Morgunblaðið - 28.11.1998, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 28.11.1998, Blaðsíða 12
12 C LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ „Þú verður að fá uppskrift að osta- kökunum sem hún bakar alltaf fyrir jólin," sagði tengda- dóttir hennar þegar það barst í tal að við ætluðum að heimsækja Guðrúnu Nielsen og forvitn- ast aðeins um jólasiði. „Ostakökurnar eru frá- bærar og heima hjá mér finnst öllum að þær verði að vera til um jólin." Með þetta í farteskinu barði ég að dyr- um í Mosfellsbænum. „Ég bakaði auðvitað smákökur þegar börnin voru lítil en síðan hef ég gert lítið af því. Smáköku- bakstur er semsagt ekki í neinu sérstöku uppáhaldi en ostakök- urnar baka ég þó alltaf," segir Guðrún þegar ég inni hana eftir þessu með ostakökurnar og hún bætir Ijúflega við að uppskriftina geti ég fengið. „Ég rakst á þessa uppskrift í bæklingi frá Pillsbury fyrir um fjöru- tíu árum og ég held að síðan hafi OSTAKÓKUR Morgunblaðið/Golli ég bakað þessar þessar kökur fyrir hver jól. Núorðið (áykir fjölskyldunni tilheyra að borða ostakökurnar á aðventunni." Guðrún segist töluvert baka af brauði og bollum og aðventan sé þar engin undantekning. „Mér fell- ur vel að vinna með ger og ég á oft i frysti bollur og horn sem auð- velt er að grípa til ef þannig stend- ur á.“ Skoða uppskriftir „Ég hef alltaf haft mjög gaman Smá sýmshorn frá AEG VEG 'övrasproti SM 280 AEG — Vöftlujárn WE100 AJGHárbláörri Figaro 1600 r - MC'f a 1,5L Ai'.t, Kafflkanna KF1000 aeg Expresso og kaffikvél KFEA100 .' Expressokafflvél ea 100 raufirlst AT250 AEG Hraðsuðukanna1L SWA10101L : ; ---II DJORMSSONHF Lágmúla 8 • Símí 533 2800 akg Matvlnnsluvðl KM 21 ðflPH aeg Gufuslraujárn db 4040 ----------- ------------------------ Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi, Kf. Borgfirðinga, Borgarnesi. Blómsturvellir, Hellissandi. Guðni Hallgrímsson, Grundarfirði. Ásubúð, Búðardal. Vestfirðir: Geirseyrarbúðin, Patreksfirði. Rafverk, Bolungarvík. Straumur, Isafirði. Norðurland: Kf. Steingrimsfjarðar, Hólmavík. Kf. V-Hún., Vvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Skagfirðingabúð, Sauöárkróki. KEA Lónsbakka, Akureyri KEA, Dalvík. KEA, Siglufiröi. KEA, Ólafsfirði. Kf. Þingeyinga, Húsavík. Urð, Raufarhöfn, Lónið Þórshöfn. Austurland: Sveinn Guðmundsson, Egilsstöðum. Kf. Vopnafirðinga, Vopnafirði. Kf. Stöðfirðinga. Verslunin Bakki, Kópaskeri. Verslunin Vík, Neskaupstað. Kf. Fáskrúðsfirðinga, Fáskrúðsfirði. KASK, Höfn, KASK Djúpavogi. Suflurland: Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Súmkr amrkur x GUÐRÚN Nielsen. HEIT lifrarkæfa og súrsaðar agúrkur. af því að fletta matreiðslubókum og -tímaritum og skoða uppskriftir. Fyrr á árum þegar úrvalið af tíma- ritum og bókum var ekki eins mikið og núna keypti ég vasabækur með uppskriftum. Undanfarin ár hef ég verið áskrifandi að Bon appetit. Mér finnst gaman að prófa nýjar uppskriftir og aðlaga þær mínum smekk. Uppskriftirnar í Bon appetit eru mjög aðgengilegar og oft ein- faldar.“ - En ertu mikil jólakona? „Ég veit ekki hvort ég er mikil jólakona, en mér finnst gaman að undirbúa komu jólanna. Fjölskylda mannsins míns hefur haldið þeim sið að hittast snemma á aðventu og baka saman laufabrauð. Öll fjölskyldan hittist þá, fletur út deig, sker út og steikir. Yfirleitt hittumst við í þessum tilgangi í byrjun að- ventu og þaö er svona það fyrsta sem minnir okkur á að jólin eru að nálgast." Guðrún býr alltaf til heita lifrar- kæfu eða lifrarpaté fyrir jólin. Upp- skriftin er frá Lyon f Frakklandi en upprunalega rakst hún á hana í dönsku tímariti. Þá segir Guðrún að í miklu uppáhaldi sé líka kín- verskt „pickles" eða súrsaðar agúrkur. Hún brást vel við þegar við föluðumst eftir uppskriftum að þessum tveimur réttum auk upp- skriftarinnar að ostakökunum hennar. Heít lífrarkœja ____________350 g svínalifur__________ 200 g hakkað kálfakjöt ________(má nota ungnautakjöt)________ _________100 g ferskir sveppir________ ________________1 epli________________ _______________1 laukur_______________ ______________2 msk. olía_____________ _____________3 msk. smjór ____________ _____________4 msk. hveiti____________ _______________4 dl rjómi_____________ ________________2 egg_________________ salt og nýmalaður svartur pipar Saxið niður lauk, epli og sveppi og „svissið" aðeins í olíunni. Hakkið kjötið og blandið saman við svepp- um, lauk og eplum. Bakið upp smjör, hveiti og rjóma og hrærið í sósuna tveimur eggjum. Blandið síðan öllu saman, kryddið til með salti og pipar. Setjið í eldfast mót, eitt stórt eða nokkur lítil, og bakið í vatnsbaði í eina klukkustund við 200°C. Berið fram með sveppum og beikoni og ekki er verra ef súrsuðu agúrkurnar eru á borðum. Súrsaóar ajjúrhir ab kínverskum hœttí _________2 kg agúrkur________ ________1/3 b. gróft salt_____ _______2 bakkar ísmolar_______ ________Vz Itr. eplaedik______ __________2 b. sykur__________ _______Vz tsk. sellerífræ_____ ________1 tsk. turmeric______ _________1 heill negull_______ 3-4 sinnepsfræ Ekki afhýða agúrkurnar en þvoið þaer vel og skerið þær langsum í fernt og síðan í litla 3 sentimetra bita. Látið agúrkubitana í skál og saltið yfir. Bætið einnig við ísmolum. Hitið síðan löginn sem í er edik, sykur og krydd en passið að hann sjóði ekki. Síðan eru agúrkurnar tekn- ar úr klakavatninu og settar út í pott- inn. Aftur er allt hitað en það má ekki sjóða. Guðrún segir að það megi nota annað en agúrkur í löginn og segir blómkál, papriku og lauk koma vel út. Setjið á vel hreinsaðar krukkur og lokið þétt. ostakökur _____________2 b. hveiti_______ _____________11/2 tsk. salt____ 2 tsk. paprika (spánskt chili __________er líka mjög gott)________ _________Vz tsk. sinnepsduft________ _________2/3 b. (190 g) smjör______ 1 !4 b. (250 g) Maribo-ostur _____________rifinn gróft______ _____________1/3 b. rjómi_______ Vz tsk. Worchestersósa Þurrefnin eru sigtuð saman. Smjörið er mulið saman við og síðan er osti bætt útí. Bleytt í deiginu með rjóman- um sem búið er að setja út í Worc- hestersósuna. Deigið er flatt út í kringlóttar kökur og þær bakaðar í 10-12 mínútur við 210-220°C.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.