Morgunblaðið - 05.08.1998, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1998 39
I
1
«
4
4
l
4
.1
1
i
4
1
4
4
4
4
i
4
i
Ci
4
4
menni. Síðastliðin 2 ár var hugur
Didda míns allur við sumarbústað-
inn, sem þau hjónin hafa nú lokið
við að byggja á Nýlendu í landi
Akra á Mýrum og dvaldi hann þar
löngum þetta síðasta sumar.
Eg sendi öllum ættingjum og
vinum dýpstu samúðarkveðjur.
Hvfl í friði, vinur minn.
Ása Pálsdóttir.
Kveðja frá Félagi pípu-
lagningameistara
Það vora um margt óvenjulegir
tímar á íslandi upp úr 1940, heims-
styrjöldin síðari var í algleymingi,
breskm- her hertók landið og hóf
gífurlegar framkvæmdir við bygg-
ingu flugvallar í Reykjavík, sem
skapaði mikla vinnu og mikið pen-
ingastreymi.
En óskylt þessum stórviðburð-
um höfðu Reykvíkingar ráðist í það
stórvirki að leggja hitaveitu frá
Reykjum í Mosfellssveit og lagn-
ingu dreifíkerfis um borgina innan
Hringbrautar.
Þetta kallaði á fleiri starfsmenn í
faginu pípulagnir og einn af þeim
sem hlýddi því kalli var Benedikt
Jón Geirsson.
Benedikt gekk hefðbundna leið
námsins, nam við Iðnskólann í
Reykjavík og lauk þaðan prófí og
sveinsprófi í iðninni. Á þessum ár-
um vann hann ekki aðeins við pípu-
lagnir í Reykjavík, heldur vann
hann víðs vegar um landið. Árið
1952, þegar hann hafði fengið
meistarabréf, hóf hann sjálfstæðan
atvinnurekstur í pípulögnum með
félaga sínum, Páli Magnússyni, og
störfuðu þeir saman í áratugi og
vora um tíma með umsvifamestu
atvinnurekendum í pípulögnum
hérlendis.
Hann lét sér ekki nægja að búa
að þeirri þekkingu og reynslu, sem
hægt var að fá í pípulögnum hér
innanlands, heldur lagði hann í það
stórvirki, sem það sannarlega var á
þeim áram, að starfa í eitt ár í
Cleveland í Bandaríkjunum til að
læra nýjar vinnuaðferðir og kynn-
ast nýjum lagnaefnum.
Benedikt gekk í Félag pípulagn-
ingameistara þegar hann fór að
starfa sem sjálfstæður meistari og
lét strax málefni félags, stéttar og
iðnar sig miklu varða. Hann hafði
ekki verið lengi í Félagi pípulagn-
ingameistara þegar hann var kjör-
inn þar til trúnaðarstarfa og um
fímm ára skeið var hann formaður
félagsins. Það var á þeim miklu
umbrotatímum þegar ákvæðis-
vinna var tekin upp í pípulögnum
og Benedikt var einn af þeim sem
bára hitann og þungann af því
starfi.
Alla tíð, meðan heilsan leyfði, lét
hann sig miklu varða framgang fé-
lags og iðnar og það var í hans for-
mannstíð sem endmTnenntun hófst í
pípulögnum, sem nú er orðin blóm-
leg og þýðingarmikil og byggist á
þeim granni sem lagður var í upp-
hafi. Benedikt var kjörinn heiðurs-
félagi í Félagi pípulagningameistara
og það fer best á því að ljúka þess-
um fátæklegu minningarorðum með
beinum tilvitnunum í viðtal við
Benedikt í sjötíu ára afmælisriti fé-
lagsins á liðnu vori, en þar segir
hann m.a. „Hinn 8. júh' 1950 gekk ég
að eiga Brynhildi Pálsdóttur, hún
hefur verið mér ómetanlegur stuðn-
ingur í öllu mínu lífi.“
Viðtalinu lauk Benedikt með
þessum orðum. „Og þannig verður
það að vera um alla framtíð, að
menn séu stöðugt að sækja sér
fróðleik og menn verða að vera
virkir í sínum samtökum."
Félag pípulagningameistara
þakkar Benedikt Jóni Geirssyni
fyrir þann mikla skerf sem hann
lagði fram til að efla félagið, sam-
stöðu í stéttinni og ekki síst fyrir
að stuðla að tæknilegum framfor-
um.
Félagið vottar Brynhildi, dætr-
um þeirra og öðram ættingjum
samúð við fráfall og útför Bene-
dikts Jóns Geirssonar.
Sigurður Grétar
Guðmundsson.
JENNYLARA
GÍSLADÓTTIR
+ Jenný Lára
Gísladóttir
fæddist á Sólmund-
arhöfða á Akranesi
20. júní 1904. Hún
lést 25. júlí síðast-
liðinn á Sólvangi,
Hafnarfirði. For-
eldrar hennar voru
Gísli Hinriksson,
kennari, f. 17. maí
1856 á Litla-Ósi í
Miðfirði, V-Hún., d.
3. des. 1940, og
Petrína Kristín
Andrésdóttir, f. 2.
sept. 1863 á Bæ í
Hrútafirði, d. 9. febr. 1944. Al-
systkini Jennýjar eru: Karl, f.
14. júlí 1897, (látinn), Emilia, f.
1. ágúst 1899, d. 25. jan. 1930,
Hinrik, f. 21. júní 1903, d. 20.
ágúst 1944. Auk þess átti Gísli
Það var árið 1970 að ég kom í
fyrsta sinni á heimili tengdafor-
eldra minna á Holtsgötu 14 í
Hafnarfirði. Ekki ætla ég að rekja
lífshlaup tengdamóður minnar, til
þess era aðrir færari, heldur
minnast þeirrar ástúðar og hlýju
sem frá henni stafaði. Ekki var
húsnæði hennar stórt í fermetrum
talið né fullt af veraldlegum hlut-
um, en þar var þó alltaf nóg pláss.
Fáir bökuðu betri pönnukökur en
hún og voru þær ávallt til þegar
litlir sonarsynir komu í heimsókn.
Sögurnar og ljóðin sem hún sagði
frá voru svo lifandi og fallegar og
munu lifa um ókomin ár í hjörtum
okkar.
Hún var barn síns tíma og hafði
ákveðnar skoðanir á útivinnu
kvenna en alltaf var hún tilbúin að
hlaupa undir bagga hjá mér þegar
þess þurfti. Þó er ég viss um að í
dag hefði hún gengið menntaveg-
inn og gerst útivinnandi húsmóð-
ir. Síðustu fimm árin var hún
blind og heyrninni hrakaði en
hugurinn var skýr fram á síðustu
stundu, það sýndi sig best í því
hve vel hún fylgdist með sínum
áður tvö syni: Ólaf-
ur, skipstjóri á
Akranesi, f. 6. apríl
1879, drukknaði
1908, og Gústaf, f.
17. ágúst 1892.
Jenný giftist Jó-
hannesi G. Brynj-
ólfssyni, bakara, frá
Patreksfirði, 24.
okt. 1926. Hann var
f. 25. sept. 1896, d.
12. apr. 1988. Börn:
Brynjólfur, f. 7. des.
1926, Emilía f. 9.
des. 1931, Magn-
fríður, f. 9. des.
1941, d. 26. jan. 1942, Sveinn, f.
31. okt. 1945. Barnabörnin eru
9 og bamabamabörn 18.
Utför Jennýjar Lám fór fram
frá Þjóðkirlqunni í Hafnarfirði
4. ágúst.
nánustu í starfi, námi og leik. Síð-
ustu árin dvaldi hún á Sólvangi og
naut þar hjúkrunar frábærs
starfsfólks. Jenný mín, ég þakka
þér samverana í þessu lífi og von-
andi færð þú að sitja við skriftir
sem var þín stóra ósk, því þú
sagðir oft: „Þegar ég er farin til
himnaríkis ætla ég að sitja við
skriftir." Hjá okkur sem eftir lif-
um lifir minningin um þig og alla
þá ástúð og hlýju sem þú veittir
okkur.
Þín tengdadóttir,
Hlín.
Það er sárt tómarúmið í hjarta
mínu þegar elskulega amma mín
er farin.
Hún var einstök.
Nú legg ég augun aftur
0, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vöm í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(S. Egilsson.)
Sonardóttir.
Formáli minningargreina
ÆSKILEGT er að minningargreinum fylgi á sérblaði upplýsingar um
hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn,
um foreldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks
hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi að-
eins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálf-
um.
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og systir,
ERNA SÓLRÚN KRISTENSEN
GUÐSTEINSSON,
Sölvhólsgötu 14,
Reykjavfk,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur, Fossvogi,
sunnudaginn 2. ágúst.
Rudolf Ásgeírsson, Sólborg Marinósdóttir,
Ásgeir Ásgeirsson, Hjördís Bergþórsdóttir,
Gunhild Bjarnason.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
INDRIÐI INDRIÐASON
vélamaður,
Langholtsvegi 14,
Reykjavík,
andaðist á heimili sínu að kvöldi mánudagsins
3. ágúst.
Steinunn Hákonardóttir,
Ingunn Karítas Indriðadóttir, Jóhann Sæberg Helgason,
Guðný Vigdís Indriðadóttir, Kristgeir Friðgeirsson,
Indriði Indriðason, Anna Árdís Helgadóttir
og barnabörn.
+
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
KATRÍN SIGURÐARDÓTTIR,
áður Ljósheimum 9,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir mánudaginn
3. ágúst.
Ingiríður Halldórsdóttir,
Þórhildur Halldórsdóttir,
Signý Halldórsdóttir,
Sigrún Halldórsdóttir,
Oddný Dóra Halldórsdóttir,
Pétur Eggertsson,
Jón Árnason,
Hrafn Einarsson,
Birgir Þorsteinsson,
Kristján Kristinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær móðir okkar og tengdamóðir,
MAGNEA Þ. GUÐMUNDSDÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir að morgni þriðju-
dagsins 4. ágúst.
Ingvar K. Guðnason, Guðrún Eiríksdóttir,
Valdimar Guðnason, Helga Sveinsdóttir,
Stefán Kjartansson.
+
Okkar hjartkæra,
SVANHVÍT JÓNSDÓTTIR,
Eyrarholti 2,
lést á Landspítalanum mánudaginn 3. ágúst.
Júlíus Júlíusson,
Pétur Jónsson,
Ólafur Júlíusson.
+
Elskuleg eiginkona mín,
SIGRÍÐUR M. OLSEN,
áður til heimilis
i Hvassaleiti 56,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir föstudaginn
31. júlí sl.
Haraldur Stefánsson.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir og bróðir,
ÓLAFUR THORARENSEN,
Hagamel 42,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 6. ágúst kl. 13.30.
Þóra ölversdóttlr,
Ingibjörg Thorarensen,
Hildur Thorarensen,
Aðalsteinn Thorarensen.
+
Eiginmaður minn,
ÓTTAR VIÐAR,
andaðist á Sjúkrahúsi Flúsavlkur föstudaginn 31. júll.
Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna,
Aðalheiður Viðar.