Morgunblaðið - 18.11.1998, Page 4

Morgunblaðið - 18.11.1998, Page 4
4 MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Kona hlaut 4 ára fang- elsi fyrir hnífstungu Stóra-Breiðavík Elds- upptök enn óljós Rannsóknarlögreglumenn frá Eskifírði vinna enn á vett- vangi þar sem stórbruni varð á Stóru-Breiðuvík í Reyðarfirði á mánudag. Ekki hefur enn fundist líkleg orsök eldsupp- taka, en lögreglan telur hins vegar ólíklegt að kviknað hafí í út frá rafmagni. Lögreglan treysti sér ekki til að gefa upp aðra möguleika sem hún veltir fyi’ir sér í stöðunni, en nánari frétta er að vænta á morgun. Stórtjón hlaust af eldsvoð- anum, en 244 kindur brunnu inni, full hiaða af heyi og fjár- hús, sem hvort tveggja brann til gi’unna. 42 ÁRA gömul kona, Sólrún Elídóttir, var í gær dæmd í 4 ára fangelsi fyrir að stinga hnífí í brjósthol fyrrverandi sambýlis- manns síns hinn 1. mars sl. með þeim afleiðingum að hann missti mikið blóð og að um það bil einn lítra af blóði þurfti að tæma úr brjóstholi hans þegar hann leitaði læknis tveim dögum síðar. Ákærða var sýknuð af ákæru um að hafa veitt sama manni áverka með hvössu eggjárni á hálsi. Ákærða hefur hlotið 15 refsi- dóma frá árinu 1973. Fórnarlambið leitaði sér læknis- hjálpar tveimur dögum eftir árás- ina og tregðaðist við að gefa upp hvernig hann hlaut sárið vegna þess hlýhugs sem hann bar til ákærðu. Þau bjuggu saman í átta ár á níunda áratugnum uns þau slitu samvistir vegna óreglu. Fóm- arlambið dvaldi á heimili ákærðu frá föstudagskvöldinu 27. febráar til sunnudagsins 1. mars við drykkju, en þá kom til rifrildis sem endaði þannig að ákærða stakk fórnarlambið með hnífnum. I vitn- isburði fórnarlambsins kemur fram að það hafi dvalið í íbúð ákærðu í tvo sólarhringa eftir hnífstunguna og deyft sig með víni uns þrautimar voru orðnar sVo miklar að það hafi verið tilneytt að fara til læknis. Blóðblettir fundust í íbúðinni Við húsleit í íbúð ákærðu í Kópavogi fannst poki með sæng og dýnuhlíf með blettum sem ætla mætti að væm blóðblettir og ann- að sem benti til að fórnarlambinu hefði verið veittur áverkinn þar. Ennfremur fundust blóðblettir í íbúðinni sem reyndust vera úr fórnarlambinu. Við refsimat í málinu var hafður til hliðsjónar sakaferill ákærðu og einnig framferði hennar eftir verknaðinn, en ljóst þótti að hún reyndi að hylja sporin eftir hann og reyndi að fá fórnarlambið til að falla frá kæra. Guðmundur L. Jóhannesson, héraðsdómari í Héraðsdómi Reykjaness, kvað upp dóminn ásamt meðdómsmönnunum Finn- boga H. Alexanderssyni og Sveini Sigurkarlssyni. Afnotagjöld Ríkisútvarpsins hækka um 5% RÍKISSTJÓRNIN heimilaði í gær Ríkisútvarpinu að hækka afnota- gjald sitt um 5% eða 87 krónur á mánuði frá og með 1. desember. Verður gjaldið nú 1.841 króna á mánuði í stað 1.754 króna. Hækkunin þýðir 80 milljóna króna tekjuauka fyrir stofnunina og segir Markús Öm Antonsson út- varpsstjóri ekki veita af. „Afnota- gjöld Ríkisútvarpsins hafa verið óbreytt frá árinu 1993 en á sama tíma hafa orðið allverulegar kostn- aðarhækkanir, launavísitala hefur til dæmis hækkað um 30% á þessu tímabili. Við höfum hingað til mætt þessu með aukinni hagræðingu og sparnaði í rekstri en teljum að það verði vart lengra gengið í þeim efn- um. Við höfum jafnframt sótt enn frekar á auglýsingamarkaðinn sem gengið hefur vei, en við getum ekki treyst um of á hann. Þess vegna óskuðum við eftir hækkun á afnota- gjöldunum nú í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar næsta árs, en gjöldin eru helsta tekjulind stofnun- arinnar og nauðsynlegt að treysta þau sem slík,“ sagði Markús Örn við Morgunblaðið. Hann upplýsti að á síðastliðnum fimm árum hefðu beiðnir verið sendar um hækkun gjaldanna en stjórnvöld ekki séð sér fært að verða við þeim. Nú hefði verið tekið tillit til áætlanagerðar og fjárhags- stöðu stofnunarinnar og leyfi veitt fyrir 5% hækkun afnotagjalda. Ýmis viðfangsefni liggja fyrir stofnuninni „í rökstuðningi okkar var jafn- framt bent á ýmis viðfangsefni sem fyrir stofnuninni liggja. Aukin áhersla verður lögð á innlenda dag- skrárgerð á næstu misseram, ekki síst í tengslum við tímamótaárið 2000. Við eigum í samvinnu við þær hátíðarnefndir sem vinna að undir- búningi hátíðarhalda vegna landa- fundanna, kristnihátíðar og alþing- ishátíðar, auk Reykjavíkur - menn- ingarborgar árið 2000 og ýmsar spennandi hugmyndir eru á borð- inu,“ sagði Markús. „Að okkur snúa sem sagt ýmis verkefni sem era kostnaðarmeiri en í venjulegu ár- ferði, ef svo má að orði komast, og því er kærkomið að fá leyfi nú fyi-ir þessari hækkun." Morgunblaðið/Þorkell Hæstiréttur úrskurðar um upplýsingaskyldu netþjónustufyrirtækja Ber að afhenda lögreglu gögn HÆSTIRÉTTUR hefur úrskurðað að netþjónustufyrirtækjum beri að afhenda lögreglu upplýsingar um tengingar í netþjónum fyrh-tækj- anna vegna rannsóknar á innbrot- um í tölvukerfi. Úrskurðurinn var kveðinn upp vegna innbrots í tölvu- kerfi Garðaskóla og Garðalundar í síðasta mánuði. „Nú hillir loks undir það að við getum farið að rannsaka þetta mál af alvöru, allur tíminn til þessa hefur farið í að fá fram úrskurði ýmiss konar til að geta sinnt rann- sókninni,“ sagði Arnar Jensson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá embætti ríkislögreglustjóra, en hann stýrir efnahagsafbrotadeild embættisins. „Netþjónustufyrirtæki sem við þurftum að fá upplýsingar frá um tengingar taldi sig ekki geta afhent þær á grundvelli trúnaðar vegna fjarskiptalaga. Við ki’öfðumst úr- skurðar hjá Héraðsdómi Reykjavík- ur en hann gekk gegn okkur þannig að við komumst ekki í þessar upp- lýsingar sem nauðsynlegar voru til að upplýsa málið. Við kærðum þann úrskurð til Hæstaréttar, sem stað- festi hins vegar, að fyrirtækinu bæri að láta okkur hafa þessai’ upp- lýsingar. Ríkir almannahagsmunir geta verið í húfi Samkvæmt þessu heldur það ekki, að þagnar- og trúnaðarskylda netþjónustufyrirtækja við notendur sína sé það rík að ekki megi afhenda lögreglu upplýsingar þegar hafin er rannsókn. Hæstiréttur hefur stað- fest að það séu ríkir almannahags- munir sem geti verið í húfi og lög- regla geti einfaldlega ekki upplýst mál nema fá tilteknar upplýsingar frá netþjónustufyrirtækjum um tengingar sem eiga sér stað í net- þjónunum. Nú hillir því loks undir að við getum farið að rannsaka mál- ið af alvöru," sagði Arnar Jensson. í úrskurði Hæstaréttar kemur fram að uppvíst varð að morgni 2. nóvember að vefsíðum Garðaskóla hafði verið breytt. Var leitað til vef- þjónustunnar Islandia Intemet sem lokaði aðgangi að síðunum svo hægt væri að gera á þeim breytingar. Síð- ar þann dag var starfsmaður Garða- skóla að vinna að lagfæringum í tölvu sinni þegar verulegar traflanir komu fram í vinnslunni. Allt sem skráð var á lyklaborð tölvunnar þurrkaðist út jafnharðan, ritbendill fór stjórnlaust um tölvuskjáinn og öll vinnsla varð hægari. Tilraunir til lagfæringar vora árangurslausar og var að lokum leitað til Islandia Internet sem eyddi öllum vefsíðum Garðaskóla og Garðalundar. Fram kemur að Islandia Intemet hafi þegar kannað gögn sín og komist að raun um að tveir menn hafi gert breytingar á umræddum vefsíðum án þess að hafa átt að eiga aðgang til slíkra verka. Hafi fyrirtækið undir höndum nöfn þeirra og kennitölur. Islandia Intemet taldi sér hins vegai’ óheimilt að veita umbeðnar upplýs- ingar nema að gengnum dómsúr- skurði um skyldu sína til þess. Hæstiréttur komst að þeiiri nið- urstöðu að þeir sem áttu í hlut kynnu að hafa komist í viðkvæm gögn auk þess sem þeir kynnu að hafa valdið fjártjóni. Vandséð sé hvaða úrræði aðilar hafi önnur en að gera kröfu til netþjónustufyrir- tækja um upplýsingar og augljóst sé að það sama geti að öðru jöfnu átt við um sambærileg brot. Sé þannig hætt við að mjög geti dregið úr varnaðaráhrifum ákvæða almennra hegningarlaga ef rann- sókn á brotum gegn þeim sé háð þeim takmörkunum að ekki verði aflað gagna á borð við þau sem krafist er í þessu máli. Því verði að líta svo á að í senn krefjist ríkir al- mannahagsmunir og einkahags- munir þess að veittur sé aðgangur að gögnunum. 3 mánaða fangelsi fyrir kyn- ferðisbrot FIMMTUGUR karlmaður var í gær dæmdur í þriggja mánaða skil- orðsbundið fangelsi fyrir kynferðis- brot og brot á lögum um vernd barna og unglinga. Akærði er orku- miðill að starfi og var ákærður fyrir að hafa þann 20. nóvember 1997 sært blygðunarsemi sextán ára stúlku, sem var hjá ákærða í höfuð- beina- og spjaldhryggjarnuddi með því að hafa nuddað hana á lostugan hátt á öðrum og viðkvæmari stöðum líkamans en til hafði verið ætlast, svo sem maga, brjóstum, lífbeini og lærum. Ákærði var einnig dæmdur til að greiða allan sakarkostnað. Dóminn kvað upp Sveinn Sigur- karlsson, héraðsdómari við Héraðs- dóm Reykjaness, ásamt héraðsdóm- urunum Gunnari Aðalsteinssyni og Þorgeiri Inga Njálssyni. -------------- A Utskrifaður af gjör- gæsludeild NIU ára gamli drengurinn, sem hlaut alvarlega áverka þegar ekið var á hann á Miklubrautinni síð- astliðið föstudagskvöld var tekinn úr öndunarvél og útskrifaður af gjörgæsludeild Borgarspítalans í gær. Hann var lagður inn á barna- deild og er í hægri framför, að sögn læknis. Breytt í Austurstræti ÁÆTLAÐ er að endurbætur og uppbygging verslunar Pennans Eyinundssonar í Austurstræti kosti um 40 milljónir kr. Byrjað er að setja gler í frainhlið versl- unarinnar en hún hefur verið lok- uð í rúmar tvær vikur vegna framkvæmda. Verslunin verður opnuð á ný fímmtudaginn 19. nóvember. Miklar breytingar verða einnig gerðar innandyra. Búið er að brjóta gólf og veggi og opna milli þriggja hæða. Barna- bókadeild verður í kjallara og á annarri liæð erlendar bækur. Minnk- andi líkur á stærri skjálfta SÍÐASTLIÐINN sólarhring hefur verið of lítil uppbygg- ing á spennu á sprangusvæð- um, sem jarðskjálftavirknin í Ölfusi er rakin til, til að líkur aukist á að stóri jarðskjálft- inn ríði yfir, sem búist var við í kjölfar jarðskjálftanna á föstudag og laugardag. Að sögn sérfræðinga á jarðeðlis- fræðideild Veðurstofu Is- lands eru því minnkandi lík- ur á stóra skjálftanum sam- hliða minnkandi virkni, en vakt heldur áfram og verður fylgst með hræringum frá svæðinu frá Veðurstofunni. Enn er of snemmt að segja til um hvort jarðskjálftahrin- an sé gengin yfir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.