Morgunblaðið - 15.10.1998, Qupperneq 58
58 FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Borgarskjalasafn Reykjavíkur
Leitað eftir stfla- og
minningarbókum
nemenda í Reykjavík
Morgunblaðið/Golli
HALDIÐ var upp á 100 ára afmæli
Miðbæjarskóla 10. október sl. með
pomp og prakt. Hluti af afmælishá-
tíðinni var sýning á skjölum sem
tengjast sögu skólans á vegum
Borgarskjalasafns Reykjavíkur. I
frétt frá Borgarskjalasafni segir að
við undirbúning sýningarinnar hafí
komið í ljós að ótrúlega mikið var
til af skjölum á safninu frá skólan-
um. Aftur á móti sé nánast ekkert
tii af skjölum frá nemendum skól-
ans. Sama sé að segja um aðra
skóla á Reykjavíkursvæðinu, það
vanti skjöl frá nemendum skól-
anna.
„Borgarskjalasafn fer þess á leit
við borgarbúa bæði unga sem aldna
að þeir dusti rykið af gömlu minn-
ingunum frá skólaárunum og athugi
hvort þær eigi ekki erindi á skjala-
safn,“ segir í fréttatilkynningu.
„Borgarskjalasafnið hefur áhuga
4 og telur nauðsynlegt að varðveita
sýnishom af þessum dýrmætu
minningum um vinnu nemenda í
skólum t.d.: Skólablöðum, minning-
arbókum stílabókum, vinnubókum,
skriftarbókum og fleiru sem frá
nemendum kemur.
Einnig viljum við minna á að á
Borgarskjalasafninu er tekið á móti
skjölum einstaklinga svo sem eins
og bréfum, dagbókum, ljósmyndum,
póstkortum, heillaóskakortum,
heimilisbókhaldi og hverju einu sem
varpað getur Ijósi á líf fólks í borg-
inni. Þá geymum við einnig gamlar
tónleikaskrár, veggspjöld, aðgöngu-
miða, bæklinga, jólakort o.s.frv.
Þá tökum við einnig við skjölum
félaga og samtaka í Reykjavík og
má þar nefna fundargerðarbækur,
félagatöl, sjóðsbækur, bókhalds-
gögn, bréfasöfn, ljósmyndir og
bæklingar.
Starfsmenn Borgarskjalasafns
Reykjavíkur veita allar frekari upp-
lýsingar um varðveislu og móttöku
einkaskjala.“
Glerlista-
/
verk í Ar-
bæjarkirkju
VEGNA tæknilegra mistaka við
vinnslu blaðsins í gær er mynd af
nýju glerlistaverki í Árbæjar-
kirkju birt á ný en á myndinni
eru einnig Rúrí, höfundur lista-
verksins, Mannfreð Vilhjálmsson,
arkitekt kirkjunnar, Jóhann
Björnsson formaður sóknar-
nefndar og sr. Guðmundur Þor-
steinsson sóknarprestur.
GOETHE-Zentrum Reykjavík,
Lindargötu 46, verður opnað föstu-
daginn 16. október 1998.
Hollvinafélag þýska menningar-
setursins stendur að stofnun og
rekstri Goethe-Zentrum og hefur
gert samstarfssamning við Goethe-
stofnun í Munchen um áframhald-
andi stuðning við þýska menning-
arstarfsemi á Islandi.
Forseti Goethe-stofnunar, pró-
fessor Hilmar Hoffmann, kemur til
Islands til þess að undirrita samn-
inginn og vera viðstaddur opnun
Félags-
stofnun stúd-
enta býður
í afmæli
FÉLAGSSTOFNUN stúdenta er
þrítug á ái'inu. í tilefni af því býður
hún stúdentum við Háskólann á
fímm kvölda skemmtidagskrá í októ-
ber og nóvember.
Fyrstu fjögur kvöldin verða á Sól-
oni Islandusi og hefst dagskráin
fimmtudaginn 15. október með
MegaSukk-tónleikum Megasar og
Súkkat. Bítlarnir verða með spila-
spuna 22. október og hópur rithöf-
unda sem gefa út bækur fyrir jólin
les upp 29. október. Síðasta kvöldið á
Sóloni, fímmtudagskvöldið 5. nóvem-
ber, verður Leikhússport, en þar
koma fram leikarar og spinna með
aðstoð áhorfenda. Dagskráin hefst
kl. 21 öll kvöldin.
Lokaatburður tengdur afmæli FS
verður dansleikur á Broadway fóstu-
daginn 13. nóvember með Páli Ósk-
ari og Casino. Aðgangur er ókeypis
öll kvöldin og stúdentar boðnir vel-
komnir á meðan húsrúm leyfir.
Þingmaður
opnar vefsíðu
ÁRNI Ranar Árason, lþigsmður, h-
fur onað heiasíðu á Venum. Á heima-
síðu þingmannsins má kynnast
manninum, stjórnmálaferli hans,
skoðunum og viðhorfum til ýmissa
mála. Þá er þar að fínna greinar
hans sem birst hafa í blöðum.
Tenginar eru frá heimasíðu hans í
gagnabanka Alþingis sem sýnir
þingmál og ræður þingmannsins svo
og á heimasíðu Sjálfstæðisflokksins.
Öðrum tenglum kann að verða bætt
Goethe-Zentrum. Menntamálaráð-
herra, Björn Bjamason, verður
viðstaddur opnunina og flytur stutt
ávarp.
Goethe-Zentrum í Reykjavík
hýsir þýska bókasafnið, þar munu
liggja frammi dagblöð og tímarit
og aðgangur er að þýskum sjón-
varpsstöðvum um gervihnött. Á
döfinni eru ýmsir menningarvið-
brn-ðir og heimsóknir þýskra lista-
manna, segir í fréttatilkynningu.
I tilefni af opnun Goethe-Zentr-
um býður Hollvinafélag Þýska
við síðar og öðru efni frá þingmann-
inum, segir í fréttatilkynningu.
Slóð heimasíðunnai- er:
http://www.Althingi.is/~ara
Hönnunarfor-
sendur fyrir
fráveitur
MÁLSTOFA í umhverfis- og bygg-
ingarverkfræðiskor Háskóla Islands
verður haldin fimmtudaginn 15.
október. Jónas Elíasson prófessor
segir frá rannsóknum Vatnastofu
Verkfræðistofnunar HÍ. Nefnir hann
erindi sitt: Hönnunarforsendur fyrir
fráveitur - öruggum megin við hvað?
Fyrirlesturinn fer fram í stofu 157
í húsi verkfræði- og raunvísinda-
deilda við Hjarðarhaga. Hefst mál-
stofan kl. 16:15 og stendur í um IV2
tíma. Við lok erindisins verða um-
ræður og fyrirspurnir.
Vefsíða til
minningar um
Guðrúnu
Katrínu
VEGNA fráfalls forsetafrúarinnar,
Guðrúnar Katrínar Þorbergsdóttur,
hefur Hringiðan ehf. í samvinnu við
Sigrúnu Björk Ólafsdóttur vefhönn-
uð, sett upp heimasíðu þar sem
landsmönnum gefst kostur á að
minnast hennar og að senda fjöl-
skyldu hennar samúðarkveðjur.
Listinn mun verða landsmönnum
opinn þar til útfor Guðrúnar hefur
farið fram og mun hann þá verða af-
hentur fulltrúa forseta.
Slóðin á minningarvef Guðrúnar
er http://www.vortex.is/GudrunKatr-
in
menningarsetursins - Goethe-
Zentrum Reykjavík til Brecht-dag-
skrár í Norræna húsinu klukkan
20:30 að kvöldi föstudagsins 16.
október. Þar mun Musica Letra
sem skipuð er þremur þýskum tón-
listarmönnum flytja Brecht-ljóð
undir yfirskriftinni „Vom armen
B.B.“ við tónlist eftir Weill, Eisler
o.fl.
Brecht-dagskráin er öllum opin
meðan húsrúm leyfir og er aðgang-
ur ókeypis.
Goethe-Zentrum Reykjavík opnað
I blaðaukanum verður komið víða við og heimilinu gerð góð skil á líflegan og skemmtilegan hátt.
Farið verður m.a. í heimsókn til ungs fólks sem er nýbúið að gera upp íbúð og sýndar myndir fyrir
og eftir breytingar. Einnig verður rætt við arkitekt um tískuna í húsbúnaði, litavali og innréttingum.
• Eldhús * Lýsing og Ijós • Hirslur
• Gólfefni • Húsgögn ♦Tískan á heimilinu
• Litir og litaval og annar húsbúnaður •Viðtöl o.m.fl.
Skilafrestur auglýsingapantana er til
kl. 12 mánudaginn 19. október.
Allar nánari upplýsingar veita sölu- og
þjónustufulltrúar á söludeild auglýsinga í síma 569 I 139.
AUGLÝSINGADEILD
Sími: 569 1111 • Bréfasími: 569 1110 • Netfang;.augl@mbl.is