Morgunblaðið - 28.11.1998, Side 39

Morgunblaðið - 28.11.1998, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1998 C 39 Tökum þatt í uppbysgingarstarfi fatlaðra v,fur\m m,^4RlHELG ASVfj; Subaru esTer SUv Síiöa ^Sub^'^»feStÍ,ð *r 6^000.. Hei(dfl« ______°'794 °0Ð.- i* . erO Kattfr,élsír ""%%SP- Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra rekur almenna þjálfunarstöð og sumarbúðir fyrir fötluð börn. Þátttaka almennings í símahappdrættinu hefur gert félaginu kleift að byggja upp aðstöðu fyrir fötluð börn og unglinga. EINFALDLEIKINN er oft fallegastur. „ILMUR af eplum minnir mig á jólin og mér finnst epli alltaf svo falleg í jólaskreyt- ingar,“ segir Hlín. VERNDARENGILLINN hefur verið í búðinni frá upphafi og þrátt fyrir mörg tilboð er hann ekki falur. segir Hlín afsakandi. „Ég hef verið að velta þessu fyrir mér og býst við að ég noti vír og búi til flækjur, búi til svona krúttlegan álfavír," segir hún til útskýringar og krullar út í loftið með höndunum. Þeir sem heimsækja búðina hennar í Mosfellsbænum skilja þetta alveg, að hún geti ekki búið til kalda skreytingu. „Veistu, ég er að hugsa um að búa til svona skreytingar með eikarlaufum og einhverju í plómulit svo þær verði aðeins hlýlegri!“ - Gefst ykkur tími til að undirbúa jólin heima? spyr ég og ákveð að víkja frá öllu tali um kaldar skreyt- ingar? „Eiginlega ekki,“ segja þau bros- andi og bæta við að síðustu jól hafi verið skrautleg. „Við unnum aldrei undir 16 klukkustundum allan des- ember og á Þorláksmessu skriðum við heim um fimm um morguninn og vorum mætt aftur um 8 á að- fangadagsmorgun." Hlín segir að þrátt fyrir álag á jól- unum passi þau alltaf að fara til foreldra sinna og svo að leiði bróð- ur hennar á aðfangadag. „Ég fer með Faðir vorið og tala við Palla. Þessi ferð i kirkjugarðinn gengur fyrir öllu þennan dag. Nú, svo för- um við heim og á meðan ég er í baði eldar Sigþór. Við höfum það voðalega notalegt saman, hann er búin að dekka borð þegar ég kem fram og ilmurinn af hamborgar- hryggnum er um allt hús.“ Sigþór segir að sér finnist rosalega gaman að elda og hann hefur aldrei farið eftir uppskriftum þó nóg sé til af matreiðslubókum í húsinu. „Það á betur við mig að prófa mig áfram. Á aðfangadag erum við alltaf með hamborgarhrygg með waldorf salati, sósu og brúnuðum kartöflum. Það er fastur liður á þessu heimili." í náttfötunum á jóladag Þau fara síðan í miðnæturmessu í Lágafellskirkju og finnst það yndis- leg stund. Jóladagur er heilagur í þeirra huga, þau eru í náttfötunum langt fram eftir degi og borða af- ganga. Þegar degi tekur að halla er farið til foreldra annars hvors þeirra og borðað jólahangikjöt. Daginn eftir fara þau síðan í vinnuna og eftir hana heimsækja þau þá foreldra sem ekki var farið til á jóladag. „Við erum bæði mjög hænd að foreldrum okkar og fjölskyldum og hittum þau við hvert tækifæri," útskýrir Hlín. „Einu sinni vorum við nú með jólaboð fyrir alla fjölskylduna,“ seg- ir Sigþór eins og það sé einsdæmi í sögunni. Og þau segja að það sé raunin, tími fyrir jólaboð er enginn þegar fólk er í verslunarrekstri. Englar um allt hús -Þessir englar sem eru um allt hús. Ertu bara með þá á jólunum, Hlín? „Nei, allan ársins hring. Ég er svo veik fyrir allskonar englum og mér líður svo vel með þá nálægt mér. Við erum meira að segja með einn verndarengil í búðinni sem er búinn að vera þar frá upphafi. Margir hafa boðið í hann en hann verður alltaf hjá okkur í búðinni. Það er einhver ró sem fylgir englum." - Hvað minnir ykkur helst á jól? „Ilmurinn af rauðum eplum minnir mig alltaf á jólin,“ segir Hlín. „Frændi minn gaf okkur alltaf kassa af eplum fyrir jól þegar ég var barn og ég man ennþá tilfinninguna þegar við feng- um eplin. Þá voru komin jól. Ég veit ekki hvort það tengist þessari minn- ingu en ég skreyti alltaf mikið með rauðum eplum, bæði heima og í búðinni. Það þarf ekki nema mynd- arlega hrúgu af rauðum eplum og þá er orðið jólalegt. Það má líka nota epli í skreytingar, skera úr þeim fyrir kerti eða þurrka eplasneiðar." -Hvað með jólakort. Gefið þið ykkur tíma til að skrifa jólakort? spyr ég efins. „Hér með óskum við öllum vinum okkar gleðilegra jóla og. . . Nei, því miður, þá hefur það nú gleymst oft í öllu amstrinu. Kannski tökum við upp á því að skrifa jólakort í janúar því okkur finnst svo gaman að fá jólakveðjur.1' Sigþór samþykkti að gefa les- endum uppskrift að jólamatnum en hann notar aldrei mál og vog og því verður tilfinning að ráða ferðinni hjá lesendum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.