Morgunblaðið - 30.08.1998, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 30. ÁGÚST 1998 23
nóvember 1997. Ég
tók svo þátt í verkefn-
inu með aðra hugmynd
sem hafði þróast upp
úr hinni fyrri, sú síðari
var að rækta skraut-
fiska til þess að selja í
aðrar verslanir. Inn-
flutningur á skraut-
fiskum er áhættusam-
ur og afföllin oft mikil.
Fiskamir eru sveltir í
þrjá sólarhringa áður
en þeir eru settir í
flug. í kjölfar þessa
sækir streita að fisk-
unum og hún getur
gert út af við þá. Ef
þeir lifa flutninginn af þurfa þeir að
vera í sóttkví í þrjár vikur eftir
flutninginn. Það hefur því yfirgnæf-
andi kosti að rækta fiskana hér.
Annar maður sem tók þátt í verk-
efninu kom með sömu hugmynd og
við. Hann heitir Sölvi Sturlason og
er lærður fiskeldisfræðingur. Nið-
urstaðan varð sú að við þrjú sam-
einuðum kraftana í skrautfiska-
ræktuninni sem nú er orðin að veru-
leika. Við höfum komið okkur upp
aðstöðu og fiskum og þetta er allt í
fullum gangi.“
I gæludýrabúðinni eru seldar ná-
lægt 150 tegundir af skrautfiskum.
Gullfiskamir em vinsælastir og svo
neonfiskar sem era með sjálflýsandi
rönd um miðjuna. Gæludýrabúðin er
til húsa i kjallara undir skóbúð að
Hafnargötu 35 í Reykjanesbæ. Hús-
næðið er vel nýtt og öðram megin í
búðinni era veggir klæddir fiskabúr-
um með alls kyns fiskum í. Eigin-
maður Sigríðar hefur smíðað öll
fiskabúrin. Fiskamir í búrunum era
misstórir og sumir afar litskrúðugir.
Sigríður kvað sölu á skrautfiskunum
hafa gengið mjög vel. „Kaupendur
eru bæði áhugamenn og fólk úti í bæ
og svo fyrirtæki svolítið. Við seljum
líka í gæludýrabúðir í Reykjavík, til
þeirra aðila sem ekki flytja þá inn
sjálfir." En skyldi vera mögulegt að
flytja skrautfiska héðan til útlanda?
„Það er hugmynd sem kemur vel til
greina, hér á Suðumesjum er vatnið
mjög hentugt til þessarar ræktunar.
Sýrastigið er heppilegt því hér er
heita vatnið ekki hveravatn, heldur
upphitað vatn.“
Hvað með önnur dýr? „Kanínur
era mjög vinsælar. Fólk getur haft
þær lausar í girðingu og hægt er að
fara með þær út að ganga í ól. Kan-
ínur eru skapgóð og þægileg gælu-
dýr. Börn og fólk sem hefur ofnæmi
fyrir katta- og hundahári getur
margt hvert haft kanínur, þær eru
að því er ég best veit
ekki nærri eins miklir
ofnæmisvaldar og t.d.
kettir,“ sagði Sigríður.
Hunda og ketti kveðst
hún ekki hafa í búð-
inni. . „Það era ekki
búrdýr, en við höfum
stundum milligöngu
um að útvega þau dýr.
Stundum hef ég haft
kettlinga í búðinni í
nokkra klukkutíma.
Þeir fara oftast fljótt,
fólk sem kemur inn
heillast af þeim og tek-
ur þá til sín.“
Hvað skyldi vera
dýrasti liðurinn í rekstri gæludýra-
búðar? „Húsnæði, rafmagn og fóð-
ur,“ svarar Sigríður. Hún vinnur að
mestu ein í búðinni en eiginmaður
hennar sér um fiskiræktunina. St-
arfið kveður hún vera nægilegt fyrir
eina manneskju, enda hafi búðin
verið hugsuð sem starfsvettvangur
fyrir hana. Verslunin selur einnig
ýmsar smávörar og svo fiskabúr. I
framtíðinni hyggjast þau hjón hafa
á boðstólum stöðluð fiskabúr en í
dag era þau að mestu smíðuð eftir
máli. En skyldi þetta starf vera
meira lifandi en ræstingarnar að
mati Sigríðar? „Já,“ svarar hún og
hlær. „Það er mikill munur, ég er
mjög sátt við árangur þessarar til-
raunar og ætla að halda þessari
starfsemi áfram." Sigríður og Birk-
ir fóra á sýningu í Þýskalandi í maí.
„Það er stærsta sýning í þessum
„bransa“, þar komu einir átta hund-
rað aðilar að sýna sína framleiðslu.
Við voram þarna sem gestir. Ég
hefði ekki trúað að þessi starfsemi
væri svona umfangsmikil." Sigríður
kvað ekki mikið umstang fylgja
skrautfiskum á heimili. „Það er út-
breiddur misskilningur að svo sé,
sannleikurinn er sá að ef búrið er
vel stórt þá þarf sjaldan að þrífa
það. Ef búrið er stórt og búnaður
góður dugar að þrífa það vel einu
sinni á ári. Hins vegar þarf að
skipta um hluta af vatninu svona
einu sinni í mánuði."
Sigríður sagði að lokum að við-
skiptaáætlunin sem hún gerði í
verkefninu hefði staðist. „Mér
fannst þetta námskeið frábært, það
tók eina sex mánuði og það var farið
yfir margt. Reynt var að gera alla
þætti sem ljósasta. Ekki giska held-
ur vita hvað hver þáttur kostar eða
mun skila. Það er góður lærdómur
að láta ekki óskhyggjuna ráða held-
ur leita uppi greinargóðar upplýs-
ingar.“
En skyldi
þetta starf
vera meira
lifandi en
ræstingarnar
að mati Sig-
ríðar? „Já,“
svarar hún
og hlær.
efni hjá fyrirtæki okk-
ar. Komið hafa tvær
fyrirspumir erlendis
frá í pökkun á heyrn-
artólum en það er svo
skammt á veg komið
að það gætu þess
vegna reynst tómar
loftbólur. Annað dæm-
ið er svo stórt að við
gætum aldrei ráðið við
það ein, við yrðum að
fara í samstarf við
aðra ef það ætti að
ganga. Það er þó verið
að skoða þetta.“
Þau Þorleifur og
Brynhildur hafa einu
sinni áður komið að fyrirtækja-
rekstri. „Ég er héðan frá Keflavík
en konan mín frá Neskaupstað. Yið
bjuggum í tuttugu ár austur á
Fjörðum og ég var þar m.a. við út-
gerð. Af slysni urðum við hluthafar í
heildsölufyrirtæki hér og fluttum
hingað árið 1988 þegar það fyrir-
tæki var orðið mjög illa statt. Við
reyndum að bjarga því sem bjargað
varð en það tókst ekki, við höfðum
hvorki tíma né svigrúm til að rétta
reksturinn við. Þetta fyrirtæki hafði
m.a. umboð fyrir Prik þvottaefnið.
Þessi reynsla hefur orðið til þess að
við förum afar varlega, það er erfitt
að taka stórar ákvarðanir. Við eram
ekki tilbúin að fara út í neitt sem
ekki er sæmilega öraggt. Verkefnið
hjá Iðntæknistofnun hefur hjálpað
okkur mikið. Það hefur verið ómet-
anlegt að geta fengið bæði leiðbein-
mgar og bakstuðning frá atvinnu-
málaskrifstofunni hér
og frá Iðntæknistofn-
un þegar á hefur þurft
að halda. Án þeirrar
aðstoðar hefðum við
ekki endumýjað
samninginn við Flug-
leiðir.
Núna standa málin
þannig að ég nýlega
búin að ræða við flug-
leiðamenn. Verið er að
endurskoða alla þeirra
verktakasamninga.
Mér heyrist þó á öllu
að við náum þar lend-
ingu sem getur verið
hagstæð fyrir báða að-
ila. Við erum nýlega búin að festa
kaup á nýrri og afkastamikilli pökk-
unarvél og eram jafnframt farin að
líta í kringum okkur eftir öðram
verkefnum af svipuðu tagi. Það dug-
ar ekki að hafa öll eggin í sömu
körfunni. Við höfum augastað á
nýju húsnæði, miklu stærra og
hentugra en það sem við erum í
núna. Við höfum hins vegar haldið
að okkur höndum þar til séð yrði
hvað kæmi út úr viðræðum við þá
flugleiðamenn. Þeir eru okkar
stærsti viðskiptavinur og miðað við
þeirra áætlanir er líklegt að umfang
okkar hér aukist frekar en hitt og
að við þyrftum þrátt fyrir vélvæð-
inguna fremur að fjölga starfsfólki
en fækka. Þetta á þó ekki við um
stjómun fyrirtækisins, ég er á móti
allri yfirbyggingu, við hjónin sinn-
um sjálf öllu sem lýtur að rekstri og
stjómun.
Mér heyrist
þó á öllu að
við náum
þar lendingu
sem getur
verið hag-
stæð fyrir
báða aðila.
Allar ferðir okkar fyrstu 8 mánuði ársins seldust upp.
í fyrradag lagði af stað 120 manna hópur með
Heimsklúbbnum í 2]a vikna glæsiferð til Austurlanda,
sem kostar minna en Kanaríeyjaferð.
Viðbrögðin við vetrarferðunum til Malasíu, Thailands og
Karíbahafs eru frábær, því fólk kann að meta kjörin og þjónustu
í sérflokki. Samt eru bestu kjörin eftir:
Fegurstu staðir og bestu hótel heimsins í
„TÖFRUM 1001 NÆTUR
í AUSTURLÖNDUM"
1.-20. október
undir fararstjóm Ingólfs, sem gjörþekkir hinn austurlenska
heim, og á verði sem nálgast galdur!
Örfá sæti fást enn á tilboðsverðinu, ef pantað er strax.
HNATTREISAN
UM SUÐURHVEL JARÐAR
5. nóvember, 30 dagar - EINSTAKUR VIÐBURÐUR
Suður-Afríka, Ástralía, Nýja Sjáland, Tahiti, Suður-Ameríka
með Buenos Aires, Iguazu fossum og í Lokin glaðværasti staður
heims, Rio de Janeiro. Þú ferð tvisvar yfir miðbaug og austur
fyrir
daglínu og
eykur ekki
aðeins degi
í lífið,
heldur lífi í
alla
ókomna
daga þína.
TILBOÐSVERÐIÐ GILDIRENN
NÆSTU VIKU,
ÓTRÚLEG KJÖR
Á MESTA ÆVINTÝRI
LÍFS ÞÍNS.
AÐEINS 4 SÆTI
FERÐASKRIFSTOFAN
PfUMA?
HEIMSKLUBBUR
INGOLFS
Austurstræti 17,4. hæð 101 Reykjavík
sími 56 20 400, fax 562 6564