kjólfötum (1966), Veiði- túr í óbyggðum (1975), Mafreiðslu- námskeiðinu, (1984), Sjóarinn, spákonan, blómasalinn, skóarinn (1991) og Sigla himinfley (1994). Leikstjómarferill Gísla nær yfir tímabilið 1956 - 1987. Fyrsta verk- efni hans var Systir María eftir Charlotte Hastings hjá Leikfélagi Reykjavíkur og síðasta leikstjórn- arverkefnið var Rómúlus mikh í Þjóðleikhúsinu 1987. Gísli var einn af helstu leikstjórum Leikfélags Reykjavíkur frá 1956 og fram undir 1970 og meðal merkustu uppsetn- inga hans era Browning þýðingin (1957), Allir synir mínir (1958), Hart í bak (1962), Fangarnir í Altona (1963), Vanja frændi (1964), Fjalla-Eyvindur (1967) og Tobacco Road (1969). Gísli leikstýrði fjóram sýningum í Þjóðleikhúsinu, Blóð- brullaupi (1959), Gjaldinu (1970), Sólnes byggingameistara (1971) og Rómúlusi mikla (1987). Þá leik- stýrði hann áhugaleiksýningum viða um land. Hann leikstýrði sjón- varpsleikritinu Romm handa Rósa- lind (1968) eftir Jökul Jakobsson. Telst það fyrsta íslenska fram- samda sjónvarpsleikritið en áður hafði verið sýndur í sjónvarpinu einþáttungurinn Jón gamli eftir Matthías Johannessen sem leikinn var í Þjóðleikhúsinu skömmu áður. Gísli Halldórsson ávann sér þann sess í hjarta þjóðarinnar að leikur hans var löngu orðinn goð- sögn. Fær fólk blik í auga og mjúkan hljóm í rödd er það minn- ist upplifunar sinnar í leikhúsinu þegar Gísli Halldórsson fór á kost- um, hvort heldur var í skapgerðar- eða gamanhlutverkum. Á þann eina hátt lifir hið hverfula augna- blik leikhússins, list mikils leikai'a lifir í minningu þeirra sem sáu og upplifðu. H Hann ávann sér þann sess í hjarta þjóðarinnar að leikur hans var löngu orðinn goðsögn.íí Þu qeFiSg— utanlandsrero í kvöld er dregið í Víkingalottóinu um tugi milljóna króna! Fáðu þér miða fyrir kl. 16 í dag. ( ATH! Aðeins^^kr. röðin )

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.