Morgunblaðið - 08.12.1998, Page 25

Morgunblaðið - 08.12.1998, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1998 25 ERLENT Bandaríska flugmálastj órnin Ráðstafanir til að auka öryggi elds- neytisdælna Washington. Reuters. BANDARÍSKA flugmálastjórnin (FAA) hefur sent flugfélögum til- mæli um að tryggja að alltaf verði nóg eldsneyti í miðtönkum allra Boeing 747-þotna þeirra og hætta að nota stöðugleikatank í breiðþot- um af gerðinni 747-400 til að hindra að eldsneytisdælur þeirra ofhitni. Flugmálastjórnin gaf þessi fyrir- mæli út á fimmtudag vegna rann- sóknar á ótímabæru sliti á legum eldsneytisdælnanna. Hún sagði að þornun í eldsneytisdælunum gæti orðið til þess að neistar mynduðust og hugsanlega valdið sprengingu. FAA hefur lagt kapp á að gera eldsneytisdælur og tanka Boeing- þotnanna hættuminni til að koma í veg í'yrir flugslys á borð við það er breiðþota bandaríska flugfélagsins TWA fórst með 230 manns í júlí 1966. Sprenging varð í þotunni eftir flugtak frá New York og hún hrap- aði í hafið skammt frá borginni. Flugmálastjórnin gaf á föstudag einnig út fyrirmæli um skoðun og viðgerðir á eldsneytistönkum þotna af gerðinni Airbus-A300 vegna hættunnar á því að neistar geti myndast. ---------------- Þrír flokkar fremstir í Nígeríu ÞRIR stjórnmálaflokkar komu út úr sveitarstjórnarkosningum í Ní- geríu um helgina sem forystuöfl í því ferli sem herforingjastjómin í landinu hefur hleypt af stað í því skyni að koma á lýðræði á ný, en frjálsar þing- og forsetakosningar eru áformaðar næsta vor þegar Abdusalam Abubakar hershöfðingi hyggst láta af völdum. Svo virtist sem sex aðrir flokkar, sem hlutu minni stuðning í kosningunum um helgina, myndu ekki geta fengið skráningu hjá yfirkjörstjórn lands- ins til þátttöku í þingkosningunum. Miðjuflokkurinn PDP, sem gamall andstæðingur Sanis Abachas, fyrr- verandi einræðisherra, fer fýrir, hlaut yfir 58% fylgi. Næstur, með 25%, kom hægriflokkurinn APP, og þriðja mesta fylgið fékk Lýðræðis- bandalagið, sem er miðju-vinstri- flokkur með sterka stöðu í suðvest- urhluta Nígeríu. ------♦-♦“♦----- Höfuðpaurar IRA á fundi ÆÐSTU leiðtogar írska lýðveldis- hersins (IRA) funduðu um helgina í þeim tilgangi að ræða hvernig sam- tökin hyggjast bregðast við síaukn- um þrýstingi um að IRA afvopnist. Var greint frá þessu í The Belfast Telegraph í gær en ekki er ljóst hverjar urðu lyktir fundarins. Get- gátur eru hins vegar uppi um að IRA hyggist endurskoða stofnskrá sína, en í henni eru ákvæði sem gera útlægan hvern þann meðlim samtakanna sem lætur vopn sitt af hendi. Hefur deilan um afvopnun öfga- hópa að undanförnu stefnt friðar- ferlinu á N-írlandi í voða, enda neita sambandssinnar að hleypa fulltrúum Sinn Féin, stjórnmála- arms IRA, í heimastjóm sem komið verður á fót hefji IRA ekki afvopn- un. Afvopnun er hins vegar afar við- kvæmt mál fyrir IRA og síðast þeg- ar deilur um þetta efni settu stein í götu Sinn Féin brást IRA við með því að rjúfa átján mánaða gamalt vopnahlé sitt, með sprengjutilræði í London í febrúar 1996. Merking á framhurðir fylgir frítt með Vinnubílar og Vsk bílar Rekstrarleiga Nissan Micra 1,3 GX kr. 890.000 án vsk. Subaru Impreza 1,6 LX 4x4 kr. 1.263.000 án vsk. Reykjavík, Ingvar Helgason hf. Sævartiöföa 2 S: 525-8000 • Borgames, Bílasala Vesturlands S: 437-1577 • Akranes, Bjöm Lárusson S: 431-1B50 • ísafjörður, Bilasala Jóels S: 45B-4712 • Blönduós, Bílaþjónustan S: 452-4575 Sauðárkrókur, Bifreiðaverkst. Áki S: 453-5141 • Akureyri, Bifreidaverkst Sigurðar Valdimars. S: 461-2960 Húsavík, Víkurbarðinn S: 464-1940 • Egilsstaðir, Vélaverks. Víkingur S: 471-1244 • Reyðarfjörður, Lykill S: 474-1199 Höfn, Bílaverk S: 478-1990 • Vestmannaeyjar, Bílakaup Þorsteinn Viktorsson S: 481-1080 Selfoss, Betri Bilasalan S: 482-3100 • Keflavik, Bilasala Reykjaness S: 421-6560 Ingvar Helgason hf. Sævarhöfba 2 Sími 525 8000 www.ih.is Nissan Trade 3,0 dísel kr. 1.899.000 án vsk. Nissan Vanette 1,6 bensín kr. 1.390.000 án vsk. 2,3 dísel kr. 1.493.000 án vsk. Nissan Almera 1,4 LX kr. 999.000 án vsk. Rekstrarleiga Mánaðarlegar greiðslur á rekstrarleigu fyrir Nissan Almera eru kr. 19.567, - án vsk. Kr. 24.360,- m/vsk. (miðast við 3ja ára samning og 20.000 km akstur á ári).

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.