Morgunblaðið - 28.11.1998, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 28.11.1998, Qupperneq 34
34 C LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ ADDÚ ber hitann og þungann af matseldinni fyrir vini og fjöl- skyldu á jóladag. Á jóladag koma um tuttugu og fimm manns, vinir og fjöiskylda, heim til Brósa og Addú í jólahlaðborð að þeirra hætti. Við komumst að því að þau eru í raun allan ársins hring að huga að jólagestunum sínum. £»» „Okkur finnst rosalega öL gaman að fá þessa vini JPf og þá fjölskyldumeðlimi sem eru í bænum til okkar á jóladag. Þetta er af- slappað jólaboð og það þarf eng- inn að koma til okkar í sínu besta pússi heldur koma með því hugar- fari að slappa af og njóta dagsins með okkur,“ segja þau Brósi, sem heitir fullu nafni Sigurður Grétar Benónýsson, og Addú eða Arn- þrúður Jósepsdóttir. Það er spilað, horft á myndbönd, spjallað og borðað. „Gestirnir stoppa síðan eftir því sem þeir geta, sumir fara í önnur jólaboð en aðrir eyða öllum degin- um hjá okkur og staldra við fram á nótt.“ Addú og Brósi nostra við gesti sína, þau útbúa jólapakka handa hverjum og einum og setja undir jólatréð. Það kemur í Ijós að þau eru allt árið að huga að þessum litlu pökkum þegar þau rekast á eitthvað sniðugt hér heima og í út- landinu. Prófar alltaf eitthvað nýtt Brósi segir að Addú beri hitann og þungann af matseldinni á heim- ilinu. „Hún er meistarakokkur og nýtur þess að matreiða fyrir vini sína. Eg er á hinn bóginn í sæl- keradeildinni og baka yfirleitt sörur og bý til konfekt fyrir jólin.“ -En er Addú þá ekki í margar vikur að undirbúa hlaðborðið? „Nei, alls ekki. Ég er frekar skipulögð og er að dútla mér við þetta nokkur kvöld. Margt má frysta og búa til fyrirfram. Lykilat- riði er kannski að mér finnst þetta gaman.“ Addú segir að yfirleitt búist gest- irnir við sömu réttunum en hún prófar líka alltaf eitthvað nýtt fyrir hvert boð. „Við erum alltaf með reykta bayone-skinku, sveskjur og rósa- kál. Á borðum er líka graflax með sósu og fylltum eggjum sem alltaf eru voða vinsael. Þá erum við með síldarrétti, kartöflusalat og hrásalat. Ostabakkinn er alltaf á sínum stað, söltuð nautatunga, rækjupaté og í fyrra bauð ég í fyrsta skipti upp á maríneraða sjávarrétti. Þá er alltaf ein köld og ein heit sósa á borðum sem passar með öllu og brauð auðvitað." Auk þessa segist Addú FEÐGARNIR Brósi og Viktor Davíð hafa fyrir sið að fara út að borða í hádeginu á aðfangadag. Morgunblaðið/Golli BRÓSI segist skipta út jólatrésskrautinu á nokkurra ára fresti. „Ég freistast oft til að kaupa jólaskraut í Bandaríkjunum. Það er engu líkt.“ búa til „sérrítriffle" og svo eru sæt- indin hans Brósa á borðum. Jólasnafsinn rauður Brósi segist hafa bakað sörur með Guðbjörgu, sem unnið hefur hjá honum á stofunni í rúm 16 ár. „Síðan geri ég nokkrar tegundir af góðu konfekti þegar vel liggur á mér fyrir jólin. Jú, og svo gerum við alltaf jólasnafs og líkjör. í jólasnafsinn nota þau hrútaber. „Við setjum til helminga hrútaber og vodka. Með tímanum verða berin hvít og mjöðurinn jólarauður og það er mjög sérstakt bragð af snafsinum og hann er alltaf borinn fram frosinn í klakastykki." Hann skýtur því inn í að laufa- brauð bjóði þau alltaf uppá og það sé henni Guðrúnu Jörgensen að þakka. Hún hefur fært Brósa laufa- brauð og smákökur í 24 ár eða síðan Brósi opnaði hársnyrtistofu hér í Reykjavík. „Guðrún var einn af fyrstu við- skiptavinum mínum og það voru ekki amaleg kynni af Reykjavíkur- konum að kynnast Guðrúnu fyrst.“ Feðgarnir út að borða Brósi og Addú eiga einn son, Viktor Davíð, og alveg frá því hann var smágutti hefur Brósi haft það fyrir sið að bjóða honum út að borða í hádeginu á aðfangadag. „Við byrjuðum nú á þessu fyrir al- gjöra tilviljun feðgamir. Viktor Davíð hefur líklega verið 6 ára gamall og við vorum niðri í bæ f útréttingum þegar svengdin sagði til sín. Það var eiginlega allt lokað en við enduðum í brauði og súpu á Borginni. Þar voru herrar að borða og létu ekki raska ró sinni að aðfangadagur væri runninn upp. Ég ákvað að þetta skyldi ég gera árlega, bjóða synin- um út að borða á aðfangadag. Addú kann að meta þetta, hún hefur eldhúsið í friði fyrir okkur og fær ró og næði til að sinna því sem þarf. Þessi siður hefur allt frá þessu verið í heiðri hafður og undanfarin ár höfum við feðgarnir snætt á Hótel Loftleiðum í hádeginu. Við tókum upp á því að bjóða hvor sín- um vininum með. Það gerum við enn í dag og hyggjumst halda þessum sið áfram um ókomin ár.“ Jólatréð stærra en gestirnir Það er alltaf stórt jólatré á heimili Brósa og Addúar. „Ég vill að jóla- tréð sé hærra en allir gestirnir og ég vil að það sé tilkomumikið. í mörg ár rogaðist ég með risastórt lifandi jólatré upp á fjórðu hæð en undanfarin tvö ár hef ég verið með gervitré." Honum finnst skemmtilegt að skreyta jólatréð og segist skipta út jólatrésskrauti með nokkurra ára millibili. „Mér finnst gaman að breyta til og núna er ég aðallega með rauð epli, litla kristalmuni og gyllt skraut.“ Skrautinu viða þau að sér smátt og smátt þegar þau rekast á eitt- hvað sem þeim finnst fallegt. Brósi er strax farinn að velta fyrir sér öðru jólatrésskrauti og segir að hann sjái fyrir sér að lítil leik- föng yrðu falleg á trénu um næstu jól. Aðventuboð fyrir starfsfólkið Brósi og Addú eru alltaf með boð fyrir starfsfólkið sitt í byrjun aðventu og þá eru þau búin að skreyta allt hátt og lágt. „Það kem- ur sér vel því það er mjög mikið að gera hjá okkur á stofunni í desem- ber.“ Addú eldar sjálf og þau segja að gott sé að eiga þessa stund áð- ur en annatíminn hefst í vinnunni. Við föluðumst eftir uppskriftum hjá Addú, höfðum heyrt að fylltu eggin hennar væru ómótstæðileg og maríneruðu sjávarréttirnir henn- ar væru engu líkir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.