Morgunblaðið - 28.11.1998, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 28.11.1998, Blaðsíða 30
30 C LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ AÐVENTU noiid a nmn hm ★ sakt HELGI Þór Þorsteinsson, sonur Sigurbjargar Jónsdóttur sem er fyrir miðju og dóttir hennar Anna Marta Þorsteinsdóttir. Margir hafa gaman af því að undirbúa komu jólanna með bakstri og matargerð. En það eru líka margir sem hafa látið af því að baka mikið og hún Sigurbjörg Jónsdóttir er ein af þeim. Hún hefur lært að njóta aðventunnar á nýjan hátt. Morgunblaðið/Golli SALATIÐ hennar Sigurbjargar, bollur og salatsósa. „Hátíðleiki aðventunnar og jólanna er ekkert annað en það sem fjölskyldan býr til saman. Kökur hafa ekkert með jólastemmninguna innra með manni að gera. Ég var vön að baka að minnsta kosti átta smákökuteg- undir fyrir aðventuna og eiga þá eftir að prófa ýmsar nýjar uppskrift- ir. Mér hefur alltaf fundist aðventan svo yndislegur tími og ég taldi mér trú um að stór hluti ánægjunnar væri fólginn í bakstrinum. I dag hef ég þetta öðruvísi. Ég nýt jólanna á annan hátt, föndra, fer í leikhús, spila eða baka brauð ef löngunin til að baka kemur yfir mig.“ 48 kílóum léttari Sigurbjörg hefur frá barnæsku átt í baráttu við aukakílóin. Hún segist hafa reynt hvern kúrinn á fætur öðrum og meira að segja lát- ið víra saman á sér munninn. Það var ekki fyrr en hún sá Gauja litla í sjónvarpinu að hún fékk trú á að hún gæti breytt um lífsstíl til fram- búðar. Núna, einu og hálfu ári síð- ar, eru 48 kíló farin. Hún segist hafa fengið annað tækifæri í lífinu, - vera ný manneskja. „Það er aldrei of seint að byrja og fólk sem er að glíma við aukakílóin ætti ekki að bíða fram á nýtt ár. Það ætti að hefjast handa strax, - einmitt núna fyrir jólin, því annars gætu hafa bæst við 5 kíló í janúar. Þegar ég sá Gauja litla á sínum tíma hugsaði ég með mér: Ef hann getur þetta þá get ég það. Ég vona að mín reynsla geti orðið öðrum hvatning á sama hátt. Þetta er hægt og vilji er allt sem þarf.“ - En er ekki erfitt að neita sér um steikur og sætindi á jólum? „Þetta er allt spurning um val og vissulega er það erfitt í byrjun. Það sjá fáir þó mjög stór manneskja missi 5-10 kíló og þá reynir veru- lega á þolinmæðina að gefast ekki upp. Þegar ég hóf að breyta um lífs- stil var ég komin í vél á nóttunni sem hjálpaði mér að anda, því ég var með kæfisvefn. Auk þess var ég illa haldin af astma og með of- næmi fyrir öllu milli himins og jarð- ar. Ég ætla ekki að reyna að lýsa því hvað ég var stolt þegar ég fór og skilaði vélinni. Núna sef ég allar nætur og ofnæmið er ekki að angra mig meira en gengur og ger- ist. Ég vildi ekki skipta á þessu lífi fyrir neinn mat, hvort sem það eru steikur eða sætindi." Freistingar alls staðar Sigurbjörg segir að með þessu sé hún þó ekki að segja að hún falli aldrei fyrir freistingum. „Það hefur komið fyrir en gerist sem betur fer æ sjaldnar. Ég hef kosið að líta á þetta sem tröppugang. Ef ég hrasa þá rís ég upp og held áfram. Núorðið skipulegg ég mig vel. Ef ég veit af veislu sem ég ætla í eða jólin eru að koma þá borða ég létt fyrir og eftir. Um jólin borðum við góðan mat en fyrir jólin og strax á eftir hef ég á borðum létt fæði, salöt, brauð, skyr og jafrivel soðinn fisk.“ - Breyttirðu um lífsstíl á einum degi? „Nei, síður en svo. Ég byrjaði mjög pent og fór til næringarráð- gjafa sem aðstoðaði mig við þann lærdóm að lesa á umbúðir og vera meðvituð um það sem ég var að kaupa eða setja ofan í mig. Mér hefur alltaf fundist rjómakaffi mjög gott og ég byrjaði á því að hætta að kaupa rjóma og nýmjólk og skipta yfir í kaffirjóma og léttmjólk og síðar undanrennu. Ég hætti að drekka kók, fór yfir í sykurlaust kók og síðan í vatnið. Svona trappaði ég mig smám saman niður. Þá hóf ég að fituskera kjötið sem við borðuðum og borða kjöt tvisvar f viku í staðinn fyrir fimm sinnum í viku. Ég lærði smám saman að meta vöruflokka sem ég leit varla við. Núna borðum við mikið grænmeti. Mér finnst t.d. frá- bært að fá gott salat með túnfiski eða rækjum og nýbakað brauð í kvöldmat. Áður hefði mér ekki fundist þetta matur." Ekki rúllupylsa og bjúgu Sigurbjörgu hefur alltaf fundist mjög gaman að elda og á haustin var hún t.d. vön að taka slátur, búa til rúllupylsu og bjúgu. Hún segist vera hætt þessu. „Mér finnst enn gaman að elda en nú breyti ég uppskriftum. Ég nota kaffirjóma í staðinn fyrir rjóma, minnka yfirleitt sykurmagn ( allt sem ég geri og fækka eggjum. ! J JZátið tœran íoga Jíeimacyjarkertanna fœra yhkur frið olj fegurð um fmtíðirnar Kertin frá Kertaverksmiðjunni Heimaey eru framleidd eftir gömlum hefðum handverksmanna. Þau eru gegnumlituð og fáanleg í fjölmörgum fallegum htum sem eru þróaðir tmdir ströngu gæðaeftirliti. Allt hráefni til framleiðslunnar er sérstaklega vahð til að tryggja sem lengstan og bestan brennslutíma. Kertaverksmiðjan Heimaey er vemdaður virtnustaður sem veitir fjölda fatlaðra atvinnu. K S , ^HjelmaeAj/ Faxastíg 46 - 900 Vestmannaeyjum - sími 481 2905
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.