Morgunblaðið - 08.12.1998, Side 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
^/Álftamyrár-T
^7 sk®y
undirgöng Fram.
heimili
Óskin er um göngubrú á
móts við Fram-heimilið
/; Tekin hefur verið ákvörðun
um byggingu göngubrúar
á móts við Grundargerði
*
Qsk um göngubru yfír Miklubraut við Fram-heimilið
Aðalskipulag gerir
ekki ráð fyrir brú
EKKI er gert ráð fyrir göngu-
brú yfir Miklubraut milli Háa-
leitisbrautar og Kringlumýrar-
brautar á gildandi Aðalskipu-
lagi Reykjavíkur en íbúar í ná-
grenninu hafa óskað eftir að
göngubrú verði sett yfír götuna
á móts við Fram-heimilið. Sam-
kvæmt fjárhagsáætlun borgar-
innar er gert ráð fyrir að reist
verði ný göngubrú yfír Miklu-
braut til móts við Grundargerði
á árinu.
„Á skipulagi er ekki gert ráð
fyrir göngubrú yfir Miklubraut
til móts við Fram-heimilið,“
sagði Sigurður Skarphéðinsson
gatnamálastjóri.
Benti hann á ágæt göngu-
tengsl yfír götuna á ljósum uppi
við Háaleitisbraut og önnur
niðri við Kringlumýrarbraut
auk þess sem undirgöng væru til
móts við Kringluna.
„Eg hefði kosið að skoðaður
yrði sá möguleiki að setja upp
girðingu í miðeyjunni þannig að
ekki væri hægt að fara yfir göt-
una annars staðar en á ljósum
eða um undirgöngin,“ sagði
hann. „Þarna eru fímm akrein-
ar, hröð umferð og Ijölmenn
íbúðahverfi og augljóst að eitt-
hvað þarf að gera. Eg hefði því
talið eðlilegast að varna því að
fólk færi yfír götuna á meðan
áttum er náð því brúin er ekki á
áætlun og það tekur þónokkurn
tíma ef vilji er til að setja hana
upp í framtíðinni.“
Sigurður sagði að endanleg
staðsetning göngubrúar yfír
Miklubraut til móts við Grundar-
gerði lægi ekki fyrir fyrr en
samningar hafa tekist við lóðar-
eigendur í Skeifunni norðan við
götuna. „Það er búið að ákveða
leguna í meginatriðum,“ sagði
hann. „En við verðum að hafa
samráð við lóðarhafa og þeim
samningum er ekki lokið.“ Sagði
hann að samið yrði við sömu
hönnuði og hönnuðu göngu-
brúna við Rauðagerði og að tek-
ið yrði mið af þeirri brú. „Við
ætlum að reyna að ná niður
kostnaði með því að nýta eins og
hægt er þær teikningar sem
þegar liafa verið unnar af þeirri
bi-ú,“ sagði hann.
Formaður Fram um kæru KR vegna notkunar nafns
Segir málatilbúnað
KR vera fráleitan
SVEINN Andri Sveinsson, formað-
ur Fram, segir að kæra Knatt-
spyrnufélags Reykjavíkur til Sam-
keppnisstofnunar vegna nafnsins
Fram - Fótboltafélag Reykjavíkur,
komi mjög á óvart vegna þess að
Fram hafi ekki fengið svo mikið sem
eitt bréf frá KR um þetta efni. Mála-
tilbúnaður KR sé auk þess fráleitur.
Hlutafélagið Fram - Fótboltafélag
Reykjavíkur lagði inn beiðni til
Einkaleyfastofu í september sl. um
nafnið Fótboltafélag Reykjavíkur og
FC Reykjavík.
Sveinn Andri segir að nafn hluta-
félagsins sé Fram - Fótboltafélag
Reykjavíkur. Ekki sé hægt að kippa
út hluta nafnsins og halda því síðan
fram að afgangur þess líkist nafni
annars félags.
Auk þess sé þarna um að ræða
nafn á hlutafélagi sem á engan hátt
sé aðili að íþróttahreyfingunni.
„Þetta er félag sem Knattspyrnufé-
lagið Fram hefur samið við um að
annast fyrir sig rekstur á meistara-
flokki og 1. og 2. flokki. ÍSÍ og
íþróttahreyfingin kemur því ekkert
að þessu máli,“ segir Sveinn Andri.
Hann segir að þar fyrir utan sé
alls ekki um sama nafn að ræða held-
ur sé hluti af því samheiti rétt eins
og nafn KR. „Samkvæmt þeirra
túlkun gæti félag ekki borið heitið
Knattspyrnufélagið Fálkinn þar sem
það er samheiti við Knattspyrnufé-
lagið Valur. En það sem skiptir hvað
mestu máli er að Knattspyi'nufélagið
Fram hét Fótboltafélagið Fram
Reykjavík áður en íslenskusinnaðir
aðilar breyttu nafninu. Breytingin
yfir í Fram - Fótboltafélag Reykja-
víkur er því ekki stórvægileg,“ segir
Sveinn Andri.
KR getur ekki eignað
sér nafn Reykjavíkur
Bein þýðing á nafninu á ensku sé
Reykjavik Football Club og rök KR
séu þau að það sé einmitt það nafn
sem þeir noti. Ekki þurfi annað en að
skoða tilkynninguna til hlutafélaga-
skrár til að sjá að félagið er kallað
upp á ensku Fram FC Reykjavik.
Þar fyrir utan hafi Fram ávallt
keppt undh- heitinu Fram Reykjavik
í Evrópukeppni og Valur haft heitið
Valur Reykjavik. Hætta á ruglingi
liggi því í notkun á nafninu Reykja-
vík.
„Það er útilokað að KR geti eignað
sér nafn Reykjavíkurborgar," segir
Sveinn Andri.
Sveinn Hjörtur Hjartarson,
hagfræðingur LÍÚ
Gífuryrðum
olíufélaganna
vísað á bug
SVEINN Hjörtur Hjartarson, hag-
fræðingur hjá Landssambandi ís-
lenskra útvegsmanna, segist standa
við þau orð sín að engin breyting
hafi orðið á verði á olíu hérlendis
síðustu þrjá mánuði. Hann segir að
olía til skipa sé á bilinu 3,73 kr. til
5,15 kr. dýrari hver lítri hérlendis
en á fimm stöðum erlendis þar sem
hann hafi kannað verð í gær. Sveinn
Hjörtur kveðst vísa á bug gífuryrð-
um forstjóra olíufélaganna í sinn
garð sem dauðum og ómerkum.
Sveinn Hjörtur segir að í Noregi
sé útgerðarmönnum boðin olía um
borð í fiskiskip á 6,96 kr. lítrann. Sé
siglt með olíu út á nimsjó og hún
seld þar um borð er verðið 9,13 kr. í
Hirtshals í Danmörku fáist olía á
7,67 kr. lítrinn, 7,14 kr. lítrinn í Hull
í Englandi, 8,15 kr. lítrinn í Brem-
erhaven í Þýskalandi og í Færeyj-
um sé opinbera verðið hjá Shell 9,09
kr. lítrinn en Sveinn Hjörtur segir
að verðið sé lægra í raun, eða 8,56
kr. lítrinn.
Fjöldi kaupir olíu á listaverði
„Þetta er það verð sem íslenskum
fiskiskipum er boðið í dag. For-
svarsmönnum olíufélaganna er vel-
komið að nálgast hjá mér símanúm-
er, kanna þetta sjálfir og leita sér að
nýjum birgjum óski þeir þess. Olíu-
félögin hér eru langt í frá að bjóða
sambærilegt verð og er í nálægum
löndum. Ég stend við þá fullyrðingu
og vitna til þessara verða sem eru
gefin út 7. desember sl.,“ segir
Sveinn Hjörtur.
Hann segir að útsöluverð í fyrr-
greindum löndum sé í meira sam-
ræmi við verð á Rotterdammarkaði
en verð hér á landi. „Varðandi orð
Kristins Björnssonar, forstjóra
Skeljungs, um að ekkert sé að
marka verðski-á fyrirtækisins vil ég
segja það að ég miða fyrst og
fremst við það verð sem fyrirtækið
gefur upp. Fjöldinn allur af mínum
umbjóðendum kaupir olíuna á því
verði. Ég veit hins vegar að þeir
sem staðgreiða olíuna og gera
magnsamning fyrir eitt ár fá 3-4%
staðgreiðsluafslátt," segir Sveinn
Hjörtur.
Hann kveðst ekki kannast við
tryggingar af því tagi sem Kristinn
nefnir að viðskiptavinir fyrirtækis-
ins geti keypt til að verð á olíu til
þeirra fylgi betur breytingum á
heimsmarkaði.
„Það er ekki heldur verið að
bjóða viðskiptavinum heimsmark-
aðsverð heldur er örfáum stórum
viðskiptavinum boðið að verðið
sveiflist í takt við markaðsverð er-
lendis sem er sama krafa og ég fer
fram á fyrir íslenska útvegsmenn,"
segir Sveinn Hjörtur.
Frumvarp til laga um breytingu
á iögum um opinber mál
Rannsókn heim-
iluð á rangri
fangelsisvist
FYRIR ríkisstjórnarflokkunum ligg-
ur stjómarfrumvarp til laga um
breytingu á lögum um meðferð opin-
berra mála.
Verði það samþykkt á Alþingi verð-
ur komin lagaheimild fyrir ríldssak-
sóknara á því að hefja opinbera rann-
sókn á tildrögum þess að Magnús
Leópoldsson sat saldaus í gæsluvarð-
haldi á fjórða mánuð vegna rannsókn-
ar á hvarfi Geirfinns Einarssonar fyr-
Greiddi fyrir
vatnsnotkun í
óbyggðum skúr
Innheimta
byggðá
samþykkt
VEITUSTOFNANIR Hvera-
gerðis funda í dag um niður-
stöðu dóms Héraðsdóms Suð-
urlands, sem kveðinn var upp á
föstudag. Var hitaveita bæjar-
ins dæmd til að endurgreiða
burtfluttum Hvergerðingi 43
þúsund ki’ónur fyrir vatnsnotk-
un í bílskúr, sem aldrei var
byggður.
Um þrjátíu ár eru síðan hita-
veitan fór að taka gjald fyrir
vatnsnotkun í bílskúmum
óbyggða, en skýringu á gjald-
tökunni má finna í heimild hita-
veitunnar til að taka gjald fyrir
vatnsnotkun á hvern fermetra í
sérhverju húsnæði, sem á ann-
að borð hefur fengist bygging-
arsamþykkt fyrir hjá bænum,
burtséð frá því að hversu mikl-
um hluta eigandi hefur nýtt sér
byggingarleyfið.
„Það kemur fram á reikning-
um okkar af hversu miklu flat-
armáli við erum að innheimta
og ef menn reka augun í það að
það sé meira en þeir hafa
byggt, þá er hægt að fá leið-
réttingu á því,“ segir Guð-
mundur Baldursson veitustjóri.
Leiðréttingin felst í að fella nið-
ur byggingarleyfi og þar með
lækkun á fermetrafjölda til
samræmis við flatarmál hús-
næðis sem byggt var.
ir rúmum tveim áratugum. Þá laga-
heimild vantaði þegar Magnús óskaði
eftir slíkiá rannsókn hjá ríkissaksókn-
ara á síðastliðnu sumri.
Jón Steinar Gunnlaugsson hæsta- ,,
réttarlögmaður ritaði dómsmálai’áð-
herra bréf fyrir hönd Magnúsar,
þess efnis að lagaheimildarinnar
skyldi aflað. í einum þætti fram-
varpsins er orðið við erindi bréfsins,
því með frumvarpinu er opnað fyrir
þann möguleika að hefja rannsókn
mála þótt sakir séu fyrndar. Sú sé
niðurstaða dómsmálaráðuneytisins
og réttarfarsnefndar eftir að hafa
farið yfir ósk Magnúsar Leópolds-
sonar að sögn Þorsteins Pálssonar
dómsmálaráðherra.
„Efth- sem áður er það ákvörðun
ríkissaksóknara í hverju tilviki að
taka ákvarðanir um rannsókn, en
þetta opnar möguleika á að slíkar
rannsóknir geti farið fram,“ segir
Þorsteinn.
Mjög góðar fréttir
Fleiri sátu saklausir í varðhaldi
vegna rannsóknai’ Geh’finnsmálsins,
þeirra á meðal Einar Bollason. Hann
segir of snemmt að segja til um hvort
hann muni einnig krefjast rannsókn-
ar á tildrögum þess að hann sat í
fangelsi, verði frumvai’pið að lögum,
en segist engu að síður fagna fram-
taki dómsmálaráðaráðherra.
„Þetta eru vissulega mjög góðar
fréttir, en ennþá betri verða þær
þegar maður sér að þetta er komið
fram og verður samþykkt,“ segir
Einar.