Morgunblaðið - 18.11.1998, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Fundur hdps kvennalistakvenna um framboðsmál í gærkvöldi
Reyna til þrautar að ná
samkomulagi næstu daga
Átti ekki
þessa sam-
ræðu við
ísólf Gylfa
ÍSÓLFUR Gylfi Pálmason,
Framsóknarflokki, sagði við utan-
dagskrárumræður á Alþingi í gær
um breytingar á skipulagi lögreglu-
stjóraembaettisins í Reykjavík að
Þórhallur Ólafsson, aðstoðarmaður
dómsmálaráðherra, hefði sagt við
sig að Landssambandi lögreglu-
manna kæmi málið ekki við. Þór-
hallur segir í samtali við Morgun-
blaðið að hann hafi aldrei átt þessa
samræðu við Isólf Gylfa.
Þórhallur segir að ráðuneytið haíi
átt í viðræðum við samtök lögreglu-
manna. Verið sé að vinna að skipu-
ritinu og enn eigi eftir að hafa frek-
ari viðræður við hagsmunaaðila.
„Aðalatriðið er samt það að veist
er að mönnum utan Alþingis sem
ekki geta svarað fyrir sig á sama
vettvangi," segir Þórhallur.
Hann gagnrýnir forseta Alþingis
fyrir að hafa ekki gripið inn í þegar
Isólfur Gylfi viðhafði ummælin.
„Það hefur verið regla á Alþingi að
þingmenn veitist ekki að fólki með
þessum hætti, hvað þá þegar þau
eni ósönn orðin sem eru viðhöfð.
Kostirnir eru þeir að mér verði leyft
að svara ummælunum á Alþingi,
Isólfur Gylfi biðjist afsökunar á
þeim eða forsætisnefnd Alþingis
ávíti þingmanninn," sagði Þórhall-
ur.
■ Hart deilt/12
-------------
I ísknattleik
SKÓLAKRAKKAR í Neskaup-
stað eru áhugasamir um vetr-
aríþróttir. Þar gefst nú færi til
að iðka ísknattleik því snjór er
yfir öllu. Þau báru sig fag-
mannlega á svellinu og greini-
legt að keppnisskapið var til
staðar.
HÓPUR kvennalistakvenna í öllum
kjördæmum ákvað á fundi í
gærkvöldi að halda áfram viðræðum
við A-flokkana um sameiginlegt
framboð og reyna til þrautar á
næstu tveimur vikum hvort hægt
verður að ná samkomulagi.
Guðný Guðbjömsdóttir, alþingis-
kona Kvennalistans, segir að niður-
staða stýrihóps samfylkingarinnar
frá sl. sunnudegi sé í fullu gildi, að
mati Kvennalistans. „Þar lýsti for-
maður Alþýðuflokksins því yfir við
okkur að þeir gætu illa sætt sig við
skilyrði Kvennalistans en það var
ljóst að þar er fyrst og fremst verið
að tala um Reykjavík og Reykjanes
vegna þess að þriðja sætið í flestum
kjördæmum gefur ekki þingsæti.
Við erum í raun og veru hugsanlega
að tala um tvö þingsæti í Reykjavík
og eitt á Reykjanesi. Það var
ákveðið að gefa þessu framboðsferli
tvær vikur í viðbót," segir hún.
Guðný segir að kvennahstakonur
séu hissa á yfirlýsingum formanns
Alþýðuflokksins í fjölmiðlum sl.
mánudag. „Konum fannst þetta
óheppilegt og að þetta hafi í raun og
veru ógnað þessu ferli öllu. Margar
eru tvístígandi eftir þetta. Okkur
fannst þetta vera ógnun við allan
ferilinn og við alla raunverulega
samfylkingarsinna og þá sem virða
vald stýrihópsins sem er æðsta
stofnun þessa ferils."
Skilyrðin þýða 3 þingkonur
Guðný segir að skilyrði Kvenna-
listans hafi verið mistúlkuð. „Þau
þýða í raun þrjár þingkonur miðað
við núverandi kjörfylgi. Það þýðir
13% þingmanna eða þrjár þingkon-
ur af 23 þingmönnum eins og staðan
er núna en ekki þriðjung þing-
manna,“ segir hún. „Það sem hefur
haldið þessu í gíslingu er skilyrði
Alþýðuflokksins um prófkjör í
Reykjavík og skilyrði Alþýðubanda-
lagsins um handröðun en ekki skil-
yrði Kvennalistans,“ segir Guðný.
„Landsfundur okkar samþykkti
að vera með í þessu ferli. Við ætl-
um ekki að hætta því fyrr en ljóst
verður hver afstaðan er úti í kjör-
dæmunum," sagði hún. „Við mun-
um gera allt sem í okkar valdi
stendur til að koma þessu ferli í
höfn með reisn fyrir alla aðila.
Kannski var þetta einhvers konar
neyðaróp hjá formanni Alþýðu-
flokksins um að við kæmum inn í
þetta með virkari hætti. Við teljum
að þetta sé sérstakt tækifæri í ís-
lenskum stjórnmálum og ætlum
ekki að hætta fyrr en það er full-
reynt að það gengur ekki,“ segir
Guðný.
Bókatíðindi
á mbl.is
LESENDUM mbl.is gefst nú
kostur á að skoða Bókatíðindi
1998 á vef Morgunblaðsins. Vefur
þessi er settur upp í samvinnu við
Félag íslenskra bókaútgefenda.
A vefnum má finna 465
bókartitla frá 81 útgáfufyrirtæki
og hægt er að leita að bókum eft-
ir titli eða nafni höfundar.
Hægt er að nálgast vefinn með
því að smella á hnappinn
Bókatíðindi innan flokksins Sér-
vefir á forsíðu mbl.is eða smella á
hnapp með sama nafni undir
flokknum Nýtt á mbl.is. Þá má
einnig slá inn slóðina
http://www.mbl.is/baekur.
A vefnum er einnig hægt að
tengjast stærstu bókaverslun
heimsins á Netinu, Amazon.com.
Morgunblaðið er í samstarfi við
fyrirtækið um sölu erlendra bóka
á mbl.is.
Sjólaskip semja um tvo verksmiðjutogara
Akveða að taka að sér end-
urbyggingu og rekstur
SJÓLASKIP hf. í Hafnarfirði hafa
tekið að sér að sjá um endurbygg-
ingu og rekstur á tveimur erlendum
verksmiðjutogurum sem legið hafa
um hríð í Litháen. Ætlað er að end-
urbæturnar taki fjóra til sex mánuði
og verður yfirstjórn og skipulag
verksins í höndum íslenskra aðila.
Sjólaskip hf. munu síðan sjá um
rekstur skipanna.
Sjólaskip hf. eiga og gera út
frystitogarann Harald Kristjánsson
HF 2 og ísfisktogarann Sjóla HF 1
og í samvinnu við erlent fyrirtæki
hefur fyi-irtækið undanfarið gert út
frystitogarann Heinaste við strend-
ur Afríku. Nú hafa Sjólaskip hf.
haft milligöngu um kaup á tveimur
systurskipum Heinaste fyrir sam-
starfsaðilann. Hvort skip er 7.700
tonn, 120 m langt og með lestarrými
fyrir um 2 þúsund tonn af afurðum.
Skipin voru smíðuð árin 1988 til
1989 fyrir úthafsveiðiflota Rússa.
I frétt frá Sjólaskipum hf. segir
að vegna erfiðleika í fyrrum
Sovétríkjunum hafi hluti af rúss-
neska fiskiskipaflotanum legið
ónotaður eða í niðurníðslu í höfnum
en vestræn fyrirtæki hafi í vaxandi
mæli lagt til fjáiTnagn og þekkingu
til að koma þessum skipum í drift á
ný-
Ætlað er að fjóra til sex mánuði
taki að koma þessum tveimur skip-
um í gagnið með þeim endurbótum
sem vinna þarf. Verður yfirstjóm á
því í höndum Islendinga og segir í
fréttinni að leitast verði við að nýta
sem mest íslenska þekkingu í því
sambandi. Þá hafa Sjólaskip hf.
samið um að taka að sér rekstur
skipanna og er líklegt að þau verði
við veiðar á makríl við strendur Af-
ríku.
SSÍDU
Á MIÐVIKUDÖGUM
-i 'JÍDUíi
Aur
Sigursteinn
Gíslason frá
ÍA til KR
Öster rifti I Geir ekki
samningnum j með á móti
við Þorvald j Ungverjum
C1
C1 : C3