Morgunblaðið - 18.11.1998, Page 64

Morgunblaðið - 18.11.1998, Page 64
Drögum næst 24. nóvember HAPPDRÆTTI ( \:t HÁSKÓLA ÍSLANDS MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 1998 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Drög að ályktun um sjávarútvegsmál hjá Framsókn Hluta af aukningu kvóta haldið eftir FRAMSÓKNARMENN telja áð skattleggja eigi með sérstökum hætti söluhagnað sem myndist við sölu á veiðheimildum og fénýtingu veiðiheimilda með öðrum hætti þegar einstaklingar hætti starf- semi í atvinnugreininni. Þannig megi best koma í veg fyrir að ein- staklingar fénýti endurnýjanlegar veiðiheimildir í eigin þágu. Þá telja framsóknarmenn að stjórnvöld í—JSigi að halda eftir hluta af aukn- ingu veiðiheimilda og hafa þær meðal annars til leigu á kvótaþingi til að auka fi-amboð veiðiheimilda þar. Þetta kemur fram í drögum að ályktun um sjávarútvegsmál sem lögð verða fram á flokksþingi Framsóknarflokksins sem hefst á föstudaginn kemur. Orðrétt segir: „Leita ber leiða til að tryggja rekstrargrandvöll aflamarksskipa og auðvelda aðgang þeirra að veiðiheimildum, með það að mark- Söluhagnaður verði skatt- lagður með sér- stökum hætti miði að treysta stoðir sjávar- byggða á landsbyggðinni. Fram- sóknarmenn telja að stjómvöld eigi að halda eftir hluta af aukn- ingu veiðiheimilda. Þessar heim- ildir verði meðal annars til leigu á kvótaþingi til þess að auka fram- boð veiðiheimilda á kvótaþingi. Framsóknarmenn telja eðlilegt að leitað verði leiða til að skatt- leggja með sérstökum hætti sölu- hagnað sem myndast við sölu ein- stakra aðila á veiðiheimildum og þegar einstakir aðilar fénýta sínar veiðiheimildir með öðram hætti við að hæþta starfsemi í atvinnugrein- inni. Á þann hátt má best koma í veg fyrir að einstaklingar fénýti endurnýjanlegar veiðiheimildir í eigin þágu.“ Hvalveiðar á næsta kjörtímabili Einnig kemur fram í drögunum að framsóknarmenn telja að krókabátar án aflahámarks eigi eins og aðrir að lúta reglum um hámarksafla, þannig að fiskveiði- stjómun sé virk, en hlutdeild þeirra í heildarafla hafi aukist mjög á undanförnum áram. Þá segir að Framsóknarflokkur- inn muni taka afstöðu til tillagna auðlindanefndarinnar þegar þær komi fram. Fram kemur að þeir leggja einnig sérstaka áherslu á rannsóknir á áhrifum veiðarfæra á lífríki hafsins og að taka eigi ákvörðun um að nýta sjávar- spendýr á vísindalegum forsend- um og hefja hvalveiðar á næsta kjörtímabili. Morgunblaðið/RAX Fiskur á rá LILJA Þórarinsdóttir í Neskaupstað var að hengja upp fisk niðri á bryggju þegar ljósmyndari átt.i þar leið um. Fallegt veður hefur verið í Neskaupstað undanfarið og gott tóm gefist þar til ýmissa verka utanhúss. Hlutafjárútboð FBA Búnaðar- bankinn safnaði kennitölum FORRÁÐAMENN verðbréfafyrir- tækja telja framvirk kaup á hluta- bréfum og söfnun kennitalna í þeim “~~tilgangi að komast yfir stærri hlut í Fjárfestingarbanka atvinnulífsins (FBA) hvorki vera ólögleg né sið- laus. Þeir segja að með umræddum viðskiptum hafi eftirmarkaður með hlutabréf færst framar en áður og slíkt sé eðlilegt. Búnaðarbankinn tók virkan þátt í framvirkum viðskiptum með hluta- bréf FBA en forráðamenn annarra verðbréfafyrirtækja, sem Morgun- blaðið ræddi við í gær, neituðu því að um skipulagða söfnun kennitalna hefði verið að ræða. Ami Oddur Þórðarson, for- stöðumaður markaðsviðskipta hjá Búnaðarbankanum, segir að bankinn hafi tekið að sér að eiga framvirk tfiðskipti með hlutabréf í FBA og hann hafi keypt og selt hlutabréf áð- ur en úboðinu lauk og eftir það. Það sé ánægjulegt við þessi framvirku viðskipti að almenningi hafi þannig gefist kostur á að taka þátt í einka- væðingarverkefni án þess að hafa yf- ir miklum fjármunum að ráða. Aðspurður hvort Búnaðarbank- inn hefði beinlínis safnað kennitöl- um, eða kauprétti, fyrir ákveðna viðskiptavini, sagði Árni Oddur að verðbréfaviðskipi gengju út á að leiða aðila saman, sumir kaupi og -Ú^Srir selji, og hlutverk verðbréfa- miðlara væri að miðla viðskiptum. „Búnaðarbankinn er sterkt afl á verðbréfamarkaði, tók virkan þátt í þessum viðskiptum, og hafði mikið um það að segja að einkavæðing FBA tókst svo vel sem raun ber vitni,“ sagði Árni Oddur. '* ■ Eftirmarkaður hlutabréfa/18 Verðmætasta frímerkjabréfíð BIBLÍUBRÉFIÐ frá 1876. Það er með 23 skildingafrímerkjum. Biblíubréfið sýnt í Kaupmannahöfn BIBLÍUBRÉFIÐ, örk með 23 skildingafrímerkjum frá Is- landi, verður sýnt í fyrsta sinn á Norðurlöndunum á Póst- og símaminjasafninu í Kaup- mannahöfn 19.-22. nóvember nk. Biblíubréfið er frá árinu 1876 og er talið einstæður frí- merkjafundur. Það fannst árið 1972 inni í gamalli Biblíu. Það er eina þekkta bréfið með þjónustufrímerkjum og er af þeim sökum talið það verðmætasta sem frá Islandi hefur komið. Það var síðast selt á uppboði hjá Feldman í Sviss fyrir um 17 milljónir króna. Magni R. Magnússon kaup- maður segir að bréfið hafi ver- ið selt á uppboði í Þýskalandi og horfið af markaðnum. Skyndilega hafi það verið boðið upp og selt hjá Feldinan í Sviss árið 1983. Salan var ein af tíu hæstu það ár í frímerkja- heiminum. „Bréfið á að hafa fundist í Biblíu úti á landi. Það er með skildingafrímerkjum og er frá þeim tíma þegar myntbreyting varð á íslandi. 1. janúar 1875 voru teknar upp krónur og aurar í stað rfkisdala og skild- inga. Sýsluinaðurinn á Kiða- bergi í Árnessýslu, Þorsteinn Jónsson, fékk sendingu með nýju peningunum sem hann átti að láta til skipta fyrir ríkisdali og skildinga og því fylgdi annað bréf, sem er hið svokallaða Biblíubréf," segir Jón Aðalsteinn Jónsson, orða- bókarritstjóri og frímerkjasér- fræðingur. Á umslaginu, sem stílað er til sýslumannsins í Árnessýslu, era 22 átta skildinga frímerki og eitt fíögurra skildinga frí- merki. Á umslaginu kemur fram að þyngdin á sendingunni er 10 pund og 82 kvint. Á því stendur að með fylgi forsiglað- ur peningaböggull með 75 kr. í 10, 5, 2 og 1 eyris peningum sem jafngildi 37 ríkisdölum og 48 skildingum. Líklega sendi landfógetinn bréfið. DC 8 vél missti hjól í flugtaki HJÓL losnaði undan DC 8 vöra- flutningavél í eigu Air Touras á Ir- landi í flugtaki á Keflavíkurflug- velli sl. laugardag. Miklar eldglær- ingar urðu við óhappið. Islenskir flugumferðarstjórar sáu hvað hafði gerst og sneru vélinni inn til lend- ingar á ný eftir að eldsneyti hafði verið losað úr tönkum hennar yfir hafi. Vélin millilenti í Keflavík á leið sinni frá Ostende í Belgíu til Hondúras með hjálpargögn. Fimm vora í áhöfn vélarinnar, allir frá Ir- landi. Skúli Jón Sigurðarson, for- stöðumaður rannsóknarnefndar flugslysa, segir að allt hafi verið með eðlilegum hætti í fluginu nema í flugtaki þegar starfsmenn í flug- turni tóku eftir eldglæringum frá aðalhjólunum hægra megin. Kom í ljós að innra hjólið á vélinni aftan- verðri hafði losnað af. Fjögur hjól era á hvorri hlið. Flugstjórinn sleppti eldsneyti yfir hafi og lenti vélinni án vandræða. Hjólið fannst síðar á vellinum. Skúli Jón segir að bilað hafi lega í hjólinu þannig að hún hafi of- hitnað og eyðilagt felguna. Vélin var færð inn í flugskýli sl. sunnu- dag og varahlutir fengnir erlendis frá. Flugleiðir önnuðust viðgerð á henni og hélt hún aftur af landi brott sama dag. „Það er ekki hægt að segja að það hafi verið hætta á ferðum vegna þess hvernig þetta bar að. Starfsmenn í flugturni sáu þetta og þess vegna tók flugstjórinn ekki upp hjólin. Hætta hefði getað verið á ferðum hefði hann gert það vegna þess hve mikill hiti myndast við þetta. Það hefði getað myndast íkveikjuhætta," segir Skúli Jón. Bilun af þessu tagi hefur komið fyrir áður í DC 8 vélum og kvaðst Skúli Jón minnast svona atviks hjá Cargolux fyrir mörgum árum. Loftleiðir og Flugleiðir notuðu DC 8 vélar í um 20 ár og minnist Skúli Jón þess ekki að komið hafi upp atvik af þessu tagi hjá þeim félög- um. Hátt verð á sóknardagabátum VERÐ fyrir krókabát í sóknardaga- kerfi getur faiáð allt upp í 25 millj- ónir króna, þrátt fyrir að bátarnir hafi heimild fyrir aðeins 9 sóknar- dögum á fiskveiðiárinu, samkvæmt núgildandi lögum. Að sögn skipa- sala hafa menn greitt svo hátt verð fyrir sóknardagabáta út á hugsan- legar breytingar á fiskveiðistjórnun smábáta sem gætu leitt til verðmætaaukningar í framtíðinni. Jakob Jakobsson hjá Skipasöl- unni ehf. segir að ekki hafi verið mikil hreyfmg á sóknardagabátum síðustu mánuði. Hins vegar sé nú talsverð eftirspurn eftir krókabát- um í þorskaflahámarkskerfið. „Það ríkir mikil óvissa um sóknardaga á fiskveiðiárinu og menn halda að sér höndum á meðan svo er. Reynslan af þorskaflahámarkinu hefur aftur á móti verið mun betri,“ segir Jakob. ■ 25 milljónir/Bl

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.