Morgunblaðið - 17.11.1998, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1998 19
VIÐSKIPTI
Fiskiðjusamlag Húsavíkur með 30% meiri veltu
Rækjuframleiðsla
aðalástæða aukningar
FISKIÐJUSAMLAG Húsavíkur
hagnaðist um 67 milljónir króna á
nýliðnu x-ekstrarári fyrirtækisins,
1. september 1997 til 31. ágúst
1998, og þar af er tap af reglulegri
starfsemi rúmar 10 milljónir króna.
Hagnaður fyrir afskriftir og fjár-
magnskostnað nam 291 m.kr. á
tímabilinu en það er 32 milljóna
króna betri afkoma en á síðsta
rekstrarári, samkvæmt fréttatil-
kynningu frá félaginu.
Auknar afskriftir
vegna fjárfestinga
Afskriftir námu 194 m.kr. og
aukast á milli ára vegna fjárfest-
inga í lok síðasta árs, þ. á m.
rækjuvinnslu á Kópaskeii og fjár-
festinga á þessu ári, m.a. í bolfisk-
deild. Einnig hefur sameining við
Náttfara ehf. áhrif til hækkunar,
segir í fréttatilkynningunni.
Fjái’magnskostnaður er 108
10 milljóna króna
tap af reglulegri
starfsemi
milljónir og lækkaði á milli ára um
58 m.kr. og er meginskýringin
gengishagnaður upp á 49 milljónir
króna. Heildarskuldir lækkuðu um
145 m.kr.
Velta fyrirtækisins eykst úr
2.064 m.kr. upp í 2.690 milljónir
eða um 30% á milli ára.
Samkvæmt fréttatilkynningunni
er aðalástæða veltuaukningar
rækjufi’amleiðsla félagsins en fé-
lagið rak tvær verksmiðjur á síð-
asta ári í stað einnar árið á undan.
Rækjuverksmiðja á Kópaskeri
bættist við rekstui’inn sumarið
1997 og kemur því inn í 12 mánuði í
stað tveggja mánaða á fyri’a ári.
Fiskiðjusamlagið hyggur nú á
rækjufi-amleiðslu í St. Anthony á
Nýfundnalandi í samstarfi við
Básafell hf. og kanadíska fyrirtæk-
ið Clearwater Fine Foods Inc. og
er vonast til að samstarfið styrki
stöðu fyrii’tækisins á möi’kuðum í
Evrópu.
Lakari afkoma
landvinnslunnar
I fréttatilkynningunni kemur
fi’am að afkoma landvinnslunnar í
heild hafi verið lakari en árið á
undan en afkoma á útgerðai’sviði
var heldur betri á þessu ári en í
fyrra vegna bættrar nýtingar á
kvóta félagsins.
I spá fyrir næsta ár er áætlað að
heildai’framleiðsluverðmæti verði
2.199 m.kr. og alls er gert ráð fyrir
að hagnaður upp í fjármagnskostn-
að og afskriftir hækki um 185 m.kr.
frá fyrra ári.
Fiskiðjusamlag Húsavíkur hl Ársuppgjör 1. september 1997 - 31. ágúst 1998 f.
■ f- ,-
Rekstrarreikningur Mnijónir króna 97/98 96/97 Breyt.
Rekstrartekjur 2.690,8 2.064,1 30,4%
Rekstrargjöld 2.399.4 1.804.7 33.0%
Hagnaður fyrir afskriftir 291,3 259,3 12,3%
Afskriftir 194,3 158,6 22,5%
Fjármaqnsqjöld umfram tekjur 107.7 165.9 -35.1%
Hagnaður (tap) af reglulegri starfsemi (10,6) (65,2) -83,7%
Hagnaður (tap) tímabilsins 67,3 131,9 -48,9%
Efnahagsreikningur 31/8 '98 31/8 '97
I Eianir: \ Milljónir króna
Veltufjármunir 746,5 672,9 10,9%
Fastafjármunir 2.138,1 2.281,4 -6,3%
Eignir samtals 2.884,6 2.954,3 -2,4%
l Skuldir oa eigid 16:1 Milljónir króna
Skammtímaskuldir 789,6 902,2 -12,5%
Langtímaskuldir 1.336,2 1.368,1 -2,3%
Eigið té 758,8 684,0 10,9%
Skuldir og eigið fé alls 2.884,6 2.954,3 -2,4%
Veltufé frá rekstri 117,4 117,5 -0,1%
Búnaðarbankinn
stofnar nýjan hluta-
bréfasjóð
Fjárfest í
fyrirtækj-
um á VÞÍ
BÚNAÐARBANKINN hefur sett á
markað nýjan hlutabréfasjóð sem
ber nafnið IS-15 og er Úrvalsvísitala
Verðbréfaþings íslands (VÞÍ) við-
miðunarvísitala sjóðsins. Stefna
sjóðsins er að fjárfesta í stærstu fyr-
irtækjunum á VÞI og stærri fyrir-
tækjum sem væntanleg ei’u inn á Að-
allista þingsins. Markmið sjóðsins er
að skila betri ávöxtun en sem nemur
hækkunum Úrvalsvísitölu. ÍS-15 er
því virkur hlutabréfasjóður og eigna-
samsetning hans mun ekki endilega
endurspegla samsetningu Úrvals-
vísjtölunnar.
í byrjun er ÍS-15 eingöngu ætlað-
ur stærri fjárfestum og ei’u lág-
markskaup í honum 5 milljónir
króna.
í fréttatOkynningu frá Búnaðar-
bankanum kemur fram að IS-15 er
nú þegar orðinn 820 milljónir króna
að stærð. Sjóðurinn var stofnaður 9.
júlí sl. Gengi sjóðsins sem á
stofndegi var sett á 1,00 er nú 1,04
sem samsvarar 14% ársávöxtun. A
sama tíma lækkaði úrvalsvísitalan
um 7% sem samsvarar um -20% árs-
ávöxtun.
„Lög um verðbréfasjóði setja
starfsemi verðbréfasjóða þröngar
skorður m.a. hversu stórt hlutfall af
eignum verðbréfasjóða má fjárfesta í
einu félagi. Til þess að geta náð
markmiði með sjóðnum er nauðsyn-
legt að eiga meira í stærstu félögun-
um á þinginu en gert er ráð fyrir í
umræddum lögum. Af þessum sök-
um hefur Búnaðarbankinn stofnað
annarskonar sjóð - Fjárfestingasjóð
Búnaðarbankans - sem ekki heyrir
undir lögin um verðbréfasjóði og
tekur stofnreglugerð mið af reglu-
gerðum svipaðra sjóða í Evrópu. IS-
15 er fyrsta deildin í þessum nýja
sjóði. Búnaðarbankinn er rekstrar-
aðili, fjárfestingarráðgjafí og vörslu-
banki sjóðsins,“ segir í fréttinni.
Vönduð
dagatöl og jólakort
í miklu úrvali.
Sérmerkt fyrir þig
Nýjar víddir
í hönnun og útgáfu
Snorrabraul 54 ©5á! 4300 [JS61 4302
í dag kl. 11:00 mun fara fram útboð á rfldsvíxlum hjá Lánasýslu rfldsins.
Að þessu sinni verður boðið upp á 3ja, 5 og 11 mánaða rfldsvíxla, en að öðru
leyti eru skihnálar útboðsins í helstu atriðmn þeir sömu og í síðustu útboðnm.
í boði verða eftirfarandi flokkar rfldsvíxla:
Uppbygging markflokka ríkisvíxla
Staða ríkisvíxla 12. nóvember, 18.790 milljónir króna.
Áætluð hámarksstærð og sala 17. nóvember og 1. og 9. desember 1998.
Flokkiir Gjalddagi Iinstíxni Núverandi staða* Áaetlaðhámark tekinnatilboða*
RV99-0217 17. febrúar 1999 3 mánuðir 3.751 1.500
RV99-0416 16. apríl 1999 5 mánuðir 800 500
RV99-1019 19. október 1999 11 minuðir 900 1.000
Sölnfyrirkomulag:
Ríkisvíxlamir verða seldir með tilboðsíyrirkomulagi.
Öllum er heimilt að bjóða í ríkisvíxla að því tilskyldu að
lágmarksfjárhæð tilboðsins sé ekki lægri en 20 milljónir.
Öðrum aðilum en bönkum, sparisjóðum, fjárfestingalána-
sjóðum, verðbréfafyrirtækjum, verðbréfesjóðum, lífeyrissjóðum
og tryggingafélögum er heimilt að gera tilboð í meðalverð
samþykktra tilboða, að lágmarki 500.000 krónur.
Öll tilboð í ríkisvíxla þurÉt að hafe borist Lánasýslu ríkisins fyrir
kl. 11:00 í dag, þriðjudaginn 17. nóvemben Útboðsskilmálar,
önnur tilboðsgögn og allar nánari upplýsingar em veittar hjá
Lánasýslu ríkisins, Hverfisgötu 6, í síma 562 4070.
LANASYSLA RIKISINS
Hverfisgata 6, 2. hæð • Sími: 562 4070 • Fax: 562 6068
Heimasíða: www.lanasysla.is • Netfang: lanasysla@lanasysla.is