Morgunblaðið - 28.11.1998, Blaðsíða 61
morgunblaðið
LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1998 C 61
Á að sjóða ham-
borgarhrygginn?
Sumir eru í vandræðum með
matreiðsluaðferðina á ham-
borgarhryggnum eða london-
lambinu. Hvort á að sjóða eða
steikja?
Það þarf alls ekki að vera svo
flókið og hér fylgir auðveld aðferð
með. Mjög gott er að byrja á því
að sjóða kjötið og setja síðan í
ofn. Kjötið er soðið í 30-45 mín.
miðað við 1-1% kg. Best er að
sjóða kjötið f plastumbúðunum
og það er sett út í sjóðandi vatn-
ið- Froðan er veidd af þegar þarf.
Kjötið látið standa svolítið í soð-
inu áður en það er sett í ofninn.
Plastumbúðir eru fjarlægðar og
kjötið sett í ofnskúffu eða steikar-
pott. Gott er að blanda saman
púðursykri og sterku sinnepi
(smakka til, fer eftir smekk) og
bera jafnt og þétt yfir allt kjötið.
Kjötið er síðan sett inn í vel heit-
an ofninn og steikt þar til púður-
sykurssinnepsblandan er orðin
brún og gljáandi. Passið að kjötið
verði ekki of lengi inni í ofninum,
því það er ekki bragðgott ef yfir-
borðið brennur. Soðið má síðan
nota í sósu. Ég ætla að benda á
mjög svo gómsæta ostasósu
sem er algjört sælgæti með
léttreyktu kjöti og hana er að
finna I Matarlyst á bls. 62.
Mjókurdagsnefnd gaf bókina út,
uppskriftir eru eftir Benediktu G.
Waage og Dómhildi A. Sigfús-
dóttur.
Rauðvín í
dúkinn?
Um áramót lyfta margir glös-
um og fagna nýju ári. Hvað er
«1 bragðs að taka ef rauðvín
fer í fötin, dúkinn eða gólftepp-
ið?
Besta ráðið er að taka rauðvíns-
bletti í fötum/dúk strax til með-
höndlunar með þvl að láta blett-
inn snúa niður og kalt vatn renna
i gegnum efnið (vatnið þarf ekki
að vera ískalt). Bletturinn er
nuddaður varlega um leið. Ef um
gamla bletti er að ræða er ráð-
lagt að væta blettinn örlítið með
vatni, eins heitu og efnið þolir.
Síðan er settur uppþvottalögur
eða sólskinssápa (hyljiö blettinn
með plasti) og látið liggja helst
yfir nótt, efnið er loks sett I
þvott. Ef litarblettur er eftir er
hægt að bleikja eða aflita blett-
inn en það er einungis hægt
með það sem er hvítt. Ef rauðvín
fer I gótftepþið er ráðlagt að
væta blettinn með froðu af upp-
þvottalegi (1 msk. á móti 1 dl af
vatni - þeytt I froðu). Berið froð-
una á með svamþi. Þegar froðan
hverfur ofan I teppið er hún að
vinna á óhreinindunum. Þá er
tekinn klútur sem búið er að
vinda upp úr volgu vatni og
Þurrkað yfir með honun. Ef enn
er blettur má reyna hreinsað
bensín. Það getur verið erfitt að
fjarlægja bletti sem eru I Ijósu
teppi.
Góður
marengs
A: Þú ætlar að baka marengs
og aðal hráefnin eru eggjahvít-
ur og sykur. Hvaða atriði er
mikilvægt að hafa í huga?
Skálin og þeytarinn verða að vera
hrein og þurr. Engin eggjarauða
má vera saman við eggjahvítuna.
Best er að þeyta eggjahvítuna
rétt áður en þú ætlar að nota
hana, ef hún bíður sígur hún
saman og það er ekki auðvelt að
þeyta hana eins vel aftur. Eggja-
hvíturnar eru nægilega þeyttar
Þegar þú getur hvolft skálinni án
Þess að hvítan detti úr henni.
Þeyttum eggjahvítum þarf að
blanda varlega saman við deigið
svo það haldi stifleika sínum,
best er að nota sleikju.
B: Hvað getur þú gert ef mar-
engsbotninn er fastur við bök-
unarplötuna eða pappírinn?
Þá er gott að láta plötuna standa
örstutta stund á rökum klút eða
dagblaði og marengsbotninn
losnar auðveldlega án þess að
skemmast.
Háaleitisbraut 58-60, sími 581 3525
Drval af töskum
fegurð ogferskleíkí
AIGN!
Ógleymanleg stund í jf)(ÍÖ
Gjafakort, tílvalín jólagjöf
Míðasölusímí. 530 3030
Opíð frá kl. 12-18 og fram að sýníngu sýníngardaga
Veitíngaliús opið öll kvöld frá kl. 18
Glæsílegur jölamatseðíll
Alli. 20°/o afsláttur af mat fyrír leíkhúsgestí
Borðapantanír í s. 562 9700
Braun ThermoScan®
eyrnahitamælir
mælir raunverulegt hitastig líkamans á
nákvæman, einfaldan og þægilegan hátt.
Mælirinn er lagður í eyrað og mælir hitann
á einni sekúndu.
Tilvalinn pakki frá afa og ömmu...
Braun VitalScan®
blóðþrýstingsmælir
gerir þér kleift að mæla bióðþrýsting
þinn nákvæmlega á þægilegan og
einfaldan hátt hvar og hvenær sem er.
Fáanlegir
í Apótekum
BRflUíl
Tilvalinn pakki til afa og ömmu... Smart thinking
coUfornui rusinur
hesUHneíur
Heslihneíur
hakkaðar
heslihneíur
kókosmjöl f
möwöf
með hyði
PH f
ntöndlur w
möndlur
hakkaðar
coOinetukjamar
! Bráðumkoma
j blessuðjólin...
>■
- f****^r
;
VELJUM ÍSLENSKT!