Morgunblaðið - 08.12.1998, Síða 55

Morgunblaðið - 08.12.1998, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1998 55 AÐSENDAR GREINAR þá tilfinningu að innra raeð þessum annars viðkunnanlega stjórnmála- manni leyndist lítill einræðisherra, sem væri þarna að gefa þingmönn- um flokks síns fyrirmæli um hvern- ig atkvæði þeirra ættu að falla. Að sjálfsögðu munu þingmenn Sjálf- stæðisflokksins ekki standa undir nafni, ef þeir láta þannig segja sér fyrir verkurn. Þjóðkirkjan og gagnagrunnur látinna I Morgunblaðinu 6. ágúst sl. getur að lesa yfirlýsingu frá að- stoðarmanni heilbrigðisráðherra, að ákvæði í lögum um persónu- vernd á sjúkraskrám nái ekki til látinna einstaklinga - þar hafi rík- isvaldið bæði vörslu og umráða- rétt. Hafa aðstandendur hinna látnu þar engan rétt? t*á er rétt að spyrja þá stofnun samfélagsins sem fyi-irsögn þessa kafla kallar á - íslensku þjóðkirkjuna. Lætur hún sig engu skipta meðferð þeirra trúnaðargagna sem finna má í sjúkrasögu - stundum harm- sögu þeirra einstaklinga sem prestar þjóðkirkjunnar hafa verið að jarðsyngja með bæn um að þeir mættu fá að hvíla í friði? Hvað með rétt ykkar, nánustu aðstandenda hinna látnu? Hafið þið engan rétt? Viljið þið að sjúkraskrár ykkar nánustu látinna ástvina verði að verslunarvöru hjá harðsoðnum fjárplógsmönnum? Viljið þig að mæður ykkar og feður, afar og ömmur, bræður og systur eða látin börn ykkar verði gerð að verslun- arvöru á alþjóðlegum markaði? Er allt til sölu? Hvað viljið þið láta skrá um ykk- ar eigin sjúkrasögu, ykkar eigin persónulegu hagi, sem er ykkar einkamál og það sem þið hafið trú- að læknum ykkar fyrir? A að neyða læknastétt landsins með of- beldislegri löggjöf til að brjóta þá trúnaðareiða sem hún er bundin af? Hinn nýkjörni háskólarektor og hinn nýkjörni biskup lýstu báðir yf- ir að þeir mundu gjöra stofnanir sínar sjálfstæðari en verið hefði og stuðla að því að þær létu til sín taka á samfélagslegu sviði. Há- skólarektor hefir sannarlega staðið við orð sín með því að efna til mál- þings um þau málefni sem mest hafa verið á dagskrá. Biskup hefir hinsvegar ekki látið í sér heyra fyrr en í Morgunblaðinu hinn 1. desember. Hann fer með löndum eins og við var að búast en eftirfar- andi úr grein hans ættu menn að lesa og leggja sérstaklega á minn- ið: „Margt bendir til að framfarir í læknavísindum hafi valdið hægfara uppblæstri hinnar skilyrðislausu mannhelgi sem sérhvert mannslíf telst eiga að njóta að kristnum skilningi. Framþróunin hafi farið fram úr siðferðinu og okkur sé tamt að tiúa því að úr því að eitt- hvað sé tæknilega mögulegt og hugsanlega hagkvæmt þá sé það líka rétt. Hvert mun það leiða mannkyn? Eg held að sú framtíð- arsýn sé skelfileg.“ Höfundur er fyrrv. framkvæmdastjóri. TILBOÐ Hjósmyndastofa Gunnars Sngimarssonar Suðurveri, sími 553 4852 SÍCRÆNA JÓLATRÉÐ — edaM ré etuw dr Síðustu ár hefur skátahreyfingin selt sígrcen eðaitré, í hæsta gæðaflokki og prýða þau nú mörg hundruð íslensk heimili. <•*. 7 0 ára ábyrgð Eldtraust ía 12 stærðir, 90 - 500 cm t*- Þarfekki að vökva i± Stálfótur fylgir t* Islenskar leiðbeíningar í* Ekkert barr að ryksuga Traustur söluaðili »• Trufiar ekki stofublómin ttv Skynsamleg fjárfestíng mtmMf SNORRABRAUT 60 Bandalog fdenskra skálo FYRIR FALLEG HEIMILI Glæsileg, vönduð Amerísk sófásett í miklu úrvali, sérlega mjúk og þægileg og mikil prýði fyrir heimili þitt. ei’icmi liome Collec!ion HÚSGAGNAHÖLLiN Bfldshöfðl 20 - 112 Rvík - S:510 8000 Frábært hágæða útivistarfatnaði Verslunin Skúlagötu 51, sími: 552 7425 Verslunin Faxafeni 12, sími: 588 6600 Akureyri, Glerárgötu, sími: 461 3017 66°N - Vestmannaeyjum, sími: 481 3466

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.