Morgunblaðið - 08.12.1998, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 08.12.1998, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1998 37 LISTIR Frásagnir framliðinna? LEIKLIST Itak við eyrað í Gerðubergi MÁLÞING HLJÓÐNANDI RADDA Höfundur og leikstjóri: Ása Hlín Svavarsdóttir. Leikmynd: Ása Hlín Svavarsdóttir og Egill Ingibergsson. Ljós: Egill Ingibergsson. Búningar: Ása Hlín Svavarsdóttir og Áslaug Leifsdóttir. Hljóö: Ása Hlín Svavars- dóttir. Leikarar: Ólafur Guðmunds- son og Steinunn Ólafsdóttir. Sunnu- dagur 6. desember. ÞETTA verk er að mörgu leyti forvitnilegt og felur í sér nokkra túlkunarmöguleika. Kannski ligg- ur beinast við að álykta svo að hér sjáum við framliðna hinum megin við dauðans dyr gera upp þá at- burði í lífi sínu sem mótuðu þá mest eða eru eftirminnilegastir. Hér kennir margra grasa enda persónurnar margar og mismun- andi. Upphaf og endi markar blind kona í hjólastól sem birtist svo endrum og sinnum inni í milli og talar á óræðan hátt um tilvist sína og ástand og verður margrætt um ljósið og eiginleika þess. Hugmyndirnar að baki per- sónunni virðast sóttar í þær hug- myndir sem þróast hafa hér á landi á síðustu hundrað árum um líf að loknu þessu og að tilgangur tilverunnar liggi í auknum þroska og sameiningu við alheimsafl visku og góðsemi sem táknað er með birtu. Þessi hugmyndaheim- ur hefur orðið fyrir áhrifum frá nýaldarkenningum síðustu ára, og má t.d. sjá bein áhrif í umræðunni um tónlistina. Það er áhugavert að höfundur skuli velja sér þennan hugarheim að yrkisefni, enda kemst vei’kið nálægt því að draga upp mynd sem ótrúlega margir íslendingar hafa gert að sinni, en sem sjaldan hefur sést á leiksviði eftir að blómaskeiði spmtismans lauk á fyrri hluta aldarinnar. Má minna á að Einar H. Kvaran, eitt af höfuð- skáldum íslenskum á sinni tíð, skrifaði þá leikrit sem lýstu hvað tæki við eftir líkamsdauðann og erlend verk um sama viðfangsefni nutu vinsælda. Aftur á móti tekst höfundi mjög misvel við að gæða frásagnir per- sónanna lífi. Þó að með sumum þeirra takist að skapa áhugaverða karaktera sem era dregnir skýr- um dráttum era aðrar sögurnar of brotakenndar til að ná tilætluðum áhrifum. Einnig vantaði sárlega stefnu í verkið. Ef tilgangurinn er að sýna að persónurnar þroskist með uppgjöri við atburði og líf næst hann ekki. Þær koma hver af annarri fram á sviðið og segja sög- ur og hverfa að því loknu óbreytt- ar. Ahorfendum er ekki sýnd nein sinnaskipti, þroskamerki eða neitt uppgjör. Afleiðingin er að í stað þess að sýna heim þar sem lífið á sér tilgang ríkir algert tilgangs- leysi meðal þessara flöktandi skugga, en þann skilning má líka draga af ljósahönnuninni sem gerði sviðið á stundum að skugga- veröld. í verki sem á að sýna einsemd mannskepnunnar eru samtöl af skornum skammti en þar er um leið hafnað aðferð sem er mun leikrænni og um leið auðveldari fyrir höfund sem er að leita fyrir sér um efnistök. Einræður eiga til að verða einhæfar og þó að reynt sé að forðast fábreytnina hér með því að fjölga persónunum tekst það ekki að öllu leyti. Leikurinn var heldur ekki nógu sterkur og fjölbreyttur til að fylla upp í sprangur textans. Þó að Steinunni Olafsdóttur tækist að gera skýran greinarmun á þeim persónum sem hún túlkaði jaðraði látbragð hennar í hlutverki blindu konunnar við ofieik. Olafur Guð- mundsson var of keimlíkur í öllum hlutverkunum og eintóna. Þegar taka þurfti á í leiknum og sýna geðhrif hækkaði hann röddina og kallaði. Honum tókst á engan hátt að skapa sannfærandi kvenpersón- ur heldur vöktu tilburðir hans van- trú og hlátur sem dró úr þeim áhrifum sem ná skyldi. Það er á ábyrgð leikstjóra að marka sýn- ingunni skýra stefnu og þarna hef- ur það mistekist. Búningar voru samtíningslegir en leikmynd var stílhrein og þjónaði vel hlutverki sínu. Leik- hljóð og tónlistarval voru til fyrir- myndar, og settu sterkan svip á sýninguna. Efnið er sérstaklega áhugavert og persónurnar marg- ar eftirminnilegar en verkið þarfnast meiri yfirlegu og sterk- ari framvindu til þess að ná fram heildrænum áhrifum. Sveinn Haraldsson Djass í Norræna húsinu Á HÁSKÓLATÓNLEIKUM í Norræna húsinu á morgun, 12.30, leikur tríó Tómasar R. Einarsson- ar. Á dag- skránni verða átta djass- ballöður, allar efth’ Tómas. Ballöðurnar eru flestar samdar upp- haflega við ljóð, en á þessum tónleikum verða þær fluttar í nýrri útsetningu. Tríóið skipa auk Tómasar, sem leikur á kontrabassa, Gunnar Gunnarsson, píanóleik- ari, og Matthías M.D. Hem- stock, slagverksleikari. Yfir- skrift tónleikanna er: Þegar ís- hjartað slær. Það er tilvitnun í ljóð Stefáns Hai’ðar Grímssonar Vetrardag- ur. Verð aðgöngumiða er kr. 400. Ókeypis fyrir handhafa stúd- entaskírteina. miðvikudag, kl. Tómas R. Einarsson SONGGLEÐI TONLIST Geislaplötur FRAM í HEIÐANNA RÓ Karlakórinn Heimir, Skagafirði. Stjdrnandi: Stefán R. Gíslason. Und- irleikarar: Thomas Higgerson (pí- and), Jdn St. Gislason (harmonikka), fdlagar úr Sinfóníuhljdmsveit Islands o.fl. Einsöngur: Óskar Pétursson, Pétur Pétursson, Sigfús Pétursson, Einar Hallddrsson. Kvintett: Kol- beinn og Þorleifur Konráðssynir, Gísli Pétursson, Björn Sveinsson, Kri- stján Jósefsson. Þrísöngur: Gísli, Pét- ur og Sigfús Péturssynir. Utsetningu á hljdmsveitarundirleik annaðist Sig- urður Rúnar Jdnsson, sem einnig sá um upptökur og hljdðblöndun. 1998. KARLAKORINN Heimir úr Skagafirði hefur notið mikilla vin- sælda undanfarin ár, ekki aðeins nyrðra heldur einnig héðra í höf- uðstaðnum og sennilega út um allt land, og það hreint ekki óverð- skuldað (eða hvernig mætti það vera!). Aðal kórsins er sennilega sönggleðin, og er þá ekki verið að gera lítið úr ágæti hans að öðra leyti, því hann er án efa með betri karlakórum sem hér starfa og hafa starfað lengi. Nú hefur Heimir gefið út hljóm- disk (þann fimmta) með úrvali „vinsælla laga og ljóða sem kórinn hefur flutt á tónleikum innanlands og erlendis að undanförnu við framúrskarandi góðar viðtökur áheyrenda“, svo vitnað sé í bæk- ling. Ekki veit ég nú hvort sama lögmál gildir um söngskrá sem flutt er á konsert, t.d. á Hótel Is- landi, og á hljómdiski. Satt að segja hef ég um það efasemdir, því söng- skráin eins og hún birtist á diskin- um er ákaflega sundurleit og veður úr einu í annað, eins og reyndar er algengt með plötur af þessu tagi. Og hef ég rætt það áður. Hinu er ekki að leyna að ætla má að aðdá- endur kórsins taki slíku prógrammi fagnandi, og hvað er ég þá að rausa um mínar efasemdir. Einsöngvarar, sem allir era kór- limir, era ágætir og jafn þekktir og kórinn sjálfúr. Sigurður Rúnar Jónsson hefur útsett hljómsveit- arandirleik við nokkur laganna og gert það smekklega, einkum hljóm- aði undirleikur hans á mandólín og Lilju Valdimarsdóttur og Þorkels Jóelssonai’ á franskt horn skemmti- lega (þegar hann fékk að hljóma) í Itölskum fjallasöng. Þegar kom að kórum úr óperam (Hásetakór úr Hollendingnum fljúgandi og Her- mannakór úr Trúbadúmum) var hamrað á píanóið, og verkaði það dálítið kostulega - eins og alltaf. Ekki hefur alltaf verið gætt að nógu góðu jafnvægi milli kórs og hinna sem fram koma, en kórupp- tökur eru erfiðar og þurfa hin bestu skilyrði til að njóta sín til fulls. Oddur Björnsson • GUÐMUNDUR Hafsteinsson - „Instrumental and Vocal Works“ heíúr að geyma sex verka hans: Bram, fyrir tólf blásara, sem hljóð- færaleikarar úr Sinfóníuhljóm- sveit Islands o.fl. flytja undir stjóm höfimdar. Verkið er lúðraþytur sem saminn var 1994 að beiðni Tónlist- arskóla Seltjam- amess; Hann veit- ir kraft, fyrir sópran, orgel og fjóra málmblásara, í flutningi Mörtu Guðrúnai’ Halldórsdóttur, Lenku Mátéovu, Ásgeirs Stein- grímssonar, Eiríks Arnai’ Pálsson- ar, Emils Friðfinnssonai’ og Sigurð- ar Þorbergssonar, undir stjóm höf- undar. Verkið vai’ samið 1989 að til- stuðlan Tónmenntasjóðs Þjóðkirkj- unnar og er við texta úr bók Jesaja ilmefni „J ^ájif f UiV ^ 1 AC? .■ Paskeba 'H.'XiK >;kA 4 ‘A'j.vA-'H brs AC’O liARN’ olic i L ■ ACO : - ViiN IUARN :: lotimi sipC |.! h.Wíjio r xvx*ntitNi> HDutmniwmit wd«mw-nvc ýj> mbl.is \Lurti/= e/7T«mÐ rjÝrr ACO BARN Fæst í apótekinu þínu Nýjar hljómplötur spámanns; Spuni II, fjórþáttungur fyrir einleiksfiðlu frá 1991 og sam- inn að tilstuðlan Tónlistarskólaráðs Norðurlanda. Verkið er flutt af Sig- rúnu Eðvaldsdóttur; Borgarkveðja, kvartett fyrir víbrafón, hörpu, cimbalóm og píanó í átta atriðum. Flytjendur era Pétm’ Grétarsson, Elísabet Waage, Guðmundur Haf- steinsson og Anna Guðný Guð- mundsdóttir, undir stjóm Snorra Sigfúsar Birgissonar. Verkið hlaut viðurkenningu sl. sumai’ er það var valið eitt tíu bestu verka ársins á Tónskáldaþingi útvarpsstöðva (UNESCO Rostram of Composers) í París; Hugur minn líður, fjögur nýleg sönglög við ljóð Snorra Hjartarsonar í flutningi Mörtu Guðrúnar Halldórsdóttur við píanó- undirleik höfundar, og Brannu beggja kinna björtu Ijós, tríó fyrii’ klarínettu, selló og píanó. Verkið er fjórþáttungur saminn að beiðni Musica Nova 1981 og elsta verkið á plötuni. Það er flutt af Ármanni Helgasyni, Biyndísi Höllu Gylfa- dóttur og höfundi. Tónverk Guðmundar hafa verið flutt í Bandaríkjunum og víða í Evrópu, auk Islands, og hefur hann tekið þátt í flutningi þeirra sem stjórnandi, píanisti og cimbalómisti. Þetta er í fyrsta sinn sem tónlist Guðmundar er gefin út á hljóðriti. Útgefandi er Sjö máva útgáfan, en ýmsir aðiljai• styrktn útgáfuna, þ.á m. STEF, Reykjavíkurborg, mcnntamálaráðuncytið og SPRON. Upptökur fóru fram í Fella- og Hólakirkju á sl. tveimur árum og annaðist tæknideild RÚVþær und- ir stjórn Bjarna Rúnars Bjarna- sonar tónmeistara. Dreifmg: Is- lenska tónverkamiðstöðin. Verð: 1.700 kr. Iðnaðarnefnd Sjálfstæðisflokksins Eru iðnaðarmálin á réttri leið? Opinn almennur fundur verður haldinn í Valhöll miðviku- daginn 9. desember kl. 17.00-19.00. Gestir fundarins, Haraldur Sumarliðason, formaður Samtaka iðnaðar- ins, mun ræða um: Hvað er efst á baugi í iðnaðarmálum í dag og helstu verkefnin framundan. Umræður verða á eftir framsöguerindum. Fundarstjóri: Bergþór Konráðsson, framkvæmdastjóri. Bergþór Konráðsson Haraldur Sumarllðason Landbúnaðarnefnd Sjálfstæðisflokksins íslenskur landbúnaður á nýrri öld Málanefnd Sjálfstæðisflokksins um landbúnaðarmál boðar til sjötta opna fundarins um landbúnaðarmál miðvikudaginn 9. desember, kl. 20.30 í Valhöll, Reykjavík. Framsöguerindi flytja: Fundarstjóri: Dríla Hjartardóttir, Kjartan P. Ólafsson, Pólur Ó. Helgason, Hjálmar Jónsson, Markús K. Möller, bóndi. Keldum. garðyrkjubóndi, bóndi, Hranastöðum. alþingismaður. hagfræðingur. Selfossi. Allir velkomnir Stiórmn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.