Morgunblaðið - 18.11.1998, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 1998 13
FRÉTTIR
Helgi Hallgrímsson vegamálastjóri um samgöngubætur
Kostnaður fer lækkandi
vegna stærri framkvæmda
HELGI Hallgrímsson vegamála-
stjóri segir það rétt að kostnaður
vegna samgöngubóta fari lækkandi
þegar til lengri tíma er litið og að
það eigi sérstaklega við um stærri
framkvæmdir en eins og fram kom í
viðtali við Finn Ingólfsson iðnaðar-
og viðskiptaráðherra í sunnudags-
blaði Morgunblaðsins fer kostnaður
við jarðgöng og þverun fjarða lækk-
andi um leið og arðsemi slíkra fram-
kvæmda eykst.
Helgi sagði að kostnaður við jarð-
vinnu hefði lækkað en ekki væri um
byltingu að ræða heldur þróun. Pað
sama ætti við um kostnað við jarð-
gangagerð sem færi lækkandi en á
móti kæmu auknar kröfur um ör-
yggi, frágang, útlit og betri búnað í
göngunum og nefndi hann Hval-
fjarðargöngin sem dæmi. Pau væru
best búnu göng landsins enda væri
umferðin mest um þau.
Markaðurinn ræður
„Eg held samt að hægt sé að
segja að kostnaður við jarðvinnu
eins og reyndar við alla fram-
kvæmdavinnu miðað við einingu fari
lækkandi,“ sagði hann. „Ég get ekki
nefnt neinar tölur en hér á landi
ræður markaðurinn miklu um svona
sveiflur. Þegar mikið er að gera þá
hefur kostnaðurinn tilhneigingu til
að hækka eins og gerðist íyrr á
þessu ári en nú eru tilboðin hjá okk-
ur aftur á niðurleið. Þegar ég er að
tala um verðþróun þá er ég að tala
um þróun til lengri tíma litið en það
má segja að þegar framkvæmdir
eru mjög stórar þá gæti ótvírætt
þessarar þróunar til lækkunar.“
Athugasemd frá MH
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi athugasemd frá Lárusi
H. Bjarnasyni, rektor Menntaskól-
ans við Hamrahlíð:
„I leiðara Morgunblaðsins
fimmtudaginn 12. nóv. sl. sem ber
yfirskriftina Starf í framhaldsskól-
um segir að fjöldi kennsludaga í
Menntaskólanum við Hamrahlíð
samsvari því „...að nemendur MH
hafi farið á mis við lögbundna
kennslu í þrjár og hálfa viku á
skólaárinu...". Þessi framsetning er
villandi og særir að óþörfu kennara
og nemendur MH, enda hefur ekki
farið það orðspor af Menntaskólan-
um við Hamrahlíð að þar séu
ástunduð vafasöm lögbrot og und-
irmálsvinnubrögð. Hefði leiðara-
höfundur gætt eðlilegs samræmis
hefði hann getið um fjölda svokall-
Menntaskólanemar í Eystra-
saltskeppni í stærðfræði
EYSTRASALTSKEPPNI fram-
haldsskóla í stærðfræði fór ný-
verið fram í Varsjá og lentu Is-
lendingar í 7. til 9. sæti af 11
þátttakendum.
Öll lönd við Eystrasalt taka
þátt i keppninni auk Islendinga
og Norðmanna. Þátttakendur
eru fimm menntaskólanemar frá
hverri þjóð. Fást þeir sameigin-
lega við 20 dæmi og fá til þess
fjóra og hálfan tíma.
Lettar sigruðu í keppninni,
Eistar urðu í öðru og Pólverjar
þriðja sæti. Austur-Evrópuþjóð-
irnar hafa yfirleitt verið í efstu
sætunum. Þær eiga langa hefð
fyrir keppni sem þessari.
Islendingar voru jafnir Dönum
og Norðmönnum í 7. til 9. sæti,
en fyrir ofan Þjóðverja og Lit-
háa. Það var mat manna að
keppnin hefði verið óvenju erfið
að þessu sinni og til marks um
það væri að sigurvegararnir
hefðu aðeins fengið 72 stig af 100
mögulegum. íslenska liðið, sem
valið var eftir keppni í öllum
framhaldsskólum landsins í októ-
ber, fékk 49 stig.
Hluti af undirbúningnum undir
keppnina var að kennarar, þjálf-
arar liðsins, skoruðu á það í
keppni. Sigruðu nemendur með
89 stigum gegn 82.
Aformað er að halda Eystra-
saltskeppnina á Islandi árið
1999.
ISLENSKA keppnisliðið í Eystrasaltskeppninni í stærðfræði: (f.v.)
Piotr Daruk, leiðsögumaður liðsins, Einar Arnalds Jónasson liðsstjóri,
Steinunn A. Stefánsdóttir, Menntaskólanum við Hamrahlíð, Stefán
Ingi Valdimarsson, Menntaskólanum f Reykjavík, Marteinn Harðar-
son, Flensborg, Bjarni K. Torfason, Menntaskólanum í Reykjavík, Jóel
Friðriksson, Menntaskólanum í Reykjavík, og Benedikt Jóhannesson
dónmefndarfulltrúi.
aðra skertra kennsludaga í MH á
sama hátt og hann gerði gagnvart
þeim skóla sem flesta kennsludaga
hafði, Hússtjórnarskólanum á
Hallormsstað.
Kennsludagur getur talist
skertur þótt ekki falli niður nema
tvær af tíu kennslustundum og á
slíkum degi kann að vera full
kennsla hjá sumum nemendum
eftir því hvernig stundaskrá
þeirra liggur. Samtals voru
kennsludagar MH í fyrra 135 sem
er sá fjöldi sem tilskilinn var allt
til síðasta skólaárs. Vegna þess
hve kjarasamningar kennara, þar
sem m.a. var tekist á um breyting-
ar sem leiddi af nýjum framhalds-
skólalögum, drógust á langinn
sumarið 1997 áttu skólarnir í erf-
iðleikum með að skipuleggja starf
sitt í tíma þannig að viðbótar-
kennsludögum yi-ði náð strax á
skólaárinu 1997-1998. í MH töldu
stjórnendur ekki annað fært
gagnvart nemendum en að standa
við þá dagsetningu um skólabyrj-
un sem ákveðin hafði verið þegar
sumarleyfi hófst. Þessu til viðbót-
ar urðu ófyrirséð atvik i MH til
þess að skerða möguleika skólans
á að koma tiþmóts við umrædda
dagafjölgun. A það skal og bent,
sem reyndar kemur fram í um-
fjöllun Mbl. hinn 11. nóv., „...að
menntamálaráðuneytið lítur svo á
að síðastliðið skólaár hafí verið að-
lögunartími fyrir framkvæmd
fyrrgreinds ákvæðis...".
Að endingu vek ég athygli á að
MH var í hópi þeirra framhalds-
skóla sem byrjuðu fyrstir kennslu í
haust og engin teikn eru á lofti um
annað en að skólinn muni uppfylla
þær kröfur sem menntamálaráðu-
neytið setur um nýtingu starfs-
tíma.“
Concorde
XÁPTA
Viðskipta- og stjórnunarkerfi
Frumsýning
Concorde Axapta ísland ehf. býður til
frumsýningar viðskiptahugbúnaðarins Axapta I
Háskólabiói miðvíkudaginn 18. nóvember milli kl. 16:30
og 18:30. Fulltrúar Concorde Axapta íslands ehf., KPMG
Endur-skoðunar hf., Samtaka iðnaðarins og Damgaard
framleiðendum Axapta munu flýtja ávarp.
Söluaðílar sýna möguleika hugbúnaðarins.
Skemmtiatriði - veitingar.
Axapta byggir á viðskiptahugbúnaðinum
Concorde XAL, er að fullu Microsoft
vottað og hentar stórum sem smáum
fyrirtækjum. Framleiðandi Axapta er
danska fyrirtækið Damgaard.
www.axapta.is
Söluaðilar Axapta eru: 1«BÐlCIIÍV£Rl Pt)
HUGUR
www.taeknlval.ls fÓkRlfAljRÓUN