Morgunblaðið - 08.12.1998, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
PRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1998 23
Aukinn útflutningur á íslenskri hitaveituþekkingu
VAG ehf. með verkefni
í Tyrklandi og Rúmeníu
FRÁ niðursetningu djúpdælunnar í Tyrklandi. Árni fagnar verk-
áfanga ásamt tyrkneskum samstarfsmönnum sínum.
TYRKIR slátra gjarnan hrúti þegar ný mannvirki eru tekin í notkun
og það var gert við vígslu djúpdælunnar í Izmir (Smyrna).
VERKFRÆÐISTOFA Árna Gunn-
arssonar ehf. (VÁG) hefur lokið nið-
ursetningu dælusamstæðu fyrir
jai'ðhitaverkefni í vestanverðu Tyrk-
landi og samið um sölu og niðursetn-
ingu á annarri til viðbótar. Heildar-
umfang verksins nemur tugmilljón-
um ki'óna og mun kerfíð þjóna hverfi
með 25 þúsund íbúum. Þá er VÁG að
hefja vinnu við nýtt jarðhitaverkefni
í Rúmeníu og heildarkostnaður við
það verk er áætlaður 26 milljónir
króna.
Árni Gunnarsson hefur á undan-
förnum árum unnið að því að flytja
út íslenska hitaveituþekkingu og
34% meiri
sala hjá
Porsche
Stuttgart.
FRAMLEIÐENDUR Porsche, ein-
hverra hraðskreiðustu bíla heims,
segja að sala hafí aukizt um þriðjung
frá ágúst til nóvember, þar eð tekizt
hafí að sigrast á framleiðsluerfiðleik-
um, sem hafí tafíð afhendingu Boxst-
er og bíla af gerð 911.
Salan jókst í 1,68 milljarða marka,
sem er 34% aukning miðað við sama
tíma og í fyrra. Seldum bílum fjölg-
aði um 29% í 12.450 bíla, þar af 5.500
Boxster.
Fyrirtækið segir að biðpantanir
séu margar og tryggi vaxandi sölu til
júlíloka.
tekið að sér virkjun borholna og upp-
setningu stjórnkerfa fyrh hitaveitur
víða um heim, ýmist einn eða í sam-
starfí við aðrar verkfræðistofur.
Verkfræðistofa hans hefur nú lokið
við að setja niður djúpdælur í fjórum
löndum, Kína, Rúmeníu, Slóvakíu og
nú síðast Tyrklandi, þar sem stofan
hefur tekið að sér fleiri verkefni.
Á síðasta ári samdi VÁG við tyrk-
neskt einkafyrirtæki, Orme Jeot-
ermal í Ankara, um alverktöku
vegna virkjunar tveggja borholna í
Izmir (Smyrna) í vestanverðu Tyrk-
landi. I verkinu fólst smíði og af-
hending á tveimur djúpdælum ásamt
hjálparkerfum fyrir 135 gráða heitt
vatn. Lengd dælna var 150 metrar
og afköst þeirra allt að 45 sek-
úndulítrar. VÁG hafði yfírumsjón
með niðursetningu og gangsetningu
dælnanna ásamt þjálfun starfs-
manna og er því verki lokið. I fram-
haldi af því verki náðust samningar
við tyrkneska fyrirtækið um kaup á
einni dælusamstæðu til viðbótar. Af-
hendingu er lokið en eftir er að
ákveða hvenær niðursetning fer
fram.
Mikill áhugi á frekari
framkvæmdum
Tyrkneska fyrirtækið nýtir heita
vatnið til upphitunar íbúðarhúsa og
segir Árni Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri VÁG, að vel sé fylgst
með framvindu verksins í Tyrklandi
og mikill áhugi á frekari virkjunar-
framkvæmdum. „Tyrkir hafa sjálfir
fiki’að sig áfram við nýtingu jarðhit-
ans en aðferðir þeirra eru óneitan-
lega nokkuð frumstæðar. Jarðhita-
veita var lögð í Balcova-hverfi í Izm-
ir árið 1996 og var sjálfrennsli úr
tveimur borholum nýtt til að knýja
kerfið, sem þjónaði 2.500 íbúðum.
Aðstoð okkar snerist um að auka af-
kastagetu virkjunarinnar með því að
bora fleiri holur og setja í þær djúp-
dælur að íslenskri fyi’irmynd.
Ái-angurinn lofar góðu og er í heild
stefnt að tengingu hverfis 7.500
íbúða þar sem 25 þúsund manns
búa. Kostnaðurinn við þennan verk-
hluta nemur tugum milljónum
króna. Þetta hverfi var áður kynt
með olíu og munurinn er mikill fyrir
íbúana þar sem orkukostnaður
lækkar og mengun minnkar. Það
skiptir miklu máli hvernig til tekst
og það mun vafalaust ráða fram-
haldinu.“
Nýtt verkefni í Rúmeníu
VÁG hefur fleiri járn í eldinum og
er nú að hefja vinnu við nýtt jarð-
hitaverkefni í vestanverðri Rúmeníu.
Árni hefur áður fengist við virkjun
jarðhita þar og er því ekki ókunnug-
ur á þessum slóðum. „Þetta verkefni
er í borginni Beius, skammt frá ung-
versku landamærunum og styrkt af
Inco Copernicus-áætlun Evrópu-
sambandsins, en eitt af markmiðum
hennar er að stuðla að því að fyrir-
tæki í ólíkum löndum miðli þekkingu
og reynslu sín á milli. Verkefnið
snýst um virkjun borholu með dælu
sem er átta tommur að breidd og 150
metra löng. Vatnshiti er áætlaður 84
gráður. Við sjáum um smíði hermi-
líkans fyrir jarðhitakerfið og gerum
vinnsluspár. Þá gerum við áætlanir
um uppbyggingu á hagkvæmustu
nýtingu jarðhitans og tilheyrandi-
dreifikerfi. Að lokum verður sjálft
jarðhitakerfið álagsreynt í sex mán-
uði.“
Heildarkostnaður við þennan
verkhluta er áætlaður 24 milljónir og
þar af nemur styrkur frá Evreku 19
milljónum að sögn Árna.
Nýttu þér reynslu Landsbankans
r
Landsbankinn býöur þér þjónustu sína vegna hlutafjárútboðs Búnaöarbanka Islands hf. Viö tökum
við almennum áskriftum í hlutafjárútboöi Búnaöarbanka Islands hf. þér aö kostnaðarlausu.
Þjónustufulltrúi í Landsbankanum aðstoöar þig við að nálgast útboðslýsinguna og fylla út áskriftarblaðið. Við kaupum einnig kauprétt að
hlutabréfunum og greiðum þér mismun á útboðsgengi bréfanna og kaupgengi Landsbankans þegar útboði er lokið.
Þú þarft ekkert að leggja fram úr eigin vasa. Þú sækir einfaldlega um 500.000 kr. hlut að nafnvirði á útboðsgenginu 2,15 í næsta Landsbanka.
Engin þóknun er tekin og áhættan er engin því bankinn ábyrgist að greiða þér hærra gengi fyrir bréfin en nemur útboðsgengi þeirra.
Nánari upplýsingar um gengi bréfanna fást í næsta Landsbanka og i Þjónustuverinu í síma 560 6000.
Landsbankin n