Morgunblaðið - 12.08.1998, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 1998 3
í hjarta ferskleikans
Ég er sprottinn úr þessum sunnlenska
jarðvegi og sleit hér upp fyrsta
kálhausinn minn. Mér finnst alltaf jafn
gaman að koma í KÁ til að fylla
lungun af grænmetisilminum.
Langstærsti hluti garðyrkjuframleiðslu landsins fer fram á
Suðurlandi. Gúrkur, sveppir, salat, steinselja og kryddjurtir
vaxa þar allt árið, en tómatar og paprikur yfir sumartímann
og fram á haust. Seinni hluta sumars og fram á vetur er
svo tími útiræktunar; hvítkáls, blómkáls, kínakáls, skraut-
káls, spergilskáls, rauðkáls, púrru, sellerís, gulróta og
gulrófna.
í nábýli við þessar þróttmiklu náttúruafurðir vaxa og
dafna verslanir KÁ, líkt og tákn um ferskleika. Þar geturðu
gengið að grænmetisilminum vísum um allt Suðurland,
enda er það keppikefli KÁ að leggja rækt við þessa
brosmildu og hressandi nágranna sína.
ÍSLENSK GARÐYRKJA
c£aLLu/ LxLa/
Q
LU
CE
5
Ui