Morgunblaðið - 05.08.1998, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 05.08.1998, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1998 29 LISTIR / Agætt orgel í Dómkirkjunni ÞÝSKI orgelleikarinn dr. Andr- eas Jacop leikur á tónleikum í Dómkirkjunni í kvöld, miðviku- dagskvöld, kl. 20.30. Á efnis- skránni er Prelúdía í E-dúr eftir Vinzent Lúbeck, Ciacona í f-moll eftir Johann Pachel- bel, Prélúdía í D-dúr eftir J.S. Bach, 2 kóral prelúdíur eftir Brahms og Sónata í B- dúr eftir Mendelssohn. Jacop kom til Islands í þeim tilgangi að leika á orgelið við brúðkaup vina sinna, Katrínar Auðar Sverris- dóttur og Stefans Georgs Lechter, sem fram fór á laugardaginn, en segist hafa viljað halda einleiks- tónleika í Ieiðinni, en þetta er fyrsta heimsókn hans til landsins. Ferill Jacops er fjölbreyttur og liggur á sviði fræðilegra útgáfna tónverka, hljóðritana, tón- leikahalds, háskólakennslu og er þá ónefndur námsfer- ill hans, sem er ekki síst glæsi- legur. I hittifyrra lauk hann doktorsprófi með láði fyrir rit- gerð sína um tónsmíðahugmynd- ir í pianóæfingum Bachs og áður stundaði hann nám í tónlistar- fræðum, heimspeki og sálar- fræði og hefur hlotið hæstu ein- kunnir fyrir orgelleik sinn, en hann segir sjálfur að sérstaða sín felist einkum í því að hann er jafnvígur á sviði spilamennsk- unnar sjálfrar og rannsóknar- sviðs tónbókmenntanna. Hjóna- efnum ætti því ekki að vera gerð nein skömm til með slíkan org- KJARTAN Sigurjónsson organisti. Hádegis- tdnleikar í Ddm- kirkjunni ORGELTÓNLEIKAR verða í Dómkirkjunni í dag, miðviku- dag, kl. 11.30. Við orgelið að þessu sinni er Kjartan Sigur- jónsson organisti Digranes- kirkju og formaður Félags ís- lenskra organleikara. Á efnisskránni verða verk eft- ir A. Gabrieli, J. Rheinberger, Max Reger og J.S. Bach. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis. Kl. 12.10 er svo bænaguðs- þjónusta og að henni lokinni gefst kirkjugestum kostur á léttum málsverði á kirkjuloftinu. Morgunblaðið/Kristinn ANDREAS Jacop, orgelleikari. anista við hljóðfærið á brúð- kaupsdeginum. Söguleg þróun á efnisskránni Jacop, sem er 31 árs, er af ætt tónlistarmanna og naut kennslu föður síns, Werners Jacops, frægs orgelleikara, í æsku og hefur leik- ið reglulega á tónleikum síðan hann var íjórtán ára gamall. Hann segist jafnframt velja tilefnin af kostgæfni. „Eg er ekki fjárhags- lega háður því að leika á tónleik- um og því get ég betur ráðið því hvar ég kem fram. Ég einbeiti mér einkum að barokktónlist, en leik líka nútímatónhst. Ástæðan fyrir því að barokk- ið er fyrirferðarmikið í tónlist minni er sú að það er miklu meira til af orgeltónlist frá þessu túnabili og Bach ber höfuð og herðar yfir aðra í tónsmiðum sínum. Hugsunin á bak við efnisskrána í kvöld er sú að gefa annarsvegar yf- irlit yfir orgeltónlist 18. og 19. aldar og hinsvegar að sýna hvemig áhrif Lubecks og Pachelbels orkuðu á tón- list Bachs,“ segir Jacop og bætir því við að verkin hafi síður trúarlegar skírskotanir. Að mati Jacops er orgelið í Dómkirkjunni býsna gott og hentar verkunum vel, en í orgelheiminum er þáttur hljóðfæranna síst veigaminni en hjá öðmm meðlimum hljóðfæra- fjölskyldunnar. „Stóm sögufrægu orgelin víðsvegar í Evrópu em í misjöfnu ástandi og sum þeirra era orðin hálfslöpp, vegna við- haldsleysis. Það getur verið mikil upplifun að leika á þau, en ósjald- an þarf maður að stilla sig sérstak- lega inn á fornt ástand þeirra," segir Andreas Jacop að endingu. Gallerí Grúsk í annað húsnæði Grandarfirði.lVIorgunblaðið. GALLERÍ Grúsk í Grundarfirði hefur flutt í annað húsnæði, á Grundargötu 22. Starfsemi Grúsks hefur eflst mjög á því ári sem það hefur verið starfrækt og fjölbreytni í vöruúrvali aukist til muna. Margs konar varningur er í boði. Má nefna útsagaðar og niálaðar trévörur frá Hrafnihildi og Dísu, en þær hafa nýlega stofnað litla handverksstofu, sem ber nafnið Rún. Þá eru einnig á boðstólum alls konar prjónavörur, saumaðar flikur, slípaðir steinar, málaðir steinar, kleinur, sultur, heilsuolíur og margt fleira. Gallerí Grúsk er opið alla daga frá kl. 14-18. í Gallerí Grúsk eru ferðamönnum veittar upplýsingar um þjónustu og afþreyingu í Grund- arfírði. Nýjar bækur • Næturregn. Smásögur og þættir er eftir Grétar Kristjónsson. Hann hefur áður sent frá sér m. a. ljóðabækur. í kynningu segir að Næturregn fjalli um ólíka menn og konur og mismunandi reynsluheim: „Eigin reynsla höfundar liggur hér til grundvallar og nærvera hafsins og landsins er ljós. Lífið við sjávarsíðuna fyiT og síðar er hér tekið til umfjöllunar. Einkennilegar persónur koma fram eins og ljúfur andblær frá liðnum tíma, persónur sem aldrei heyrðu minnst á félagsleg sjónarmið eða félagslegt réttlæti. Bornar eru upp spurningar um stöðu mannsins í nútímanum, viðhorf hans, vonir og þrár. Og að sjálfsögðu kemur ástin hér við sögu, eins og alltaf þegar fjallað er um fólk.“ __ Næturregn er tileinkað minningu Óskars Aðalsteins ríthöfundar. Utgefandi er Sonnettuútgáfan sem er forlag höfundar. Bókin er 96 síður prentunnin í Odda. Hún fæst íhelstu bókabúðum og kostar 2.000 kr. Nýjar bækur • „BLUE TIT“ þýsk íslensk Blá- meisubók. Deutsch-islandisches Blaumeisenbuch, eftir Wolfgang Miiller í þýðingu Veturliða Guðna- sonar er komin út. I kynningu segir: „Þetta er menningarleg reisubók eftir þýska fjöllistamanninn og íslandsvininn Wolfang Múller frá Berlín. Hann fjallar á nýstárlegan hátt um fjöl- breytt efni, svo sem náttúru lands- ins, gi-óður og fuglalíf og ímynd ís- lands í þýskum ferðabókum frá fyrri öldum en þó fyrst og fremst um íslenskan samtíma og nútíma- menningu. Þar ræðir Wolfgang við ólíklegasta fólk og sannast þar sem fyrr að glöggt er gestsaugað." Bókin er prýdd fjölda mynda og textinn er bæði á íslensku og þýsku. Útgcfandi er Martin Schmitz Verlag, KasseVBerlin. Bókin er 288 bls. og leiðb. verð er 3.000 kr. NYR SENDIBILL Armúla 13- Sími 575 1220 - 575 1200 • Fax 568 3818 Verð frá aðeins kr. / 1.185.500, HYUIIDFII - til framtiður Aðeins 300 sæti á sértilboði Bókaðu til London með Heimsferðum og tryggðu þér kr. afslátt fyrir manninn Gildir í ferðir frá mánud.-fimmtud. ef bóhað fyrir 20. ágúst. Heimsferðir kynna nú fjórða árið í röð, bein leiguflug sín til London, þessarar vinsælu höfuðborgar Evrópu, og aldrei fyrr höfum við boðið jafn hagstætt verð og jafn gott úrval hótela. Ef þú bókar fyrir 20. ágúst getur þú tryggt þér ótrúleg kjör og komist til heimsborgarinnar á lægra verði en nokkru sinni fyrr. Glæsileg ný hótel í boði Flugsæti til London Verð kr. 16.890 Flugsæti fyrir fuilorðinn með sköttum. Ferð frá mánudegi til fimmtudags, ef bókað fyrir 20. ágúst. Flug og hótel í 3 nætur Verð kr. 22»690 Ferð frá mánudegi til fimmtudags, ef bókað fyrir 20.ágúst, Butlins-hótelið. Flug alla mánud. og fimmtud. í okt. og nóv. Fyrsta brottför 1. okt. íslenskir fararstjórar Heimsferða tryggja þér örugga þjónstu í heimsborginni Flug og hótel í 4 nætur, helgarferð Verðkr. 32*790 Ferð frá fimmtudegi til mánudags, Butlins-hótelið. HEIMSFERÐIR Austurstræti 17, 2. hæð ♦ sími 562 4600
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.