Morgunblaðið - 05.08.1998, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1998 51
BRÉF TIL BLAÐSINS
i
I
i
(
j
i
(
<
i
(
(
Orkudrykkir
Sigurgeir
Þorvaldsson
Frá Sigurgeirí Þorvaldssyni:
EKKI opnar maður svo dagblað né
fylgist með hljóð- eða sjónvax-pi, að
ekki sé auglýstur enn einn nýr
„orkudxykkur-
inn“, sem eigi að
slá öllum öðrum
við um áhrif og
gæði! Svei því
öllu saman!! Svo
virðist, að hægt
sé að hafa alla að
ginningarfíflum,
sér í lagi ung-
lingana, sem allt
þurfa að prófa.
Þessir drykkir eru seldir í litlum
dósum, á annað hundrað krónur
stykkið og liggja svo umbúðix-nar
eins og hráviði um allar götur að
lokinni drykkjunni.
Ég fæ ekki séð, að unglingar í dag
séu nokkuð orkumeiri en við vorum
á þeirra aldri, þótt við létum okkur
nægja að drekka einungis mjólk og
íslenska blávatnið, sem. ku vera það
hreinasta og besta í öllum heimin-
um. Eldri má nú gleyma blessaða
lýsinu, sem veitir meiri orku en flest
annað, sem við látum ofan í okkur.
Fyrst var það þorskalýsið nxeðan ég
var krakki, síðar á ævinni og alveg
fram á efri ár, breytti ég yfir í ufsa-
lýsið, sem er mun kröftugra en
þorskalýsið og gaf ágæta raun, en á
þessu ári hóf ég að prófa hákarlalýs-
ið, í fyrstu eitt hylki á dag og ég
fann fljótlega til meiri vellíðunar. Og
síðan ég fór að gleypa hákarlalýsis-
hylkin, hefur orka mín aukist um all-
an helming. Og nú er ég farinn að
taka inn tvö hylki á dag, í stað eins
áður og vænti þess, að árangurinn
láti ekki á sér standa.
Ég er nú orðinn 75 ára og því
ekki óeðlilegt að blöðruhálskii-tillinn
valdi manni ei-fiðleikum með þvag-
látin, geri bununa sliti'ótta og oft
æði sársaukafulla. En hvað sem
veldur, hefur þetta allt breyst síðan
ég fór að gleypa hákarlalýsishylkin.
Nú á ég ekki í neinum vandræðum
með þvaglátin, bunan óslitin og mun
kröftugri en áður, næstum því eins
og hjá unglingi.
Hægt væi'i að skrifa langa grein
um þetta efni, en það væri ekki til
neins, því þá mundi enginn nenna
að lesa hana. En ég er alveg sam-
mála Fríðu Rún Þórðardóttur, nær-
ingarfræðingi og næringaráðgjafa, í
viðtalsgrein í Morgunblaðinu, hinn
30. júlí sl. og beini þeim tilmælum
til íslenskrar æsku: Látið ekki
draga ykkur á asnaeyrunum! Ef þið
viljið auka orku ykkar og þrótt til
frambúðar hættið ekki seinna en
strax að hella einhverju bannsettu
sulli ofan í ykkur og snúið ykkur að
mjólkinni, blávatninu og umfram
allt: Lýsinu!
Með ósk um bjarta framtíð!
SIGURGEIR ÞORVALDSSON,
Mávabraut 8c, Keflavik.
KIRKJUSTARF
Safnaðarstarf
Dómkirkjan. Hádegisbænir kl.
12.10. Orgelleikur á undan. Léttur
málsverður á kii’kjuloftinu á eftir.
Grensáskirkja.
Háteigskirkja. Kvöldbænir og fyr-
irbænir kl. 18.
Langholtskirkja. Ferð eldri borg-
ara á vegum Bæjai’leiðabílstjóra og
Kvenfélags Langholtssóknar verð-
ur farin frá Langholtsldrkju í dag
kl. 13.
Neskirkja. Bænamessa kl. 18.05.
Seltjai’narneskirkja. KyiTðarstund
kl. 12. Söngur, altai’isganga, fyrir-
bænir. Léttur hádegisverður í safn-
aðarheimilinu.
Fella- og Hólakix-kja. Helgistund í
kirkjunni á fimmtudögum kl. 10.30.
Seljakirkja. Fyrii’bænir og íhugun í
dag kl. 18. Beðið fyrir sjúkum, allir
velkomnir. Tekið á móti fyrirbæna-
efnum í kirkjunni og í síma
567 0110.
Vídalínskirkja. Foreldramorgunn
kl. 10-12.
Kletturinn, kristið samfélag.
Bænastund kl. 20. Allir velkomnir.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía. Kl.
18.30 er fjölskyldusamvera sem
hefst með léttu borðhaldi á vægu
verði. Kl. 19.30 er fræðsla og bæn.
Allir hjartanlega velkomnir.
MAMMA
Allt sem þig vantar
ÞUMALÍNAs. 551 2136
)
(
(
www.mbl.is
A
TOTECTORS
ORYGGISSTIGVEL
fyrir
MATVÆLAIBNABINH
MÁLNINGAR-
UPPLEYSIR
ÁRVÍK
ÁRMÚLA 1 • SÍMI 568 7222 • FAX 568 7295
ÁRVÍK
ÁRMÚLA 1 • SÍMI 568 7222 • FAX 568 7295
1 &
Uúsikim
og Sport
Músik og Sport ehf. - Reykjavíkurvegi 60 - Símar 555-2887 og 555-4487
(
(
(
(
(
(
(
(
(
I
(
(
|
(
__Eftirtaldir leikir
fara fram í undanúrslitum
Coca-Cola bikars karla:
Miðvikudagur 5. ágúst kl. 18.30 ÍBV - Breíðablík Hásteinsvöllur
Fimmtudagur 6. ágúst kl. 18.30 Grindavík - Leiftur Grindavíkurvöllur