Morgunblaðið - 18.11.1998, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 18. NOVEMBER 1998
BREF TIL BLAÐSINS
Er eftirsjá í drasli?
Frá Kiistínu Reynisdóttur:
AÐFARANÓTT 9.11 sl. átti sér
stað sá sorglegi atburður að áttræð
kona, ábúandi að Kálfatjörn á
Vatnsleysuströnd, varð fyrb- miklu
tjóni er eldur kviknaði í íbúðarhúsi
hennar. Þó var það huggun harmi
gegn að ýmislegt heillegt mátti
fínna í húsinu, þ.m.t. yfir hundrað
ára gamlar dagbækur föður henn-
ar. En ekki vannst tími til að fara
gaumgæfilega yfir það sem eftir
var af eigunum hennar því aðfara-
nótt þess 10.11. sl. eða nokkrum
klukkustundum síðar blossar eldur
aftur upp í húsinu og nú brann það
til kaldra kola og allt sem inni var.
Oft kom ég inn á það virðulega
og fallega heimili sem Kálfatjörn
var. Þar var veglegt heimilisbóka-
safn, mikið af fallegum gömlum
húsgögnum, gömlum silfurbúnaði
og öðrum fágætum munum. Þetta
hlýlega heimili sem öllum stóð opið
var ávallt svo snyrtilegt og vel um
það hugsað að til þess var tekið
enda alveg sérstaklega gott fólk
sem þar hefur búið í gegnum tíð-
ina. Guði sé lof lyrir að ekki varð
manntjón í þessum bnma en þó er
það bæði mjög átakanlegt og sorg-
legt þegar fréttir berast af fólki
sem misst hefur heimili sitt og/eða
aleiguna hvernig sem slíkt vill til.
Þá hefur vinátta, samhygð og hlut-
tekning allra sem að málunum
koma verið helsta hjálparhella
þeirra sem hafa átt um sárt að
binda.
Því varð ég felmtri slegin eftir
seinni fréttatíma Ríkissjónvarpsins
þann 10.11 sl. en þar var birt viðtal
við einn af þeim slökkviliðsmönn-
um sem kom að eldsvoðanum. í
þessu viðtali greinir hann frá til-
drögum seinni eldsupptakanna. Að
hans sögn hafði hann talið óhætt að
yfirgefa húsið eftir fyrri brunann
þar sem hann taldi fullvíst að eldur
myndi ekki blossa upp á ný. Ekki
er ég kunnug eldvarnaraðgerðum
almennt en mér hefur skilist að það
sé regla að vakta slík hús í allt að
sólarhring eða þar til tryggt er að
ekki kvikni eldur að nýju. Ekki er
hægt að skilja orð slökkviliðs-
manns öðruvísi en svo, að þetta hús
hafi verið mikill eldsmatur og því
fæ ég ekki skilið hvers vegna það
var ekki vaktað með tilliti til þess.
Hvort sem hér eru um að ræða
skort á tækjabúnaði, vítavert
kæruleysi, handvömm eða hvað
annað þykir mér orðalag þessa
slökkviliðslmanns í áðurnefndu
sjónvarpsviðtali með afburðum ein-
kennilegt en þar segir hann húsið
hafa verið fullt af fötum og öðru
„drasli“.
Söfnunarfénu
er varið til
þróunarverkefna
Frá Önnu Ólafsdóttur:
VEGNA skrifa Ástþórs Magnús-
sonar í Bréfi til blaðsins á laugar-
dag vill Hjálparstarf kirkjunnar
(áður Hjálparstofnun kirkjunnar)
taka fram eftirfarandi:
Hjálparstarf kirkjunnar tók að
sér, að béiðni Norðurpólsins á
Akureyri, að finna móttakendur
fyrir jólpakka sem Norðurpóllinn
hyggst safna nú í nóvember og
fram að jólum handa börnum í
stríðshrjáðum löndum. Norðurpóll-
inn mun annast söfnun og frágang
og bera allan kostnað við pakkana.
Hjálparstarf kirkjunnar mun
hinsvegar, með fulltingi fulltrúa
síns í Bosníu og í samvinnu við
samstarfsaðila þar, taka á móti
pökkunum þegar þeir koma þang-
að og deila þeim út til barna á
svæðinu.
Þetta hefur Ástþóri verið gert
ljóst oftar en einu sinni. Því er frá-
leitt að segja að hefðbundin jóla-
söfnun Hjálparstarfs kirkjunnar
sem landsmenn þekkja til með
gíróseðli og söfnunarbauk okkar
fari í téða jólapakkasendingu
Norðurpólsins. Söfnunarfé HK er
varið til þróunarverkefna sem
Hjálparstarfið hefur skuldbundið
sig til, aðstoðar bágstadda íslend-
inga og neyðarverkefna erlendis,
en Mið-Ameríka er nú efst á baugi
í þeim efnum.
F.h. Hjálparstarfs kirkjunnar,
ANNA ÓLAFSDÓTTIR,
fræðslufulltrúi
Uppsetningabúðin
Hverfisgötu 74, sími 552 5270.
Barnamyndatökur
PÉTUR PÉTURSSON
LIÓSMYNDASTÚDÍÓ
Laugavegi 24 • 101 Reykjavík
Sími 552 0624
Hvernig má það vera að maður í
þessari stöðu komi með slíka yfir-
lýsingu þegar um er að ræða aleigu
einhvers? Fyrir utan þá ónærgætni
og vanvirðingu sem felst í þessum
orðum langar mig að vita hvort það
sé almenn venja slökkviliðsmanna
að leggja mat á innanstokksmuni
sem orðið hafa eldi að bráð í hús-
brunum sem þessum og tjá sig um
það í sjónvarpi? Að lokum, getur
aleiga einhvers, hver sem hún kann
að vera, kallast „drasl“?
Það sætir ekki undrun að
slökkviliðsmaður með slíkt viðhorf
yfirgefi brennandi hús.
KRISTÍN REYNISDÓTTIR,
Freyjugötu 35, Reykjavík.
ilisö IKIsIk SíaiiPí
Fyllir vöðva orkuforða
og byggir upp
Venjulegir orkudrykkir inni-
halda einfaldar sykrur sem
hvetja líkamann til að losa of-
magn insúlíns sem aftur hvet-
ur líkamann til fitumyndunar
og veita vöðvunum engin
uppbyggingarefni.
330 ml Kick Start inniheldur:
Fullkomna blöndu af sykrum,
próteinum, steinefnum og
16.010 mg af hreinum
amínósýrum
Fita = 0
Fæst í verslunum Hagkaups, Nýkaupa, World Class og Gym 80.
Umboðsaðili: Cetus, sími 551 7733
Gleraugnaverslunin Sjónarhóll
Glæsibæ og Hafnarfirði
GLERAUGNAVERSLUN j
Glæsibær
S. 588-5970
Hafnarflörður
S. 565-5970 Sjónarhóll er frumkvöðull
Viðurkenndir glerja- og umgjarðaframleiðendur að g|eraugnaverðs
AMERISKU UniOMREMIIII
ÞAIIVIRKA!
ÁRAIMGURINIM SÉST Á ÖRFÁUM DÖGUM!
Amerísku undrakremin frá INSTITUTE-FOR-SKIN-THERAPY
græða, jafna, slétta, mýkja, næra, stinna, hindra hrukkumyndun,
minnka svitaholur, deyfa brúna aldursbletti, varðveita raka, verja
fyrir utanaðkomandi áhrifum og veita húðinni heilbrigðan og
ferskan blæ.
Ótrúlegt en satt - árangur af notkun snyrtivara frá INSTITUTE-
FOR-SKIN-THERAPYer sýnilegur á örfáum dögum, enda kremin
framleidd í Hollywood, Kaliforníu þar sem fólk hefur hvorki tíma til
né áhuga á að bíða eftir árangri, vill og verður að sjá hann
STRAX!
Snyrtivörur fyrir allar húðgerðir, ilmefnalausar, náttúrulegar,
ofnæmisprófaðar, með og án ávaxtasýru.
Dagkrem, næturkrem, augnkrem, olíulaust rakakrem, C-vítamínkrem, hreinsigel, bólumeðferð fyrir unglinga, magnaðir andlitsmaskar sem VIRKA o. fl. o. fl.
20% KYNNINGARAFSLÁTTUR Gildir til 27 nóv. 1998
Fást aðeins á völdum snyrtistofum í Kaliforníu og á íslandi hjá: Snyrtistofunni MAJU, Bankastræti 14, R, s. 551 7762 Snyrtistofunni Evu, Ráðhústorgi 1, Akureyri, s. 462 5544 Snyrtistofunni Dönu, Hafnargötu 41, Keflavík, s. 421 3617 og hjá KOSMETU ehf, Síðumúla 17,108 R, s. 588 3630 Sendum vandaðan, litprentaðan, íslenskan upplýsingabækiing ásamt verðlista ef óskað er!
e.h.f. Síðumúla 17 • 108 R • Sími: 588-3630 • Fax: 588-3731 Opið frá kl. 17:00-19:00 daglega. Netfang: kosmeta@islandia.is