Morgunblaðið - 28.11.1998, Page 51

Morgunblaðið - 28.11.1998, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1998 C 51 HE5MS UM BÓL mnr tmmingasrrem ★ prestur SA jólasálmur sem ég man best eft- ir úr æsku er Heims um ból við texta Sveinbjarnar Egilssonar," segir sr. Sigurður Arnarson, prestur f Grafar- vogskirkju. Hann kveðst þeirrar skoðunar að ekki eigi að syngja Heims um ból fyrr en á aðfanga- dagskvöld, „enda bærast alltaf til- finningastrengir með mér þegar ég heyri þennan sálm og þá finnst mér jólin komin, allt orðið heilagt. Ég held að í æsku hafi ég fyrst heyrt Heims um ból í ríkisútvarpinu, en á æskuheimili mínu var alltaf hlustað á aftansöng frá Dómkirkjunni á að- fangadag. Að honum loknum vildi ég snúa mér beint að því að opna pakkana, þótt þeir sem eldri voru væru aðeins búnir með forréttinn og ættu rjúpurnar eftir. Vissulega var ég ekki alls kostar ánægður með það, þótt ég segði það ekki beint út, hversu lengi fullorðna fólkið var að borða hátíðarmatinn, sérstaklega elsti bróðir minn. Mér fannst hann borða allt of margar rjúpur og allar mjög hægt. Á minn „hógværa" hátt datt mér í hug að hann gæti byrjað að borða á undan okkur hinum, til dæmis kl. 17, svo hægt væri að vinda sér í að opna alla litríku og fal- legu pakkana um leið og Heims um ból hafði hljómað í útvarpinu." Sr. Sigurður segir að í barnsminn- inu sé ofarlega fallegur söngur jóla- laga Mahaliu Jackson og annarra góðra söngvara, sem faðir hans hélt < -S3 ITj mikið upp á. „Á menntaskólaárunum fór svo alltaf sérstök tilfinning um mig þeg- ar ég heyrði Last christmas I gave you my heart með Wham-dúett- inum og raunar gerir þessi tilfinning ennþá vart við sig þegar ég heyri lagið. Margir af minni kynslóð þekkja það og hafa tekið ófá dansspor við það.“ Miklar annir eru hjá prestum á aðventu, hjá sr. Sigurði jafnt sem öðrum, segir hann að ekki gefist mikill tími til að sækja að- ventu- og jólatónleika. „Við hjónin reynum þó að fara að minnsta kosti á eina eða tvenna jólatónleika. Síðustu ár hefur Jólaóratoria J.S. Bachs verið afar vinsæl á heimilinu. Diskur sem ber heitið Jólatónleikar með Kammersveit Reykjavíkur er líka mjög vinsæll og eru þar leikin verk eftir Vivaldi, Albinoni, Fasch og Corelli. Einnig þykja mér mjög fal- legar mótetturnar Mig huldi dimm og döpur nótt og María fer um fjallaveg eftir Johann Eccard, sem og sálmurinn Fögur er foldin eftir Matthías Jochumsson. Þá fyllist ég alltaf einhverjum sérstökum eld- móði og gleði.“ Hálfrökkvuð kirkja finnst sr. Sig- „VILDI opna pakkana þegar búið var að syngja Heims um ból, en elsti bróðir minn borðaði allt of hægt, svo allir þurftu að bíða eftir honum.“ urði góður staður til að hlusta á fal- lega tónlist. „Það hefur róandi og góð áhrif,“ segir hann. „Mér finnst aftur á móti allt of mikið af glymj- anda í sumum verslunum fyrir jólin, spennu og látum sem æsa mig og aðra bara upp. Mér finnst gott að koma heim til mín eftir annasaman dag, leggjast upp í sófa og láta þreytuna líða úr mér við að hlusta á róandi og fallega tónlist. Það hjálpar mér að safna kröftum til að takast á við margbreytileika lífsins og tilverunnar." HANDVERK Ú R GLERI COLOMBINE BY GUNNEL SAHLIN KOSTA BODA • S-568 9122 • KRINGLAN 8-12 KOSTA BODA SINCf 1742 Morgunblaðið/Golli „SPILA uppáhaldsjólalagið ekki fyrr en á aðfangadag. Annars fyndist mér ég vera að þjófstarta." * sönflhna (Vl VERÐ AÐ HEYRA í Mmmíu jackson SVAVA Kristín Ingólfsdóttir, söng- kona og söngkennari, hefur átt sama eftirlætisjólalagið í mörg ár, Silent night, eða Heims um ból, með söngkonunni Mahaliu Jackson. „Ég verð að heyra í henni um jólin, annars held ég að mér þætti lítil jólastemmning," segir Svava Kristin. „Silent night hefur um árabil hljómað hjá mér kl. 18 á aðfangadag og þar með ganga jól- in í garð á mínu heimili.“ Hún heyrði fyrst í Mahaliu Jackson þegar hún var 18 ára. „Þá söng ég með Pólýfónkórnum og hafði mikinn áhuga á sígildri tón- list. Móðurbróðir minn ákvað að gefa mér plötu, sem hann hélt sjálfur mikið upp á, og færði mér að gjöf jólaplötu með þessari stór- kostlegu djasssöngkonu. Gjöfin hitti sannarlega í mark, þvi síðan hefur Mahalia Jackson verið í upp- áhaldi hjá mér. Hún hefur einstaka rödd og túlkar tónlist af þvílíkri inn- lifun að jafnvel ómúsíkalskasta fólk gæti ekki annað en hrifist." Á aðventu syngur Svava Kristín mikið í kirkjum og æfir auk þess ýmis jólalög með kórum sem hún stjórnar. „Ég hlusta því ekkert sér- lega mikið á jólatónlist heima hjá mér í desember, þótt Jólaóratoría Bachs sé oft í geislasþilaranum á jólaföstunni." Svava Kristín segist alla tíð hafa verið tilfinninganæm og dramatísk í sér. Þess vegna hafi áhrifamikil tónlist alltaf höfðað til sín. „Ein- mana á jólanótt, lag sem Diddú söng eitt sinn á jólaþlötu, finnst mér til dæmis mjög fallegt og ekki að undra, því mér finnst fátt dramatískara en tilhugsunin um að einhver skuli vera einmana á jóla- nótt.“ Þótt Silent night sé uþpáhalds- jólalag Svövu Kristínar freistast hún ekki til að hlusta á það fyrir jól. „Nei, þetta er jólalagið mitt, ef ég hlustaði á það á aðventunni fyndist mér ég vera að þjófstarta. Klukkan sex á aðfangadag er það spilað og síðan öðru hvoru þar til á þrettándanum, en þá fer geisladiskurinn ofan í skúfifu og er þar til næstu jóla.“ J)lóina/n 7lCosfeíís6t )CE Háholt 24 við Vesturlandsveg Sími 566 8588 Fataefni - Fataefni Aldrei meira úrval í Jólafötin. Glæsilegt úrval af VELUREFNUM, LOÐEFNUM, SAMKVÆMISEFNUM ofl. ViRKA Mðrkfn 3 - S: 568-7477 opið lau. 10-16 tll 20 des. Við bjóðum nú ótrúlegt úrval af vönduðum borðstofuhúsgögnum á góðu verði frá hinu heimsþekkta fyrirtæki Skovby <35 h usqöqn Armúla 8 -108 Fleylqavík Sími 581-2275 ■ 568-5375 ■ Fax 568-5275

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.