Morgunblaðið - 28.11.1998, Blaðsíða 32
32 C LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
+
Þárm utwáhaUs
SMÁKÖKUR
EFRI röð frá vinstri: Valgerður Þórðardóttir, Bjarni Jóhannesson, Árný Benediktsdóttir,
Sigríður Gunnarsdóttir, Halldór Haralz og Víðir Kristófersson. Neðri röð frá vinstri:
Hulda Styrmisdóttir, Þórunn Einarsdóttir, Rebekka Friðgeirsdóttir og Steinunn Guð-
brandsdóttir. Helga Hlín Hákonardóttir situr. Á myndina vantar Pétur Einarsson,
Margréti Jónsdóttur og Elfar Rúnarsson.
Kóhsmjölsköhr
45-50 stk.
_______________2 egg______________
____________1 Vz dl sykur ________
_______6 dl kókosmjöl (200 g)_____
50 g brætt smjörlíki (eða smjör)
Þeyta egg og sykur vel saman og baeta
síðan kókosmjöli og smjörlíki út í. Sett
með teskeið á plötu og bakað við
200°C í u.þ.b. 10 mín. (u.þ.b. 20°C
lægri hita, ef bakað er í blástursofni)
eða þangað til að þær verða gulllitaðar.
Dýft í brætt súkkulaði að bökun lokinni.
Árný Benediktsdóttir
Möndluskífur
30 skrfur
2 eggjahvítur
1 eggjarauða
100 g sykur
1 tsk. vanillusykur
50 g hveiti______
80 g smjör
40 g saxaðar möndlur
^ Starfsfólkið hjá
Æf Fjárfestingar-
banka atvinnu-
lífsins brást vel við
þegar það var beðið
að gefa lesendum
Morgunblaðsins upp-
skrift að uppáhalds-
smákökunum sem
það bakar fyrir jólin.
Blandið saman eggjahvítum, sykri og
vanillusykri, þeytið síðan allt í 3 mín.
Bætið hveitinu smám saman út í
meðan hrært er. Bræðið smjör og
þætið í eggjablönduna. Þá er
eggjarauðan sett út í og hrært vel. Að
síðustu er möndlunum bætt út í.
Deigið á að vera blautt. Setjið deigið
með teskeið á bökunarplötu. Bakið í
5 mín. við 200°C hita. Takið kökurnar
úr ofninum og fletjið þær út með
kökukefli þannig að þær verði þunn-
ar.
Pétur Einarsson
mjmkex
(ömmu GuönÍMr)
4 bollar haframjöl
_______2 bollar hveiti____
_______1 bolli sykur______
2 tsk. ger (lyftiduft)
1 tsk. hjartarsalt
_______+ tsk. salt________
250 g smjörlíki
1 bolli mjólk
Blandið saman þurrefnum, haframjöli,
hveiti, sykri, geri, hjartarsalti og salti.
Smjörlíkið mulið út í þurrefnin og
hnoðað. Mjólk bætt út í smátt og
smátt. Deigið flatt út, ekki of þunnt,
kökurnar mótaðar og þær pikkaðar
með gaffli. Bakið í miðjum ofni við
u.þ.b. 180-200°C í u.þ.b. 10 mín. eða
þar til að kökurnar hafa tekið á sig
fallegan gulbrúnan lit. Varist að baka
of lengi því þá á kexið á hættu að
brenna.
Tilvalið með ostum, sultu, kæfu
eða öðru því áleggi sem hugur hvers
og eins segir til um.
Bjarni Jóhannesson
Geymsluþol
jólabakstursins
Það er alltaf gott að undirbúa jólabakstur-
inn með góðum fyrirvara. Hvernig er
geymsluþol á smákökum, tertum og
brauði. Hvað er gott að frysta?
Svar: Smákökur geymast vel í góðum loft-
þóttum kökubaukum á köldum stað.
Geymsluþolið eykst við frystingu. Fituríkar
smákökur geymast betur ef smjörpapþír er
settur á milli þeirra. Formkökur eins og jóla-
kökur, kryddkökur og sandkökur geymast vel
í frysti. Tertubotna sem innihalda mikið af
eggjum er gott að frysta. Svampbotnar geta
þó orðið seigir ef þeir eru geymdir lengi í
frysti. Gerbollur og brauð má frysta með góð-
um árangri. Marengsbotna er best að geyma
í góðum kökubaukum á köldum stað.
Skreyttar tertur með fyllingu og vatnsdeig-
skökur má geyma I frysti í 2-3 vikur en ekki
lengur en einn mánuð. Kökur sem innihalda
lítið smjörlíki/smjör/olíu hafa mjög gott
geymsluþol allt að 12 mánuði. Fituríkar kökur
geymast ekki lengur en 6 mánuði í frysti.
Frysting: Mikilvægt er að kæla allan bakstur
vel fyrir frystingu. Best er að frysta bakkelsið
nýbakað. Afþíðing: Þíða má bakkelsið við
stofuhita en betra er að þíða formkökur og
tertubotna í ísskáp. Miðað við stofuhita tekur
það um 3-5 klst. að þíða bakkelsið en bollur,
smákökur og annað smábrauð þarf styttri
tíma 1/2-1 klst.).
+