Morgunblaðið - 05.08.1998, Síða 42

Morgunblaðið - 05.08.1998, Síða 42
42 MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ GÍSLI HALLDÓRSSON + Gxsli Halldórs- son fæddist að Norður-Botni í Tálknafirði 2. fební- ar 1927. Hann lést 27. júlí síðastliðinn. Foreldrar hans voru Halldór Gíslason, bóndi, f. 8. maí 1885, drukknaði á Þern- eyjarsundi 9. júní 1931 og Valgerður G.J. Jónsdóttir, f. 7. ágúst 1884, d. 18. febrúar 1966. Systk- ini hans sem komust á legg voru Sigríð- ur, f. 15. ágúst 1915, d. 8. janúar 1995, Jóna, f. 6. júní 1919, Snærún, f. 9. júní 1922, d. 4. október 1970, og Sigurbjörg, f. 11. apríl 1924, d. 30. mars 1989. Eftirlifandi eiginkona Gísla er Theódóra Sverrisdóttir Thoroddsen, f. 27. október 1929, fyrrum úti- bússtjóri í Búnaðar- banka Islands. Börn þeirra eru: 1) Theó- dóra, meinatæknir, f. 1. júlí 1950, maki Matthías Halldói’S- son, læknir. Dóttir þein-a er Theódóra, f. 1979. 2) Halldór, arkitekt, f. 25. ágúst 1952, maki Anna Guðrún Björnsdóttir, lög- fræðingur. Börn þeirra eru Björn, f. 1983 og Valgerður, f. 1985. 3) Sverrir, rafeinda- virki, f. 29. júlí 1957, maki Kristbjörg María BI. Birgisdótt- ir, bankastarfsmaður. Synir þeirra eru Gísli, fæddur 1983, og Ragnar, f. 1989. títför Gísla fór fram í kyrr- þey- Það er vandi að skrifa um Gísla Halldórsson. Ekki vegna þess að góðar minningar skorti, en Gísli ^ taldi að persónuleg umræða um fólk, eins og nú tíðkast, ætti ekki erindi í fjölmiðla. Hann veitti þeim aldrei viðtöl þótt oft væri eftir því leitað og frá nógu að segja. Allt prjál og yfirborðsmennska var honum á móti skapi. Hann kenndi okkur að enginn er meiri maður vegna ættemis, fjái-muna eða stöðu í þjóðfélaginu. Manneskjan sjálf var það eina sem skipti hann máli. Bamabörnin vora hans fólk og ^þau sakna afa síns. Ekki eingöngu vegna þess að hann væri svo skemmtilegur og klár (hann gat t.d. hreyft eyran án þess að koma við þau) heldur fyrst og fremst af því að hann var svo hlýr og góður. Hann treysti bömum og talaði við þau eins og við fullorðna. Þeim þótti gaman að aðstoða hann við smíðar, enda fengu þau að njóta sín og hann leiðbeindi ef þau töldu sjálf að þess væri þörf. Þegar sumarið gekk í garð var Gísli orðinn þungt haldinn af krabbameini. Hann kvartaði ekki, en þótti erfitt að geta ekki lagst í ferðalög um landið með Theódóra konu sinni eins og þau vora vön að gera eða tekið til við verklegar framkvæmdir. Hann þurfti að hætta smíðavinnu við sumarbú- staðinn okkar Theódóra, dóttur sinnar, sem hann var langt kominn með. Við þannig störf sameinuðist þarfir hans fyrir að skapa og að gefa, sem vora honum svo eiginleg- ar. Að eiga hluti var honum hins vegar lítils virð. Mér lærðist t.d. fljótt að lofa ekki að óþörfu hluti í hans eigu, t.d. bók, því þá var oft óhjákvæmilegt að þiggja hana að TOJIIMITIP OJUIUJ) flO SJfl um ÍWIDJHIMJOJI flÓTÍL flOfld ítSTfllHlfltlT • (flff Upplýsingar í s: 551 1247 gjöf. Einhver dáðist að silfurlamp- anum sem Gísli fékk sem leiklistar- verðlaun gagnrýnenda á sínum tíma. Sá hinn sami fékk silfur- lampann með sér heim þegar hann kvaddi og er líklega eini maðurinn sem hefur hlotið þann grip án þess að hafa nokkra sinni stigið á fjal- irnar. Veikindi, hvað þá læknar og sjúkrahús, vora Gísla ekki hugleik- ið umhugsunarefni og sjaldan ræddum við þau mál áður en hann veiktist. Það var kvíðvænlegt að hugsa til þess að nú fengi hann hann ef til vill hlutverk sem hann réði ekki við; eina hlutverkið í lang- an tíma sem ekki væri á hans færi að afþakka. Það var lán í óláni að Sigurður Ámason krabbameins- læknir stundaði hann á þessu fren- ur stutta en erfiða veikindatímabili. Þeir fundu einhvem samhljóm og Gísli treysti honum. Einnig þakkar fjölskyldan nærgætna umönnun starfsfólks Heimahlynningar Krabbameinsfélagsins, sem gerði honum kleift að vera heima allt til enda. Tilvera mín og margra annarra væri mun fátæklegri ef við hefðum ekki þekkt Gísla Halldórsson. Hann reyndi aldrei að hafa áhrif á líf okkar, en sterk nærvera hans var eingöngu til góðs. Fyrir það þökkum við einlæglega að leiðar- lokum. Matthías Halldórsson. I leikritinu um Kristnihald undir Jökli, sem Gísli Halldórsson færði fram til sigurs með ógleymanleg- um hætti, trúir séra Jón Prímus Umba hinum unga fyrir því, að eitt sinn hafi hann átt fallega skó. Og stúlku. „En núna?“ spyr Umbi. Séra Jón Prímus svarai-: „Eg hef jökulinn; og náttúrlega akursins liljugrös; þau era hjá mér; ég er hjá þeim; en umfram allt jökulinn. Áður fyrr þegar eg var þreyttur hlakkaði ég til að sofna útfrá jökl- inum á kvöldin. Eg hlakkaði líka til að vakna til hans að morni. (Brosir ljóðrænt og lítur á Umba.) Nú er ég farinn að hlakka til að deya frá þessu ábyrgðarmikla kalli og gánga í jökulinn." Nú þegar Gísli Halldórsson er allur, hvarflar ekki að manni annað en hann sé nú genginn í jökulinn og hafi þar samsafnast akursins írjiíryííjur UPPLVSINGAR I SÍMUM 562 7575 & 5O5O 925 Glæsileg kaffihlaðborð FALLEGIR SALIR OG MJÖG GÓÐ ÞJÓNUSTA I HöTEL LOFTLEIÐIR, “ ÍCE LARDÁI8 M O T C L S liljugrösum, snjótittlingnum, sem stendur í logni og öllu því við- kvæmasta og ljúfasta sem lífsand- ann dregur. Svo umfaðmandi var allt hans lífsverk sem listamanns, svo samgróið öllu því, sem íslenskt er, landi, sögu og þjóð, af því að hann lifði í skáldskap, eins og Lax- ness lætur Prímus boða, og þeir einir lifa af hér á jörðu. I nýjustu bók sinni talar Guð- bergur Bergsson um að „maður fæðist úr skáldskapnum í hann við gerð skáldsögunnar sem maður semur, og lætur vera á sama hraða og manns eigið líf, síðan deyr mað- ur og hverfur á sálarhraða inn í sitt eigið verk og sameinast þvl ef and- inn fer út um hið rétta op. - Þetta er þetta sem skáldin áttu við í fomöld þegar þau sögðu að per- sóna í verkum þeirra dæi inn í fjall. Þau áttu við sig og eigin verk og alla menn um leið...“ Alla menn um leið. Skáldsagan blífur í bókstafnum meðan bækur eru ekki brenndar fyrir fullt og allt, en list leikarans lifir á sama augnabliki og hún deyr. En af góðri sviðslist fara þó sögur, og stundum geymist list leikarans líka í bandupptökum og á myndmiðlum. Gísli Halldórsson var stórveldi í leiklist okkar og starfsferill hans spannaði sem næst síðari helming aldarinnar. Framan af áram kvað mikið að honum sem leikstjóra og leikara, á síðari árum hafði leikur- inn yfirhöndina. Hann kom fyrst fram á svið sem uppreisnargjam og kokhraustur ungur prestur í Önnu Pétursdóttur 1951, stóð þar uppi í hárinu á sjálf- um Brynjólfi Jóhannessyni og duld- ist engum, að þar fór ungur maður, sem átti eftir að láta til sín taka. Það rættist fyrr en varði og mánuði síðar stóð hann í glæstum hópi þeirra ungu leikara, sem þá vora framtíðin, í leikritinu Segðu steinin- um. Og á næstu árum lék Gísli mik- ið af minnisverðum hlutverkum hjá Leikfélagi Reykjavíkur, sem þá gekk í endumýjun lífdaga eftir blóðtökuna miklu við opnun Þjóð- leikhússins. Sama ár lék hann sitt fyrsta burðarhlutverk, Tsæ-Jong hinn unga í þeirri minnisverðu sýn- ingu Gunnars Róbertssonar Han- sens á kínversku leikriti, Pi-pa-ki. Á eftir komu rómantískir elskhug- ar, galgopalegir spreðubassar og viðsjárverðir púkar, svo að ekki þurfti að kvarta yfir einhæfni. Galdra-Loftur 1956 varð minnis- verður áfangi á þroskaferli Gísla sem skapgerðarleikai-a; mig langar einnig að nefna lítið hlutverk Vasilís í Þrem systram á 60 ára af- mæli Leikfélagsins, sem sýndi hversu sterkt sviðsvald þessi ungi leikari hafði þá þegar til að bera. Um líkt leyti fór að kveða að Gísla sem leikstjóra og vora það einkum sýningamar á Browning- þýðingunni 1957 og Öllum sonum mínum 1958, sem sannfærðu menn um að fram var kominn óvenjuleg- ur hæfileikamaður á því sviði einnig. Lærifeður Gísla höfðu verið Láras Pálsson og Gunnar Róberts- son Hansen, og má með sanni segja að hann hafi tileinkað sér margt hið besta, sem þessir hsta- menn kenndu manni, sldlyrðislausa virðingu fyrir listinni og þann sjálf- saga, sem því fylgir að þjóna sam- verkalistsköpun af þeirri ábyrgð, sem það krefst. Hann var móttæki- legur fyrir Ustrænan heiðarleika Gunnars og fegurðarþrána hjá þeim báðum, skáldskaparlegan næmleika Lárusar, húmanisma hans. En stundum fannst mér líka Gísla sem leikstjóra svipa til Ind- riða Waage í stemmningsmettaðri dramatískri eftirfylgni. Slíkar stemmningar lét Gísli stundum standa lengi og tókst þá oft að virkja svo áhorfendur að heyra hefði mátt saumnál detta. Öðra einkenni á leikstjórn Gísla dáðist ég að (og lærði af). Það var hin ar- kítektóníska bygging sýningar, hvemig rýmið var nýtt til að skýra afstöðu einnar persónu til annarrar og það valdatafl sem í hreyfingunni felst. Nú á dögum, þegar alsiða er að leikarar álpist um svið skipu- lagshtið eða taki á sig langa mynd- ræna króka, sem stundum virka sem ofskýring textans eða van- skýring, Uggur við að manni finnist þessi gömlu vinnubrögð vera horf- in dyggð. Eg tek sem dæmi hversu langt var milli persónanna áþreif- anlega og óáþreifanlega í íyrsta þætti Fanganna í Altóna eftir Sar- tre, þessu húsi þar sem tilfinningar hafa frosið - og svo nálægðin og hitinn í öllum staðsetningum á þil- loftinu í öðrum þætti. Þegar undirritaður kom til starfa í Iðnó 1963 var GísU orðinn arftaki Gunnars Hansens sem helsti leik- stjóri hússins ásamt Helga Skúla- syni. Sem íyrr lék hann mikið af burðarhlutverkum og stýrði ýmsum minnisverðum sýningum eins og áð- umefndum Föngum í Altona, Vanja frænda, Tobacco Road og þeirri frægu sýningu Hart í bak. En kannski má segja, að leikurinn hafi skipað æ meiri sess, og á næstu ár- um bar GísU uppi leikinn í hverju hlutverkinu á fætur öðra. Öllum mun hafa verið ljóst að hann var þróttmildll og leiftrandi dramatísk- ur leikari, en það er á þessum árum sem GísU fæddist alskapaður sem einn fremsti gamanleikari okkar fyrr og síðar. Oft nýtti hann bæði þessi svið samtímis, þannig að á bak við gleðina glitti í harminn. Það var sem hinn Daríó Fóski trúður sem GísU sló í gegn á léttu nótunum í Þjófum líkum og fólum konum; síð- ar fylgdi hann því eftir með stórleik t.d. í Fló á sldnni og á móti Sigríði HagaUn í Rommí. í þessum kó- mísku mannlýsingum voru margvís- leg blæbrigði, til dæmis var hann óborganleg Grasa-Gudda í aimæUs- sýningu Leikfélagsins á Útilegu- mönnunum 1972 og síðar ómót- stæðilegur SpóU vefari í Jóns- messudraumi. Þá munaði heldur betur um hann í verkum eins og þeim bráðskemmtilega söngleik Landi míns föður. Á hinn bóginn átti leikhúsið ekki heldur mai'ga hans Uka þegar til alvörunnar tók; hann var eitraður Edgar í Dauða- dansi Strindbergs og brjóstum- kennanlegur faðir í Undir álminum, svo fátt eitt sé nefnt. Einhvers stað- ar þarna á milli stendur svo Gvendó í Dúfnaveislu Laxness, háll og hættulegur, óútreiknanlegur nú- tímamaður. Eitt sinn kom hann okkur til hjálpar í Þjóðleikhúsinu, einstakt þegnskaparbragö. Þá stóð til að heiðra Val Gíslason í hlutverki heimspekingsins Lúka I NáttbóU Gorkíjs. En Valur veiktist hálfum mánuði fyrir frumsýningu og Gísli hljóp í skarðið og varð Lúka þrátt fyrir þessar óvenjulegu aðstæður eitthvert hans besta hlutverk. Starfsvettvangur Gísla var ann- ars mikið til bundinn Iðnó, því þeg- ar Leikfélag Reykjavíkur fluttist upp í Borgarleikhús var augnsjúk- dómur farinn að þjá Gísla, svo að hann þoldi illa sviðsljósin. Á síðustu árum lék hann því einkum í kvik- myndum og sjónvarpi og ekki minnkuðu ástsældir hans við það. Margt mætti nefna því til sönnunar, en hér skal aðeins upp taUð hlut- verk hans í kvikmyndinni Börnum náttúrunnar og gamU útgerðarmað- urinn í sjónvarpsþáttunum frá Vest- mannaeyjum, Sigla himinfley. I báðum tilvikum vai’ um að ræða fá- gætlega fallegan leik. Og hann geymist nýjum kynslóðum. Þá var Gísli sem kunnugt er afburða upp- lesari og nægir þar að minna á meistaralegan flutning hans í út- varpi á Góða dátanum Sveik. Átvik höguðu því þannig að við Gísli unnum saman að síðasta verki, sem honum auðnaðist að sinna, og varð það eins og innsigli áratuga vináttu. Það hafði lengi verið þráhyggja mín, að túlkun Gísla á Jóni Prímusi í Kristnihaldi undir Jökli yrði að geymast ókomnum leiklistarannendum í út- varpsleiksformi. Þetta tókst og með nokkram herkjum þó, því að þá var Gísli farinn að kenna þess sjúkdóms sem dró hann til dauða. En einkennileg er forsjónin, þegar hugsað er til þess, að síðustu orðin, sem hún lætur þennan mikilhæfa listamann segja í leik, era einmitt þessi: „Sá sem ekki lifir í skáld- skap, lifir ekki af hér á jörðinni.“ Þetta vissi Gísli alla tíð, og sú vit- neskja var uppspretta auðlegðar hans sem listamanns. Þess vegna eigum við honum svo mikið að þakka. Eg flyt eiginkonu hans Theodóra Thoroddsen, einni af þessum huldu- konum íslenskrar leiklistarsögu, bömum þehTa, Halldóri, Theodóru yngri og Sverri, og allri fjölskyld- unni samúðarkveðju. Og Gísla óska ég góðrar ferðar í jökulinn. Þar er bæði heitt og kalt eins og í listinni, en yfir honum er heiðríkja, sem ég veit að verður Gísla að skapi. Sveinn Einarsson. Oft er sagt: Nú er skarð fyrir skildi, en það á ekki við þegar Gísli Halldórsson er horfinn úr okkar hópi. Við lágum ekki í hernaði sam- an. En nú stíga færri fætur á mel og mosa, færri augu sjá yfir svip- mikið land af heiðarbrún, rödd hans og bros taka ekki við okkur í áfangastað, við heyram ekki lengur sögur hans og tilsvör og hnyttnar vísur sem við áttu. Við voram sam- an í sveit sem aldrei laut reglum eða stefnuskrá. Með því að hittast og ganga og sjá og hlusta lagði hver öðrum lið í amstri dægranna, með sínum hætti og án þess orð þyrfti um að hafa. Enginn var ör- látari en Gísli á allt sem mátti verða til mannfagnaðar, vekja í senn hlátur og hugsun og - án þess tekið væri fram sérstaklega - sam- stöðu um margt sem mestu varðar í lífi Islendings. Á göngum um landið og við allsnægtaborð hjá Gísla og Theó- dóra í Kaldaseli, Hveragerði og Hvalfirði tala allir saman og svo tveir eða þrír. Það æxlaðist svo til að við Gísli vorum oft á sama róli, við áttum skap saman og furðu margar minningar. Trygglyndi með yfirvegun var einn af mörgum aðlaðandi þáttum í fari Gísla; mað- ur er það sem hann ungur nemur, það hverfur ekki frá okkur síðan. Hann átti þá við nokkrar grund- vallarkröftu’ um réttlæti og óbeit á valdhroka og ofríki sem mestu réðu um viðhorf hans til einstak- linga og mannlegs félags. Hann fór stundum með hendingar úr kvæði eftir Robert Bums um upphefðina, hefðarstandið sem er ekki annað en mótuð mynt en maðurinn gullið sjálft, hvað sem öðru líður: The rank is but the guinea’s stamp The Man ‘s the gowd (gold) for a’ that. Eins og gefur að skilja var sú list honum hugleikin sem býr í göfug- um textum og túlkun þeirra. Hann líktist í því einum eftirlætishöfundi sínum, Anton Tsjekhov, að djúp- vörm ást hans á skáldskap og leik- húsi vildi helst fátt um þylja og ef til vill henda gaman að sjálfri sér öðram þræði. Allt tal hans um þau efni bar vitni traustu jarðsambandi sem vísaði frá sér tilgerð og tækni- legum eldglæringum. Hvar er maðurinn sjálfur og það sem hon- um er satt og gott? Einhverju sinni voram við að spjalla saman um sögu Hemingways, „Gamli maður- inn og hafíð“, og tíunda allskonar túlkanir á fiskinum stóra sem sá gamli veiðir en hákarlar éta frá honum á leið til lands, en þær eru margar skarplegar og langsóttar. Þetta kann allt að vera rétt, sagði Gísli að lokum, en mér er meira í hug lýsingin á samskiptum gamla mannsins og drengsins, það er fal- legur og tær skáldskapur. Gamall fiskimaður og drengur sem lætur sér annt um hann og vill flest af honum læra; sú hlýja sem finna má í hörðum heimi þrátt fyrir allt (for all that, segir Robert Bums). Þegar gamli maðurinn er að örmagnast í glímu sinni við fisk- inn og hákarlana verður honum oft að orði: Bara ef drengurinn væri nú hér! Einu sinni bætir hann við: Maður má ekki vera einn í ellinni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.