Morgunblaðið - 09.12.1998, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 09.12.1998, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 281. TBL. 86. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FBI birtir skjöl um Frank Sinatra Mafíu- ásakanir ósannaðar Washington. Reuters. BANDARÍSKA alríkislögregl- an, FBI, birti í gær 1.275 síður af skjölum sem hún safnaði ára- tugum saman um söngvarann og leikarann góðkunna Frank Sinatra sem lézt fyrir rúmlega hálfu ári, 82 ára að aldri. Vonazt hafði verið til að í skjölunum kæmu fram upplýsingar sem tækju af vafa um tengsl Sinatras við mafíuna og fleiri vafasöm mál sem útbreiddur orðrómur var um á meðan hann lifði. 1 skjölunum er meðal annars að fínna upplýsingar um, að ónafngreindur uppljóstrari FBI hafí haldið því fram að Sinatra hafi árið 1950 smyglað einni milljón dollara inn til Italíu fyr- ir hinn fræga mafíósa Charles „Lucky“ Luciano. Fjöldann allan af ásökunum um vinsam- leg tengsl Sinatras við ýmsa nafntogaða forkólfa mafíunnar er að fínna í skjölunum og um að Sinatra hafi verið hliðhollur kommúnistum. Af skjölunum að dæma tókst FBI hins vegar aldrei að sanna að hann hefði tekið beinan þátt í mafíustarf- semi eða að hann hefði verið kommúnisti. Ófáar hótanir I skjölunum kemur hins veg- ar fram að á löngum ferli Sinatras var enginn skortur á mönnum sem hótuðu honum öllu illu - slíkar hótanir áttu sér oft upptök í kvennamálum hans - og reyndu að kúga fé út úr honum. Ummæli nýs utanríkisráðherra Þýzkalands á NATO-fundi Yopnaleitin í írak Mælist til breytinga á kjarnavopnastefnu Kj arnor ku veldin hafna hugmynd- um Fischers Brussel. Reuters. JOSCHKA Fiseher, utanríkisráð- herra Pýzkalands, hvatti í gær Atl- antshafsbandalagið (NATO) til að sýna gott fordæmi í baráttunni gegn útbreiðslu gereyðingarvopna í heim- inum með því að lýsa því yfir að það muni ekki beita kjarnorkuvopnum að fyrra bragði. Fischer, sem er í for- svari fyrir flokk þýzkra Græningja, lét þessi ummæli falla á fundi utan- ríkisráðherra NATO-ríkjanna, sem hófst í gær, en þar var rætt um hlut- verk hernaðarbandalagsins á kom- andi öld. Fulltrúar kjarnorkuveld- anna í bandalaginu vísuðu hugmynd- um Fisehers á bug. Fischer, sem er fyrsti stjórnmála- maðurinn með rætur í friðarhreyf- ingunni sem situr ráðheirafund Joschka Fischer NATO, sagði bandalagsríkin aldrei hafa skirrst við að ræða forboðnar hugmyndir, það hefði ávallt verið styrkur NATO og að svo ætti að vera áfram. Stefnubreyting ekki á dagskrá Fulltrúar NATO sögðu ekki úti- lokað að Kanada, Noregur og Grikk- land myndu leggja þessum hug- myndum hinna nýju valdhafa í Þýzkalandi lið en kjarnorkuveldin í hópi NATO-ríkjanna, Bandaríkin, Frakkland og Bretland, höfnuðu hins vegar algerlega að láta binda hendur sínar með þessum hætti. Halldór Asgrímsson utanríkisráð- herra, sem sat fundinn, sagði í sam- tali við Morgunblaðið að það hefði ætíð verið áhugamál Islendinga að kjamorkuvopnum yrði útrýmt. Rætt hefði verið um hver væri heppilegasta leiðin til þess. Magn kjarnorkuvopna í Evrópu hefði minnkað um 80% og stöðugt væru í gangi samningar um frekari eyðingu kjamavopna. „Það liggur alveg Ijóst fyrir að það verður engin breyting á stefnu NATO í þessum málum nema að ná- ist um það algjör samstaða," sagði Halldór, „og það er ljóst að það mun engin slík breyting verða gerð á fundinum í Washington í vor.“ Þá verður hálfrar aldar afmælis banda- lagsins minnzt og að líkindum form- lega gengið frá inngöngu Póllands, Tékklands og Ungverjalands í það. ■ Rætt um hlutverk NATO/25 Skyndi- rannsdknir leyfðar Moskvu. Reuters. TAREQ Aziz, aðstoðarforsætisráð- herra Iraks, sagði í gær að Irakar væru tilbúnir að aðstoða vopnaeftir- litsmenn Sameinuðu þjóðanna við skyndirannsóknir á stöðum, þar sem gmnur leikur á að gereyðingarvopn hafí verið falin, að því tilskildu að þær fullnægðu þeim skilyrðum sem áður hefði verið samið um við SÞ. Aziz varaði hins vegar við því að Irakar léðu ekki máls á því að vopna- leitinni yrði haldið áfram lengi nema leiðtogar Vesturlanda samþykktu að aflétta viðskiptabanninu sem sett var á Irak fyrir átta árum vegna inn- rásarinnar í Kúveit. Vopnaeftirlitsnefnd SÞ (UNSCOM) hóf í gær fyrstu vopnaleitina, sem reynir á það hvort Irakar standa við loforð sín frá því í síðasta mánuði um fullt samstarf við hana. Aziz kvaðst hafa fengið upplýsingar um að eftir- litsmennimir hefðu leitað á fjórum stöðum í gær og bætti við að leitin fullnægði skilyrðum sem hann hefði samið um árið 1996 við Rolf Ekeus, þáverandi formann UNSCOM. Lokaslagur verjenda Clintons Washington. Reuters. LÖGMENN Hvíta hússins hófu í gær lokaslaginn í að afstýra því að efnt verði til málshöfðunar til emb- ættismissis á hendur Bill Clinton forseta. Þeir sögðu dómsmálanefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings að forsetinn harmaði að hafa villt um fyrir fjölskyldu sinni og þjóð, en að brot hans réttlætti ekki málshöfð- un. „Eins örugglega og við vitum öll að það sem hann gerði var syndsam- legt, þá vitum við líka að það réttlæt- ir ekki málshöfðun," sagði Greg Craig, einn lögmannanna. I dag tefla verjendurnir fram sem vitni repúblikananum William Weld, fyrrverandi ríkisstjóra Massachu- setts sem starfaði sem háttsettur embættismaður í dómsmálaráðu- neytinu í forsetatíð Ronalds Reag- ans. Hann verður 15. vitnið sem verj- endur Clintons kalla til. ■ Talið víst/22 Reuters Eftirvænting í Palestínu Krónprins Sádi-Arabíu beinir aðvörunarorðum til olíuríkjanna við Persaflóa Góðu dagarnir eru liðnir Abu Dhabi. Reuters. „VIÐ getum ekki lengur treyst á þá auðsuppsprettu, sem olían er. Þeir dagar eru liðnir og þeir koma ekki aftur.“ Þetta var boðskapur Abdullah, krónprins í Sádi-Arabíu, á fundi hjá efnahagsráði Persaflóa- ríkjanna. Hvatti hann til aukins einkaframtaks og sagði, að al- menningur yrði að venja sig af því að vera algerlega upp á ríkið kom- inn. Abdullah var ekkert að skafa ut- an af því í ræðunni, sem hann flutti að viðstöddum furstum og prinsum frá Barein, Kúveit, Óman, Katar og Sameinuðu furstadæmunum fyrir utan Sádi-Arabíu. Sagði hann, að kominn væri tími til að kalla hlut- ina sínu rétta nafni og viðurkenna, að í olíuríkjunum væri nú kreppa eins og verðlaginu á útflutnings- framleiðslunni væri nú háttað. Abdullah sagði, að gömlu, góðu dagarnir væru liðnir og kæmu ekki aftur. íbúar í ríkjunum yrðu að horfast í augu við það, að ekki væri lengur hægt að sinna öllum þeirra þörfum næstum endurgjaldslaust. Hvatti hann til aukins einkafram- taks og sagði, að ætluðu Persaflóa- ríkin að komast af yrðu þau að tengjast nánum böndum efnahags- lega og koma á einum sameiginleg- um markaði. Agreiningur milli ríkjanna hefur komið í veg fyrir það í 15 ár en Abdullah lagði til, að nú rækju ríkin af sér slyðruorðið og yrðu búin að koma á tollabanda- lagi eftir ár. Sérfræðingar í málefnum Mið- austurlanda segja, að ræða Abdullah mai’ki nokkur tímamót. Yfírleitt séu ræður ráðamanna í arabaríkjunum langar en efnislitlar en nú hafi kveðið við annan tón. Sádi-Arabía sé forysturíki í þessum heimshluta og því megi búast við, að önnur fari að þess dæmi. BILL Clinton mun hinn 14. þessa mánaðar verða fyrstur Bandaríkjaforseta til að fara í opinbera heimsókn til yfirráða- svæða heimastjórnar Palestínu- manna. Hér eru palestínskir feðgar önnum kafnir við að þerra nýprentuð veggspjöld með mynd af Clinton í prent- stofu á Gaza-svæðinu í gær. Palestínumenn hafa fagnað hinni væntanlegu heimsókn sem tákni um stuðning við fullveldi þeirra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.