Morgunblaðið - 18.11.1998, Page 10

Morgunblaðið - 18.11.1998, Page 10
10 MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Forstöðumaður upplýsingasviðs Landmælinga um nýja gjaldskrá fyrir útgáfu og birtingu korta Ekki um aukna gjaldtöku fyrir útgáfu að ræða Gjaldskrá fyrir útgáfu og birtingu gagna frá Landmælingum íslands Stærð korts og mynda sem á að gefa út Gjald- flokkar A6 og minna 155 fersm. A5 og minna 310 fersm. A4 og minna 625 fersm. A3 og minna 1.250 fersm. A2 og minna 2.500 fersm. A1 og minna 5.000 fersm. A0 og minna 10.000 fersm. Flokkur 1 kr. 2,00 kr. 4,00 kr. 10,00 kr. 20,00 kr. 33,00 kr. 46,00 kr. 65,00 Flokkur 2 1,50 3,00 7,50 15,00 25,00 35,00 50,00 Flokkur 3 1,00 1,50 2,50 5,00 7,50 10,00 15,00 Flokkur 4 0,25 0,50 1,00 2,00 3,00 4,00 6,00 Ofangreint verð er miðað við gjald fyrir hvert eintak. Allar fjárhæðir eru tilgreindar án virðisaukaskatts. UMHVERFISRÁÐUNEYTIÐ hef- ur gefið út nýja gjaldskrá fyrir út- gáfu og birtingu gagna frá Land- mælingum íslands (LMÍ) í prent- uðu formi. Gjaldskráin er byggð á lögum sem sett voru á síðasta ári um landmælingar og kortagerð en þar segir að stofnunin skuli m.a. afla sér tekna með þjónustugjöldum vegna afgreiðslu gagna. í eldri lög- um var gert ráð fyrir að Landmæl- ingar öfluðu sér tekna m.a. með inn- heimtu stimpilgjalds af hverju korti sem gefíð var út og boðjð til sölu eða dreift án endurgjalds. í þeim lögum voru þó uppdrættir í dagblöðum, tímaritum eða bókum sem ætlað var að vera til skýringar á rituðum texta og kort til notkunar í vísinda- legum tilgangi eða til kennslu und- anþegin stimpilgjaldinu. Ekki er að finna sams konar ákvæði í nýju lög- unum. Ríkið eigandi höfundarréttar Þorvaldur Bragason, forstöðu- maður upplýsinga- og markaðssviðs Landmælinga, segir að með nýju gjaldskránni sé ekki um aukna gjaldtöku fyrir útgáfu og birtingu gagna frá Landmælingum að ræða. Skv. gjaldskránni er gert ráð fyr- ir að veitt verði leyfi fyrir útgáfu og birtingu m.a. Ijósmynda, loftmynda og korta frá Landmælingum. Gjald- skránni er skipt í fjóra gjaldflokka og á að innheimta ákveðnar upphæðir fyrir hvert útgefið eintak, mis- munandi hátt eftir því m.a. hvort um er að ræða nákvæma endurgerð korta eða annarra gagna frá Landmælingum eða hvort á þeim eru gerðar mikilsverðar breyt- ingar, endurteikningar upp úr frumgögnum LMÍ eða algerlega teiknað upp að nýju. „í gömlu lögunum um Landmæl- ingar var höfundarréttur á gögnum, sem stofnunin hafði unnið, eign Landmælinga. Ný lög um landmæl- ingar og kortagerð tóku gildi 1. júlí 1997 og í þeim var gerð breyting á ákvæðinu um eignarrétt á gögnum og tekið fram að ríkið væri eigandi að öllum réttindum sem Landmæl- ingar hefðu öðlast en stofnuninni var falið að gæta hagsmuna ríkisins á sviði höfundar- og afnotaréttar á öllu því efni sem hún hefur eignast, unnið eða gefið út í sambandi við mæling; ar, kort eða myndir af íslandi. í framhaldi af þessu var óskað eftir túlkun á því hvort þetta fæli í sér ein- hverja breytingu varðandi meðferð höfundarréttar á gögnum og í sam- bandi við birtingarleyfi og svaraði ráðuneytið bréflega til Landmælinga í október síðastliðnum. Þar kom fram að stofnunin ætti að halda utan um þennan rétt og taka gjald fyrir birt- ingu hans eins og áður. í bréfínu var áréttað að varðandi gjald íyrir birt- ingarleyfi þyrfti stofnunin að leggja fram hugmyndir að nýrri gjaldskrá,“ segir hann. „Stofnunin sendi ráðu- neytinu sl. sumar þýð- ingu og drög að hugmynd vegna gjaldskrár fyrir birtingar á gögnum og í framhaldi af þessu bréfi ráðuneytisins var farið í að út- færa þessar hugmyndir nánar. Nið- urstaðan af þeirri málsmeðferð hjá ráðuneytinu, stofnuninni og lög- fræðingi stofnunarinnar, var sú að gjaldskráin var samþykkt og var hún birt í Stjórnartíðindum 6. nóv- ember,“ segir hann. Samræma ólíkar gjaldskrár Þorvaldur segir að fyrir þessar breytingar hafi verið stuðst við tvær gjaldskrár fyrir birtingu á gögnum stofnunarinnar. „Þar var annars vegar um að ræða gjaldskrá sem var byggð á verðskrá Mynd- stefs, frá því um 1990, sem fjallaði aðallega um birtingar á ljósmynd- um, loftmyndum og gervitungla- myndum. Hins vegar byggði stofn- unin á gjaldskrá varðandi gjaldtöku fyrir prentuð kort. Markmiðið með nýi'ri gjaldskrá var að reyna að samræma þessar hugmyndir og fá eina, heildstæða og skýra gjaldskrá fyrir þessi mis- munandi gögn sem við höfum verið með, þar sem notandinn gæti séð hvaða tölur væru á bak við ýmsa möguleika varðandi gögnin. Við teljum að fyrir langflesta notendur sem hafa fengið birtingarleyfi fyrir gögnum í bókum, tímaritum, ferða- bæklingum og öðru slíku, sé í mörg- um tilfellum um verðlækkun að ræða með nýju gjaldskránni. I öðr- um tilfellum sé um óverulega hækk- un að ræða. Hins vegar erum við með nánari útfærslu á þessu á blaði, sem ekki var birt í Stjómartíðind- um, þar sem fram kemur nánari út- færsla á þessu. Þar kemur til dæmis fram að fella skuli niður birtingar- gjald fyrir kort sem eru á mæli- kvarðanum frá 1 á móti 2 milljónum og á minni mælikvörðum, s.s. á kortum sem eru einfaldar skýringa- myndir í bókum, á litlum kortum og allt upp í kort af stærðinni A5 og A4, sem eru gerð af öðrum en unn- in upp úr grunngögnum okkar. Þetta þýðir þá auðvitað lækkun eða niðurfellingu gjalda fyrir marga sem hafa verið að nota kort í ferða- bæklingum og öðru slíku,“ segir Þorvaldur. „Svo eru kannski atriði sem eru nokkuð óljósari. I þeim tilvikum er gert ráð fyrir að gerðir verði samn- ingar við notendur sem birta mikið af kortum eins og til dæmis dagblöð og aðrir slíka aðilar,“ segir hann. Samið við stærri notendur Þorvaldur bendir einnig á að stjóm Landmælinga hafi ákveðið í haust að endurskoða allar gjaldskrár vegna gagna og útgáfustarfsemi Land- mælinga og samræma þær í eina heildargjald- skrá, sem komi út nálægt næstu áramótum. „Ákveðið var að fara kerfisbundið ofan í alla þessa hluti gefa út eina heildstæða gjaldskrá. Umrædd gjaldskrá fyrir birtingu gagna frá Landmælingum yrði þá hluti af henni. Ef koma upp einhverjir hnökrar á þessari gjaldskrá er gert ráð fyrir að málin verði skoðuð í heild þegar heildargjaldskráin verð- ur gerð,“ segir hann. Aðspurður hvort reglugerðin verði skilin á annan hátt en þann að skylt sé að taka upp þjónustugjöld af allri útgáfu og birtingu gagna Landmælinga segir Þorvaldur að með þessu sé verið að einfalda hlut- ina og koma á viðmiðunargjaldskrá sem nái utan um meirihluta þeirra umsókna sem stofnuninni berast. Gert sé ráð fyrir að samið verði sér- staklega við stærni notendur. „Þær gjaldskrár sem voru í notkun voru mjög flóknar. Hvað kortin varðar var til dæmis sérstök tafla fyrir kort í mismunandi mælikvörðum. Það voru einnig í gildi margir gjald- flokkar fyrir loftmyndir. Nú er ver- ið að reyna að samræma þessi gjöld þannig að um verði að ræða eitt lág- marksgjald og fellur stór hluti um- sókna um birtingar sem við fáum, undir lágmarksgjaldið," segir hann. í eldri lögum var m.a. gert ráð fyrir að Landmælingar öfluðu sér tekna með innheimtu sérstaks stimpilgjalds af hverju korti sem gefið var út. Veittar voru undanþág- ur m.a. vegna uppdrátta í dagblöð- um, tímaritum eða bókum sem var ætlað að vera til skýringar á rituð- um texta. I nýju lögunum er ekki að finna nein ákvæði um undanþágur. Þorvaldur segir að stofnunin hafi ekki innheimt nein stimpilgjöld. Ut- gefendur bóka og rita hafi hins veg- ar alltaf greitt fyrir birtingu gagna frá Landmælingum hvort sem um var að ræða í bókum, í bæklingum og blöðum eða í tímaritum. Ekki hafi þó verið greitt fyrir birtingar í dagblöðum. „Gert var ráð fyrir því í gjaldskránum en það hefur kannski ekki verið gengið eftir því. Þó að ekkert sé kveðið á um undanþágur í nýlu gjaldskránni þá er ekkert sem bannar stofnuninni að gera samn- inga og semja um greiðslur. Það var kallað eftir því af ráðuneytinu að þessi gjaldskrá yrði gefin út og hún var sett upp að erlendri fyrir- mynd. Verðið er í sam- ræmi við það. Það er ekki gengið eins langt í þessari gjaldski'á eins og til dæmis í þeirri gjaldski'á sem helst var höfð til fyrirmyndar, þar sem menn hafa heimild til að leggja álögur á verðið, ef um er að ræða samkeppnisvörur við kortaútgáfu stofnunarinnar," segir hann. „Engin stimpilgjöld verið innheimt“ „Lækkun eða niður- felling fyrir marga“ Morgunblaðið/Golli Evrópu- dögum lokið EVRÓPUDAGAR 1998 voru í Perlunni um síðustu helgi. Þar var vakin athygli á verkefnum sem íslendingar hafa unnið í tengslum við áætlanir Evrópu- sambandsins en þau eru flest á sviði menntunar og vísinda. Einnig voru þar kynntar allar aðrar áætlanir ESB sem standa Islendingum til boða og var fólk hvatt til að taka þátt í þeim. Reiknað er með að 1% þjóðar- innar hafi komið í heimsókn á Evrópudaga. Frá árinu 1995 til 1998 hafa um það bil 2700 manns tekið þátt í verkefnum sem ESB hefur staðið fyrir. Tillögur um reynslusveitar- félög’ á Norðurlandi vestra MÁLFLUTNINGUR var í Hæsta- rétti á mánudag í svokölluðu kvóta- máli Valdimars Jóhannessonar gegn íslenska ríkinu. I febrúar síð- astliðnum hafnaði Héraðsdómur Reykjavíkur kröfu Valdimars um að ógilda synjun sjávarútvegsráðu- neytisins um leyfi, sem hann hafði sótt um, til fiskveiða í atvinnuskyni og aflaheimildir í íslenskri land- helgi. Valdimar áfrýjaði niðurstöðu héraðsdóms til Hæstaréttar og sótti hann sjálfur málið fyrir rétti. Guð- rún M. Árnadóttir er lögmaður rík- isins í málinu. Stefnandi féll frá aðalkröfu áfrýj- unarstefnu sinnar um að dómur hér- aðsdóms yrði ómerktur og málinu vísað aftur heim í hérað til löglegrar meðferðar og sagði: ,Ástæða þess er sú að ég tel mig hafa hagsmuni af því að Hæstiréttur taki málið sem fyrst til efnislegi'ar meðferðar. Ef málinu yi'ði vísað í annað skipti aftur heim í hérað er viðbúið að Héraðsdómur komi sér í þriðja skiptið undan því að taka til úrlausnar þau efnisatriði sem fyrir dóminn væru lögð. Yrði það aug- ljóslega til þess að tefja málið en ég tel mig hafa hagsmuni af því að fá efnislega niðurstöðu með sem minnst> um töfum úr því sem komið er.“ PÁLL Pétursson félagsmálaráð- herra kynnti á ríkisstjórnarfundi í gær tillögur nefndar, sem fjallaði um úrbætur í atvinnumálum á Norðurlandi vestra. Felst megintil- laga nefndarinnar í því að komið verði á fót reynslusveitarfélögum, sem taki að sér ýmsa þjónustu og eftirlit sem verið hefur á hendi rík- isins. „Vegna lélegs atvinnuástands á Norðurlandi vestra lagði ég fram tillögu um það í sumar um að sett yrði á fót nefnd með þátttöku nokk- urra ráðuneyta til þess að leita úr- bóta,“ sagði Páll. „I nefndinni voru fulltrúar félagsmálaráðheira, menntamálaráðherra, forsætisráð- herra, iðnaðarráðherra og landbún- aðarráðherra. Nefndin vann mjög vel og skilaði tillögum til mín sem ég kynnti í ríkisstjórn.“ Páll segir megintillögu nefndar- innar felast í því að komið verði á fót reynslusveitarfélögum, sem taki að sér ýmsa þjónustu og eftirlit sem verið hefur á hendi ríkisins. Einnig leggur nefndin til að komið verði á fót miðstöð símenntunar í kjördæm- inu, að gert verði átak í skógrækt og að almennt verði hugað að svæðaskiptingu í landbúnaði þannig að sauðfjárframleiðslu verði beint á þau svæði þar sem beitarþol er yfir- drifið. Þá eru lögð til verkefni varð- andi samgöngumál og ferðaþjón- ustu og sett fram sú tillaga að kom- ið verði á fót miðstöð fyrir íslenska hestinn í tengslum við Hólaskóla. „Engin þessara tillagna var sleg- in af á ríkisstjórnarfundinum heldur ákveðið að vinna áfram með tillög- urnar í samráði við viðkomandi ráð- herra,“ sagði Páll. „Kvótamálið flutt í Hæstarétti hAskóunn A AKUREYOI Opinn fyrirlestur Titill: Fiskveiðar Frakka við ísland í 300 ár. Fyrirlesari: Elín Pálmadóttir, blaðamaður. Staður: Þingvallastræti 23, stofa 25. Tími: Laugardagur 21. nóvember kl. 14.00.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.