Morgunblaðið - 26.11.1998, Page 22
22 FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
Náttúruleg-
ar húðvörur
LYFJAVERSLUN íslands hefur
hafið sölu á náttúrulegum húðvör-
um frá danska fyrirtækinu Anjo.
Um er að ræða tvær línur, Bi-
omin, sem inniheldur Aloa Vera-
gel og Aloe Vera-krem og eru
m.a. notuð vegna sólbruna, minni-
háttar brunasára og mýbits. Hins
vegar er Anjo-línan, sem inniheld-
ur ýmiss konar húð- og andlits-
krem, en í þeim eru m.a. náttúru-
legar ávaxtasýrur unnar úr an-
anas, ástaraldini og greip. Einnig
má nefna „Anti Cellulitis I.otion",
sem vinnur gegn appelsínuhúð, að
því er fram kemur í fréttatilkynn-
ingu.
Allar vörurnar innihalda nátt-
úrulegar jurtaolíur og jurta-
extrakta og á umbúðum er að
finna nákvæma innihaldslýsingu.
Vörurnar eru prófaðar á fólki en
ekki dýrum. Þær fást í apótekum.
Verðkönnun Samkeppnisstofnunar
Allt að 228% verðmunur á
klippingu fyrir konur
Verðkönnun hjá hársnyrtistofum
Könnunin næryfir 188 hárgreiðslu- og rakarstofur á höfuðborgarsvæðinu.
Meðalverð
Lægsta Karlar 'vy.,., verð Hæsta verð Mis- munur nóv. 1997 nóv. 1998 Breyt- ingar
Klipping XyV 900 2.290 154% 1.498 1.555 4%
Klipping, ný lína ^ 900 2.300 156% 1.547 1.586 2%
Konur
Klipping 1.100 3.610 228% 1.715 1.762 3%
Klipping, ný lína 1.100 3.610 228% 1.884 1.956 4%
Lagning 995 2.610 162% 1.483 1.553 5%
Stífur blástur 800 3.500 338% 1.554 1.628 5%
Konur og karlar
Hárþvottur 150 520 247% 327 330 1%
Hárþvottur m/hárnær. 195 900 362% 385 382 -1%
Litun, stutt hár 1.500 3.879 159% 2.353 2.467 5%
Permanent, stutt hár 1.900 5.170 172% 3.640 3.756 3%
Strípur, stutt hár hetta 1.000 4.100 310% 2.405 2.495 4%
Strípur, stutt hár ál 1.950 4.600 136% 3.263 3.425 5%
Drengir og stúlkur
Klipping 600 1.900 217% 1.171 1.200 2%
KLIPPING fyrir konur getur
kostað 1.100 krónur en hún getur
líka kostað 3.610 krónur allt eftir
því á hvaða hársnyrtistofu er far-
ið. Verðmunurinn eftir hársnyrti-
stofum er allt að 228% á klippingu
fyrir konur, 217% á klippingu fyr-
ir börn og 154% á klippingu fyrir
karlmenn.
Þetta kemur fram í verðkönn-
un sem Samkeppnisstofnun lét
gera á hársnyrtistofum fyrir
skömmu. Kannað var verð á
þjónustu 188 hársnyrtistofa á
höfuðborgarsvæðinu. Alls voru
fjórtán þjónustuliðir kannaðir,
þ. á m. klipping fyrir konur,
karla og börn, lagning, hárþvott-
ur, litun, permanent og strípur.
Sambærileg könnun var gerð fyr-
ir ári.
Þjónustuliðir
hækka um 3%
Að sögn Kristínar Færseth
deildarstjóra hjá Samkeppnis-
stofnun hafa þjónustuliðir að með-
altali hækkað um rúm 3% á einu
ári en meðalverðbreyting hjá ein-
stökum stofum var mjög mismun-
andi. „Hjá 66 stofum var verðið
óbreytt eða hafði lækkað lítillega
frá því í fyrra. Hjá 86 stofum
hafði verðið hækkað um 1-10%,
verð á 25 stofum hækkaði um
11-20% og hjá fjórum hársnyrti-
stofum hafði verðið hækkað meira
en um 20%.“
Kristín segir að samkvæmt
reglum eigi að vera skýrar verð-
skrár yfír algengustu þjónustu
hársnyrti.stofa við inngöngudyr,
auk þess sem verðskrá á að liggja
frammi við afgreiðslukassa. Við
athugun á framkvæmd þessara
reglna kom í ljós að á 30% hár-
snyrtistofa eru verðskrár við inn-
göngudyr en á 77% eru þær við
afgreiðslukassa.
Hún segir rétt að taka fram að
oft sé ellilífeyrisþegum veittur af-
sláttur og dæmi eru um að veittur
sé staðgreiðsluafsláttur. A einni
stofu segir hún að verð á þjónustu
hækki um 5% ef borgarð er með
kreditkorti. Oll efni sem notuð
eru eiga að vera innifalin í upp-
gefnu verði á þjónustu.
Fjórar stofur hafa hækkað
verðið um 20%
Þegar Kristín er spurð hvaða
hársnyrtistofur bjóði lægsta verð-
ið segir hún að það hafí ekki verið
athugað sérstaklega.
„Við erum fyrst og fremst að
fylgjast með verðþróuninni á
þessari þjónustu og ef neytendur
skoða meðalverðið á einstökum
þjónustuliðum geta þeir borið það
saman við það verð sem þeir
borga á sinni hársnyrtistofu."
- Nú höfðu íjórar hársnyrti-
stofur hækkað verðið um meira
en 20%. Hvaða stofur voru það?
„Við gefum ekki upp nöfn á ein-
stökum hársnyrtistofum. Það er
frjáls verðlagning og stofum er í
sjálfsvald sett hvaða verð þær
bjóða.“
Gunnþórunn Jónsdóttir
og Bárður G. Halldórsson
Við bjóðum okkur fram til
forystu fyrir Frjálslynda flokkinn
Lýðræðislegar kosningar er okkar kjörorð
Við skorum á alla þá, sem vilja styðja okkur að mæta á stofnfund flokksins í
Rúgbrauðsgerðinni, Borgartúni 6, laugardaginn 28. nóvember kl. 9.30.
Vinsamlegast skráið ykkur í síma 552 7200 fram á föstudag.
Virkjum lýðræðið - Skráum okkur strax