Morgunblaðið - 18.11.1998, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Ummæli varaforseta Bandaríkjanna valda uppnámi á fundi APEC í Kuala Lumpur
Átalinn fyrir að beina at-
hygli frá efnahagsmálum
Kuala Lumpur. Reuters.
MALASIUMENN fordæmdu í gær
stuðningsyfirlýsingu Als Gores,
varaforseta Bandaríkjanna, við
stjórnarandstöðuna í Malasíu, og
átöldu hann fyrir afskipti af innan-
ríkismálum. Nokkrir fulltrúar aðild-
arríkja Efnhagssamvinnuráðs Asíu-
og Kyrrahafsríkja (APEC) lýstu yfir
óánægju með að stjórnmáladeilur
hefðu skyggt á hið raunverulega
verkefni fundar samtakanna, sem
hófst í Kuala Lumpur í gær og lýkur
í dag.
Gore hélt á mánudagskvöld ávarp
í kvöldverðarboði Mahathirs Mo-
hamads, forsætisráðherra Malasíu,
þar sem hann hrósaði stuðnings-
mönnum Anwars Ibrahims, leiðtoga
stjórnarandstöðunnar, og þeim sem
barist hefðu fyrir því að endi yrði
bundinn á 17 ára valdasetu Mahat-
hirs. Gore gaf jafnframt til kynna að
stjórnarfarsumbóta væri þörf í
Malasíu, og sagði meðal annars að
einungis „lýðræði gæfi umbótatil-
raunum það lögmæti, sem nauðsyn-
legt væri til að þær tækjust“.
Bandaríkjamenn sæti ábyrgð
ef upp úr sýður
Utanríkisráðherra Malasíu,
Abdullah Badawi, gaf í gær út yfir-
lýsingu þar sem hann fordæmir um-
mæli Gores sem „ruddaleg afskipti
af innanríkismálum og ófyrirleitið
brot á grundvallarreglum um sam-
skipti fullvalda ríkja“. Hann segir
það „afar andstyggilegt“ af Banda-
ríkjamönnum að hvetja til þess að
stjórn landsins verði steypt, og átel-
ur Gore íyrir „óábyrga æsingastarf-
semi“. Loks er fullyrt að Bandaríkja-
menn verði látnir sæta ábyrgð ef
upp úr sýður í landinu.
Stjórnmáladeilur eru vanalega
lagðar til hliðar á fundum APEC,
enda eru innan vébanda samtakanna
jafnt lýðræðisríki, kommúnistaríki
og konungsríki. Nokkuð bar á óá-
nægju meðal aðildarríkja vegna þess
að Gore hefði með ummælum sínum
gert þeim erfiðara fyrir að ná sam-
komulagi um hvernig leysa mætti
efnahagsvanda Asíu, sem er megin-
verkefni fundarins í ár.
Jenny Shipley, forsætisráðherra
Nýja-Sjálands, lýsti yfir áhyggjum
af því að „gjallarhornspólitík“ ógnaði
APEC. Hún minnti á að markmið
samtakanna væri að efla samvinnu á
sviði efnahagsmála, og þau væru
ekki vettvangur til að útkljá ágrein-
ingsefni einstakra ríkja. Forsætis-
ráðherra Singapúr tók í sama streng
og Kínverjar ítrekuðu að aðildam'ki
ættu ekki að hlutast til um innan-
landsmál hvert annars.
Sumir bandarísku viðskiptafull-
trúanna, sem sitja fund AJPEC,
sögðust jafnvel hneykslaðir á fram-
ferði varaforsetans. Joseph
Estrada, forseti Filippseyja, kom þó
Gore til varnar og sagðist deila
samúð hans með Anwar Ibrahim,
fyrrverandi aðstoðarforsætisráð-
herra Malasíu, sem var vikið úr rík-
isstjórninni í september og situr nú
í fangelsi, sakaður um spillingu og
kynferðismisferli. Anwar hefur neit-
að öllum sakargiftum og segir ásak-
anirnar vera lið í pólitísku samsæri
gegn sér. Estrada, sem átti fund
með eiginkonu Anwars á mánudag,
sagði mannréttindamál yfirstíga öll
landamæri.
Ummælin yfírvegnð
Gore var ekki á þeim buxunum að
biðjast afsökunar á ummælum sín-
um, og sagði boðskap sinn hafa verið
þann að lýðræði þyrfti að fylgja
efnahagsumbótum. „Petta er hinn
ameríski boðskapur, og ég er stoltur
af því að breiða hann út, hér og hvar
Kaupmannasamtök
Islands
BJOR OG LETTVIN I MATVORUBUÐIR?
Treystir einkarekin smásala þeirra byggð í dreifbýli?
Jafnar einkarekin smásala bjórs og víns lífskjör í landinu?
Morgunverðarfundur Kaupmannasamtaka íslands í Grand
Hótel, Reykjavík, fimmtudaginn 19. nóv., kl. 8.15-9.45.
Frummælendur:
Einar Oddur Kristjánsson,
alþingismaður.
Þorsteinn Pálsson, framkvstj.
Kaupfélags Ámesinga.
Oskur Magmísson, Þórarinn Tyrfingsson.
stjórnarformaáur Haugs hf yjprltvknir SÁÁ
ViUijálmnr Þ. Vilhjálmsson, form. Ögmundur Jónasson,
Sambands ísi. sveiiarfétaga. alþmgjgmaður.
Benedikt Kristjánsson, formaður K.Í., stjómar umræðum að
loknum framsöguerindum.
Fundurinn er ölluni opitm. Þátttökugjald með morgunverði et
kr. I.SUD fvrir felassmcnn o« kr. 2.200 fvrir aðra.
sem ég er,“ sagði varaforsetinn við
fréttamenn í gær.
Bandarískur embættismaður
sagði í gær að ummæli Gores hefðu
verið yfirveguð og samin með það
fyrir augum að vekja athygli. Hvíta
húsið lýsti því einnig yfir að Bill
Clinton Bandaríkjaforseti hefði haft
sama boðskap fram að færa, hefði
Iraksdeilan ekki komið í veg fyrir að
hann sæti fundinn.
Nokkur hundruð stuðningsmenn
Anwars Ibrahim stóðu fyrir mót-
mælum gegn stjórn Mahathirs í gær,
við mosku í Kuala Lumpur. Hafa
mótmæli og kröfugöngur verið nær
daglegt brauð í Malasíu síðan Anwar
var vikið úr ríkisstjórninni.
Reuters
AL Gore, varaforseti Bandaríkjanna, fylgist með sýningu
á hefðbundnum malasískum dönsum í Kuala Lumpur í gær.
Mat á lánshæfi jap-
anska ríkisins lækkað
OECD segir, að efnahagsástandið í Japan hafi versnað og
dregur upp dökka mynd af stöðunni í A-Asíuríkjum
Tókýó, París, Singapore. Reuters.
BANDARÍSKA fyinrtækið Mood-
y’s, sem metur lánshæfi ríkja, lækk-
aði í gær mat sitt á Japan úr Aaa í
Aal. Er það túlkað sem mikið áfall
fyrir japönsk stjómvöld, sem til-
kynntu nýlega, að þau ætluðu að
verja næstum 14.000 milljörðum ísl.
kr. til að örva efnahagslífið í landinu.
í nýrri skýrslu frá OECD, Efna-
hags- og framfarastofnuninni, segir,
að efnahagsástandið í Japan hafi
versnað þrátt fyrir tilraunir til að
snúa þróuninni við og þar er dregin
upp fremur dökk mynd af ástandinu
í öðrum ríkjum í Suðaustur-Asíu.
Á fjármálamörkuðunum hafði
verið búist við því, að lánshæfi
Japans yrði lækkað og því voru við-
brögðin við lækkuninni ekki mikil
þegar til hennar kom. Hún er samt
mikið áfall og er eins og staðfesting
á því, að lítil trú sé á, að Japans-
stjórn takist að koma í veg fyrir
frekari samdrátt. Þá er bent á, að
björgunaraðgerðir stjómarinnar
verði fjármagnaðar með skulda-
bréfaútboði, sem muni vafalaust
verða til að hækka vexti þótt Kiichi
Miyazawa, fjármálaráðherra
Japans, neiti því. Þá mun útboðið
einnig verða til að stórauka skuldir
ríkisins. Er því spáð, að þær verði
orðnar jafn háar vergri þjóðarfram-
leiðslu á ári áður en fjárlagaárinu
lýkur í mars nk.
Verðhjöðnunar tekið að gæta
Japanskir frammámenn gerðu
sumir lítið úr lækkuninni en Masaru
Hayami, seðlabankastjóri í Japan,
sagði, að hann teldi, að auknar ríkis-
skuldir vegna efnahagsaðgerðanna
hefðu valdið henni. Hann benti hins
vegar á, að greiðslujöfnuður Japans
við erlend ríki væri afar hagstæður
og Japanir ættu mikið fjármagn er-
lendis. Greiðslugetan væri því góð.
í OECD-skýrsIunni um Japan
segir, að verðhjöðnunar sé aftur
farið að gæta á vöru-, vinnu- og
fasteignamarkaði, lánsfjárskortur
sé viðvarandi og æ fleiri íyrirtæki
verði gjaldþrota. Þá hafi dregið úr
útflutningi og mikillar svartsýni
gæti hjá eigendum og forsvars-
mönnum fyrirtækja.
OECD hvetur til róttækari að-
gerða en þegar hefur verið gripið til
og sérstaklega, að bankakerfið
verði endurfjármagnað og endur-
skipulagt.
Áfranihaldandi samdráttur
í skýrslu OECD um önnur Asíu-
ríki, Filippseyjar, Indónesíu, Hong
Kong, Malasíu, Singapore, Tæland
og Tævan, segir, að þar sé sam-
dráttur næstum alls staðar og litlar
líkur á hagvexti fyrr en á síðara
misseri næsta árs. I apríl sl. var bú-
ist við hagvexti á ný fyrir árslok í
Malasíu, Filippseyjum, Hong Kong
og Singapore en nú er samdráttur-
inn í Malasíu 4,7%, í Hong Kong
4,5%, á Filippseyjum 0,5% og
Singapore á núlli. Búist er við, að
efnahagslífið í Tælandi dragist sam-
an um 7% ájoessu ári og um 15,5% í
Indónesíu. I Kína hafði verið spáð
7,6% hagnvexti en Ijóst er, að úr
honum hefur dregið.
HiIIary
prýðir
forsíðu
Vogue
London. Tlie Daily Telegraph.
HILLARY Clinton, forseta-
frú Bandaríkjanna, prýðir for-
síðu nýjasta tölublaðs tísku-
tímaritsins Vogue. Aðalrit-
sjóri blaðsins og aðdáandi for-
setafrúarinnar, Anna Winto-
ur, kom þessu í kring, enda
sagði hún tímabært að Hillary
hlyti „sinn skerf'. „Hversu
margar konur gætu borið sig
svo vel eftir annað eins ár?“
sagði Wintour í samtali við
The Daily Telegraph.
Á forsíðumyndinni, sem
Annie Leibovitz tók, klæðist
Hillary flauelskjól frá Oscar
de la Renta. í dagblaðinu The
Washington Post segir að
myndin sé „þrungin merk-
ingu: smánuð kona sem stend-
ur uppi sem sigurvegari,
sönnun þess að glæsilegt útlit
getur verið fullnægjandi
hefnd“.
Reuters
Kyrrt í Indónesíu
AMIEN Rais, leiðtogi stjórnarand-
stöðunnar í Indónesíu, sakaði í
gær B.J. Habibe, forseta landsins,
um að viðhalda þeirri hörku, sem
einkennt hefði stjórn forvera
hans, Suharto. Sakaði Rais Habibe
um að halda áfram að kúga al-
menning líkt og Suharto hefði
gert og krafðist þess að forsetinn
fyrrverandi yrði settur í varðhald
og færður fyrir dómstóla, þar sem
hann yrði látinn svara til saka fyr-
ir glæpi í 32 ára stjórnartíð sinni.
Allt var með kyrrum kjörum í
Djakarta, höfuðborg Indónesíu, í
gær eftir átök helgarinnar, sem
kostuðu fjórtán manns lífið. Mikil
öryggisgæsla var hins vegar á
helstu stöðum. Friðsamleg mót-
mæli hafa þó verið haldin, m.a.
þessi í Surabaya á Austur-Tímor,
en þau beindust að Suharto og
Wiranto, yfirhershöfðingja lands-
ins.